Morgunblaðið - 02.09.1976, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1976
UBK - Valur í kvöld
BREIÐABLIK og Valur reyna
með sér öðru sinni f undanúrslit-
um bikarkeppni KSÍ á knatt-
spyrnuvellinum f Kðpavogi f
kvöld. Verður þá leikið til þraut-
ar þannig að verði jafntefli eftir
framlengdan leik kemur til vfta-
spyrnukeppni.
— Þetta er auðvitað mjög
slæmur tími, m.a. tneð tilliti til
landsleikjanna, en því miður
reyndist ekki unnt að hafa leik-
inn á öðrum tíma, sagði Hilmar
Svavarsson, formaður mótanefnd-
ar KSl, í viðtali við Morgunblaðið
í gær.
Og víst er að Valsmennirnir
sem leika með landsliðinu eiga
ekki auðvelda daga. Fyrst leikur-
inn við Breiðablik i fyrrakvöld,
síðan aftur í kvöld og þá taka við
iandsliðsæfingar og loks lands-
leikurinn.
Leikurinn f kvöld hefst kl.
18.30.
ÞÓR VAIMIM ÍBÍ
I fyrrakvöld fór fram einn leik-
ur i 2. deildar keppni Islands-
mótsins í knattspyrnu. IBÍ og Þór
léku á ísafirði, en leik þessum
varð að fresta um síðustu helgi.
Urslit urðu þau að Þór sigraði i
leiknum 2—1, eftir að staðan
hafði verið 1—1 í hálfleik.
Þarna var um nokkuð jafna við-
ureign að ræða, en heldur voru
það þó heimamenn sem áttu
meira í leiknum. Þeir urðu hins
vegar fyrir því óhappi að skora
sjálfsmark í fyrri hálfleik, og
gerði það gæfumuninn. Mörkin
tvö sem rötuðu rétta leið skoruðu
Gunnar Pétursson fyrir ísafjörð
og Einar Sveinbjörnsson fyrir
Þór.
FA ÞRÍR GULLÚR?
SVO kann að fara, að KSI verði
að kaupa þrjú gullúr til að hafa
handbær eftir leik tslands og
Hollands á miðvikudaginn.
Þrfr landsliðsmenn leika sinn
24. landsleik við Belgfumenn á
sunnudaginn og verði þeir
valdir í liðið á móti Hollending-
um á miðvikudaginn ná þeir
„gullúrsáfanganum." Þetta eru
þeir Ólafur Sigurvinsson, IBV,
Asgeir Elfasson, Fram, og Teit-
ur Þórðarson, ÍA.
Leikreyndasti maður fs-
lenzka liðsins er hins vegar
Matthfas Hallgrfmsson sem er
nú valinn til sfns 42. landsleiks,
en næstir honum komaGuðgeir
Leifsson sem leikið hefur 32
landsleiki og Marteinn Geirs-
son með 31 landsleik. Sá lands-
liðsmannanna, sem á fæsta
leiki að baki, er Guðmundur
Þorbjörnsson, Val, sem mun
klæðast landsliðspevsunni f
f jórða sinn á sunnudaginn.
Menn virðast annars óvenju-
lega sammála um val íslenzka
landsliðsins að þessu sinni.
enda vitað að það er skipað
mjög góðum knattspyrnumönn-
um. Það verður síðan verkefni
Tony Knapp og félaga hans að
skapa liðsandann og liðsheild-
ina og ef að Ifkum lætur mun
það takast vel.
Á blaðamannafundi þeim sé
KSt hélt er landsliðið var til-
kynnt var Jens Sumarliðason,
formaður landsliðsnefndar að
því spurður hvort Ifklegt mætti
teljast að gerðar yrðu breyting-
ar á liðinu f seinni leiknum,
þ.e. leiknum við Hollendinga.
Svaraði Jens því, að stefnt væri
að þvf að gera sem minnstar
breytingar á liðinu í þeim leik.
— Það fer þó auðvitað eftir
ýmsu, sagði Jens, — og þá ekki
sfzt hvort okkar menn sleppa
frá leiknum á sunnudaginn án
þess að verða fyrir meiðslum.
Og auðvitað kemur frammi-
staða landsliðsins f leiknum á
sunnudaginn, svo og einstakra
leikmanna til með að ráða tölu-
verðu um hvort breytingar
verða gerðar.
René Verhexen.
Jean-Marie Pfaff.
VALINN MAÐUR
MARGIR leikmanna belgfska
landsliðsins, sem leikur hér á
sunnudaginn, eru tslendingum að
góðu kunnir, en svo einkennilega
hefur viljað til, að í þau tvö
skipti, sem Islendingar hafa til
þessa tekið þátt f undankeppni
heimsmeistarakeppninnar f
knattspyrnu, hafa Belgfumenn
verið þar mótherjar okkar, og
þeir voru einnig með okkur f riðli
f Evrópubikarkeppni landsliða
1974—1975. Þá komu hingað
nokkrir þeirra leikmanna, sem
nú skipa belgfska liðið og munu
menn sérstaklega minnast mark-
varðarins Christian Piot, sem
leikur með sama liði og Ásgeir
Sigurvinsson, Standard Liege, og
Raoul Lambert hinum stórsnjalla
leikmanni úr Club Brúgge.
Annars er greinilegt á liðskipan
Belgíumanna, að þeir eru nú að
gera verulegar breytingar á liði
sínu og yngja það upp. Þannig eru
sex leikmenn í liðinu, sem aðeins
hafa leikið einn landsleik, og auk
þess einn nýliði. Hafa Belgíu-
menn búið lið sitt af mikilli kost-
gæfni undir leikinn á sunnudag-
inn og gera sér góðar vonir um að
það sigri tslendinga með nokkr-
um mun, þótt þeir séu sjálfsagt
minnugir úrslitanna í leik liðanna
í Belgíu í fyrra, en þá marði bélg-
íska liðið sigur: 1—0.
Leikmenn belgíska liðsins eru
eftirtaldir:
LudoCoeck, Anderlecht (6)
Julíen Cools, Club Brúgge (9)
Paul Cournat, Club Brúgge (0)
Þrír íslenzku landsliðsmannanna: Jón Pétursson, Árni Stefánsson og Guðmundur
Þorbjörnsson í innbyrðis baráttu. Á sunnudaginn keppa þeir að sameiginlegu marki
— að ná sem bcztum árangri í leiknum við belgísku kanttspyrnusnillingana. Ljósm.
Friðþjófur.
i
FJÓRIR fslenzkir atvinnumenn f
knattspyrnu, sem taka þátt f
landsleiknum við Belgfumenn á
sunnudaginn, eru væntanlegir
heim f dag. Eru það þeir Mar-
teinn Geirsson, Ásgeir Sigurvins-
son og Guðgeir Leifsson, sem
koma frá Belgfu, og Matthfas
Hallgrfmsson, sem kemur frá Svf-
þjóð. Eins og skýrt hefur verið
frá f blaðinu kemur Jóhannes Eð-
valdsson svo ekki fyrr en n.k.
sunnudag, nokkrum klukku-
stundum áður en leikurinn við
Belgfumenn hefst. Verður Jó-
hannes að fara fyrst til London og
fljúga þaðan heim um hádegisbil
á sunnudaginn.
— Við höfum haft spurnir af
Matthíasi Hallgrímssyni, og hefur
honum gengið með ágætum í
þeim leikjum sem hann hefur
keppt í með liði sínu, Halmia, í
Svíþjóð, sagði Jens Sumarliðason,
formaður landsliðsnefndar KSÍ í
viðtali við Morgunblaðið í gær. Þá
sagði Jens ennfremur að lands-
liðsnefnd hefði leitað til Elmars
Geirssonar sem er atvinnumaður
með þýzku liði, en Elmar hefði
ekki getað komið til landsleikj-
anna þar sem hann átti leik með
liði sínu á sama tíma.
Ellert B. Schram sagði að félag
það er Marteinn Geirsson leikur
með i Belgiu, Royale Union, hefði
í fyrstu ekki viljað gefa hann
lausan I Iandsleikinn. — Við urð-
um að beita hörðu, sagði Ellert, og
kvarta við belgíska knattspyrnu-
Raoul Lambert.
Christian Piot.
I HVERJU RUMI
Robert Dalving, Lokeren (1)
Hervé Delsesie, Waregem (1)
Eric Gerets, Standard Liege (2)
Raoul Lambert, Club Brúgge (30)
Maurice Martend, Molenbeek
(19)
Jean-Marie Pfaff, Beveren (1)
Christan Piot, Standard Liege
(36)
Michel Rengquín, Standard
Liege (1)
Jacques Teugeles, Molenbeek
(12)
Gilbert van Binst, Anderlecht
(14)
Erwin Vanden Daele, Anderlecht
(29)
Francois van der Elst, Anderlecht
(8)
René Vandereycken, Club Brúgge
(3)
René Verheyen, Lokeren (1)
Willy Wellens, Molenbeek (1)
Svo sem sjá má af upptalningu
þessari eru flestir leikmanna
belgiska liðsins frá þremur félög-
um: Standard Liege, Club Brúgge
og Anderlecht. Allir eru þessir
leikmenn frábærlega góðir knatt-
spyrnumenn og ætla sér ekkert
minna en að komast f úrslita-
keppnina f Argentínu. Róðurinn
verður þó sjálfsagt þungur, þar
sem 1 riðlinum eru hollenzku silf-
urmennirnir frá siðustu heims-
meistarakeppni, auk Ira og Is-
lendinga. Ekki er ótrúlegt að
markahlutfall ráði úrslitum í
þessum riðli, þannig að liklegt
verður að teljast, að Belgíumenn-
irnir freisti þess að leika sóknar-
leik á móti Islendingum.
sambandið yfir þeim hætti sem á
var hafður er samningurinn við
Martein var gerður. Það er algjör-
lega ólöglegt að kaupa leikmann
til liðs við sig meðan á keppnis-
tímabili stendur, og fór svo að
félagið varð að gefa eftir og láta í
té yfirlýsingu um að það gæfi
Martein lausan í þá heimsmeist-
ara- og Evrópubikarleiki sem KSI
óskaði eftir að hann tæki þátt í.
Ásgeir Sigurvinsson hefur átt
við meiðsli að strlða að undan-
förnu, en ekki er vitað annað en
að hann hafi náð sér það vel af
þeim að hann geti leikið á sunnu-
daginn. Munu þau mál skýrast
betur á æfingum landsliðsins
fram að leik, en fyrsta æfing liðs-
ins verður í kvöld. Á morgun
heldur liðið síðan austur að Þing-
völlum þar sem það mun dvelja
fram að leiknum á sunnudaginn.
Strax að leik loknum mun liðið
fara austur aftur og vera þar fram
að leiknum við Hollendinga á
miðvikudaginn.
Sá háttur hefur verið hafður á
við undirbúning landsliðsins fyrir
þá leiki sem það hefur leikið hér
heima undanfarin ár að liðið hef-
ur dvalið á Þingvöllum við undir-
búning sinn, og er ekki annað að
sjá en slíkt hafi gefið góða raun.
Er vonandi að svo verði einnig nú
— ekki mun af öllu veita I barátt-
unni við hina snjöllu leikmenn
belgíska liðsins.
Hvernig verður liðið skipað?
I Morgunblaðinu í gær var birt
val landsliðsnefndar á þeim 16
leikmönnum sem taka munu þátt
I leiknum við Belgiumenn á
sunnudaginn. Hins vegar verður
ekki gefið upp fyrr en skömmu
áður en leikurinn hefst hvaða 11
leikmenn hefja leikinn. En ekki
er ósennilegt að það verði eftir-
taldir: Sigurður Dagsson, Gísli
Torfason, Jón Pétursson, Mart-
einn Geirsson, Jóhannes Eðvalds-
son, Guðgeir Leifsson, Ásgeir Sig-
urvinsson, Asgeir Elíasson, Ingi
Björn Albertsson, Teitur Þórðar-
son og Guðmundur Þorbjörnsson.
Islenzku landsliðsnefndinni og
landsliðsþjálfaranum Tony
Knapp er vissulega nokkur vandi
á höndum við uppstillingu liðsins
þar sem hollenzku landsliðsmenn-
irnir og landsliðsþjálfarinn munu
fylgjast með leiknum á sunnudag-
inn og því sennilega nauðsynlegt
aó gera breytingu á uppstillingu
liðsins og leikaðferð I leiknum á
miðvikudaginn.