Morgunblaðið - 24.08.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 24. ÁGUST 1976
15
— Geirlaugur
Framhald af bls. 10
hefur hann unnið mikið og óeigin-
gjarnt starf að byggingarmálum
safnaðarins. Sem organisti beitti
hann sér fyrir kaupum á pipuor-
geli fyrir Árbæjarsöfnuð til þess
að auka á helgiblæ kirkjulegra
athafna með sem fegurstri hljóm-
list. Er þetta hið ágætasta hljóð-
færi og bætti úr brýnni þörf.
Kirkjulegan áhuga Geirlaugs
Árnasonar má vafalaust að veru-
legu leyti rekja til þess, að í æsku
kynntist hann sr. Friðriki Frið-
rikssyni, hinum ástsæla æskulýðs-
leiðtoga kirkjunnar og þau kynni
höfðu mikil og varanlag áhrif á
Geirlaug og beindu huga hans að
málefnum kirkju Jesú Krists. Æ
síðan hefur hann verið öflugur
stuðningsmaður K.F.U.M. hreyf-
ingarinnar og unnið fórnfús störf
fyrir þann félegsskap. Einnig hef-
ur hann verið virkur félagi í
Gideonsfélaginu sem hefur það
æðst markmið að útbreiða Bibl-
íuna meðal þjóðarinnar og m.a.
gefur öllum skólabörnum á land-
inu Nýja testamentið. Þá hefur
Geirlaugur verið áhugamaður um
kristniboð og borið hag islenska
kristniboðssambandsins mjög fyr-
ir brjósti.
Af þvi sem nú hefur verið sagt
má því ljóst vera, að kirkjan á
ekki svo lítinn hollvin, þar sem
Geirlaugur Árnason er. Hann er
sannarlega I hópi þeirra sem Eng-
lendingar kalla ,,the faithful
few“, hinir fáu tryggu, sem fyrr
og síðar hafa að stærstum hluta
borið uppi starf kristinnar kirkju
hér í heimi. Varðandi málefni
Jesú Krists hefur Geirlaugur
aldrei verið hálfvolgur í áhugan-
um, heldur brennandi í andanum
og ég veit að störf hans öll á akri
guðsríkisins hafa veitt honum
mikla og ómælda gleði og blessun.
Geirlaugur er mikill hamingju-
maður f einkalífi sínu. Stærsta
gæfu sína mun hann telja, hve
miklu heimilis- og fjölskylduláni
hann hefur átt að fagna. Frú
Sveinbjörg Arnmundsdóttir, eig-
inkona Geirlaugs, er afbragðs-
kona að allri gerð, sem staðið hef-
ur dyggilega við hlið manns síns
og stutt hann í fjölþættum störf-
um með ráðum og dáð. Og börn
þeirra öll bera vitni um fagurt
heimilislíf, þar sem fornar dyggð-
ir skipa öndvegi og ást og ein-
drægni ríkir.
Fyrir tæpu ári hóf Geirlaugur
Árnason störf sem deildarstjóri
hjá Sementsverksmiðju ríkisins
víð Ártúnshöfða og um þessar
mundir hefur hann reist sér fall-
egt einbýlishús að Bláskógum 10 í
Seljahverfi.
Ég samfagna honum með þessa
áfanga á lífsferli hans um leið og
ég flyt honum persónulegar þakk-
ir minar og f jölskyldu minnar fyr-
ir samstarfið og árna honum,
konu hans og börnum allra heilla
og blessunar Guðs í bráð og lengd.
Guðmundur Þorsteinsson.
Bæjarins mesta úrval
bómullarefna í öllum litum
Röndótt, köflótt og mynstruð, í:
gardínur í stofur, svefnherb. og eldhús, dúka,
serviettur, kjóla, síð og stutt pils, buxur, jakka
og mussur.
Komið, skoðið, fáið lánaðar heim lengjur. Við saum-
um gardínurnar.
Velkomin í
Gardínuhúsið,
sími 16259
Að sjálfsögöu vegna einstakra gæða
Reyplasteinangrunar.
1. Hitaleióni er mjög takmörkuó (bmdagiidi 0,028 - 0,030
2. Tekur nálega engan raka eóa vatn í sig
3. Sérlega létt og meófœrileg sSmFbs*
Yfirburóir REYPLASTeinangrunar eru augljósir
og er»n sem fyrr er REYPLAST í fararbroddi.
/pi ACT hf s 30978
r 1—#"VO I I II. Armúla 44
for transistor
15 VOLT IEC R20
aHELLESENS
■W'”
' HLAÐIÐ
ORKU