Morgunblaðið - 28.08.1976, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1976
Aðeins KR
hefur hlotið
báða titlana
EINS og frá var skýrt í
blaðinu í gær hafa Akur-
nesingar nú tryggt sér
réttinn til þess að leika til
úrslita f bikarkeppni KSÍ í
áttunda sinn og jafnframt
í þriðja sinn í röð.
Fyrst voru Akurnesingar í úr-
slitum árið 1961 og léku þá við
KR. Sigraði KR í leiknum 4:3.
Aftur léku KR og tA til úrslita
1963 og aftur sigraði KR, nú 4:1.
Enn léku þessi lið úrslitaleikinn
1964 og urðu þá úrslit hin sömu
og árið 1961, eða 4:3 fyrir KR.
Árið 1965 léku Valsmenn og
Akurnesingar úrslitaleikinn og
lyktaði honum með sigri Vais 5:3.
Liðu svo þrjú ár unz Akurnesing-
ar voru aftur í úrslitum og voru
Akureyringar þá mótherjar
þeirra. Fyrst skyldu liðin jöfn 1:1,
en i annarri lotu sigruðu Akur-
eyringar 3:2. 1974 léku Skaga-
menn svo til úrslita við Val og
töpuðu 1:4 og í fyrra voru Kefl-
víkingar mótherjar þeirra í úrslit-
um og unnu 1:0.
deildar
ná FH að stigum og fá aukaleik
um fallsætið.
Tveir leikjanna fara fram í dag.
I Keflavík leika heimamenn við
Akurnesinga og hefst sá leikur kl.
14. I fyrri umferðinni fóru leikar
svo að Akurnesingar sigruðu 4:1
og óneitanlega verða þeir að telj-
ast sigurstranglegri 1 leiknum í
dag, þótt vitað sé, að sigur er
aldrei auðsóttur í greipar Kefl-
víkinga á heimavelli.
Hinn leikurinn í dag er milli
Víkings og Þróttar og hefst hann
kl. 15.30. Þarna er um að ræða
siðasta tækifæri Þróttara til þess
að halda sér uþpi í deildinni — og
þó: ætlunin er að fjölga liðum í 1.
deild að ári og á neðsta liðið í 1.
deild nú að leika við næst efsta
liðið í 2. deild um það sæti.
Kl. 19 á morgun hefst leikur
Fram og UBK á Laugardalsvellin-
um og ætti þar að geta orðið um
skemmtilegan leik að ræða. Úrslit
í leikjum viðkomandi liða í fyrri
umferð urðu þau að Víkingar
Þessa skemmtilegu mynd tðk
Friðþjófur Helgason, ljðs-
myndari Morgunblaðsins i leik
FH og Vals fyrr 1 sumar og sýnir
hún hinn marksækna leikmann
Vals, Guðmund Þorbjörnsson,
eiga f höggi við Ómar Karlsson,
sem er hinn einbeittnasti á svip
og heldur ð knettinum sem fjör-
eggi sinu.
unnu Þrótt 2—0, og Fram vann
UBK 1:0. Á mánudagskvöld, fer
svo fram leikur KR og FH á
Laugardalsvelli og hefst hann kl.
19. Fyrri leik þessara liða lauk
með sigri KR-inga, 2:0.
2. deild
Einn leikur fór fram í 2. deildar
keppninni í gærkvöldi, er Reynir
og Völsungur léku á
Árskógstrandarvelli. í dag fara
svo fram þrír leikir: ÍBÍ og Þór
leika á Isafirði, Selfoss og Haukar
leika á Selfossi og KA og ÍBV
leika á Akureyri. Síðastnefndi
leikurinn er sá sem athygli
beinist helzt að og er þar
spurningin hvort Akureyringum
tekst að stöðva sigurgöngu Eyja-
liðsins, sem hefur verið nær óslit-
in i 2. deildar keppninni f sumar.
GUIF leikur við FH
Ekkert lið hefur sigrað eins oft
í bikarkeppni KSl og KR eða alls
7 sinnum. Fram hefur tvívegis
orðið bikarmeistari, og Valur óg
ÍBV hafa einnig hlotið bikar-
meistaratitilinn tvívegis. Liðin
sem sigrað hafa einu sinni í
keppninni eru svo Akureyringar,
Víkingur og Keflvíkingar.
Aðeins eitt lið hefur tíl þessa
bæði sigrað í íslandsmótinu og
bikarkeppni KSl. Er það KR sem
hlaut báða titlana árin 1961 og
1963.
OPIN KVENNA-
KEPPNI HJÁ GR
Opin kvennakeppni fer fram hjá
GR á sunnudaginn og hefst
keppnin klukkan 10. Léiknar
verða 18 holur með og án forgjaf-
ar.
Síðustu
SÍÐUSTU leikir 1. deildar
keppni íslandsmótsins í
knattspyrnu fara fram nú
um helgina og á þriðjudag-
inn fer fram leikur Vals og
Breiðabliks í undanúrslit-
um bikarkeppni KSÍ. Að
loknum þessum leikjum
verður svo nokkurt hlé á
knattspyrnunni og það not-
að til þess að búa íslenzka
landsliðið undir þau
stórátök sem það á í vænd-
um — leiki í heims-
meistarakeppninni við
leikir 1.
Belgíumenn og Hol-
lendinga.
Þar sem úrslit eru þegar ráðin i
1. deildar keppninni, — Vals-
menn orðnir islandsmeistar, —
má ætla að minni spenna verði I
leikjum helgarinnar en oftast áð-
ur. Þeir geta þó allir ráðið úrslit-
um um stöðu viðkomandi liða i
deildinni og hafa þar sum að
ýmsu að keppa, sérstaklega þó
Akurnesingar, Framarar og
Þróttarar. Akranes og Fram
keppa um annað sætið í mótinu,
en það þýðir einnig þátttökurétt i
UEFA-bikarkeppninni að ári, og
enn á Þróttur smámöguleika á að
Baráttan sennilega miE IR
og KR í bikarkeppni FRÍ
11. BIKARKEPPNI Frjálsíþrðtta-
sambands tslands fer fram á
Laugradalsvellinum nú um helg-
ina, og keppa þar sex lið um titil-
inn „Bikarmeistari 1 frjálsum
iþróttum 1976“. Frá þvi að bikar-
keppninni var fyrst komið á lagg-
irnar árið 1966 hefur þarna verið
um að ræða skemmtilegasta
frjálsíþróttamðt sumarsins, enda
jafnan hörð stigabarátta milli fé-
laganna. KR vann bikarkeppnina
fimm fyrstu árin 1 röð, en tapaði
siðan titlinum til UMSK, sem hélt
honum eitt ár. Síðan hafa lR
ingar sigrað f jðrum sinnum í röð.
Bikarkeppnin er nú orðin mun
umfangsmeiri en hún var í fyrstu,
þar sem keppt er nú i 1. 2. og 3.
deild. Var byrjað að keppa í 2.
deild árið 1974, en 3. deildar
keppnin fór í fyrsta sinn fram I
sumar.
Þau sex lið, sem taka þátt í
keppninni að þessu sinni, eru lið
Ármanns, Skarphéðins, HSÞ, ÍR,
KR og UMSK. Eru alls skráðir 111
keppendur til leiks. Verður lið
HSK fjölmennast en í því eru 29
iþróttamenn. i liði UMSK eru 17,
í liði Ármanns og ÍR 14, og í liðum
KR ogHSÞeru 12.
Ætla má að bikarkeppnin verði
óvenjulega jöfn og tvísýn að
þessu sinni og verða það að öllum
likindum KR-ingar og ÍR-ingar
sem berjast um sigurinh. Sem
kunnugt er hafa KR-ingar fengið
góðan liðsauka frá því í fyrra, þar
sem eru m.a. Guðni Halldórsson,
Hreinn Halldórsson og Elías
Sveinsson og er líklegt að þeir
setji meira en litið strik í reikn-
inginn að þessu sinni. Þeir, sem
hafa verið að spá um úrslit i
keppninni að þessu sinni, hallast
þó að sigri ÍR-inga, en telja að
munurinn verði innan við tíu stig,
þannig að ljóst má vera að lítið
má út af bera til þess að úrslit
skipist á annan veg en ætlað er.
Er það einkum í kvennagreinun-
um sem ÍR-liðið er sterkara en
KR-liðið, en búast má við að
keppnin I karlagreinum verði
mjög jöfn.
Keppnin hefst kl. 14 í dag og
verður tímaseðill hennar þannig:
Laugardagur:
Kl. 14.00: 400 metra grindahlaup,
hástökk kvenna, spjótkast kvenna
og langstökk karla.
Kl. 14.10: Kúluvarp karla
Kl. 14.20: 200 metra hlaup karla
Kl. 14.30: 100 metra hlaup kvenna
Kl. 14.40: 3000 metra hlaup karla
Kl. • 14.55: Spjótkast karla, há-
stökk karla og kúluvarp kvenna
Kl. 15.00: 400 metra hlaup kvenna
Kl. 15.25: 1500 metra hlaup
kvenna
Kl. 15.40: 800 metra hlaup karla
Kl. 15.50: sleggjukast
Kl. 15,55: 4x100 metra boðhlaup
kvenna
Kl. 16.10: 4x100 metra boðhlaup
karla
Sunnudagur:
Kl. 14.00: 100 metra grindahlaup
kvenna, stangarstökk og kringlu-
kast karla.
Kl. 14.10: þristökk
Kl. 14.25: 110 metra grindahlaup
Kl. 14.40: 1500 metra hlaup karla
Kl. 14.55: 100 metra hlaup karla
Kl. 15.00: langstökk kvenna
Kl. 15.10: 800 metra hlaup
kvenna, kringlukast kvenna
Kl. 15.20: 400 metra hlaup karla
Kl. 15.30: 5000 metra hlaup karla
Kl. 15.55: 200 metra hlaup kvenna
Kl. 16.10: 1000 metra boðhlaup
karla.
Allt fremsta frjálsíþróttafólk
landsins mun verða meðal kepp-
enda i bikarkeppninni að þessu
sinni og má nefna að Lilja Guð-
mundsdóttir, ÍR, kemur frá
Svíbióð til keopninnar.
EINS og skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu er sænska 1.
deildar liðið í handknattleik,
GUIF, statt hérlendis um þessar
mundir á' vegum FH. Munu
Svíarnir leika við FH-inga í
íþróttahúsinu i Hafnarfirði í dag
og hefst sá leikur kl. 15. Verður
væntanlega fróðlegt að sjá hvern-
ig íslands- og bikarmeisturum FH
vegnar í baráttunni við Svíana, en
sagt er að sænska liðið sé mjög
gott og leiki skemmtilegan hand-
knattleik.
VALUR varð íslan^smeistari í
knattspyrnu í öðrum aldurs-
flokki, en síðasti leikur úrslita-
keppninnar fór fram í fyrrakvöld.
Léku þá lið Fram og Reynis í
Sandgerði og þurftu Framarar að
vinna þann leik til þess að fá
aukaleik við Val um titilinn þar
sem Valsmenn höfðu áður unnið
Revni os síðan hafði orðið iafn-
Að undanförnu hefur það leikið
æfingaleiki við islenzk lið og er
Morgunblaðinu kunnugt um að
það vann Hauka með 22 mörkum
gegn 14.
Þekktasti leikmaður GUIF er
Bo Anderson sem leikið hefur
rösklega 70 landsleiki fyrir Svia
og í liðinu er einnig annar sænsk-
ur landsliðsmaður, markvörður-
inn Claes Hellgren, sem þykir
mjög snjall og reyndist Haukum
erfiður í fyrrnefndum æfingaleik.
tefli í leik Vals og Fram. En í
leiknum i fyrrakvöld komu
Reynispiltarnir verulega á óvænt
og gerðu jafntefli við Fram 1—1,
þannig að lokastaðan í úrslit-
unum varð sú að Valur hlaut 3
stig, Fram 2 stig og Reynir 1 stig.
Munu Valspiltunum verða afhent
verðlaun síðar, þar sem þeir voru
ekki viðstaddir er siðasti leikur-
inrrfór fram.
VALUR MEISTARI