Morgunblaðið - 02.09.1976, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.09.1976, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1976 Hjörtur Jónsson: Mjólkursölumál í MÖRG ár hefur staðið yfir glíma milli kaupmanna og neytenda annars vegar og Mjólkursamsöl- unnar og framleiðenda mjólkur- afurða hins vegar um dreifingu á mjólk, skyri og rjóma í smásölu. Mjólkursamsalan hefur lengi ann- azt þessa dreifingu, og komið sér upp aðstöðu til þess um alla Reykjavíkurborg og víðar, keypt húsnæði og leigt og rekið þessar búðir sérstaklega í þessu skyni, en þó bætt við nokkrum öðrum vörutegundum, svo sem brauði og kökum, sælgæti og gosdrykkjum. Samkvæmt eðli þessarar verzl- unar, er verzlunarþunginn lang- mestur á morgnana og verður að hafa fullt starfslið til þess að anna þessum toppum, enda þótt ekki sé full þörf fyrir fólkið á öðrum tím- um dagsins. Þetta veldur því, að rekstur búðanna hlýtur að vera óhagkvæmur. Kaupmenn hafa haldið því fram að mjólkurbúð- irnar séu margar hverjar raun- verulega reknar með tapi. Mjólk- ursamsalan hefur jafnan neitað þessu, en alltaf verið ófáanleg til þess að sýna fram á að sú staðhæf- ing væri rétt, borið við bókhalds- fyrirkomulagi og öðru sliku, og kaupmenn hafa ekki sannfærzt. Þetta eru rök af hálfu kaup- manna til viðbótar því, að neyt- endur geti gert öll sin matarinn- kaup þar sem þeim hentar bezt, og fengið vörur sendar heim ef þeir óska. Þegar verzlunarhættir með matvöru fóru að breytast eftir kröfum timans, gjörbreyttist að- staða til þess að selja matvörur, sem halda þurfti kældum eða frystum. I þessum nýju verzlun- um voru fullkomin frysti- og kæli- borð, og fólkið valdi vörurnar að miklu leyti sjálft, verzlanirnar voru bjartar, hreinlegar og aðlað- andi, fólkið gat keypt allar mat- vörur í þessum verzlunum. Nei, ekki allar. Það gat ekki fengið mjólk, rjóma né skyr. Ef fólk vantaði þessar vörur líka þá þurfti það að fara í aðra búð, jafnvel aðra átt, þurfti kannski að príla upp margar tröppur inn í lita búðarkompu, og biða þar í halarófu eftir afgreiðslu á rjóma, mjólk og skyri. Hvernig stóð nú á þessu? 1 verzluninni hjá kaup- manninum gat fólkið fengið allar aðrar iandbúnaðarafurðir. Þar var hægt að fá kartöflur, kjöt, osta og smjör, en ekki mjólk, rjóma og skyr. Já hvernig stóð á þessu? Fólkið vildi fá svar og kaupmenn vildu fá svar. Svar Mjólkursamsölunnar var, að mjólkursölumálin væru í beztu höndum sem hugsazt gæti, þetta hefði gegið vel svona alla tið, breytingar hefðu bara kostnað og áhættu í för með sér, hreinlætis yrði kannski ekki eins vel gætt, ef aðrir seldu mjólk, þótt í lokuðum umbúðum væri, og húsmæður hefðu bara gott af þvi að trítla eftir mjólkinni aukaferð, eins og einn aðalforsvarsmaður Mjólkur- samsölunnar orðaði það i blaða- grein. Og Mjólkursamsalan þráað- ist við og sama var að segja um aðra mjólkurdreifendur annarra búa á landinu. Nýtízku verzlanir kaupmanna máttu ekki selja mjólk, rjóma né skyr, þótt aðstæð- ur væru fullkomnar að dómi heil- brigðisyfirvalda. Einokunarand- inn, sem yfir þessu sveif, var svo rótgróinn, gömlu bændakempurn- ar, sem stjórnuðu Samsölunni héldu víst að þær væru að missa úr höndum sér eitthvert vald til Reykvíkinga og kaupfélögin úti um land sáu sér hag í því að einoka þessa afurðasölu. Og bar- áttan hélt áfram, landbúnaðarráð- herrar komu og fóru og ekki gekk rófan. Þrýstingur almennings, kaup- manna og ýmissa stjórnmála- manna og stuðningur núverandi landbúnaðarráðherra varð svo til þess að lög voru sett á síðasta Alþingi um mjólkursölu. Mjólkursamsalan þurfti engin ný lög til þess að leyfa verzlunum að annast dreifingu mjólkur, enda voru með harðfylgi toguð út úr Samsölunni leyfi fyrir nokkrar Hjörtur Jónsson. verzlanir áður en núgildandi lög voru sett. Lögin sem sett voru á síðasta þingi voru bara sett til þess að beygja afturhaldsmenn- ina til þess að lifa í nútímanum. Fullyrðingar Mjólkursamsölu- manna nú um að samkvæmt lög- unum eigi þeir aðeins að annast heildsölu mjólkurafurða, er hin mesta blekking. Mjólkursamsalan hefur samkvæmt hinum nýju lög- um fullt leyfi til þess að annast dreifingu mjólkur í smásölu, og ber skylda til eðli málsins sam- kvæmt að gera það, ef kaup- mannaverzlanir geta ekki vegna staðsetningar sinnar, eða af öðr- um orsökum, veitt jafngóða þjón- ustu eða betri en nú er. Afstaða Mjólkursamsölunnar er barnaleg, nú vilja þeir fyrirvara- lítið loka öllum sinum búðum sama daginn og segja upp öllu sínu starfsfólki, til þess eins að vekja óánægju almennings, og óánægju starfsmanna í búðunum, forráðamenn Mjólkursamsölunn- ar eru komnir í fýlu út af þvi að einokurhringurinn er rofinn í bili, og nú reyna þeir að koma óvinsældum af sínum eigin þumb- arahætti yfir á verzlunarstéttina. Ekkert virðist þá varða um það, þótt afstaða þeirra kunni að valda bændum tjóni, og litla ábyrgð sýn- ast þeir vilja bera á sínu góða starfsfólki og högum þess. Stjórn Mjólkursamsölunnar og aðrir forsvarsmenn mjólkuraf- urða ættu nú að yngja sig upp, gleyma einokuninni og andúð- inni, og stefna í staðinn að því að neytendur verði sem allra ánægð- astir með vöruna og þjónustuna, svo bændur geti selt sem mest af sínum afurðum. Þegar kaupmenn fara að hafa mjólk, rjóma og skyr í búðum sínum almennt, mun þjónustan við neytendur stór- batna og neyzla vafalaust aukast, og enginn vafi er á því að dreif- ingarkostnaður bænda mun lækka þegar hægt er að fækka litlu mjólkurbúðunum. Ef það væri ágóði af rekstri mjólkurbúðanna nú, þá væri máske snjallast að starfsstúlkurn- ar yfirtækju rekstur búðanna sjálfar, en það ætti þeim að vera algjörlega frjálst. Mjólkursamsal- an gæti leigt þeim verzlanirnar með góðum kjörum og rekstrarfé þarf lítið. Vafasamt er hvort stúlkunum lizt á þessa leiö, hvort þær trúa á arðsemina betur en kaupmenn, en velkomnar mundu þær vera i stéttina af kaupmanna ■hálfu. Ég vona að Mjólkursamsalan hætti þessu andófi, haldi opnum þeim verzlunum sínum, sem þörf er á, unz betri þjónusta býðst, og komi auga á það fyrr en síðar að hagsmunir neytenda, bænda og kaupmanna fara saman í þessu máli. Við neytendur mætti svo segja það, að þeir eru óþarflega tómlát- ir um jafnmikil hagsmunamál sem mjólkurframleiðslan er. Hvað vita neytendur um fóðrun kúa, aðbúnað og hreinlæti í fjós- um, mjaltir og meðferð mjólkur frá fyrstu hendi, hve gömul mjólkin er í raun og veru þegar hún kemur á borðið, hvert fitu- magn er og hvað það á að vera í mjólk og rjóma, um skyrgerð og áfram mætti telja. Fylgjast neyt- endur nógu vel með allri þessari keðju? eftir JÓN Þ. ÞÓR Larsen tapaði aftur Það má helzt telja til tíðinda úr 16. umferð millisvæðamóts- ins í Biel, að Bent Larsen tapaði nú aftur að þessu sinni fyrir Byrne. Byrne náði yfirburða- stöðu eftir harðar sviptingar á drottningarvæng og vann ör- ugglega þótt Larsen berðist eins og ljón unz yfir lauk. Hvítt: Byrne Svart: Larsen Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — a6, 5. Bd3 — Bc5, 6. Rb3 — Ba7, 7. De2 — Rc6, 8. Be3 — Bxe3, 9. Dxe3 — Rf6, 10. Rc3 — d6, 11. 0-0-0 — b5, 12. Hd2 — 0-0, 13. Hhdl — Dc7, 14. f4 — b4, 15. Re2 — e5, 16. fxe5 — dxe5, 17. Hdfl — Rd7, 18. Rg3 — Rb6, 19. Rf5 — f6, 20. Dc5 — Hf7, 21. Rd6 — Rd4, 22. Dxb4 — a5, 23. Da3 — Rxb3, 24. axb3 — a4, 25. Bc4 — Rxc4, 26. bxc4 — Hf8, 27. b4 — Be6, 28. c5 — Hfb8, 29. c4 — h6, 30. Hf3 — Kh7, 31. Hc2 — Hbd8, 32. Kb2 — Hxd6, 33. cxd6 — I)xd6, 34. Hd3 — Dc6, 35. Hd5 — Bxd5, 36. exd5 — Dd7, 37. Dd3 — f5, 38. Ka3 — e4, 39. Dd4 — Hae8, 40. He2 — Dd6, 41. g3 — Hb8, 42. c5 — Da6, 43. Hel — He8, 44. c6 — h5, 45. c7 — Dd6, 46. Dc5 — Da6, 47. b5 — Da5, 48. He2 — e3, 49. c8D — Hxc8, 50. Dxc8 — Dxb5, 51. Dxf5 — Kh8, 52. Dc8 og Larsen gafst upp. Það má kalla lán í óláni fyrir Larsen að helztu keppinautum hans gekk ekki of vel heldur í þessari umferð. Petrosjan gerði jafntefli við Matanovic, Smysl- ov við Smejkal, Tal við Anders- son og Hiibner við Geller. Og aumingja Portisch vill senni- lega gleyma skák sinni úr þess- ari umferð, ef það er þá hægt: Hvftt: Portisch Svart: Lombard Drottningarbragð 1. c4 — Rf6, 2. Rc3 — e6, 3. Rf3 — d5, 4. d4 — c6, 5. Db3 — Rbd7, 6. Bg5 — Be7, 7. e3 — 0-0, 8. Bd3 — dxc4, 9. Dxc4 — a6, 10. Bc2 — b5, 11. Dd3 — Bb7, 12. e4 — g6, 13. Bh6 — He8, 14. e5 — Rg4, 15. Bf4 — c5, 16. Re4 — cxd4, 17. h3 — f5!, 18. Red2 — Rc5, 19. Dfl — d3, 20. Bdl — g5, 21. hxg4 — gxf4, 22. Dgl — Hf8, 23. Dh2 — Hf7, 24. gxf5 — exf5, 25. Dxf4 — Bd5, 26. Hh5 — Re6, 27. Dg3+ — Hg7, 28. Dh2 — Bb4, 29. a3 — Da5, 30. Hh6 — He8, 31. Dh5 — H8e7, 32. Hcl — Bxd2, 33. Rxd2 — Rf8, 34. Bf3 — Hxe5+, 35. Kdl — Bb3+ og Portisch gafst upp. Torfæruaksturskeppni verður haldin á Suðurnesjum, sunnudaginn 12. september. Þátttakendur tilkynni þátttöku sína í síma 92-2430. Björgunarsveitin Stakkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.