Morgunblaðið - 28.08.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1976
19
Braziliukaffi — IJrvalskaffi
hreinlætistæki
Hollensku hreinlætistækin nýkomin, margar gerðir
í miklu litaúrvali. „Grohe" blöndunartækin hæfa
þessum hreinlætistækjum vel.
Aðalumboðsmenn
A. JÓHANNSSON & SMITH HF.
Brautarholt 4 — Sími 24244
Spænsk verkalýðs-
hreyfing mælir gegn
ferðabanni til Spánar
r
Athugasemd frá A.S.I.
I annars ágætum útvarpsþætti
þriggja ungmenna sunnud. 22.
ágúst um ófrelsi á Spáni var veitzt
aö Alþýðusambandi tslands fyrir
hópferðir Alþýðuorlofs til Spán-
ar. Töldu stjórnendur þáttarins
(er ber heitið „Þistlar") að ASI
hefði skorizt úr leik varðandi
skipulagt ferðabann („boycott")
á Spán, sem önnur verkalýðssam-
tök hefðu gengizt fyrir, og þar
með óbeint ljáð fasistastjórn
Spánar stuðning sinn eða a.m.k.
óbeint lagt blessun sína yfir at-
hæfi hennar.
Undir þessum ummælum vill
Alþýðusambandið ekki liggja, en
vonar að þessi ummæli stjórn-
enda þáttarins stafi fremur af
ókunnugleika en löngun til að
sverta Alþýðusambandið f augum
frelsisunnandi Islendinga. Þeim
þremenningum hefði þó verið í
lófa lagið að leita upplýsinga hjá
skrifstofu ASl varðandi þetta mál
og hefðu þær verið fúslega veitt-
ar.
1. Um allmörg undanfarin ár
hefur það verið ‘yfirlýst stefna
Alþjóðasambands frjálsra verka-
lýðsfélaga og aðildarsamtaka þess
að hamla gegn ferðamanna-
straumi til Spánar. Raunveruleg-
ur árangur var þó næsta lítill
enda skipulagði fjöldi ferða- og
orlofssamtaka á vegum verkalýðs-
hreyfingarinnar áfram ferðir til
Spánar þrátt fyrir yfirlýsingar
þinga og ráðstefna. Orlofssamtök
þessi eru sjálfstæðar stofnanir og
þótt þau séu i tengslum við verka-
lýðshreyfinguna eru samþykktir
hennar ekki bindandi fyrir þær.
Sama gildir um Alþýðuorlof.
2. Á sl. hausti er hrikta tók i
innviðum fasistastjórnarinnar
fyrir alvöru voru aðgerðir gegn
henni hertar af hálfu verkalýðs-
hreyfingarinnar og þá — og þá
fyrst — lögðu ferðasamtök verka-
lýðshreyfingarinnar á Norður-
löndum niður ferðir til Spánar en
hófust handa um að beina ferðum
launþega til Portúgals (einkum
Madeira) í staðinn.
3. Þessi áróðursherferð hafði þó
ekki staðið lengi þegar í ljós kom,
að við þær nýju aðstæður, sem
voru að skapast i landinu, taldi
spánska verkalýðshreyfingin
þessar aðgerðir ekki lengur rétta
pólitík, heldur þvert á móti, og
kom þessu áliti sínu á framfæri
við systursamböndin I V-Evrópu.
Þetta sjónarmið var einna skil-
merkilegast sett fram i frétta-
bréfi frá Alþjóðamatvælaiðnaðar-
sambandinu, IUF, dags. 27. apríl
sl. en þar segir á þessa leið:
„Þann 14.—18. apríl sl. dvaldi
Dan Gallin frkv.stj. á Spáni og
átti þá viðræður við þessa fulltrúa
spænsku hótelstarfsmannasam-
bandanna:
— Verkamannanefndina á
Mallorka, sem er sósíalísk og hef-
ur þó náð fullum tökum á hinum
opinberu verkalýðssamtökum á
eynni og sinnir því öllum verk-
efnum, sem frjáls verkalýðssam-
tök hafa með höndum (og hefur
með því tök á 40% af tekjum
Spánar af ferðamönnum).
— Samband hótelstarfsfólks
innan UGT á Kanaríeyjum og
Malaga (Costa del Sol). Þessi
samtök bæði eru í Matvælaiðnað-
arsambandi UGT, en það er aftur
meðlimur i IUF.
(UGT hefur starfað leynilega um
áratuga skeið með aðsetur í S-
Frakklandi. Það á aðild að Al-
þjóðasambandi frjálsra verka-
lýðsfélaga. Dagana 15.—18. apríl
hélt það í fyrsta sinn þing sitt í
Madrid og var ASI boðið að senda
þangað fulltrúa en varð að láta
sér nægja að senda árnaðaróskir
og tjá samstöðu með spænskum
verkalýð á þessum timamótum i
baráttu hans).
Bæði þessi samtök leggja til ein-
róma og með sömu rökum, að
ferðabanni verkalýðshreyfingar-
innar á Spáni verði aflétt. Rök
þeirra eru þessi:
1. Virkt andóf á einu landsvæði
leiðir til þess að ríkisstjórnin vís-
vitandi reynir að beina ferða-
mannastraumnum til annarra
landsvæða. Á Mallorka t.d. eru
verkalýðssamtökin mjög sterk og
við minnsta tilefni gæti rlkis-
stjórnin skipulagt eigið ferða-
bann þar með því að beina ferða-
mönnunum til staða sem lakar
standa að vigi hvað skipulögð
verkalýðssamtök snertir, jafn-
skjótt og hótað er faglegum að-
gerðum. (Þetta er einmitt það,
sem hefði getað gerzt eftir að sam-
bandið hótaði að stöðva allan
ferðaiðnaðinn á eynni ef launa-
kröfum þess væri ekki sinnt.
Verkfalli, sem boðað var 17. apríl
var þó aflýst þar eð orðið var við
meirihluta krafna). Stjórnin
mundi siðan reyna að snúa al-
menningsálitinu gegn verkalýðs-
samtökunum með því að kenna
þeim um atvinnuleysi og sam-
drátt í efnahagslifinu (allir
400.000 Ibúar Mallorka eiga sitt
undir túrismanum, og rikjandi
stöðnun I hótelrekstri hefur keyrt
verðlag neðar en áður hefur
þekkzt). Það sama gæti gerzt á
Kanaríeyjum og öðrum mikilvæg-
um ferðamiðstöðvum Spánar.
2. Vaxandi andóf verkalýðssam-
taka um allt land á Spáni leiðir til
þess, að ferðaskrifstofur beina
ferðamönnum til annarra Mið-
jarðarhafslanda (sögusagnir um
„vaxandi ólgu meðal launþega" á
Maliorka voru birtar í brezkum og
þýzkum fjölmiðlum, með hvatn-
ingu til ferðafólks um að leita
annað).
Stjórnin hagnýtir þetta í póli-
tískum tilgangi, til styrktar hægri
öflunum, sérstaklega ef skella
mætti skuldinni af tilfinnanlegri
tekjurýrnun af túrisma, þjóð-
mála- og efnahagskreppu á
frjálsu verkalýðssamtökin.
Við þessar aðstæður hefur hið
alþjóðlega ferðabann einungis
þau áhrif að auka á þann þrýst-
ing, sem stjórnvöld þegar beita
gagnvart þeirri verkalýðshreyf-
ingu, sem er að rísa úr öskunni og
mótast, og sérstaklega tii að knýja
á stéttvísustu svæðin, þar sem til
verkfalla gæti komið, ef samtökin
fá tækifæri til að treysta raðirnar
og byggja sig upp.
Verkalýðsfélögunum er ljóst, að !
yfirgnæfandi meirihluti ferða- !
fólks til Spánar er launþegar og
beina því eindregið til evrópskra
verkalýðsfélaga, að þau útskýri
fyrir félögum sinum, að við nú-
verandi aðstæður tjái þau sam-
stöðu sina við spánska launþega
bezt með þvi að halda áfram að
ferðast til Spánar, jafnvel þótt
þeir með þvf taki áhættuna af þvf
að lenda í óþægindum vegna
verkfalla.
Varðandi þau rök, að ferðabann
dragi úr gjaldeyristekjum Spánar
og veiki með þvi stjórnina, svara
verkalýðssamtökin því til, að þau
virði og samþykki þann tilgang,
sem upphaflega lá að baki þessum
aðgerðum, en með þvi að auka á
efnahagskreppu Spánar nú sé að-
eins verið að leika upp i hendur
hægri öflunum og auka á mögu-.
leika á valdatöku ofstækisfyllsta
fasistaarmsins. Slík þróun yrði
alvarlegt áfall fyrir þá frjálsu
verkalýðshreyfingu, sem er að
rísa, mótast og skipuleggja sig um
allt landið upp úr ólöglegri starf-
semi.“
Svo mörg voru þau orð fram-
kvæmdastjóra IUF. Af þeim er
væntanlega ljóst, að aðstæður á
Spáni eru sibreytilegar og að
„taktik“ andstæðinga stjórnarinn-
ar verður að breytast til samræm-
is. Það sem er góð „spánska í dag
getur verið afleit „spánska" á
morgun.
Það má margt að starfsemi Al-
þýðusambandsins finna með
nokkrum rétti, þ. á m. að nokkuð
skortir á að við sýnum i verki
samstöðu okkar með kúguðum
stéttarsystkinum úti I heimi, af
sama myndarskap og bræðrasam-
tökin i nálægum löndum. Hins
vegar eru því takmörk sett sem
átta manna starfslið Alþýðusam-
bandsins getur gert og því eðli-
legt að starfskröftunum sé beint
að brýnustu hagsmunamálunum
hverju sinni. Það er því dálítið
fljótfærnislegt að álykta sem svo,
að I hvert sinn sem ASI lætur
undir höfuð leggjast að mótmæla
kúgun og ofbeldi sé, það að leggja
blessun sina yfir ógnarstjórn og
fasisma. ASl vonar því að stjórn-
endur þáttarins „Þistla“ sjái sér
fært að koma þessari leiðréttingu
á framfæri, en þar sem þátturinn
er ekki á ferð aftur fyrr en eftir
hálfan mánuð, þykir óhjávæmi-
legt annað en að biðja aðra fjöl-
miðla að koma á framfæri þessum
skoðunum spænskra verkalýðs-
samtaka varðandi andróður gegn
ferðalögum til Spánar.
Ólafur Hannibalsson
skrifstofustjóri ASl.
,Verium
0ggróöur]
verndumi
jandXgþ}
sphrinx
Málverkasýning
Guðrúnar Elísabetar Halldórsdóttur
að Hamragörðum,
Hávallagötu 24,
er opin frá 4 — 1 0.
Siðasta sýningarhelgi.