Morgunblaðið - 24.08.1976, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.08.1976, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. AGUST 1976 HUSANAUSTi 5KIPA-FASTEIGNA og verðbrefasala VESTURGÖTTJ 16 - REYKJAVIK Fagrakinn, Hafnarfirði 112 fm. efri hæð i tvíbýlishúsi ásamt 80 fm. ný innréttuðu risi. 30 fm bílskúr, 40 fm. svalir. Eign í mjög góðu standi Verð 1 5.5 millj., útb. 9 millj Blómvangur, Hafnarfirði 150 fm. sérhæð með bilskúr Verð 14.5 millj , útb. 9 millj Kópavogsbraut 148 fm. sérhæð með bílskúr Mjög vönduð fullfrágengin ibúð, á góðum stað. Brekkutangi, Mosfellssveit Fokheld raðhús með bílskúr. Teiknmgar á skrifstofunm. Fast verð 7 millj. Vesturbær, Melar Glæsilegt 3ja hæða hús. Uppl. á skrifstofunni. Hraunbergsvegur, Setbergslandi 135 fm einbýlishús með tvö- földum bilskúr. Selst fokhelt eða lengra komið. Teikningar á skrif- Stofunni. Garðabær 180 fm. einbýlishús, með tvö- földum bílskúr Verð 24 millj útb. 1 4 millj. Glæsilegt embýlishús i austur- borginm Uppl. á skrifstofunni. Barónsstígur 3 herb. 96 fm. á 3. hæð með herb. og snyrtingu i kjallara. Öll nýstandsett. Verð 9.5 millj., útb. 6 millj Sigtún 3 herb. 85 fm. Sér hiti. Þvotta- herb. á hæðinni Verð 7 millj. útb. 5.5 millj. Eyjabakki 3 herb 90 fm á 3. hæð, enda- íbúð Mjög vandaðar innrétting- ar. Verð 8 millj., útb. 5.5 millj. Æsufell 4 herb. 102 fm. á 6 hæð. Glæsilegar innréttmgar, bílskúr fylgir. Verð: 11.5 millj. Vesturbær 120 fm íbúð á 1 hæð, 4 herb. Verð 7.9 millj., útb 5 millj. Öldugata 4 herb á 3. hæð. Nýstandsett Verð 8.5 millj., útb. 4.5 millj. Hólahverfi, sérhæð 148 fm. fokheld sér efri hæð 5 — 6 herb. 36 fm. bílskúr. Búið að leggja hitalögn. Glæsilegur útsýnisstaður. Teikningar á sknf- stofunni. Verð 1 1 millj írabakki 2 herb. 70 fm. á 2. hæð, fullfrá- gerigin vönduð íbúð, 2 svalír. Verð 6.5 millj., útb. 4 5 millj. Suðurvangur 3 herb. 96 fm á 1 hæð. enda- íbúð Vönduð fullfrágengin ibúð. Verð 8 míllj., útb. 6 millj. Ásbúðatröð, Hafnarfirði 120 fm. sér efrí hæð. 4 svefn- herb., bílskúrsréttur. Vönduð íbúð Verð 1 1.5 — 1 2 millj Kóngsbakki 6 herb 135 fm. á 2 hæð, vönduð vel með farin íbúð. Verð 10 millj útb 7 millj. Byggðaholt Mosfellssveit Fokhelt endaraðhús 160 fm. með innbyggðum bilskúr Selst með frágengnu þaki, gleri í gluggum og sléttaðri lóð Verð 7.3 millj , útb. 5 millj. Okkur vantar tilfinnan- lega 2ja herb. íbúðir á skrá. -HÚSANAUSTf SKIPA-fASTEIGNA OG VEROBREFASALA Lögm.: Þorfinnur Egilsson, hdl. Sölusfjóri: Þorfinnur Júlfusson Al tiI.VSIMtiASLMINN KR: . 2248D R;@ Lögfræðiþjónusta Fasteignasala Höfum opnað aftur að loknu sumarleyfi. Til sölu Við Miklubraut 3ja herb. nýstandsett ris- ibúð. Við Sigtún 4ra herb. íbúð á aðalhæð í þribýlishúsi. Bílskúr. Óveðsett eign. Við Vesturströnd Glæsileg raðhús með innbyggðum bilskúrum. Seljast pússuð utan með útihurðum og gleri. ÍStQlán Hirst hdlj Borgartúni 29 Simi223 20J 81066 Dúfnahólar 2ja herb. 65 fm. gullfalleg íbúð á 2. hæð Gott útsýni. Hraunbær 2ja herb 65 fm. góð íbúð á 3. hæð. Laus 1 sept. n.k. Garðsendi 2ja herb. snotur kjallaraíbúð. Útb. 3.5 millj. Krummahólar 2ja herb. íbúð t.b. undir tréverk. Bílgeymsla fylgir. Útb. 2.9 millj. Reynimelur 3ja herb. glæsileg íbúð á 1. hæð. Bugðulækur 3ja herb íbúð á jarðhæð í þríbýl- ishúsi. Karfavogur 3ja herb. snyrtileg risíbúð. Kaldakinn Hafnarf. 3ja herb. risibúð. Útb. 3 millj. Kóngsbakki 3ja herb. 90 fm. falleg íbúð á 1 hæð. írabakki 3ja herb. 90 fm. íbúð á 2. hæð. Hörgshlíð 3ja herb. 90 fm. íbúð á jarðhæð í þríbýlishúsi. Sérinngangur og sérhiti. Rauðilækur parhús sem er kjallari og tvær hæðir. í kjallara er 2ja herb. séríbúð. Á 1. hæð eru tvær saml. stofur, eitt herb., eldhús og gestasnyrting, á efri hæð eru 4 svefnherb., bað og skáli. Bíl- skúr. Húsið er í góðu ástandi. Hentar vel fyrir tvær fjölskyldur. Tjarnarból Seltj. 4ra til 5 herb 110 fm. góð ibúð á 2. hæð. (búðin skiptist i 3 góð svefnherb. og stóra stofu. Ibúð i fyrsta flokks ástandi Espigerði 4ra herb. 110 fm. góð ibúð á 2. hæð. Sérþvottahús. Glæsileg ibúð, Búland stórglæsilegt 200 fm endarað- hús á besta stað í Fossvogi. Húsið skiptist i 5 svefnherb., húsbóndaherb., borðstofu, stofu og gestasnyrtingu. Glæsilegt eldhús. Ræktaður garður. Bil- skúr Hús þetta er í sérflokki hvað frágang og umgengni snertir. Höfum kaupanda að 4ra herb. íbúð í Hraunbæ Höfum kaupanda að 2ja herb. ibúð i Breiðholti. &HÚSAFELL FASTEIGNASALA Armula42 81066 Luðvik Halldörsson Pétur Guömundssón BergurGuönason hdl Fasteignasalan Garðastræti 2 Sími 1-30-40 Á söluskrá m.a. Háagerði . . . Endaraðhús á 2 hæðum. 85 ferm. að grunnfleti. Efstasund . . . Stórt einbýlishús með bíl- skúr. Góður garður. Grenimelur 4 herb. sérhæð með bílskúr, 2 stór herbergi í risi. Mávahlíð . . . 120 ferm. sérhæð. Bílskúr og fallegur garður. Sigtún . . . Góð 3 herb. risíbúð í stein- húsi 85 ferm. Breiðholt . . . Höfum á söluskrá 2 — 5 herb. íbúðir í Breiðholti. Hjá okkur er mikið um eigna- skipti. Látið skrá eignir á sölu- skrá fyrir haustið. Nýjar eignir á söluskrá daglega. Málflutningsskrifstofa JÓ\ ODDSSOX hæstaréttarlögmaður, Garðastræti 2, Sími 1-30-40 Magnús Danielsson sölustj. 40087 Guðm. Baldursson, sölum. og Ágústa Pálsdóttir, sölum. 3531 1. FASTEIGN ER FRAMTlÓ 2-88-88 í Kópavogi 3ja herb. falleg endaíbúð á 3. hæð. Suðursvalir. Frágengin lóð. Malbikuð bílastæði. í Kópavogi 3ja herb. íbúð í fjórbýlishúsi. Sér hiti. í Kópavogi um 1 20 ferm. efri hæð í tvíbýlis- húsi. 4 svefnherb. stór stofa. Þvottaherb. á hæðinni. Sér inn- gangur, sér hiti. Rúmgóður bíl- skúr. Við Laugarnesveg um 1 17 ferm. 4ra—5 herb. íbúð á 2. hæð í góðu ástandi. Tvennar suðursvalir. Við Ljósheima í háhýsi. 4ra herb. íbúð með sér þvottaherb. skipti æskileg á 3ja—4ra herb. íbúð á jarðhæð eða á 1. hæð. Við Hátún snyrtileg 4ra herb. ibúð í háhýsi Mikið útsýni. Suðursvalir. Góð sameign. Við Mávahlið 4ra herb. íbúð á 1. hæð, sér inngangur, sér hiti. Skipti æski- leg á 2ja — 3ja herb. íbúð á jarðhæð eða á 1. hæð. Við Skipasund 4ra herb. 120 ferm. íbúð á efri hæð í góðu ástandi. Við Lyngbrekku 114 ferm. íbúð á jarðhæð. Sér mngangur. Sér hiti. Gott útsýni. Fokheld einbýlishús á Seltjarnarnesi og í Mos- fellssveit. Fokheld raðhús í Breið- holti og í Mosfellssveit. AÐALFASTEIGNASALAN Vesturgötu 17. 3. hæð. Birgir Ásgeirsson lögm. Hafsteinn Vilhjálmsson sölum. Kvöld og helgarsimi 82219. Gefjun stækkað Mikil framleiðsluaukning um áramót ULLARVERKSMIÐJAN Gefjun hyggur nú um þessar mundir á mikla stækkun og framleiðslu- aukningu, og þess vegna sneri fréttamaður Mbl. sér til Hreins Þormar, verksmiðjust jóra, og bað hann segja lesendum blaðsins f stórum dráttum I hverju stækkun verksmiðjunnar væri fólgin. — Já, það er rétt, þetta verður mikil stækkun — sagði Hreinn, og er einkum í tvennu fólgin. Fyrst er til að taka, að verið er að byggja vörugeymslu undir full- unnar vörur hérna sunnan við skrifstofuhúsið, og hún verður 600 fermetrar. En aðaistækkunin verður austan við vélasalinn, og sú viðbótarbygging verður um 1500 fermetrar. Vélasalurinn, sem fyrir er, mun vera um 4400 fermetrar og heildarfermetra- fjöldi verksmiðjunnar um 6400 fermetrar, svo að eftir stækkun- ina verður hann um 8500 fermetr- ar. — Við höfum pantað vélar frá Belgíu fyrir 130 milljónir króna og stækkun húsakostsins mun kosta heldur meira en þá upphæð, svo að þetta verður fast að 300 milljón króna fjárfesting. —I nýja vélasalinn eiga að koma kembivél, tvær spunavélar og lit- un. Við eigum fyrir vélasamstæðu frá sömu verksmiðju, að vísu að- eins minni, og hún hefur reynzt mjög vel. Þess vegna kaupum við við vélar frá þessari belgisku verksmiðju aftur. Byggingahraði er mjög mikill. Byrjað verður að setja vélarnar niður í september, og ég vona, að framleiðslan verði komin í fullan gang um áramót. Það veitir heldur ekki af að láta þær fara að „vinna fyrir sér“ fljótt, svo dýrar eru þær. Fjárfestingin á iíka að vera mjög arðbær og gefa skjótan arð í fullunnum vefnaðar- og prjóna- vörum, einkum til útfiutnings. Byggter á markaðskönnun, sem Geirlaugur Arnason deildarstióri 50 ára „Auðævi þjóðanna eru menn, en ekki gull“ Þessi fleygu orð eru ávallt i fyllsta gildi og hollt ihugunarefni, ekki hvað sist á yfirstandandi tíð, þegar verðmætamatið er slíkt, að nær allt, sem eftirsóknarvert er talið, er metið til fjár eða vegið á vogarskál hagvaxtar og fram- leiðni. Auðæfi þjóða eru síður en svo öll fólgin í afrakstri moldar og miða. Mest er um vert einni þjóð, að hún eigi dugandi, starfsfúsa þegna, menn með heilbrigðar lífs- skoðanir og jákvæð lifsviðhorf, er efla vilja menningu og manndóm með þjóð sinni, menn, sem ekki líta á hin ytri lífsgæði sem tak- mark heldur tæki til eflingar mannsæmandi menningarlífi og réttlátara þjóðfélagi, tæki til að vinna veröld Drottins til þarfa. Auðæfi þjóðanna eru menn, er vita skyn á skyldu sinni og vinna hvert verk af alhug, eins og Drott- inn ætti f hlut en ekki menn. Frjáls og óháð tilvera örlítillar smáþjóðar á borð við okkur ís- lendinga er öðru fremur því háð, að hún eigi heilsteypta menn með hjartað á réttum stað, eigi menn meiri og betri en aðrar þjóðir. Þessar hugrenningar bærast mér í barmi nú, er ég hugsa til nánasta samstarfsmanns mins i Árbæjarprestakalli, Geirlaugs Árnasonar, sóknarnefndarfor- manns og organista i Árbæjar- söfnuði, sem f dag á 5 tugi ára að baki. Á þessum merku tímamót- um í ævi Geirlaugs er mér bæði ljúft og skylt að nota tækifærið og þakka honum fyrir hönd safnað- arins mikil og margháttuð störf hans fyrir söfnuðinn og færa hon- um jafnframt persónulegar þakk- ir minar fyrir samstarfið, sem hefur verið mér ánægjulegt á alla lund og sem ekki hefur borið hinn minnsta skugga á. Þessum orðum mínum er ekki ætlað að vera ævisagnagerð í venjulegri merkingu þess orðs og þaðan af síður ber að líta á þau sem einhvers konar eftirmæli, enda stendur Geirlaugur nú á há- tindi lífs sfns, og á, ef Guð lofar, eftir að skila samtíð sinni miklu verki enn. Þessi orð eru hinsvegar aðeins tjáning þakkláts huga mins, sem skilur nú betur en áður eftir per- sónuleg kynni og samstarf við hann, að auðæfi þjóðanna eru menn en ekki gull. Ég hika ekki við að fullyrða, að það var Árbæjarsöfnuði mikið happ, er Geirlaugur Árnason gaf kost á sér til starfa að safnaðar- málum í febrúarmánuði árið 1968 þegar söfnuðurinn var myndaður. Var hann þá þegar kjörinn for- maður sóknarnefndar og hefur æ síðan haft það trúnaðarstarf með höndum. I ársbyrjun árið 1971 lágu leiðir okkar Geirlaugs saman eftir að Árbæjarsókn var gerð að sérstöku prestakalli. Fyrir þann tlma hafði ég að vísu haft nokkrar spurnir af Geirlaugi Árnasyni, án þess þó að kynnast honum per- sónulega, meðan ég starfaði á Hvanneyri i Borgarfirði. Geir- laugur er borinn og barnfæddur Akurnesingur og þar hafði hann starfað sem rakarameistari. Hafði hann, auk aðalstarfs síns, tekið virkan þátt í félagslífi bæjarbúa og verið driffjöður í sönglífi kaupstaðarins, stjórnað karla- kórnum og verið organisti við Akrsneskirkju. Auk þess hafði hann látið sig málefni bæjarfé- lagsins miklu varða og m.a. setið í bæjarstjórn, enda vel máli farinn, rökfastur og tillögugóður. Einnig var það á allra vitorði, að Geir- laugur var allt frá æsku einlægur trúmaður og hafði látið málefni Guðs kristni til sín taka. Það var mér því bæði eftirvænting og til- hlökkunarefni að eiga I vændum samstarf við svo þaulrayndan og fjölhæfan félagsmálamann og einlægan kirkjunnar vin sem Geirlaug Árnason. Og skemmst er frá því að segja, að hann hefur hvergi brugðist vonum eða trausti. I hvívetna hef- ur hann reynst ötull og ótrauður 1 starfi fyrir söfnuðinn og það mun- ar um Geirlaug, þar sem hann leggur hönd á plóginn, þvi að hann er starfsmaður mikill og fylginn sér og lætur ekkert aftra sér frá því að fylgja þeim málstað, er hann veit sannastan og réttast- an. Það duldist ekki Geirlaugi, að brýnasta verkefni þess safnaðar, sem hann var forsvarsmaður fyr- ir, var að uppfylla frumlægustu þörf hans og koma upp viðunandi starfsaðstöðu fyrir safnararstarf- ið. Bygging fyrsta áfanga safnað- arheimilis ög kirkju hefur nú staðið yfir tvö til þrjú ár og á annan milljónatug króna verið varið til byggingarinnar. Geir- laugur Árnason var frá upphafi traustur hvatamaður þess, að haf- in yrði smíði safnaðarhússins og Framhald á bls. 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.