Morgunblaðið - 27.08.1976, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1976
Skelveiðisjómenn í Stykkishólmi:
Róum ekki fyrr
en leiðrétting
fæst á verðinu
SKELVEIÐISJÓMENN f Stykkis-
hólmi eru mjög óánægðir með
ákvörðun Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins um að lækka verð á
hörpudiski úr 35 krónum hvert
kíló í 26 krónur, og hafa bátar
ekki farið á sjó þar frá þvf á
mánudag í mótmælaskyni. Að
sögn Sigurðar Hreiðarssonar
skipstjóra f Stykkishólmi var sjó-
mönnum tilkynnt um það sl.
mánudag, þegar þeir komu að
landi, að þessi lækkun hefði orðið
og að hún gilti viku aftur fyrir
sig. Væru sjómenn mjög reiðir
vegna þessarar lækkunar og
ákveðnir f að fara ekki aftur á sjó
fyrr en leiðrétting hefði fengizt á
þessum málum. Alls stunda sjö
50—100 tonna bátar hörpudisks-
veiðar frá Stykkishólmi en við
vinnsluna vinna um 100 manns,
sem ekki hafa aðra vinnu á með-
an hátarnir róa ekki.
Ágúst Sigurðsson hjá frystihúsi
Sigurðar Ágústsonar í Stykkis-
hólmi sem sér um vinnslu hörpu-
disksins sagði í gær í samtali við
Mbl., að verð lækkaði yfirleitt á
hörpudiski á þessum árstíma og
nú væri ástandið þannig á helzta
viðskiptamarkaði okkar fyrir
þessa afurð, þ.e. í Bandaríkjun-
um, að þar væri 75% meira fram-
boð en vanalegt væri og því hefði
verðið lækkað úr um tveimur
dollurum fyrir pundið í nærri því
1,50 dollara. Ágúst sagði að
róðrarstöðvunin kæmi sér afar
Framhald á bls. 20
Útifundurinn, sem Rússar telja, að hafi verið haldinn í samráði við fslenzk stjórnvöld.
Rússar kröfðust þess að
útifundurinn yrði bannaður
SAMTÖK, sem nefna sig
Kommúnistaflokk Islands/ML,
héldu útifund við sovézka
sendiráðið f Reykjavfk sfðast
liðinn laugardag f mótmæla-
skyni við innrás Sovétrfkjanna
f Tékkóslóvakfu þann sama dag
fyrir átta árum.
Boðað var til fundarins með
nokkurra daga fyrirvara, og
hefur Morgunblaðið fregnað,
að fyrir fundinn hafi sovézka
sendiráðið borið fram mótmæli
við utanrfkisráðuneytið og
krafizt þess, að fundurinn yrði
bannaður, m.a. af þeirri ástæðu
að slfkur fundur væri brot á
ákvæðum Helsinki-
samkomulagsins.
Eftir fundinn mótmælti
sovézka sendiráðið samkomu-
haldinu formlega við ráðuneyt-
ið, og segir m.a. í orðsending-
unni, að tilgangurinn með
fundinum hafi verið fjandsam-
legur Sovétríkjunum, og hafi
fundurinn verið haldinn í sam-
ráði við íslenzk stjórnvöld.
Morgunblaðið sneri sér í gær
til Henriks Sv. Björnssonar,
ráðuneytisstjóra í utanríkis-
ráðuneytinu, og bar undir hann
frétt þéssa. Sagði Henrik m.a.:
— Þetta er rétt, — þeir hafa
afhent hér mótmælaorð-
sendingu, og sovézki sendifull-
trúinn er einmitt að koma til
mín, svo hægt sé að útskýra
málið betur fyrir þeim, t.d.
hvaða lög gildi hér. Samkvæmt
stjórnarskránni getum við ekki
bannað fólki að koma saman til
fundar, og ennfremur er
ástæða til að leiðrétta viss um-
mæli í þessari orðsendingu.
— Mótmælir utanríkisráðu-
neytið þeirri kröfu sovézka
sendiráðsins að fundarfrelsi
yrði heft áður en fundurinn fór
fram?
— Það var búið að útskýra
það fyrir fundinn, að ekki væri
hægt að verða við þeirri kröfu
að fundurinn yrði bannaður.
Það var gert fyrir helgi.
— Gerir ráðuneytið þá ekki
frekari athugasemdir við
þetta?
— Jú, það er einmitt það,
sem verið er að gera núna. Það
eru athugasemdir við þessa orð-
sendingu, sagði Henrik Sv.
Björnsson að endingu.
Vinnustöðvun aflétt
í Þörungavinnslunni
INNSIGLINGARDUFL TEKIÐ UPP — Hér sjást varðskipsmenn á
Baldri vinna við að hífa upp innsiglingardufl í Húsavíkurhöfn I
síðustu viku. Duflið var tekið upp, hreinsað, málað og fært á réttan
stað í höfninni, en það hafði færzt Iftils háttar úr stað. Tveir 400 kílóa
steinar halda duflinu föstu í höfninni og má á myndinni sjá keðjurnar
sem dufliðog steinarnir eru festir við.
(Ljósm. Jón Asgeirsson)
Starfsmenn Þörunga-
vinnslunnar að Reykhól-
um hefja í dag vinnu að
nýju eftir tveggja daga
verkfall tii að knýja á um
launagreiðslur en búið er
að greiða þau laun sem
dregizt hafði að borga út
fyrir nærri tveimur vikum
og ákveðið að í dag (föstu-
dag) yrðu laun greidd með
venjulegum hætti.
Tekjur ríkisins af bensín-
sölu 4,5 milljarðar króna
BÍLEIGENDUR greiða
að jafnaði á ári tæplega 8
milljarða króna fyrir
bensín á bíla sína. Frá
þessu var skýrt í Mbl. í
gær, en þess var þá ekki
getið að rétt tæplega
57% þessara 8 milljarða
eru gjöld til hins opin-
bera. Samtals hirðir ríkið
af bileigendum rúmlega
hálfan fimmta milljarð
króna. Af hverjum lítra
fær hið opinbera 43.30
krónur, en samtals
kostar lítrinn 76 krónur
eins og kunnugt er.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
er cifverð hvers lítra þ.e.a.s.
bensínið komið á birgðatanka
hér innanlands. 22.76 krónur.
Opinber gjöld eru svo eins og
áður segir 43.30 krónur. en þau
skiptast í innflutningsgjald,
18.38 krónur, söluskatt, 12.67
krónur. Bankakostnað og
leyfisgjald 36 aura, hafnar-
gjald, 8 aura, landsútsvar 1,01
króna, og toll, 10.85 krónur.
Dreifingarkostnaður þ.e.a.s.
rekstur bensínstöðva,
flutningur út um land o.s.frv.
kostar á hvern lítra 5,50
krónur. Verðjöfnunargjald er
1.29 krónur, en sölulaun til
dreifingaraðila í smásölu eru
3.15 krónur á hvern lftra.
Páll Jónsson framkvæmdastjóri
Þörungavinnslunnar sagði í sam-
tali við Mbl. í gær að frá því að
fyrirtækið hóf starfrækslu hefðu
launaútreikningar þess verið
unnir í tölvu í Reykjavík og út-
borgunum verið þannig háttað, að
greiðsla færi fram hálfsmánaðar-
lega nærri tveim vikum eftir að
vinnan, sem greitt væri fyrir,
væri innt af hendi. Síðasta út-
borgun hefði dregizt um 11 daga
vegna rekstrarfjárerfiðleika fyr-
irtækisins, en nú væri sem sé búið
að afla fjár og inna þessar launa-
greiðslur af hendi. Starfsmenn
vildu nú að skipulagi launa-
greiðslna yrði almennt breytt
þannig að laun yrðu greidd út
fyrr en verið hefði og sagði Páll
að athugað yrði hvort hægt væri
að koma því við.
Vegna rekstrarfjárskorts fyrir-
tækisins hefur einnig dregizt að
greidd yrðu ýmis launatengd
gjöld, svo sem lífeyrissjóðs-
greiðslur, sparimerki og orlofsfé,
en að sögn Páls hafa starfsmenn
gefið fyrirtækinu hálfsmánaðar-
frest til að koma þessu í lag.
Páll Jónsson sagði, að rekstur
fyrirtækisins hefði gengið mjög
erfiðlega einkanlega vegna þess
hve afköst þangsláttuvélanna
væru lítil. Næðust ekki sæmileg
afköst með þessum vélum nema
þegar sérstaklega stæði á straumi
og vindátt og því væru þessar
vélar óhentugar, en aðrar betri
væri ekki að fá til þessa verks.
Sagði Páll að ýmsar hugmyndi
væru uppi um að taka annað hr;
efni en þang til vinnslu í verl
smiðjunni t.d. þara, en honur
mætti ná úr sjónum með bátun
Tækist að hefja vinnslu þara a
einhverju marki mætti e.t.\
lengja starfstíma verksmiðjunr
ar, en þangsins væri einungi
hægt að afla að sunrinu til.
Hlöðubruni
í Fnjóskadal
Akureyri 26. ágúst.
STÓRTJÓN varð f hlöðubruna
á bænum Hrfsgerði f Fnjóska-
dal sfðdegis f dag. 800—1000
hestburðir af töðu eyðilögðust
gjörsamlega og jafnframt
urðu skemmdir á hiöðunni
sjálfri.
Á Hrísgerði er verið að
byggja hlöðu sem er stál-
grindahús, og búið var að láta
inn í hana rösklega 1000 hesta
af þurri og ilmandi töðu. I dag
var verið að vinna við rafsuðu í
hlöðunni og um kl. 14 mun
neisti hafa hrokkið í heyið,
þannig að eldur kviknaði í þvl.
Ekki varð neitt við eldinn ráð-
ið, þó að nágrannar flykktuast
að til aðstoðar og slökkviblll
frá slökkviliði Akureyrar
Framhald á bls. 20