Morgunblaðið - 27.08.1976, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1976
Valdimar Ólafsson sýnir hvar vélarnar lentu í
árekstrinum, Guðmundur Matthíasson til hægri.
(ljósm. Ól. K. Mag)
Árekstur tveggja flugvéla,
nauðlending, björgunarsveitir
kallaðar til leitar, almanna-
varnarkerfið i gang, 53 menn
fundnir slasaðir, ráðstafanir
gerðar á sjúkrahúsum til að
taka á móti þessum stóra hópi.
Þetta var það sem í stuttu máli
gerðist í gærmorgun, en gerðist
þó í rauninni aldrei, því að hér
var aðeins um æfingu að ræða.
Framhaldið af þessu er svo það,
að hinir slösuðu og björgunar-
raenn þeirra drukku saman
kaffi og borðuðu vínarbrauð í
matsölum sjúkrahúsanna, en
þeir sem skipulögðu þessar að-
gerðir munu hittast í dag i
Keflavík og bera saman bækur
sínar um þessar aðgerðir, sem
að flestu leyti munu hafa tekizt
vel.
Það var Atlantshafsbanda-
lagið sem setti á svið árekstur
tveggja flugvéla norðaustur af
Færeyjum. Báðar vélarnar
löskuðust nokkuð, en gátu þó
náð landí. Lenti önnur þeirra í
Noregi en hin hélt í átt til ís-
lands með 53 innanborðs, far-
þega og áhöfn. Þegar starfs-
ipenn Flugmálastjórnarinnar
íslenzku heyrðu ekki frá vél-
inni, sem var á leið til íslands, á
réttum tíma, fóru þeir að
grennslast fyrir um hana.
Fengu þeir engar upplýsingar
nema frá radarstöðvum, sem
tilkynntu um ókunnar vélar
sem hefðu komið inn á svæði
þeirra. Hvorug vélanna svaraði
kalli flugstjórnarmanna.
Hættuástandi skipta flug-
stjórnarmenn í þrjú tímabil,
fyrst óvissuástand, síðan ótta-
ástand og loks neyðarástand.
Þegar óvissuástandið leið án
þess að nokkuð fréttist af vél-
inni, var byrjað að hafa sam-
band við Flugbjörgunarsveit-
ina í Reykjavík. Var það laust
fyrir klukkan 10 i gærmorgun,
en strax klukkan 7 fóru menn i
flugturninum i Reykjavík að
hafa áhyggjur af vélinni,
semekki tilkynnti sig á réttum
tima. Flugvélar frá varnarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli voru
sendar til að kanna hvort þær
sæju nokkuð eða heyrðu til vél-
arinnar.
Um klukkan 10.45 hafði
Flugmálastjórnin samband við
Almannavarnarnefnd ríkisins
og tilkynnti að flugvél væri í
erfiðleikum, búið væri að kalla
út leitarflokka og yrði flugvélin
að nauðlenda þar sem hún væri
crðin eldsneytislaus. Almanna-
varnarnefnd rikisins hafði sam-
band við almannavarnarnefnd-
ina I Hafnarfirði, en talið var að
vélin yrði að lenda á hennar
skipulagssvæði.
Vélin fannst mjög fljótlega
eftir að hún nauðlenti við
Stefánshöfða við Kleifarvatn.
Kom upp eldur í vélinni þegar
hún nauðlenti, en hann slokkn-
aði fljótlega af sjálfu sér og var
slökkvilið sem kvatt hafði verið
út þvi kallað til baka áður en
það kom á slysstað. Björgunar-
sveitarmenn sem komu á slys-
stað lýstu aðkomunni þannig að
farþegar vélarinnar og áhöfn
hefðu legið slasaðir, dreifðir
um stórt svæði. Aðeins sex
hefðu þó verið í lífshættu að
því að talið var og voru þeir
fluttir með þyrlu til Keflavík-
ur.
Hinir slösuðu voru nú færðir
á sjúkrahús í Reykjavík, að
þessum sex undanskildum.
Almannavarnarnefnd Lands-
spítalans var kölluð saman rétt
fyrir klukkan 12. Komust menn
þar að raun um að ekki væri
nauðsynlegt að kalla út auka-
starfslið, þar sem það margt
fólki væri við vinnu. Ekki yrði
heldur ýkja erfitt að koma fyrir
um 25 manns í Landspítalan-
um, en hins vegar gæti það orð-
ið erfiðara ef gera þyrfti stórar
aðgerðir á mörgum hinna
slösuðu.
Þegar til kom reyndist ekki
(Ijósm. Heimir Stígsson)
- þeim síðan boðið í
kaffiá sjúkrahúsum
Þeir, sem mest voru siasaðir, voru fluttir
þyrlu frá varnarliðinu til Keflavíkur.
með
Lögreglumenn fylgjast
með, er björgunarmenn
bera hina slösuðu í
bílana.
vera um alvarleg slys að ræða
og var „hinum slösuðu" og
björgunarmönnum þeirra þvi
boðið upp á kaffi og með því i
matsal Landspítalans og sjálf-
sagt einnig á öðrum sjúkra-
húsum.
En hvernig tókst
svo þessi æfing?
Guðjón Petersen sagði, aé
svona við fyrstu athugun virtisl
sér að hún hefði tekizt vel. Þc
/
Hlúð að hinum slösuðu á slys-
stað við Kleifarvatn, Flug-
björgunarsveitin og slökkviliðið
kornin á staðinn.
væru nokkur atriði, sem betur
hefðu mátt fara, t.d. hefði
upplýsingastreymið til
Almannavarnarnefndar ríkis-
ins ekki verið eins mikið og það
hefði þurft að vera. Þá hefði
einhver misskilningur orðið hjs
varnarliðinu og aðeins hefði
einn greiningarlæknir mætt i
staðinn, en varnarliðið hefði át1
að sjá um að þeir yrðu fleiri. Þi