Morgunblaðið - 27.08.1976, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. AGUST 1976
17
„Gimsteinn krún-
unnar” er nú sviptur
ljóma sínum og lit
SÚ MYND sem flestir Hollendingar hafa árum saman haft af
hinum ástsæla drottningarmanni slnum, Bernharði prins, hefur
nú verið svipt Ijóma sínum og lit. A sfnum tfma hleypti hann
fersku andrúmslofti inn f hina drungalegu hollenzku hirð, „vakti
prinsessuna af Þyrnirósarsvefninum" eins og sumir Hollending-
ar orðuðu það og með árunum virtist gengi hans sem fljúgandi
sendiherra lands sfns og sölumaður stöðugt vaxa.
Hann sagði í viðtali fyrir
mörgum árum, að enginn hefði
not fyrir kóngafólk, sem ekki
ynni. Og enda þótt styr standi
um hann nú, dregur enginn í
efa, að hann hefur ekki legið á
liði sínu og mörgu komið til
leiðar. Hann hefur verið
óþreytandi að ferðast og auka
og efla sölu á hollenzkum varn-
ingi út um allan heim. Hann
hefur jafnan haft samstarf við
ríkisstjórn lands síns og gefið
henni skýrslu um ferðir sínar
og niðurstöður þeirra — að
minnsta kosti í flestum tilvik-
um. Svo djúpt tóku margir í
árinni að kalla hann „gimstein
Hollenzku krúnunnar.“ en nú
er allt með öðrum brag hjá
Bernharði prins enda þótt við-
brögð hollenzks almennings
eftir afsögn hans úr öllum
embættum og trúnaðarstöðum
séu ekki ljós.
Bernharður hefur átt sæti í
stjórnum fjölda hollenzkra
banka, i stjórn Royal Dutch
Airlines og Fokkerflugvéla-
verksmiðjanna. Hann hefur
verið forseti alþjóðasamtaka
sem berst fyrir verndun villtra
dýra og hann hefur verið
áhugamaður um starf fjölda
hagsmuna og líknarfélaga og
látið þar til sín taka.
Bernharður var hvorki ríkur
að fé né frama, þegar hann
kvæntist Júlíönu krónprins-
essu Hollands árið 1936. Hún
var þá þegar og er enn ein
ríkasta kona heims. Þau kynnt-
ust í skíðaleyfi í Austurríki
hvar hún var með Vilhelmínu
drottningu, móður sinni. Það
varð honum ærið verkefni
fyrstu árin að ávinna sér tiltrú
hollenzku þjóðarinnar, sem bar
enn beiskan hug til Þjóðverja
vegna fyrri heimsstyrjaldar-
innar. En Bernharður er maður
glaðlyndur og félagslyndur
með afbrigðum og þó svo að
Hollendingar tækju honum
kuldalega í byrjun, sigraði
hann hjörtu Hollendinga full-
komlega þegar Þjóðverjar réð-
ust á landið 1940. Hann gekk þá
táplega fram fyrir skjöldu gegn
hernámsliðinu og stýrði baráttu
hollenzku andspyrnuhreyfing-
arinnar stríðsárin við mikinn
orðstír.
Eisenhower veitti honum sér-
staka viðurkenningu að stríð-
inu loknu fyrir ómetanlega
framgöngu og skipulagningu
andspyrnustarfsins í Hollandi á
stríðsárunum.
Bernharður fæddist 29. júní
1911 í Jena í Þýzkalandi. Hann
nam lög við háskólana í
Lausanne, MUnchen og Berlín
og lauk prófi 1934.
Þau Bernharður og Júlíana
eignuðust fjórar dætur. Á árun-
um upp úr 1950 komst orðróm-
ur á kreik um að hjónabandið
væri í molum og skilnaður á
næsta leyti. Orsökin var ekki
hvað sízt að andalæknir hafði
hreiðrað um sig innan hirðar-
innar að beiðni drottningar,
sem hafði trú á að læknirinn
gæti hjálpað yngstu dóttur
þeirra hjóna sem hefur frá
fæðingu verið sjóndöpur. Olli
það hneykslan og fjaðrafoki í
Hollandi, hversu mjög
drottning var handgengin anda-
lækninum, Þrir ráðgjafar
gengu í málið og lyktir urðu að
lækninum var vísað frá hirð-
inni. Það er kaldhæðni ör-
laganna að ráðgjafar þessir,
sem stuðluðu að því að opna
augu drottningar fyrir því, að
andalæknirinn væri hinn mesti
svikari, voru kallaðir „vitring-
arnir þrír“, þvi hinu sama auk-
nefni og gefið var rannsóknar-
mönnunum þremur, sem könn-
uðu mútuásakanirnar á hendur
Bernharði prinsi nú.
Sovézkur mútuþegi dæmdur
Moskva 26 ág. Reuter.
SOVÉZKUR embættismaður, sem starfað hefur um ára-
bil í utanríkisviðskiptum Sovétríkjanna og mun heita A.
S. Baranov, hefur verið dæmdur til þungrar fangelsis-
vistar fyrir að hafa látið vestur-þýzkum kaupsýslumönn-
um í té leyndarmál viðskiptalegs eðlis, að þvf er mál-
gagnið Izvestia skýrði frá í dag.
1 frétt um réttarhöldin yfir
embættism.anni þessum sagði að
tveir vestur-þýzkir kaupsýslu-
menn hefðu verið reknir úr landi
og fengju ekki framar að stíga á
sovézka grund. Baranov, sem hef-
ur starfað árum saman við fyrir-
tækið Stankoimport, þá alls jafn-
virði á fjórðu milljónar -króna. í
mútur og fékk greitt bæði í
rúblum og bandaríkjadollurum.
Þess í stað lét hann af hendi mjög
mikilvæg skjöl sem höfðu inni að
halda mikilvægar viðskiptalegar
upplýsingar.
Frétt Izvestia var sú nýjasta af
nokkrum fréttum af, þessu tagi,
sem birtar hafa ver'rð upp á síð-
kastið um að vestrænir kaupsýslu-
menn hefðu borið mútur á
sovézka embættismenn.
Svissneskur embættismaður af-
plánar nú tíu ára dóm fyrir svip-
aðar sakir og i því máli var hinn
sovézki mútuþegi dæmdur til
dauða. Tveir japanskir kaupsýslu-
menn voru nýlega handteknir,
grunaðir um slíka iðju.
Rignir og rignir og
rignir á Grænlandi
Julianeháb 26. ágúst.
Frá Henrik Lund.
fréttaritara Mbl. —
A SAMA tlma og Vestur-Evrópu
þyrstir eftir rigningu erum við í
Grænlandi hreint að drukkna í
Amin um þurrkana:
Guðs rétt-
láti refsi-
dómur
Nairobi 26. ág. NTB
HINIR geigvænlegu þurrkar sem
hafa gengið yfir Bretland eru
guðs réttláti refsidómur vegna
fyrri glæpa þeirra I nýlendunum,
segir I yfirlýsingu sem Idi Amin
lét frá sér fara f dag og lesin var I
útvarpið I Uganda.
Forsetinn sagði að Bretar hefðu
myrt Kenýamenn I stórum stíl
meðan landið var nýlenda, brezka
stjórnin bæri ábyrgð á stofnun
ísraelsríkis og yrði og að taka á
sig verulega ábyrgð á þvi hvers
konar ástand hefði skapazt í
Ródesiu og Suður-Afriku.
Amin neytti og tækifæris þess
til að tjá þá skoðun sína að Henry
Kissinger, utanríkisráðherra
Bandarikjanna, ísrael og Suður-
Afríka bæru sameiginlega ábyrgð
á því misheppnaða morðtilræði,
sem honum var sýnt í sumar.
Amin
rigningu. Geysileg úrkoma hefur
verið sfðan f miðjum júlf og rign-
ir nær þvf á hverjum degi. Svo
sjaldan sér til sólar að við borð
liggur að við séum búin að
gleyma hvernig hún Iftur út.
Hey liggur undir skemmdum
vegna rigninganna og það þarf
töluvert hugarflug til að geta
þurrkað hey í þessu veðri. Ingvi
Þorsteinsson magister hefur ver-
ið á könnunarferð i Vatnahverfi
og um Brattahliðarsvæðið í Suð-
ur-Grænlandi ásamt grænlenzk-
um og dönskum stjórnmálamönn-
um og embættismönnum til að fá
nokkra hugmynd um uppblástur
og framtíðarmöguleika fyrir bú-
fénað.
Til allrar hamingju varð stutt
hlé á rigningunni í upphafi rann-
sóknarferðarinnar en rigning
hófst á ný áður en ferðinni lauk.
Ingvi Þorsteinsson sagði í lok far-
arinnar að ekki væri hér um
neinn uppblástur að ræða eins og
hann gerðist á Islandi og beiti-
lönd í Suður-Grænlandi gætu nú
borið um það bil eitt hundrað
þúsund fjár. Sem stendur eru þar
15—20 þús. fjár.
Heft útbreiðsla
skógareldanna
Notoddan, Noregi
26. ág. NTB.
ÞAÐ eina sem getur stöðvað skóg-
areldana í Heddalskógunum í
Noregi er að grafa skurði um-
hverfis svæðið og reyna síðan að
sprauta rösklega með vatni þegar
þvi er lokið, að sögn Erik
Grönskei yfirskógarvarðar. Var
unnið að þessu af krafti i dag og
voru stórvirkar vinnuvélar notað-
ar við verkið. Grönskei sagði að
ekki væri ósennilegt að 80 þúsund
rúmmetrar af skógi, sem metinn
er á um það bil 15 millj. norskra
króna, hafi meira og minna eyði-
lagzt f eldunum. Að þessu flæmi
eru 10—15 eigendur og munu
þeir verða fyrir gífurlegu tjóni
þar sem skógurinn er lágt tryggð-
ur.
Svo virtist síðdegis sem björg-
unar og slökkviliði hefði tekizt að
Framhald á hls. 21
Rændu kínverska
„alþýðubankann”
í FRÉTTUM frá Hong Kong sem
borizt hafa með ferðamönnum frá
Kína segir að lögregluliðið í
Chenghow, höfuðborg Honanfylk-
isins, leiti enn að hópi vopnaðra
bófa sem brutust inn f Alþýðu-
bankann f Kfna um hábjartan dag
fyrir röskum mánuði og komust
undan með ránsfeng sinn, sem
mun hafa verið jafnvirði um
tveggja milljóna króna.
Bankarán eru sjaldgæfir við-
burðir I Kína þvi að samkvæmt
opinberum tilskipunum hafa
glæpir nánast verið afnumdir i
Kína. En það sem er enn kynd-
ugra — ef marka skal frásögn
ferðamanna — er að bófaflokkur
þessi sem myrti einn varðmann
við bankann með vélbyssu, virðist
hafa orðið eins konar þjóðhetja
meðal fólksins rétt eins og per-
sónur f þekktri kínverskri skáld-
sögu um glæpaverk og uppreisn
sem heitir „Shui Hu Chuan". Svo
furðulega vill og til að bók þessi
hefur legið undir gagnrýni síð-
asta ár, þar sem látið hefur verið
að því liggja að höfundi hafi mis-
tekizt að gera aðalbófahetjuna að
nægilega miklum uppreisnar-
manni. Stjórnvöld í Chenghow,
þar sem býr meirii en 1 milljón
manns, hafa hafið meiriháttar
herferð til að koma upp um bófa-
flokkinn sem gengur undir nafn-
inu „Andbyltingar- og morðingja-
hópur hins 7. júlí“ en þó er ekki
tilgreindur glæpurinn sem fram-
inn var.
Þá er og haft fyrir satt að bófa-
flokkur þessi hafi gert sér lftið
fyrir á dögunum og storkað yfir-
völdunum með þvf að festa upp
veggspjald þar sem þeir gumuðu
af verki sínu og þar var bætt við:
„Þið getið grafið sundur og saman
alla Chenghowborg og allt Honan-
fylki — en þið finnið okkur
aldrei.“
Framhald á bls. 21
Einar í
Budapest
Budapest 26. ágúst — Reuter
EINAR Ágústsson utanríkisráð-
herra sem kom i gær í opinbera
heimsókn til Ungverjalands átti í
dag viðræður við Frigyes Puja
utanríkisráðherra Ungverjalands
í Budapest um alþjóðamál og lik-
ur á vaxandi samvinnu landanna
tVéfcgjá. ' ' <«*'«****'*