Morgunblaðið - 24.08.1976, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.08.1976, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. AGUST 1976 Fjölgað í hópi Kóngsbergsfara EINS og frá hefur verið greint taka íslenzk ung- menni þátt í Andrésar- andar leikunum á Kóngs- bergi i Noregi á næstunni. Nú hefir verið fjölgað i hópnum og fara fimm krakkar utan í stað fjög- urra. Það er Ingvar Þórð- arson úr FH, sem bætist i hópinn, og keppir hann í 800 metra hlaupi í flokki 12 ára. Bikarkeppni í tugþraut BIKARKEPPNI FRÍ í tug- þraut fer fram á Laugar- dalsvelli 18. og 19. septem- ber nk. Þátttökutilkynn- ingar þurfa að berast skrif- stofu FRÍ í íþróttamiðstöð- inni Laugardal, fyrir 8. september. Bikarkeppnin í 1. deild fer fram dagana 28. og 29. þessa mánaðar á Laugardalsvellinum. Þátt- tökurétt í keppni 1. deild- arinnar eiga ÍR, KR, Ármann, UMSK, HSÞ og HSK. Stúlkurnar úr Gerplu sýna á mótinu f Esbjerg. Fjölmennari en Úlympíuleikarnir ÍSLENDINGAR áttu sína fulitrúa frjálsíþróttafólki frá UMFl, fim- á geysifjölmennu íþróttamóti, leikafólki frá Gerplu og þjóð- sem fram fór í Esbjerg i Dan- dansahópi úr Borgarfirði. Vöktu mörku fyrr í sumar. Var þetta íslenzku þátttakendurnir mikla mót sambærilegt við landsmót athygli og þá ekki sízt fimleika- islenzku ungmennafélaganna, fólkið úr Gerplu. I einu eintaki af sem haldin eru hér á landi fjórða mótsblaðinu, sem Morgunblaðinu hvert ár. Þátt í mótinu í Dan- barst nýlega, er hálf baksíðan mörku tóku um 25 þúsund manns, þakin fimleikamyndum og eru en til samanburðar má geta þess þar þrjár myndir af íslenzku fim- að á Ólympíuleikunum í Montreal leikafólki, svo ljóst má vera að voru tæplega 8 þúsund keppend- Gerplufólkið hefur vakið athygli í ur. Ahorfendur á mótinu í Dan- Esbjerg. Auk þess sýndu Gerplu- mörku munu hafa verið um 75 stúlkurnar við mótsslitin og voru þúsund samtals. þær eini kvenhópurinn sem það íslenzki hópurinn samanstóð af gerði. Athugasemd frá Knattspyrnusambandinu: ,J(SÍ eina sambandið sem heldur uppi regUegum samskiptum við Færeyinga" „NOKKUR blaðaskrif hafa spunnist vegna drengjamóts í knattspyrnu, sem haldið var hér í sumar, og þeirrar fréttar að Fær- eyingar hafi ekki verið samþykkt- ir sem þátttakendur. Þar sem verulegs misskilnings gætir I sam- bandi við hlut KSÍ (Knattspyrnu- sambands tslands) í þessu máli, vill stjórn sambandsins koma eft- irfarandi á framfæri: 1. Á árinu 1974 ákváðu knatt- spyrnusambönd Danmerkur, Finnlands, Noregs, Svíþjóðar og íslands að efna til áriegs móts fyrir drengi 14—16 ára með þátt- töku ofantaldra þjóða og þeirrar sjöttu til viðbótar utan Norður- landa. Þegar ákveðið var að mótið skyldi haldið á íslandi í ár, hafði stjórn KSÍ hug á að bjóða Færey- ingum til mótsins í stað þjóðar utan Norðurlanda. Það var hins- vegar ekki íslendinga einna að ákveða þátttakendur og því var hugsanleg þátttaka Færeyinga borinn undir aðra framkvæmda- aðila mótsins. Kom þá í ljós að þessu frumkvæði KSÍ var ekki vei tekið og þátttöku Færeyinga hafnað, einkum af eftirtöldum ástæðum: i fyrsta lagi þar sem skandi- navísku þjóðirnar töldu það einn stærsta kost slíkrar keppni, að etja kapp við sterkar knatt- spyrnuþjóðir á meginlandinu. í öðru lagi vegna þess að keppni þessi skyldi haldin gagnkvæmt, og talið var útilokað að Færeyjar gætu staðið fyrir svo umfangs- miklu móti. í þriðja lagi þar sem Færeyingar væru ekki aðilar að UEFA eða FIFA (alþjóðasamtök- um knattspyrnusambanda) og landsleikir við þá fengjust ekki viðurkenndir, en mjög er upp úr því lagt i slíkum alþjóðamótum. 2. Að fengnum þessum við- brögðum kom annað tveggja til greina fyrir KSl — að draga okk- ur út úr keppninni eða sætta okk- ur við þessa afstöðu og lúta þeim reglum, sem við höfum sjálfir samþykkt um fyrirkomulag og þátttakendur. Knattspyrnusamband íslands getur ekki þvingað aðrar þjóðir að leika landsleiki sín í milli, enda þótt við sjálfir viljum leika við Færeyinga . Það gerðum við líka, og drengjalandsleikur okkar við Færeyinga var háður i Fær- eyjum 16. júlí s.l. Ef KSÍ hefði hinsvegar hætt við framkvæmd mótsins og dregíð sig út úr keppninni, hefði það ein- faldlega þýtt það, að keppnin hefði verið háð annars staðar í ár og framvegis án okkar þátttöku og Færeyinga. Það var mat, bæði KSÍ og íþróttasambands Færeyja, að slík ákvörðun þjónaði hvorki íþróttalegum hagsmunum islend- inga né Færeyinga. 3. Ákvörðunin um nefnt drengjamót var tekin á sameigin- legum fundi fimm norrænna knattspyrnusambanda, sem hald- in er árlega. Færeyingar hafa ekki átt aðild að því samstarfi og aldrei eftir því sótt. Engu að síður bauð KSÍ full- trúa Færeyja að sitja slíkan fund, þegar hann var haldinn hér á landi í fyrra. 4. Færeyingar hafa sótt um að- ild að Evrópusambandinu (UEFA) og Alþjóðasambandinu (FIFA) en hafa enn ekki verið samþykktir. Öþarft ætti að vera að taka fram, að íslendingar hafa ávallt stutt umsókn Færeyja og munu gera það áfram. KSÍ mun hinsvegar ekki segja sig úr þess- um samtökum eða hætta við þátt- töku í alþjóðakeppni, í mótmæla- skyni f.h. Færeyinga. 5. Knattspyrnusamband islands er ekki aðeins eina iþróttasam- bandið hér á landi, heldur á öllum Norðurlöndum, sem heldur uppi reglulegum samskiptum við Fær- eyinga. Nú, nokkur undanfarin ár, hafa verið leiknir árlega bæði A-landsleikir og unglingalands- leikir til skiptis i Færeyjum og á íslandi. Nú hafa drengjalands- leikir bætzt við. Það eru örgustu öfugmæli, þeg- ar því er haldið fram, að KSÍ hafi sýnt Færeyingum tillitsleysi eða lítilsvirðingu. Samskiptin á knatt- spyrnusviðinu hafa verið mikil og góð, og það er ekki við KSÍ að sakast ef aðrar þjóðir vilja ekki taka upp þau samskipti. F.h. stjórnar KSÍ Ellert B. Schram form.“ Getraunastarfíð að heljast - kerfís- seðlar nú I umferð lSLENZKU getraunirnar hefja starfsemi sína að nýju að loknu sumarleyfi um næstu helgi, en keppnin f ensku deildunum hófst á laugardaginn. Sú nýbreytni hef- ur verið tekin upp hjá Getraun- um að auk tveggja og raða seðla geta „spámenn" nú fengið keypta 16 raða kerfisseðla. Er þessi breyting tekin upp vegna óska fjölmargra, sem á hverjum laugardegi eru með marga seðla og leggja mikla vinnu f útfyllingu seðlanna. Með þvf að hafa 16 raða kerfisseðla verður öll útfylling mun einfaldari. Vegna hins stóraukna kostnaðar við prentun og sending- ar getraunaseðla hefur verið ákveðiið að framvegis skuli miðað við 40 raða lágmarkssölu hvers umboðsmanns vikulega. Umboðs- menn sem ekki ná lágmarkssöl- unni fyrstu vikurnar, mega því gera ráð fyrir að seðlar hætti að berast þeim, nema sérstaklega sé um samið. Verð á getraunaseðlunum er óbreytt frá því sem verið hefur og kostar hver röð áfram 50 krónur og fyrir 16 raða seðil verða menn því að greiða 800 krónur. Sala í getraunaseðlum hefur dregist saman síðustu ár og minnkaði salan t.d. um 6'A milljón síðastliðið ár, en hejldarsalan var tæpar 34 milljónir. Svo virðist sem talsverðrar þreytu sé farið að gæta I sölustarfinu og er spurning AUI WWV © The FootbaM League Leikir 28. ágúst 1876 Birmingham - Liverpool Coventry - Leeds Derby - Man. Utd...... Everton - Aston Vllla .. Ipswich - Q.P.R. Man. City - Stoke..... Newcastle - Brlstol City Sunderland - Arsenal .. Tottenham - Middlesbro West Bromwich - Norwlch West Ham - Leicester . . Hull - Southampton .... hvort ekki sé tímabært að taka upp nýjar leiðir við söluna, svo getraunir leggist ekki útaf nú, eins og gerðist i fyrra skiptið þeg- ar getraunasala var reynd hér- lendis. Sölustarfið hefur mikið mætt á sömu mönnunum frá því að byrjað var með getraunirnar á nýjan leik og eru þeir eðlilega orðnir þreyttir og leiðir á sölu- starfinu. Síðastliðið ár varð aðeins aukn- ing í sölunni hjá sex af 25 íþrótta- bandalögum og Ungmenna- samböndunum, sem seldu get- raunaseðla á árinu. Mest varð aukningin hjá ÍBÍ, sem jók söluna um hvorki meira né minna en 239%. Hjá 19 aðiljum minnkaði salan og munaði mestu að hjá IBR datt salan niður um 20.2%. K rx 2 l e .3. E §!■ u. sé: CC £ - £3; # MISJAFN ARAIMGUR HJÁ NORÐMÖNNUM Norska meistaramótið í frjálsum íþróttum fór fram í Askim um helgina. Árangur á mótinu var yfirleitt fremur slakur, enda veður óhagstætt til keppni og margt af bezta mætti ekki til leiks. Meðal úrslita í mótinu má nefna: 800 metra hlaup karla: Tor Smith 1:51,6 mfn. 400 metra grindahlaup: Harald Gjengedal 52,7 sek. 100 metra hlaup karla: Audun Garshol 10,5 sek. Sleggjukast: Aridl Busterud 63,74 metrar Kúluvarp: Knut Hjeltnes 18,48 mtrar 3000 metra hindrunarhlaup: Sverre Sörmes 8:47,2 mín. Spjótkast kvenna: Anne Gro- harby 50,18 metrar Slangarstökk: Wilhelm Sorten- frjálsíþróttafólki Noregs berg 4,70 metrar Langstökk kvenna: Heidi Bens- erud 5,79 metrar 1500 metra hlaup kvenna: Grete Waitz 4:09,5 mín. 800 metra hlaup kvenna: Grete Waitz 2:07,1 mín. 1500 metra hlaup karla: Lars Martin Kaupang 3:45,8 mfn. 100 metra hlaup kvenna: Turid Björgkli 11,9 sek. Kringlukast karla: Knut Hjelt- nes 62,16 metrar 400 metra hlaup karla: Stein Are Agledal 48,7 sek. 400 metra hlaup kvenna: Hanne Keth Savale, 56,3 sek. V-ÞÝZKA MEISTARAMÓTIÐ VESTUR-þýzka meistaramótið í frjálsum íþróttum fór fram I Frankfurt um helgina og náðist þar ágætur árangur í flestum keppnisgreinum, svo sem vænta mátti. Meðal úrslita má nefna að Jiirgen Uteinmann sigraði f 100 metra hlaupi á 10,36 sek„ Lothar Krieg f 400 metra hlaupi á 45,95 sek„ Rolf Ziegel f 400 metra grindahlaupi á 49,88 sek„ Gtinther Lohre f stangarstökki, stökk 5,20 metra, Hein Dierek Ncu sigraði f kringlukasti með 60,24 kasti, Brigitte Krause sigraði í 800 metra hlaupi kvenna á 2:03,0 mín., Birgitte Holzapfel sigraði f hástökki kvenna, stökk 1,89 metra, Liesel Westermann sigraði f kringlukasti kvenna, kastaði 53,88 metra, og Marion Becker sigraði í spjótkasti kvenna, kastaði 59,78 metra.___________ S-KÓREA SIGRAÐI SUÐUR-Kóreubúar urðu heimsmeistarar stúdenta f knattspyrnu, en þeirri keppni lauk í Montevideo um helgina. Til úrslita léku Kóreubúarnir við Paraguay og sigruðu 2—1, eftir að staðan hafði verið 1 — 1 f hálfleik. Leikur þessara liða var hinn sögulegasti, þar sem leikmenn Paraguay yfirgáfu völlinn f seinni hálfleik f mótmadaskyni við dómarann sem þeim fannst á handi Kóreubú- anna. Frakkland og Holland léku um þriðja sætið f keppni þessari og fóru þar leikar svo að Hollendingar sigruðu með tveimur mörkum gcgn engu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.