Morgunblaðið - 02.09.1976, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 02.09.1976, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1976 11 Sumar- ALAN (t stöðu þessari á svartur að leika mótspils á drottningarvæng, en eftir þennan leik verður staða hans algjörlega kyrrstæð). manns Libiu, en ekki var þar vik- ið að ásökunum Súdana um aðild Líbíu að tilraun til valdaráns þar nú fyrir skömmu. Vestrænir sérfræðingar líta svo á, að þessi grein sé talandi tðkn um áhyggjur Kremlarmanna vegna þess hve mjög staða þeirra hefur veikzt í Miðausturlöndum, ekki hvað sízt gagnvart Sýrlandi vegna borgarastyrjaldarinnar I Líbanon. SEM ALLIR HAFA BEÐIÐ EFTIR ER í FULLUM GANGI í 4 VERZLUNUM SAMTÍMIS HERRAFÖT M/VESTI ST. JAKKAR TERYLENE ULLARBUXUR BÚNAR TIL BEINT Á ÚTSÖLU DENIM BUXUR FLAUELSBUXUR DENIM MUSSUR SKYRTUR BLÚSSUR HERRAPEYSUR DÖMUPEYSUR DÖMUKÁPUR HERRAFRAKKAR KJÓLAR DÖMUDRAGTIR BINDI OMFL. HLJOMPLÖTUR - SKOR Látið ekki happ úr hendi sleppa TlZKUVERZLUN unga fólksins mjlKARNABÆR W AUS'UHSTRAII 11 LAUGAVEC 66 LAUGAVEG 20« S«ni Iia sfcwWwrð. 28ISS LÆKJARGOTU 2 SIMI FRA SKIPTIBOROl 28155 Sovétstjórn einhuga með Líbíu Moskvu 30. ág. Reuter. SOVÉZK sendinefnd hélt frá Moskvu í dag til að vera við hátíðahöld i tilefni af byltingar- degi Libiu. Samtímis þvi tók sovézka stjórnin mjög harða af- stöðu með Líbýu í deilum hennar við nærliggjandi Arabaríki. Sendinefndinni stýrir Artur Vader varaforseti og var lagt af stað skömmu eftir að málgagnið Pravda hafði gefið í skyn að „heimsvaldasinnar og endur- skoðunarsinnar" — og þar á meðal er átt við Egyptaland — væru að gera samsæri gegn stjórninni í Libýu. í grein sem virtist hálfopinber tilkynning stjórnarinnar voru Egyptar ásakaðir mjög harðlega fyrir að vera með ögranir og hótanir i garð Gaddafis, forystu- Peking 31. ág. NTB. Reuter KlNVERJAR skutu i morgun gervihnetti á loft og er hann kom- inn á braut umhverfis jörðu, að því er kínverska fréttastofan skýrði frá f dag. Þar sagði, að gervihnötturinn væri enn einn siguróður Maos formanns, en að öðru leyti voru ekki gefnar upplýsingar um, hvaða verkum gervihnötturinn á að sinna. Fyrsta gervihnetti sínum skutu Kinverjar upp árið 1970. forystuna á ný EKKI veit ég hvað olli, en 6. um- ferð Reykjavíkurskákmótsins, sem tefld var síðastliðið þriðju- dagskvöld, var einhvern veginn leiðinlegri en hinar fyrri. Kannski hefur sífellt skaldur og mas í áhorfendasalnum átt sinn þátt i þessu, en þar voru saman- komnir nokkrir miklir meistarar, sem ómögulega gátu látið vera að láta ljós sitt skína. Kvörtuðu keppendur sáran undan þessu, og verður aldrei brýnt nógsamlega fyrir áhorfendum, að allar viðræður og hvislingar í skáksal eru og hafa alltaf verið bannaðar. Skák Friðriks Ólafssonar og Antoshins vakti tvímælalaust mesta athygli, en þar sem hún birtist í blaðinu í gær sé ég ekki ástæðu til að ræða frekar um hana hér. Gunnar Gunnarsson tefldi æsi- spennandi skák gegn Vukcevic, og töldu sumir að Gunnar væri með unnið tafl á tímabili. Allar sóknartilraunir hans strönduðu þó á öruggri vörn Bandaríkja- mannsins og smám saman fjaraði sóknin út. Virðist Vukcevis vera með nær unnið tafl í biðstöðunni. Skák Helga og Westerinen var einnig mjög skemmtileg. Westerinen beitti kóngsind- verskri vörn, og tefldi anzi djarft í byrjun. Helgi fékk ágæta stöðu, en með taktískum brellum í mið- taflinu tókst Finnanum að villa honum sýn, og f biðstöðunni stendur Helgi uppi með gjörtapað tafl. Margeir Pétursson beitti kóngsindverskri vörn gegn Inga R., sem tefldi afar rólega, en fékk engu að síður mun betra tafl þegar í byrjun. I tímahrakinu vann hann peð og hefur góðar vinningslikur í biðstöðunni. Najdorf hafði hvítt gegn Matera og tefldi hálfgert „heima- brugg“ gegn kóngsindverskri uppbyggingu andstæðingsins. Gamli maðurinn tefldi djarft í byrjun, fórnaði peði og fékk álit- lega stöðu. Skyndilega sagði Matera eitthvað, sem Najdorf hélt vera jafnteflisboð. Hann þáði þegar jafntefli, og skrifaði „jafn- tefli“ á blaðið hjá sér. Þegar hann komst að því að Matera hafði ver- ið að gefast upp varð hann hins vegar afar undrandi, enda var mikil barátta enn fyrir höndum að hans mati. En látum nú skákirnar tala: Hvitt: Guðmundur Sigurjónsson Svart: Björn Þorsteinsson Spænskur leikur 1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5 — a6, 4. Ba4 — Rf6 5. 0-0 — Be7, 6. Hel — b5, 7. Bb3 — 0-0, 8. c3 — d6. 9. h3 — Ra5, 10. Bc2 — c5, 11. d4 — Dc7, 12. Rbd2 — cxd4, 13. cxd4 — Bb7, (Liprari leikur er 13. — Bd7). 14. d5 — Hac8, (Hér kemur ekki siður til greina að leika 14. — Bc8 og síðan Bd7). 15. Bbl — Rc4, 16. Rfl — a5(?) . (Nú verða svörtu peðin á drottningarvæng hvitu mönnun- um auðveldur skotspónn og svart- ur neyðist til að veikja stöðu sina enn meir). 17. Rg3 — g6, 18. b3 — Rb6, 19. Bh6 — Hfe8, 20. Dd2 — b4. 21. Bd3 — Rbd7, 22. Bb5! (Neglir svörtu stöðuna fasta). 22. — Bf8, 23. Bxf8 — Hxf8, 24. Dh6 (Gegn sókn hvíts á svartur ekk- ert svar). 24. — Dd8, 25. Rg5 — Hc7, 26, He3 — De7, 27. Bxd7 — Hxd7, 28. Rh5! (Einfalt og sterkt). 28. — gxh5, 29. Hg3 — h4, (Eða 29. — Kh8, 30. Rxh7). 30. Re6+ og svartur gafst upp. Haukur Angantýsson tefldi byrjunina afar rólega gegn Timm- an, sem átti ekki í erfiðleikum með að jafna taflið og vann eftir slæm mistök Hauks. Hvltt: Haukur Angantýsson Svart: J. H. Timman Óregluleg byrjun 1. g3 — g6, 2. Bg2 — Bg7, 3. d3 — e5, 4. e4 — Rge7, 5. Rge2 — d5, 6. 0-0 — 0-0, 7. f4 — dxe4, 8. dxe4 — Dxdl. 9. Hxdl — Bg4, 10. Hel — Rc6, 11. c3 — HadS, 12. Rbd2 — Bh6, 13. Rfl — Bxe2, 14. Hxe2 — Hdl, 15. Hd2 — Hxcl, 16. Hxcl — exf4, 17. Hcdl — f3, 18. Bxf3 — Bxd2, 19. Hxd2 — Re5, 20. Be2 — Rc8, 21. g4 — Rd6, 22. Rg3 — He8, 23. Kf2 — Kg7, 24. h4 — He6, 25. g5 — f6, 26. Hd5 — fxg5, 27. hxg5 — Rdf7, 28. Hc5 — c6, 29. b4 — b6 og hvftur gafst upp. Að loknum 6 umferðum er stað- an þessi: 1. Timman 4,5 v. og biðsk. 2.—4. Friðrik, Najdorf og Tukmakov 4,5 v„ 5.—6. Guðmund- ur og Ingi 3,5 v. og biðsk., 7. Antoshin 3 v. og biðsk., 8. Helgi 2.5 v. og biðsk., 9.—10. Haukur og Keene 2,5 v., 11. Matera 2 v., 12.—13. Vukcevic og Westerinen 1.5 og biðsk., 14. Margeir 1 v. ög 2 biðsk., 15.—16. Björn og Gunnar 0,5 v. og biðsk. I dag kl. 14 verða tefldar bið- skákir, en 8. umferð verður tefld í kvöld og hefst kl. 17.30. Þá tefla saman: Haukur og Guðmundur, Friðrik og Timman, Najdorf og Björn, Tukmakov og Antoshin, Helgi og Matera, Gunnar og Keene, Ingi R. og Westerinen, Margeir og Vukcevic. Biðstaða: Ingi R. — Margeir (hvftur lék biðleik) Biðstaða: Helgi — Westerinen (hvftur lék biðleik) Og þá er það viðureign Tukmakovs og Keene. Hvltt: V. Tukmakov Svart: R. Keene Tfzkuvörn 1. e4 — g6, 2. d4 — Bg7, 3. Rx3 — d6, 4. Be3 — a6, 5. a4 — Rf6, 6. h3 — 0-0, 7. Rf3 — Rc6, 8. d5 — Rb4, 9. Be2 — c6, 10. 0-0 — cxd5, 11. exd5 — Bd7, 12. a5 — Hc8, 13. Ha3 — Hxc3!?, 14. bxc3 — Rfxd5, 15. Bcl — Dc7, 16. c4 — Rb4, 17. Be3 — Re4, 18. Bb6 — Dc8, 19. Dbl — Rc6, 20. Bd3 — Rc5, 21. Bxc5 — dxc5, 22. Db6 — Bxh3!, 23. gxh3 — Dxh3, 24. Be2 — Dg4+, 25. Khl — Dh3+, 26. Kgl — Dg4+, 27. Khl jafntefli. NYJAR VÖRUR TEKNAR FRAM Á ÚTSÖLUNNI í DAG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.