Morgunblaðið - 28.08.1976, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1976
— Krafla
Framhald af bls. 32
jafn þungir á metunum. Þessar
athuganir eru gerðar reglubundið, og
ef við verðum varir við einhverjar nýjar
hræringar, skoðum við málið að sjálf-
sögðu á nýjan leik En mér sýnist sem
sagt ekkert það koma fram í þessari
greinargerð, sem við ekki vissum áður,
annað en það að það er eitthvað aðeins
meiri skjálftavirkni nú en var skömmu
áður en greinargerð okkar var samin
ERFITT AÐ STYÐJAST
VIÐ ÁLYKTANIRNAR
VIÐ ÁKVÖRÐUNARTÖKU
Morgunblaðið spurði Jakob, hvað
hann hefði að segja um það, að nú
væru allflestir visindamenn Orkustofn-
unar sjálfrar á sama máli og fjór-
menningarnir um þær ályktanir sem
draga mætti af ástandinu á Kröflu-
svæðmu
,.Ég verð þá að spyrja á móti hvaða
stoð sé i því við ákvörðunartöku, þótt
sagt sé að EF núverandi þróun
helduráfram þá gerist þetta og hitt "
sagði Jakob ,,Ef umsagnir jarð-
fræðinga eiga að hafa eitthvert spágildi
verða að vera einhver tök á því að
segja fyrir um líklega þróun en ekki —
ef eitthvað gerist. Jarðfræðingarnir
fjórir taka fram í greinargerð sinni, að
þeir geti ekki sagt fyrir um að gos verði
með neinni vissu og þeir taka réttilega
enga afstöðu til þess Hvað skuli gert
þarna I framkvæmdum Hins vegar má
það augljóst vera, að við ákvörðunar-
töku í framkvæmdum skiptir það máli
hvað mum gerast og' spurningin er,
hvort nokkur geti sagt fyrir um líklega
þróun á Kröflusvæðinu Er til dæmis
líklegt út frá núverandi vitneskju, að
þessi þróun sem nú er, haldi áfram
óbreytt til áramóta eða er ekki jafn
líklegt að þetta hjaðni aftur? Jarð-
fræðmgarmr segja ekkert um þetta
atriði "
Jakob sagði að meðan svo væri, yrði
að teljast fjarska lítið gagn í umsögn-
um af þessu tagi að öðru leyti en því að
þær hvettu til varúðar Það hafi einmitt
orðið mðurstaða Orkustofnunar að ekki
væri rétt að breyta framkvæmda
áætluninni en hins vegar væri ástæða
til að auka aðgæzlu " í framhaldi af því
lét Orkustofnun setja stöðuga vakt við
jarðskjálftamælana þarna nyðra, sem
Raunvísmdastofnun annast á kostnað
Orkustofnunar Einnig hv3ttum við til,
að almannavarmr endurskoðuðu fyrri
áform um brottflutning manna og
annars verðmætis af staðnum. og ég
held, að allir séu sammála um að
aðgæzlan hafi verið hert En ég verðað
undirstrika, að ályktanirnar, sem jarð-
vísindamennirnir draga eru þrátt fyrir
allt ekki þess eðlis, að mjög auðvelt sé
að styðjast við þær við ákvörðunar-
töku "
Morgunblaðið spurði orkumálastjóra
hvort ekki væri þó Ijóst, að út úr
reglugerðinni mætti lesa aukin llkindi á
gosi og hvort ekki væri þá tekin veru-
leg áhætta með áframhaldandi fram-
kvæmdum
„Jú, það má lesa út úr greinar-
gerðinni aukin líkindi á gosi, ef sama
þróun heldur áfram En hverjar er
síðan líkurnar á því að þessi sama
þróun haldi áfram?" sagði Jakob
„Varðandi áhættuna þá er þess að
gæta, að Kröflusvæðið er virkt eld-
gosasvæði og það er þannig alltaf
tekin töluverð áhætta með mannvirkja-
gerð á slíku svæði Spurningin nú er
sú, hvort áhættan nú sé verulega meiri
en venjulega Það má vera að það sé
einhver skoðanamunur um það atriði,
en þetta er vitanlega afgerandi
spurning Er t d hægt að segja fyrir
um það, svo að það sé byggt á ein-
hverju raunhæfu að líkurnar á gosi á
t d næstu 6 mánuðum séu verulega
meirir heldur en á einhverju sex
mánaða tfmabili hvenær sem er Okkur
nægir ekki að fá upplýsingar um, að ef
núverandi þróun haldi áfram séu
líkurnar meiri — það sem við þurfum
að fá vitneskju um er einfaldlega hvort
Ifkurnar séu meiri á því að þessi þróun
haldi áfram Mér vitanlega hefur
enginn treyst sér til að segja fyrir um
það hvort skjálftarnir muni halda áfram
að aukast, eða hjaðnar þessi hrina,
eins og fordæmi eru fyrir frá því fyrr í
sumar Við verðum einfaldlega að
viðurkenna að það eru ekki tiltækar
nemar aðferðir til að spá fyrir um gos
til með löngum fyrirvara Þessarathug-
anir, sem nú eru gerðar hafa vissulega
sitt gildi, því að þær gera betur fært en
ella að verða við öllu búnir En
varðandi spádöma til svo langs tfma
sem hálfs árs þá get ég ekki séð að
þessar umsagnirhafi gildi f þá veru að
byggja á jafn afdrifarfka ákvörðun og
þá að hætta framkvæmdum Málin
horfðu öðruvísi við ef jarðfræðingar
gætu staðhæft með einhverri vissu, að
líkindin á eldgosi á þessum næstu sex
mánuðum væru verulega miklu meiri
en á einhverju öðru samsvarandi tíma-
bili "
Jakob var þá spurður hvað það hefði
f för með sér að fresta þeim fram-
kvæmdum, sem nú væri unnið að við
Kröflu Jakob svaraði því til að slfkt
væri ákaflega flókið atriði.
„í fyrsta lagi kostar það gffurlegt
umstang að flytja á brott tækin og
sfðan á staðinn aftur ásamt öllu, sem
þvf væri samfara, og bæði tfmafrekt og
kostnaðarsamt Síðan er spurningin
hvort segja eigi upp öllum samningum
varðandi framkvæmdina á grundvelli
„force mayor" ákvæða og verða síðan
að byrja á öllu saman á nýjan leik, fá
nýja verktaka og þar fram eftir götum
Þá þyrfti að færa borana og setja í
önnur verkefni, og þótt það sé e.t.v
einfaldar^ en ýmislegt annað, má Ijóst
vera að það að hætta við framkvæmdir
við Kröflu er mjög viðamikil og marg-
hliða ákvörðun."
Jakob sagði síðan að f bakgrunnin-
um væri síðan ætíð sú spurning,
hversu lengi ætti að fresta fram-
kvæmdunum „Einhverjum kann að
þykja eðlilegast að fresta framkvæmd-
um þar til jarðskjálftavirknin minnkar
aftur En þá er þess að minnast að
skjálftavirknm minnkaði fyrri part sum-
ars eftir að hafa náð tilteknu hámarki til
þess eins að hækka aftur nú síðla
sumars Hver getur þá sagt til um það,
ef virknin minnkar aftur eftir þessa
hrinu, sem nú stendur yfir, hvort það
verður varanlegt í það skiptið, eða
aðeins stundarbil? Jarðfræðingar
benda á að Mývatnsgos hafi staðið í
fimm ár með hléum, en mér vitanlega
er ekki til nein örugg vitneskja um það,
að eitt gos hagi sér eins og annað,
þannig að ekki er gott að byggja á því
Jarðfræðingur, sem lítur á jarðfræði
hliðina eina saman, en hefur engan
annan bakgrunn til að meta aðra þætti
og upplýsingar, á þess vegna auðvelt
með að segja, að ef hann réði ferðinni
myndi hann hætta framkvæmdum við
Kröflu Með svipaðri röksemd ætti
enginn að fara á sjó við íslandsstrend-
ur eða hætta sér út í umferðina í
Reykjavík eða taka sér aftur búsetu í
Vestmannaeyjum Það eitt að hafa vað-
ið fyrir neðan sig er þannig ekki ein-
hlítt "
Jakob sagði þó, að hann væri með
þessu alls ekki að gera lítið úr hætt-
unni við Kröflu, en hins vegar virtist
honum á einskis manns færi að meta
þá hættu raunverulega Jarðfræðiþekk-
ingin væri einfaldlega ekki komin
lengra en svo, að menn treystu sér ekki
að spá fyrir eldgosi lengra fram i
tímann sem næmi um tveimur klukku-
stundum i bezta falli og slfkt væri alls
ekki gagnslaust i því skyni að bjarga
mannslffum og verðmætum sem auð-
velt væri aðflytja burtu með hraði "
SEINNI
VÉLASAMSTÆÐAN
KOMIN í
STÖÐVARHÚSIÐ
Jakob staðfesti, að seinni véla-
samstæðan í virkjunina væri komin á
svæðið og inn í stöðvarhúsið Morgun-
blaðið spurði hvort ekki hefði verið
tryggara að geyma hana á öruggari
stað meðan núverandi þróun væri á
svæðinu „Flutningur vélasamstæð-
unnar er á vegum Kröflunefndar en
ekki Orkustofnunar, en ég held, að svo
fremi, að unnt hefði verið að fá sæmi-
legan geymslustað fyrir hana, þá hefði
verið æskilegra að geyma hana annars
staðar," sagði Jakob „Hins vegar hef-
ur mér skilizt að það hafi verið erfið-
leikum bundið Hitt er annað mál, að
samstæðan stendur á 7 m háum uppi-
stöðum, og sumir halda því fram, þó
að ég vilji engan dóm á það leggja, að
hún geti verið örugg þar, jafnvel þó að
hraun renni, — það fer auðvitað allt
eftir þvf, hvar hraun kemur upp Hins
vegar er vel unnt að flytja þessa sam-
stæðu á brott frá Kröflu og vissulega
kemur það vel til greina Orkustofnun
hefur rætt þetta mál við iðnaðarráðu-
neytið og það er í athugun, hvað gert
verður við hana, ef til kemur
SÖNNUNARSKYLDA Á
JARÐFRÆÐINGUM
Þá sneri Morgunblaðið sér til Hauks
Tómassonar jarðfræðings hjá Orku-
stofnun vegna þeirra ummæla iðnaðar-
ráðherra að greinilegt væri að vfsinda-
menn greindi á um hvaða ályktanir
mætti draga um goshættu á Kröflu-
svæðinu, en samkvæmt upplýsingum,
er Morgunblaðið hafði aflað sér munu
allflestir jarðvísindamenn Orkustofnun-
ar vera sömu skoðunar og fjórmenn-
ingarnir, sem rituðu undir greinargerð-
ina um jarðfræðilegt ástand Kröflu-
svæðisins Staðfesti Haukur þetta f
samtali við Morgunblaðið, en sagði
jafnframt, að ákvörðunarvaldið um að
halda áfram framkvæmdum við Kröflu
við þessar aðstæður væri að sjálfsögðu
ekki f höndum jarðvísindamanna stofn-
unarinnar, heldur hjá yfirmönnum
Orkustofnunar og iðnaðarráðherra
Ágreiningsatriðið væri því kannski
einna helzt það, hvenær þeim, sem
ákörðunarvaldið hefðu, bæri ð fara
eftir ráðleggingum
„Ég tel mig geta fullyrt, að allflestir
jarðvísindamenn innan Orkustofnunar
eru sömu skoðunar og fjórmenning-
arnir, og sú þróun, sem þarna hefur
verið að eiga sér stað undanfarið, hefur
aðeins styrkt þá skoðun," sagði Hauk-
ur „En fyrst ekki var hætt við fram-
kvæmdir strax og gaus í leirhnúki í
desember I fyrra, sem þá hefði verið
fullkomlega eðlileg ákvörðun, þá sé ég
ekki hvenær það ástand getur orðið, að
eðlilegt sé að hætt verði við fram-
kvæmdirnar Eins konar sönnunar-
skylda er látin hvíla á vfsindamönnum
um að gos verði, en það verður varla
sannað nema með þeim atburðum,
sem við öll vonum að ekki komi til "
— Grunnskóli
Framhald af bls. 2
brögð, en þau fara ekki sjálf á
sjóinn. Það er dálítið skemmti-
legt, að hér í Hagaskóla, sem er í
því sem mér er áreiðanlega óhætt
að kalla landkrabbahverfi, hafa
40 nemendur ákveðið að fara í
sjóvinnu."
— Hvernig er annars skiptingin
á milli sviða í Hagaskóla?
“Saga, félagsfræði og ^landa-
fræði hafa vinninginn. Svo eru
nokkrir nemendur, sem velja
bæði svióin, það eru þá krakkar,
sem enn hafa ekki gert upp við
sig, hvaða menntaskóladeild þau
komi til með að velja.“
— Hefur þetta nýja fyrirkomu-
lag ekki aukna vinnu í för með
sér fyrir kennara?
„Jú, það fylgir þessu mikil
aukavinna. Ekki sízt fyrir skipu-
leggjendur, sem þurfa að útbúa
val og raða í stofur og búa til
stundatöflu. Það er alveg óleyst
vandamál varðandi þessar breyt-
ingar, það vinnur enginn slíka
þengnskylduvinnu ár eftir ár.
Hvað grunnskólafyrirkomulaginu
tekst vel til er að mjög miklu leyti
fjárhagsvandamál. Ef fjár-
veitingavald treystir sér til að
standa undir þeim kostnaði, sem
þessu fylgir, þá mun vel fara. En í
smærri bæjarfélögum, sem ekki
hafa efni á auknum kaupgreiðsl-
um, tækjakaupum og húsnæðis-
aukningu, sem fylgir breyttum
kennsluháttum, verða breyting-
arnar ekki eins miklar," sagði
Björn Jónsson að lokum.
— Suður-Afríka
Framhald á bls. 18
rfkti í landinu. „í mesta lagi
rnætti segja að nokkurrar spennu
gætti,“ sagði Kruger. Hann upp-
lysti að 280 manns hefðu látið
lífið í óeirðunum og hann sagði að
meira en 800 manns sætu í fang-
elsum fyrir þáttöku í óeirðunum.
Sjötíu og sjö þeirra sitja inni
vegna sérstakra öryggislaga sem
eru í gildi í landinu og gerir kleift
að halda fólki í fangelsi um ótil-
tekinn tíma án þess að leiða það
fyrir rétt. Sagði Kruger að margir
af þessum 77 væru betur komnir í
fangelsi, myndu enda ella stofna
íil óeirða ef þeir fengju að lejka
lausum hala. Kruger sagði að 35
manns hefðu látið lífið f Soweto í
þessari viku. Fréttamenn sögðu
að Kruger hefði verið afar var-
færinn i tali og reynt eftir föng-
um að forðast að segja nokkuð
það, sem gæti orðið til að æsa upp
hugi manna á ný.
I kvöld var óeirðalögregla á
verði við rústir bæjarins Soweto
og i kvöld hafði ekkert það gerzt
sem fréttnæmt þótti.
— Sement
Framhald af bls. 2
selt laust og ósekkjað til steypu-
stöðva í Reykjavík, Selfossi og
Ytri-Njarðvík, en sekkjað til allra
annarra. Skipting ofangreinds
magns í sekkjað og ósekkjað er
sem hér segir 7 fyrstu mánuði
áranna 1975 og 1976.
1975: Selt laust 31.747 t. 46%.
Selt sekkjað 36.982 t. 54%. 68.729
6. 100%
1976: Selt laust 28.631 t. 45%.
Selt sekkjað 35.168 t. 55% 63.799
t. 100%.
Sala á sekkjuðu sementi, sem að
langmestu leyti fer út á land er
því um 5% minni í ár en var á
sama tfma í fyrra. Sala á lausu
sementi til steypustöðva í Reykja-
vík og nágrenni, hefur minnkað
um tæp 10% frá sama tíma í
fyrra.“_____ _ _______
— Stórtjón
Framhald af bls. 2
þegar slfkt orð er haft um brú,
getur það bæði bent til þess að
stöpull undir henni hafi brotnað
eða brúargólf. Benda þá líkur ti
að hún sé ónýt.
Á svokölluðum útnesvegi, þ.e. á
veginum fyrir Jökul, rann vegur-
inn í sundur, en í gærkveldi hafði
tekizt að lagfæra veginn. Þá
tepptist Ennisvegur fram undir
hádegi.
Allmargir bílar tepptust f
sunnanverðum Kletthálsi, sem er
milli Kollafjarðar og Skammadals
á Vestfjarðaleið i Austur-
Barðastrandarsýslu. Er þetta
skammt vestan Bjarkarlundar og
rétt við sýslumörkin. Á veginn
féll aurskriða allþykk eða um 2H
metri. Sriðan var ekki mjög breið,
en erfiðleikar voru með að fá
jarðýtu til þess að opna veginn og
fékkst hún frá Reykhólum. I gær-
kveldi hafði henni tekizt að opna
veginn og höfðu þá báðum megin
skriðunnar safnazt bílar, sem
biðu. Ekki höfðu fregnir borizt af
fleiri skriðuföllum en á þessum
stað.
— Lindström
Framhald af bls. 2
stofnun Norræna fjárfestinga-
bankans tók gildi 1. júni síðast-
liðinn. Bankinn er stofnaður að
tilhlutan ráðherranefndarinnar
norrænu og á Geir Hallgríms-
son forsætisráðherra sæti f
nefndinni af íslands hálfu.
Tilgangur bankans er að veita
lán og ábyrgðir til sam-
norrænna fjárfestingarverk-
efna og til þess að efla sam-
eiginlegá utflutningshagsmuni
Norðurlandaþjóða. Til þess að
lánsumsókn komi til greina
þarf hún því að varða hagsmuni
a.m.k. tveggja norrænna þjoða.
Stofnfé bankans er 400
milljónir sérstakra dráttarrétt-
inda, en þessi f járhæð svarar til
rúmlega 80 milljarða kröna á
núgildandi gengi. Hlutur
tslands í stofnfénu er 1% eða
um 800 milljónir króna.,
Framlag íslands til bankans f
ár er um 70 milljónir króna. Af
Islands hálfu eiga þeir
Þórhallur Asgeirsson ráðu-
neytisstjori og Jón Sigurðsson
forstjori Þjóðhagsstofnunar
sæti í stjórn bankans, sem
skipuð er 10 mönnum, tveimur
frá hverju landi.
Bert Lindström var skipaður
bankastjóri Fjárfestingabank-
ans á stjórnarfundi 9. júní s.l.
Aður hafði hann starfað sem
aðstoðarforstjóri Þróunarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna í
rúm þrjú ár. Lindström er 54
ára og var frá 1964 - 1971
banakstjóri Götbankans f
Gautaborg. ,, • 1411IFXSttti í
Starfsmenn Norræna
fjárfestingabankans, sem hefur
aðsetur f Helsinki, eru auk
Lindströms, tveir aðstoðar-
menn hans og skrifstofufólk. Á
næstunni verða auglýstar á
Norðurlöndum þrjár stöður hjá
bankanum, starf útlanastjóra,
starf sérfræðings í
alþjóðlegurm lánamálum og
starf sérfrðings i efnahasmal-
um til að sjá um skýrslugerð
fyrir bankann. Reiknað er með
að í framtiðinni verði fastir
starfsmenn bankans 12 talsins,
en sérfræðilegrar aðstoðar í
vissum málum verði leitað hjá
öðrum bönkum og ríkis-
stjórnum landanna fimm. Um
mitt næsta ár flytur bankinn f
framtfðarhúsnæði sitt im mið-
borg Helsinki.
— Holland
Framhald af bls. 1
þeirri kröfu að Bernharður prins
verði látinn svara til saka við
réttarhöld. Á þingfundum f dag
kom fram að allir helztu flokkar
landsins telja hagstæðast að í
landinu verði áfram þingbundin
konungsstjórn og er nokkurn veg-
inn öruggt að þingheimur mun
forðast að gera neitt sem skaðað
getur frekar en orðið er konungs-
fjölskylduna.
Skýrslan þar sem rakin er aðild
prinsins að mútumálinu hefur
verið til sölu f dag og hefur
runnið út eins og heitar Iummur.
— Morðið
Framhald af bls. 32
maðurinn að hafa áhyggjur að
konan kæmi ekki heim og hafði
því samband við lögregluna.
Lögreglumönnum tókst að
komast inn i íbúðina með því að
spenna upp glugga, og þegar inn
var komið fannst konan liggjandi
í kjallara hússins fyrir neðan
hringstiga sem liggur frá neðri
hæð hússins. Konan var með mjög
mikla áverka á höfði og var strax
auðséð, að þeir gátu ekki hafa
stafað af falli úr stiganum. Konan
var þá látin og töldu læknar, sem
kvaddir voru á staðinn, að senni-
lega væru um 5 klst. liðnar frá láti
hennar, en þar er þó um ágizkun
að ræða. Réttarkrufning hefur
farið fram, en síðla í gær lá niður-
staða ekki fyrir.
Mæðgurnar, sem þarna bjuggu,
fóru til Englands sl. þriðjudag og
fengu konuna til að lfta eftir hús-
inu fyrir sig á meðan eins og áður
segir.
Að sögn rannsóknarlögreglunn-
ar liggur fyrir, að konan fór að
heiman frá sér um níu leytið á
fimmtudagsmorgun og fór þá
fyrst til að hjálpa konu við hús-
verk i Mávahlíð. Lögreglan hefur
haft samband við konuna og sam-
kvæmt frásögn hennar gengu þær
saman heiman frá henni og skildu
í Engihlfð um kl. 11 þann morgun.
Konan hafði þá orð á því, að hún
þyrfti að fara í hús við Miklu-
braut.
Lögreglan biður alla þá, sem
einhverjar upplýsingar geta gefið
í máli þessu, að gefa sig fram og
einkum er mikilvægt að fá upp-
lýsingar um, ef einhver hefur sézt
fara inn f húsið að Miklubraut 26,
eða sézt koma út úr því á fimmtu-
dag.
Að sögn lögreglunnar er ekki
hægt að merkja, að brotizt hafi
verið inn í fbúðina. Haft hefur
verið samband við mæðgurnar
sem þarna búa f því skyni að
reyna að grennslast fyrir hvort
eitthvað hafi fémætt horfið úr
íbúðinni, en það er þó ekki með
öllu ljóst. Konurnar munu stytta
för sfna ytra og munu koma heim
í dag.
Morðtólið hefur enn ekki komið
f leitirnar. Ljóst er að þarna hefur
verið um þungt barefli að ræða en
ekki er auðvelt að áúa sig á
hvernig áhaldið hefur verið, sem
konan var slegin með.
Lögreglumenn leituðu f gær
gaumgæfilega í nágrenni hússins,
og hafa fundizt ýmsir hlutir, sem
þó er ekki enn hægt að segja um
hvort tengist málinu. Meðal ann-
ars fannst fatnaður i garði bak við
húsið, en í gærkvöldi var verið að
rannsaka hann nánar.
mniuíuu iiinimiiintn
t
Hjartkær eíginmaður mmn, faðir og fósturfaðir.
ÞORGRÍMUR JÚLÍUS SIGURÐSSON.
lézt i Landspltalanum aðfararnótt mánudagsins 23 ágúst.
Fvrir hönd aðstandenda, „ , .
Marfa Sigurðardóttir.
Hólmgeir Júltusson,
Baldur Skaftason.
Sigrfður Arnkelsdóttir.