Morgunblaðið - 24.08.1976, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. AGUST 1976
37
VELX/AKAIMDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Máttur
auglýsinganna
Móðir skrifar eftirfarandi
og tekur þar til meðferðar auglýs-
ingu sem sýnd hefur verið í sjón-
varpinu nú eftir sumarleyfin og
er hún ekki alls kostar ánægð með
hana:
„Mig langar að bera fram mót-
mæli vegna nýrrar auglýsingar
um kaffi. Þar er rekinn áróður
fyrir því að börn neyti kaffis með
því að láta þau nota það í smásam-
kvæmi. Sjálf ætla ég að hætta að
nota þetta kaffi meðan framleið-
andi beitir slikum brögðum til að
auglýsa vöru sína. Þetta er mál
sem börnin skilja og það er engin
þörf á því að þau fari að heimta
kaffi löngu áður en þau nálgast
fullorðinsárin. Ég vænti þess að
fleiri geri þetta líka, að hætta að
nota þessa kaffitegund, því að hér
finnst mér vera of langt seilzt.
Þetta er lúaleg aðferð og mér
finnst að við foreldrar ættum að
geta sagt stopp við þessu. Eins og
ég sagði fyrr, þetta er mál sem
litlu börnin skilja, þau vilja gera
eins og það er óþarfi að halda
fyrir þau sérstakar sýningar á
neyzlu þessa drykkjar.
Móðir.“
Ekki hefur Velvakandi séð um-
rædda auglýsingu og getur þvi
ekki gert sér neinar hugmyndir
um hvaða áhrif hún getur haft.
En fróðlegt væri að fleiri foreldr-
ar létu til sín heyra um þetta mál.
Börnin læra örugglega það sem
fyrir þeim er haft og ekki sízt það
sem þau sjá í sjónvarpinu, enda
er áhrifamáttur þess mikill og það
hafa auglýsendur í auknum mæli
notað sér. En börnin eru ekki þau
einu sem verða fyrir áhrifum aug-
lýsinga sjónvarpsins. Þeir full-
orðnu verða það áreiðanlega líka
— en viðurkenna það ef til vill
ekki, eða að minnsta kosti ekki
fyrr en það er augljóst orðið.
Það er sama hvaða aðili auglýs-
ir, og hvort sem það er í sjónvarpi
eða öðrum fjölmiðlum, — með
vænni fjárupphæð er hægt að
hafa gífurleg áhrif á fjölda
manns, og með sifellt meiri út-
hugsun t.d. með hjálp sálfræðinga
og annarra fræðinga, geta auglýs-
endur náð töluvert langt. Það
mun því Vera óhætt að hvetja fólk
til þess að athuga vel sinn gang
þegar auglýsingar eru annars veg-
ar og láta ekki plata sig neitt.
Annars eru sumar auglýsingar al-
veg skaðlausar og við verðum að
viðurkenna að þær eru nauðsyn-
legar í mjög mörgum tilfellum.
Hvimleiðast er þegar vörur eru
grillu? Að siðmenningin sé f
rauninni horfin f kjarnorku-
óhappi, en feyndarm&líð hafi
ekki komizt upp?
Blaðamennirnir hlðgu hikandi.
— Komið út á meðal okkar og
sja ið sjálfur, sagði blaðamaður-
inn frá New York Times. — Þetta
er allt á sfnum stað — mengunin,
stjórnmálahneykslin og heila
klabbið.
Svo var okkur sýnt húsið.
I borðstofunni heilsuðum við
ungri svarthærðri konu, Ifklega
hálfþrftugri. Hún virtist tauga-
óstyrk hugsaði ég, jafnvel fjand-
samleg...
— Góðan dag, ég er svstir
James, sagði hún. Það hefði ég
getað sagt mér sjálfur vegna þess
hve hún var Ifk honum. Helene
systir hans.
— Ungfrú Everst, megum víð
taka mynd af yður hér f borðstof-
unni sagði Vernon Fix.
Hún hikaði andartak og leit
eins og spyrjandi á Reg Curtiss.
— Það er vfst ekkert sem mælir
gegn þvf, sagði hún sfðan og ijós-
myndararnir voru ekki selnir á
sér að smella af.
Svo var okkur sýnt vandað
auglýstar og aldrei er getið um
verð, það er eins og það sé alltaf
eitthvert leyndarmál. Það er
óskiljanlegt þar sem það hlýtur
alltaf að koma í Ijós fyrr eða siðar.
En nóg um það i bili.
% Bændur í
erfiðleikum
Bóndi er bústólpi — bú er
landstólpi er sagt og má til sanns
vegar færa. Eins og kunnugt er af
fréttum hafa bændur á Suður-
landi og víðar átt í verulegum
erfiðleikum með alla heyverkun
nú i sumar, og menn muna einnig
rigningasumarið i fyrra, ekki var
auðvelt um heyskap þá heldur.
Bændur eru sú stétt, ásamt sjó-
mönnum, sem sennilega eru hvað
háðastar veðri hér á landi, bænd-
ur að minnsta kosti að sumarlagi,
og sérstaklega á vorin.
Bændurnir þurfa því sifellt að
vera vakandi yfir veðurspám og
margir eldri menn og jafnvel þeir
yngri eru svo veðurglöggir að þeir
þurfa ekki alltaf að treysta á veð-
urspárnar sem lesnar eru i út-
varp. En þeir þurfa í það minnsta
að heyra hvaða stefnur lægðir
hafa og hæðir til að þeir geti spáð
fyrir sig. Það hefur nefnilega
komið fyrir að veðurspár bregðist
og kemur það mjög illa við bænd-
urna, og stundum eru karlarnir
ekki sammála veðurfræðingunum
og haga sér eftir sinni eigin veð-
urspá. Er þá kannski ýmist að
þeir eða veðurfræðingarnir hafa
rétt fyrir sér. Annars eru veður-
spárnar nokkuð öruggar, það sem
helzt bregst í þeim er að veðra-
breytingarnar koma stundum
fyrr eða seinna en ráðgert var. En
hvað um það nú er farið að halla
sumri og siðustu forvöð að bænd-
ur nái inn heyjum sfnum á
óþurrkasvæðunum en vonandi er
að nokkrir góðviðrisdagar Iáti sjá
sig áður en það verður of seint.
Við getum í það minnsta ennþá
búizt við góðu hausti og kannski
verða jafnvel einhverjir góðviðr-
isdagar komnir þegar þetta birt-
ist.
# Tillitsemi í
umferðinni
Sú ábending kom frá konu
nokkurri um daginn að við Reyk-
víkingar sýndum utanbæjar-
mönnum alltof litla tillitsemi i
umferðinni. Það væri ekki nema
eðiilegt að þeir þyrftu nokkuð að
átta sig á gatnakerfinu hér og því
kæmi það að sjálfu sér að þeir
gætu ekki fylgt þeim umferðar-
hraða sem er fyrir. Það væri alltof
algeng sjón (og heyrn) að menn
flautuðu og hömuðust þegar þeir
rötuðu í einhverjar ógöngur eða
þegar þeir færu ekki alveg eins
hratt yfir og bráðlátir Reykvík-
ingar þyrftu. Mikið vantaði á að
við sýndum almennilega tillitsemi
og værum kurteis i umferðinni,
og brosið góða, sem allir settu upp
þegar hægri umferðin tók gildi
virðist ekki sjást lengur.
Þetta er vissulega þörf áminn-
ing að sýna tillitsemi i umferð-
inni, og ekki sízt við utanbæjar-
menn, en auðvitað á að sýna hana
öllum.
— Orð í eyra
Framhald af bls. 4
ur varðað við lög að eiga
nokkrar flugvélar og annað
smálegt.
Og ekki skil ég i því að
maður yrði nokkru bættari þó
reittar yrðu af gvuðjónum
þessa fátæka lands þær smáar
eignir sem þeir hafa aunglað
saman í sveita sins andlitis.
Hitt ætti að vera öllu meira
áhyggjuefni, bæði innan
Hundavinafélagsins og utan,
hvurnig komið er líkamlegri
og andlegri velferð gvuðjón-
anna. Það er nefnilega hulin
Spariö rafmagn!
Notiö NOBÖ
termistorstýrða rafofna
Spyrjið um álit fagmanna.
Myndlistar hjá rafverk-
tökum um land allt.
Söluumboö LÍ.R.
Hólatorgi 2. Sími: 16694
ráðgáta flestu venjulegu fólki
hvurnig skattlausir menn f
fullu fjöri og á þessum marg-
umrædda besta aldri geta
dregið fram lífið í dýrtíðinni.
Og eignast jafnvel þak yfir
höfuðið.
Væri ekki ástæða tii að
læonsmenn og kivanis og
kannski eitt eða tvö kvenfélög
stofnuðu sjóð? Og svo reynd-
um við öll að skjóta saman f
súpu handa aumingjonum?