Morgunblaðið - 27.08.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. ÁGUST 1976
3
Flestir bátanna
til Siglufjarðar
með loðnuna í gær
LOÐNUSKIPIN 17 sem í
fyrrakvöld fengu mjög góð-
an afla á loðnumiðunum
fyrir Norðurlandi héldu í
gær til hafna með aflann.
Tólf skip fóru til Siglu-
fjarðar, þrjú til Raufar-
hafnar, eitt til Krossaness
og eitt til Bolungarvíkur.
Þrjú skip voru eftir á mið-
unum, en þau komu þang-
að og byrjuðu að veiða í
fyrrinótt.
Markús Kristinsson verk-
smiðjustjóri hjá SR í Siglufirði
sagði í gær í samtali við Mbl. að
vinnslan gengi sæmilega vel hjá
þeim og allt væri í fullum gangi.
Afköstin væru um 900 tonn á
sólarhring, sem kalla mætti nokk-
uð gott. Nú er búið að landa um
30 þúsund tonnum af loðnu í
Siglufirði og búið að bræða um
28—29 þúsund tonn. Aðeins eitt
loðnulöndunartæki er til staðar í
Siglufirði og myndast því oft
nokkur bið, ef margir bátar koma
að á svipuðum tíma, en meðalaf-
köst í lönduninni eru um 70 tonn
á klukkustund. í gær var von á
um 4000 tonnum af loðnu til
Siglufjarðar.
Nýi sendi-
herrann til
r
Islands 2.
september
JAMES J. Blake, nýr
sendiherra Bandaríkjanna
á íslandi, er væntanlegur
hingað til lands 2. septem-
ber n.k.
Blake er fæddur 5. marz 1922 1
New York og stundaði háskóla-
nám í Queen’s Coolege og George
Washington háskólanum, þar sem
hann lauk MA prófi árið 1963.
Hann gegndi þjónustu í
bandariska hernum 1943—46 og
kenndi við Kennaraskóla f
Nebraska 1946—’47. Störf sfn í
utanríkisþjónustu Bandarikjanna
hóf Blake árið 1947. Hann hefur
starfað i Belgiu, Indlandi og sem
fulltrúi f varnarmálaráðuneyti
Bandaríkjanna. Þá hefur Blake
einnig starfað f Afrfku. Hann er
kvæntur og eiga hjónin 4 börn, en
það yngsta mun fylgja foreldrum
sinum hingað, hin eru við nám f
heimalandi sinu.
Meðfylgjandi mynd sýnir
James Blake sverja embættiseið
sinn við Bibliuna og við hlið hans
stendur frú Blake.
Nýtt sölumet hjá
brezkum togara
IIull 26. ág.
Frá fréttaritara Mbl. Mike Smart
GRIMSBY-togarinn Ross
Revenge í eigu BUT, setti
nýtt sölumet á fiskmarkaði
í Hull í dag, er hann seldi
þar 200 tonn, að mestu
þorsk af íslandsmiðum,
fyrir 24.796.800,- ísl kr.
Fyrra sölumetið átti Hull
togarinn Hammond Innes,
en skipstjóri á honum hef-
ur iðulega verið Dick Tayl-
or, sem margir íslendingar
kannast við.
Talsmaður brezku
togarasamtakanna sagði
eftir sölu Ross Revenge i
morgun, að verðið sýndi
líklegast að skilmálar
Óslóarsamningsins milli ís-
lendinga og Breta væru
byrjaðir að hafa áhrif.
V atnafræðingar
streyma til landsins
ÞING norrænna vatnafræðinga
verður haldið i Reykjavík dagana
28. ágúst til 2. september n.k. að
Hótel Loftleiðum. Norðurlönd
hafa haft töluverða samvinnu sin
á milli í vatnafræði undanfarin ár
og var sú samvinna að hluta til
skipulögð innan alþjöðasamstarfs
UNESCO, sem byrjaði með IHD
(International Hydrological Dec-
ade) Alþjóðlegum áratug vatna-
fræðinnar 1964—74, sem nú
hefur verið áfram haldið með
IHP, International Hydrological
Programme og NHF, Nordisk
Hydrologisk Forening, félagi
norrænna vatnafræðinga, sem
heldur ofannefnt þing. Á þinginu
verða rúmlega 170 þátttakendur,
þar af 130 erlendir. Þar verða
lagðar fram 54 ritgerðir, 9 þeirra
Islenzkar. Þingið verður i tveimur
hlutum og fjallar annar um með-
ferð og notkun vatnafræðilegra
upplýsinga en hinij um vatna-
fræðileg umhverfi^sjónarmið. Að
þinginu loknu fara þátttakendur i
3 daga ferð um Suðurlaiid.
Mikið um
dýrðir að
Kjarvals-
stöðum
SKÚLPTÚR, vefnaður, gler-
myndir, keramík, olíu-
myndir, krltarmyndir,
teikningar, graflkmyndir. . .
Félag tslenzkra myndlistar-
manna hefur haldið innreið
sina á Kjarvalsstaði á ný
eftir langt hlé. Haustsýn-
ingin verður opnuð á laug-
ardag, 28. ágúst kl. 15.
Vandlát
sýningarnefnd
Sýningarnefndinni bárust
að þessu sinni um 300 verk
eyki flytur verk eftir islenzk
og erlend tónskáld við opnun
og tvisvar siðar á sýningar-
timanum. Þá verða sýndar
kvikmyndir um heimsþekkta
erlenda listamenn og þeirra
verk Meðal þeirra má nefna
Oldenburg, Francis Bacon,
Picasso, Braques og Andy
Warhol. Þessar kvikmynda-
sýningar verða nánar aug-
lýstar siðar
Haustsýningin verður opin
frá 28. ágúst til 12. septem-
ber, laugardaga og sunnu-
daga frá kl 14 — 22. aðra
daga kl 16 — 22 Sýningin
verður lokuð á mánudögum.
en tæplega helmingur þeirra
var tekinn á sýninguna. Eins
og að ofan segir, eru mynd-
verk af ýmsum gerðum á
sýningunni, en alls eiga 48
listamenn þar verk Sjö
þeirra sýna nú í fyrsta sinn á
Haustsýningu, en það eru
þau Ómar Skúlason, Kristján
Kristjánsson, Þórður Hall,
Jón Örn Ásbjörnsson, Gisli
Guðmann, Haukur Dór og
Salome Fannberg
Þar að auki. . .
Sú nýbreytni verður tekjn
upp á þessari Haustsýningu,
að á sýningartimum verða
tónleikar og kvikmyndasýn-
ingar. Söngflokkurinn Hljóm-