Morgunblaðið - 09.09.1976, Síða 2

Morgunblaðið - 09.09.1976, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976 STÖÐUGT er verið að vinna að þvf að gera við þær skemmdir, sem urðu á varðskipunum f þorskastrfðinu við Breta. Eins og menn rekur minni til voru tveir skuttogarar, Baldur og Ver, notaðir við landhelgisgæzlu. Togararnir skemmdust mikið f árekstrinum við freigátur og f gær var skuttogarinn Ver tekinn upp f Slippinn f Reykjavfk, en þá var skipt um stórt stykki f stjórnborðssfðu togarans. Smfði nýju plötunnar, sem sett er f gatið, hefur Stálvfk h.f. f Garðabæ annazt og var hún smfðuð eftir máii, þannig að aðeins þurfti að taka togarann f slipp á meðan skiptin fóru fram. Á myndinni er gamla platan komin úr hlið skipsins, en hín nýjasta liggur fremst á myndinni. — Ljósm.: RAX. Nýskipaður sendiherra Bandarfkjanna hr. James L. Blake afhenti f dag forseta fslands trúnaðarbréf sitt að viðstöddum Ölafi Jóhannes- syni viðskiptaráðherra er gegnir störfum utanrfkisráðherra f f jarveru Einars Agústsonar. Síðdegis þáðu sendiherrann og kona hans boð forsetahjónanna að Bessastöðum ásamt nokkrum fleiri gestum. Hornfirðingar búnir að salta 5000 tunnur SEX HUNDRUÐ og tuttugu tunn- ur af síld voru saltaðar á Höfn í Hornafirði í gær og er þá búið að salta 5000 tunnur á staðnum í sumar og haust, sem er miklu meira en á sama tíma í fyrra. Jens Mikaelsson á Höfn sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að bátarnir hefðu komið með 940 tunnur af síld. Veiðin hefði verið sæmileg hjá mörgum bátanna, en um helmingur þeirra hefði verið með undir 50 tunnum. Hæstu bát- arnir voru Skógey með 141 tunnu, Haukafell með 136 tunnur og Steinunn SH með 112 tunnur. Greiðslugeta hús- byggjenda lítil Horfur á samdrætti í byggingariðnaði EF marka má sölu steypu frá steypustöðvunum á höfuðborgarsvæðinu Sæmilegur loðnuafli ALLSÆMILEGUR afli er á mið- unum, sem loðnuveiðiskipin hafa haldið sig á að undanförnu. I gær voru tvö skip á landleið, Gísli Arni á leið til Reykjavfkur með 550 tonn og Reykjabogin á leið til Siglufjarðar með 460 tonn. Alls stunda um 10 skip þessar veiðar enn. Veiðisvæðið er 70 til 75 mílur í norðnorðvestur af Straumnesi, sem er alllangt vestur í hafi. Sem dæmi um fjarlægðina má geta þess að 3ja klukkustunda lengri sigling er af svæðinu til Reykja- víkur en til Siglufjarðar. Sendiherra í Portúgal HINN 7. september 1976 afhenti Einar Benediktsson Ramalho Eanes, forseta Portúgals, trúnað- arbréf sitt sem sendiherra tslands f Portúgal. virðist svo sem dálítill sam- dráttur verði enn innan byggingariðnaðarins i ár. Að sögn Víglunds Þor- steinssonar, framkvæmda- stjóra BM Vallár, lítur út fyrir að útkoman nú verði í likingu við það sem gerist í slöku meðalári og láta muni nærri að salan i ár verði um 95% sölunnar í fyrra, sem var þó heldur slakt ár. Viglundur sagði þó að það sem e.t.v. einkum einkenndi ástandið f VIÐRÆÐUNEFNDIR Islenzka samgönguráðuneytisins og Mikla norræna ritsfmafélagsins sátu á fundi I Reykjavfk f gær, en þetta er önnur viðræðulota þessara að- ila um tilhögun fjarskiptasam- bands Islands við umheiminn f næstu framtfð. Islenzk stjórnvöld hafa sem kunnugt er áhuga á að láta reisa hér jarðstöð, sem gerir möguiegt að koma fjarskiptum landsins við umheiminn um gervihnetti, en er hins vegar með bindandi samning til næstu ára við Mikla norræna ritsfmafélagið, sem á og rekur sæsfmastrengi þá er liggja til landsins. byggingariðnaðinum í ár miðað við sfðastliðið ár, væri minni greiðslugeta kaupenda steypu en þá var og eins virtist þrískipting húsnæðismálastjórnarlána á eins árs timabil í stað tvískiptingar koma ákaflega illa út fyrir margan húsbyggjandann. Víglundur kvað steypu- stöðvarnar einnig hafa þurft nýlega að skerða lánskjör sfn til kaupenda, og allt þetta hefði leitt til þess að á nokkrum síðustu mánuðum hefðu aukizt óeðlilega útistandandi kröfur steypustöðv- anna og innheimtur gengju mjög erfiðlega. Vfglundur kvaðst ekki sjá annað en nú væri verið að skapa verulegan húsnæðisvanda á höfuðborgarsvæðinu með skert- um lánskjörum og fjármagns- fyrirgreiðslu og allt stefndi í það horf sem hér hefði verið í kring- um 1971. Að sögn Brynjólfs Ingólfssonar ráðuneytisstjóra f samgönguráðu- neytinu fóru viðræðurnar í gær vinsamlega af stað, en fimm manna viðræðunefnd er hingað komin frá Danmörku á vegum Mikla norræna ritsfmafélagsins. Brynjólfur kvaðst eiga von á þvi, að á fundum næstu daga þreifuðu aðilar fyrir sér um möguleikana á því að ná samkomulagi og sætta ólík sjónarmið, en ráð hefði verið fyrir því gert i fyrri viðræðulot- unni í Kaupmannahöfn i vor, að á fundinum hér yrði reynt að kom- ast til botns í þessu máli. Kvaðst Brynjólfur allt eins eiga von á þvf, að fundir gætu staðið fram til föstudags." Þreifmgar á fundunum með Mikla norræna Áfram strangt aðhald í útlánum bankanna SEÐLABANKINN og viðskipta- bankarnir hafa ákveðið að halda áfram þvi stranga aðhaldi I útián- um, sem sett var á I september síðastliðnum og framlengt var til þriggja mánaða i maf. Utláns- aukningin hefur þrátt fyrír þetta samkomulag verið meiri en að var stefnt og fyrstu átta mánuði ársins hefur útlánsaukningin orð- ið rúmlega 20% en samkvæmt samkomulaginu mátti hún ekki verða umfram það hiutfall. Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri sagði f viðtali við Mbl. í gær, að hafa yrði i huga, að bankarnir hafi þrátt fyrir þetta til útlána þá nettóaukningu, sem kann að verða á innlánum, auk þess sem þeir geta lánað það fé, sem inn kemur vegna útistandandi lána. Stefnt sé hins vegar að þvf að heildarútlán standi i stað fram til áramóta. Talsverðar árstiðabreytingar eru í útlánum. A haustin eins og einmitt nú er mikið um að lánað sé af afurðalánum út ásauðfjáraf- urðir, en um leið greiðast einnig önnur lán til landbúnaðarins, lán til bænda og verzlunar sem skipt- ir við bændur, sem þeir aðilar hafa fengið til annarra hluta. Seðlabankinn sendi i gær frá sér fréttatilkynningu vegna hins nýja samkomulags, sem hann hef- Hverjir eru eig- endur þýfisins? RANNSÓKNARLÖG REGLAN hefur beðið Morgunblaðið að aug- lýsa eftir eigendum að nokkrum hlutum, sem komu i leitirnar vegna rannsóknar á þjófnuðum, er nýlega upplýstust. I febrúar var tekið útvarpstæki úr fólksbíl, þar sem hann stóð á móts við Æsufell 2, og telja þeir sem tækið tóku, að bfllinn hafi verið rauður Ffat. Um jólaleytið var einnig tekið útvarpstæki úr Volkswagen bfl, þar sem hann stóð i Artúnshöfða, og sl. vetur var tekin málningar- sprauta úr skúr í Ártúnshöfða. Þá var i vetur eða snemma í vor tekín rauð handlukt úr Austin Gipsy, þar sem billinn stóð f Heið- mörk. Eigendur eru beðnir að vitja þessara hluta hjá rannsóknarlög- reglunni. ur gert við viðskiptabankana. Fréttatilkynningin er svohljóð- andi: „Eins og skýrt var frá á sfnum tíma, gerðu Seðlabankinn og við- skiptabankarnir með sér sam- komulag i upphafi þessa árs um hámark útlánaaukningar við- skiptabankanna á árinu. Var sam- komulagið f samræmi við láns- fjáráætlun rikisstjórnarinnar, sem lögð var fram i desember sl. Samkomulag þetta var endur- skoðað f mai sl. með hliðsjón af almennri verðlagsþróun frá ára- mótum. Var þá ákveðið að stefna að þvi, að aukning annarra útlána en endurseljanlegra birgðalána til atvinnuveganna og reglulegra viðbótarlána til sömu greina yrði ekki meiri en 16% á árinu. Að meðtöldum birgðalánum til at- vinnuveganna skyldi útlánaaukn- ingin ekki verða meiri en 20%. Formaður Sambands islenzkra sparisjóða tók þátt í fundum Seðlabankans og viðskiptabank- anna og Seðlabankinn beindi þeim tilmælum til allra spari- sjóða, að þeir fylgdu þeirri út- lánastefnu, sem að framan grein- ir. Utlánaaukning bæði viðskipta- banka og sparisjóða hefur, það sem af er árinu, verið verulega meiri en að var stefnt með fram- angreindu samkomulagi. Sú þró- un hefur að nokkru ráðizt af árs- tiðabundinni aukningu útlána yf- ir sumarmánuðina, en Ijóst er þó orðið, að gera þarf mikið átak I stjórn útlánamála til að takast megi að ná settu marki í þessum efnum á árinu. Samkvæmt tölum, sem nú Framhald á bls. 22 Yfirlýsing frá ritstjóra Morgunblaðsins VESTUR-þýzki rannsóknarlög- reglumaðurinn Karl Schiitz hefur gert athugasemd við birtingu tveggja teikninga eftir Sigmund í Morgunblaðinu hinn 8. ágúst og 2. september sl. með yfirlýsingu, sem birt var hér í blaðinu sl. þriðjudag og kæru til sakadóms. Af þessu tilefni vill Morgun- blaðið taka fram, að það var hvorki ætlun blaðsins né Sig- munds að gefa i skyn, að Karl Schiitz hefði átt aðild að þýzka nazistaflokknum eða leynilög- reglu nazista, Gestapó, eða valda honum sársauka og óþæg- indum. Morgunblaðið biður því Karl Schíitz afsökunar á birtingu þessara teikninga. Bæði Morgunblaðið og Sig- mund telja það miklu skipta að svo reyndur rannsóknarlög- reglumaður hefur fengizt til starfa hér og óska honum far- sældar f þeim störfum. Styrmir Gunnarsson, ritstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.