Morgunblaðið - 28.08.1976, Qupperneq 8
8
MOKGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1976
Minnisvarði um Inga T.
afhjúpaður á Seyðisfirði
Seyðisfirði. 26. ágúst —
I STEIKJANDI hita og glaða sðl-
skini var afhjúpaður minnisvarði
um tðnskáldið austfirzka Inga T.
Lárusson. Minnisvarðinn stendur
í nýjum skrúðgarði, sem verið er
að gera hér á Seyðisfirði. Garður-
inn er um þrír hektarar að stærð
og nær yfir lóðir Seyðisfjarðar-
kirkju, Utvegsbankans og land-
svæði, sem kaupstaðurinn á.
Minnisvarðann gerði Sigurjón
Ólafsson myndhöggvari.
Minnisvarðinn er gerður úr
járni og stendur uppi á stein-
steyptum stöpli vestan við kirkj-
una. A steinstöplinum er
marmaraplata, þar sem greipt er í
ljóð Þorsteins Valdimarssonar frá
Teigi í Vopnafirði um Inga T.
Lár. Athöfninni, sem fór mjög
hátíðlega fram, stýrði Pétur
Blöndal. Mikill mannfjöldi var
viðstaddur, bæjarbúar og fólk
lengra að komið, m.a. nánustu
ættingjar tónskáldsins, fulltrúar
frá átthagafélögum og lista-
mennirnir, sem að verkinu stóðu.
Athöfnin hófst með því að sam-
kórinn Bjarmi söng átthagaljóð
Inga T. Þá afhenti Þórarinn
Þórarinsson fyrrverandi skóla-
stjóri á Eiðum og formaður
nefndar þeirrar, sem að gerð
verksins stóð, Seyðisfjarðarkaup-
stað og Seyðfirðingum minnis-
varðann til varðveizlu. Hörður
Hjartarson, forseti bæjarstjórnar,
þakkaði gjöfina fyrir hönd Seyð-
firðinga. Því næst afhjúpaði Inga
Lára, dóttir Inga Lár minnisvarð-
ann og kirkjukór Egilsstaða-
kirkju söng lag Inga við texta
Valdimars Briem: Ó Guð, sem
stjórnar stjarnaher. Að lokum
bauð bæjarstjórn Seyðisfjarðar
og kvenfélögin á staðnum til
kaffidrykkju í félagsheimilinu
Herðubreið. Þar minntist Pétur
Blöndal Inga T. Lárussonar,
kórarnir sungu og Kristján
Kristjánsson söng nokkur af lög-
um Inga við undirleik Katrínar
Jónsdóttur við sérlega góðar
undirtektir viðstaddra.
Gefendur minnisvarðans eru
austfirzk átthagafélög í Reykja-
vík og víðar ásamt fjölda af vin-
um og aðdáendum skáldsins. —
Sveinn.
Frá afhjúpun minnisvarðans um Inga T. I.árusson á Seyðisfirði.
(Ljósm. Haraldur Már Sigurðsson).
Islenzkur blaðamaður
til starfa hjá Lög-
bergi — Heimskringlu
ISLENZKUR blaðamaður, Fríða
Björnsdóttir af Tímanum, mun
væntanlega halda til Kanada um
miðjan september og taka þar til
starfa hjá blaði V-tslendinga I
Winnipeg, Lögbergi — Heims-
Fríða Björnsdóttir.
kringlu. I viðtali við Morgunblað-
ið í gær sagði Fríða að hún gæti
lítið sagt um þetta mál þar sem
ekki væri enn endanlega gengið
frá þessu.
Hún sagði þó að Heimir Hann-
esson, sem hefur mikil samskipti
við íslendinga í Vesturheimi,
hefði haft samband við sig í sum-
ar og spurt sig hvað hún myndi
segja ef henni væri boðið að ger-
ast ritstjóri hjá Lögbergi —
Heimskringlu. — Ég sagði honum
að ég væri fús til að reyna það um
tíma og vissi síðan ekki fyrr en
hann kom aftur að máli við mig og
sagðist vera búinn að ganga frá
þessu, sagði Fríða. — Það hefur
verið rætt um að ég fari utan um
miðjan september. En sá tími
kann að breytast. Ég hef fengið
leyfi hjá Tímanum í þrjá mánuði
og fer þegar þau í Winnipeg eru
tilbúin að taka á móti mér.
Lögberg—Heimskringla er
vikublað og er Karólína Gunnars-
son ritstjóri blaðsins.
— japanskur smábíll með fjórhjóladrifi
Fjórhjóladrifsbillmn Subaru 1400.
SUBARU1400
Ný gerð af japönskum smábfl er
nú um það bil að koma hér á
goturnar I fyrsta sinn. Þetta er f
senn fólksbfll, „ stationbíll" og
jeppi. Farartæki þetta nefnist
Subaru og hefur ekki áður verið
fluttur hingað til lands. Hann hef-
ur vélina að framan og framhjóla
drif venjulega, en einnig fjórhjóla
drif. Hann er framleiddur hjá Fuji-
verksmiðjunum f Tokyo f Japan en
þær eru f raun f eigu Datsun/ Niss
an-verksmiðjanna.
Subaru er ekkert mjög frábrug-
inn öðrum japönskum „stationbfl-
um" í útliti. Hann er f venjulegum
akstri fremur lipur og þægilegur.
Hann er ekka þyngri í stýri en
framhjóladrifnir bflar yfirleitt, gfr-
skiptingar eru auðveldar, kúpl-
ingsástig létt og bremsurnar mjög
góðar. Diskabremsur eru að fram-
an en skálar að aftan og vökvaað-
stoð gerir ástig létt. Bremsupedal-
inn virðist fjaðra nokkuð, en það
verður maður þó alls ekki var við
þegar bremsa þarf. Sjálfstæð
fjöðrun er á hverju hjóli og er hún
stff og bíllinn hastur, sérlega ef
hann er Iftt hlaðinn.
Vélin er 1361 rúsm, fjögurra
strokka og liggur þvert. Um hest-
öflin er það að segja að svissneska
bílaárbókin Automobil Revue seg-
ir þau 72 (SAE) en bandarfsk blöð
telja þau um 60 við 5600
snún./ mín.
Því verður vart neitað að bfllinn
virkar fremur karaftlftill á venju-
legum vegum. Hvort það er til
trafala f akstri yfirleitt, tel ég þó
vafasamt þvf þessi bfll er ekki
ætlaður sem eitthvert spyrnutæki.
Vinnslan er hins vegar ágæt, sér-
staklega f fjórða gfr.
Rétt hjá gfrstönginni er önnur
stöng, sem er notuð til að skipta
yfir f fjórhjóladrif. Það má gerast á
ferð (ekki þó f beygju) en ekki er
ætlast til að ekið sé á yfir 80
km/klst hraða með fjórhjóladrifið
Grænt Ijós neðst á hraðamælis-
skffunni gefur til kynna að fjór-
hjóladrifið sé f notkun.
Bfllinn var nýkominn úr ferð yfir
Sprengisand þar sem hann þaut
yfir öll vötn og hindranir, að sögn
Ingvars Helgasonar. „Þær tiltölu
lega litlu torfærur og vötn, sem ég
ók yfir, voru bflnum ekki til nokk-
Úr Sprengisandsferð Ingvars Helgasonará Subaru
urs trafala þó ekki væri það akst-
ur, sem ég legði út f á venjulegum
fólksbfl," sagði Ingvar.
Nokkur hávaði er inni f bflnum
og mætti hann vera betur einangr-
aður. Þurrka og rúðusprauta eru á
afturrúðunni. Þá eru hitastrengir f
afturrúðu. Nokkurt sullhljóð heyr-
ist frá bensfntanknum þegar tekur
að lækka f honum og ekið er á
ósléttum vegi. Það hverfur þó
væntanlega mikið til þegar ein-
hver farangur er kominn f bflinn.
Bensfntankurinn tekur 45 Iftra og
eyðslan er áætluð 9—12 Iftrar á
100 km.
Mælaborðið er skemmtilega
hannað eins og í flestum japönsku
bflunum og öll stjómtæki vel fyrir
komið nema e.t.v. takkinn fyrir
afturrúðuþurrkuna, hann er undir
stýrishjólinu.
Framsætin eru góð, með háum
bökum og innbyggðum hnakka-
púðum. Aftursætið er einnig gott
en nokkuð er lágt til lofts og hart
að reka sig uppundir.
Loftræstikerfið er mjög gott en
miðstöðvarblásarinn, sem er
tveggja hraða, má ekki vera kraft-
minni.
á
Bfllinn er hár og enginn einn hlutur skagar langt niður
Fremur stffur fjaðrabúnaður, enda hálfgerður fjallabfll.
Vélin er vel vatnsvarin og
gúmmflok er yfir kveikjunni. Bfll-
inn er nokkuð laus á vegi, léttur
að aftan, þegar ekið er einungis
með framdrifi á malarvegum. Það
lagast hins vegar með þvf að vera
með meiri þunga f bflnum eða meo
þvf að setja f fjórhjóladrifið.
Subaru 1400 er með 13 tommu
dekk og hæð undir lægsta punkt
er 21 sentimetri. Bfllinn vegur
970 kg óhlaðinn.
Hér er semsagt á ferðinni mjög
athyglisverður bfll fyrir fslenskar
aðstæður. Hann kann t.d. að
henta vel fólki, sem vill aka venju-
legum litlum (þó ekki of litlum) og
sparneytnum bíl innan borgarinn
ar en vill þó geta komist meir en á
venjulegum fólksbfl á vondum
vegum og að vetrarlagi.
Umboðið fyrir Subaru hefur
Ingvar Helgason, Vonarlandi,
Sogavegi 6. Verðið á Saburu
1400 er um 1720 —30 þúsund
krónur. br h.