Morgunblaðið - 09.09.1976, Page 3

Morgunblaðið - 09.09.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976 3 íbúðir fyrir aldraða rísa á Þórshöfn Tími stóru elliheimilanna liðinn, segir landlæknir ilsstöðum en byggingar af þessu tagi eru einnig langt komnar á Akranesi, Hellu og Dalvfk, að sögn Ólafs Ólafssonar, landlækn- is. Ölafur sagði í samtali við Morg- unblaðið, að þetta væri gleðileg þróun því að nú ætti að vera lið- inn sá tími að gömlu fólki væri boðið upp á að kúldrast á hælum í litlu herbergi við fjórða mann jafnvel, eins og stundum hefði tiðkazt, og ekki aðrir húsmunir en rúm og náttborð. Kröfurnar nú væru að aldrað fólk fengi litla Ibúð — 30 til 40 fermetra með eldunaraðstöðu, salerni, lítilli stofu og svefnher- bergi. Ibúðina hefði fólkið algjör- lega til eigin afnota en nyti að- stoðar við erfiðustu heimilisverk- in og væri undir reglubundnu lækniseftirliti. „Tími stóru elliheimilanna er liðinn, og þau þykja ekki lengur bjóðandi öldruðu fólki, enda sýna líka kannanir sem gerðar hafa verið víða um land, að fólkið vill ekki stór elliheimili," sagði land- læknir. Að sögn hans er ætlunin að reisa i byrjun 5—6 Ibúðir fyrir aldraða á Þórshöfn en að auka megi við það eftir þörfum og að- stæðum hverju sinni. VERIÐ er að undirbúa byggingu fbúða fyrir aldraða á Þórshöfn. Aðstaða aldraðra þar verður þá með svipuðu sniði og þegar er risin f Vestmannaeyjum og á Eg- Bruni á Skaga Akranesi, 8. september AKURNESINGAR héldu að annar stórbruni væri I aðsigi þegar brunabillinn og sjúkra- billinn þutu upp Skagann með sírenur i gangi og þeir sáu kol- svarta reykjarbólstra stiga hátt til lofts af Bjarkargrundinni, sem er uppi við Garða. Klukkan 3.30 var slökkviliðið kallað út að húsinu Bjarkargrund 2 sem er I smiðum, eign Jósefs Þorgeirssonar. Þar voru iðnaðar- menn að leggja tjörupappa á þakið. Kviknað hafði í stórum tjörupotti, tjörubirgðum og tjöru- pappa. Slökkviliðinu tókst fljót- lega að kæfa eldinn. Litlar skemmdir urðu á þakinu og engin slys á mönnum. — Július. Brúarsmíðar fyrir 660 millj- ónir í sumar SAMTALS hefur um 660 milljónum króna verið varið til brúarsmfða um land allt á þessu sumri, að sögn Helga Hallgrfms- sonar, deildarverkfræðings hjá Vegamálaskrifstofunni. Mesta framkvæmdin sem unnið hefur verið að f sumar er Borgar- fjarðarbrúin og að sögn Helga miðar vinnu við hana nokkurn veginn samkvæmt áætlun. Er nú búið að steypa fjóra stöpla af 12 en ekki var gert ráð fyrir að ljúka við nema um helming þeirra nú f sumar. Alls hefur verið varið um 390 milljónum króna til Borgar- f jarðarbrúarinnar f sumar. Auk Boargarfjarðarbrúar er mesta framkvæmdin brúun aust- uróss Héraðsvatna úti við sjó, en brúin þar yfir er alls 130 metra löng, I fjórum höfum og gerð úr stáli. Áformað er að ljúka við sjálfa brúna nú en ekki er þó gert ráð fyrir að hún verði tekin strax I notkun, þar sem eftir er að gera verulegar vegfyllingar að brúnni. Alls hafa verið veittar röskar 50 milljónir til þessarar fram- kvæmdar núna, en byrjað var á henni í fyrra. Af öðrum meiriháttar brúar- framkvæmdum má nefna Laugar- dalsá á Djúpi, sem er 46 m steypt brú, 22ja metra brú yfir Valsá á Hólmavikurvegi og brú yfir Bjarnadalsá í Norðurárdal en hún er 39 metra löng og með tvöfaldri akbraut. I öllum þessum tilfellum er um að ræða endurbyggingar i stað eldri brúa sem orðnar eru of gamlar eða aðkeyrsla erfið. Einnig hefur verið unnið að smiði fimm annarra brúa sem eru lengri en 10 metrar, og þar af eru tvær i Vopnafirði, svo og brú yfir öxnadalsá, brú yfir Tungulæk I Landbroti, og yfir Fremri-Laxá á Reykjabraut i Húnavatnssýslu. Auk þessa eru siðan 8 smærri brýr á bilinu 4—10 metrar að lengd. ÞESSI frfði og föngulegi kvennahópur fékk I gær skfrteini upp á að hafa staðizt svonefnt Pitmanspróf, en það er sérstök viðurkenning frá Einkaritaraskólanum f Mfmi. Ekki er að efa, að margan forstjórann og framkvæmdastjórann mun fýsa að fá þær f starfslið sitt. Stúlkurnar, sem hér eru ásamt kennara sfnum, Einari Pálssyni, eru f fremri röð (f.v.) Margrét Björk Andrésdóttir, Guðrfður Einarsdóttir og Margrét Snælaug Kristjánsdóttir. Aftari röð (f.v.) Einar Pálsson, Margrét Ölafsdóttir, Anna Marfa Garðarsdóttir, AnnaGuðmundsdóttir og Sigríður Indriðadóttir. (ljósm. Ól.K.M.) Islenzkir hestar í 2. sæti í Pony express train — keppni lýkur 15. september Sacramenta, 8. september, frá Gunnari Bjarnasyni. “ THE great American horse race“ lauk hér á sýningarsvæð- inu f Sacramento, þar sem mik- il landbúnaðarsýning stendur yfir, sfðdegis sunnudaginn 5. september. Þetta var hröð keppni sfðustu dagana, frá Weels f Nevada var riðið á 15 reiðdögum alls 855 kflómetra eða 57 kflómetra á dag að með- altali. Lokamarkinu náði 51 reiðmaður af 102, sem hófu ferðina f New York síðdegis 30. maf. Fimm reiðmenn eða tf- undi hluti þeirra reiðmanna, sem marki náðu, komu á báð- um reiðskjótum sfnum f mark. Flestir voru orðnir einhesta. Dýralæknar dæmdu halta eða sjúka hesta úr leik, stundum f nokkra daga ef um smávægi- lega helti, kvef eða sjúkdóm var að ræða, sem oft kom fyrir, en f atvarlegri tilvikum voru hestarnir teknir af keppnis- skrá. Alls voru farnir I þessari keppni 3200 kílómetrar. Vestri hluti Wyoming, Utah og Nevada reyndu mjög á þol og hörku reiðmanna og hesta. Mik- ill hiti að deginum 30—35 stig á Celsius, sterk háfjallasól og ryk auðnarinnar ásamt hörkugaddi um nætur ollu þreytu, óþægind- um i lungum og þjökuðu á ýms- an hátt menn og hesta. Sigurvegari keppninnar var Earl Villorton, maður af dönsk- um uppruna, móðir hans frá Kaupmannahöfn. Hann reið upphaflega tveimur múldýrum, en kom á einu í mark. Hann hlaut 316 timastig. Næstir voru Jewel Aspley, orðinn einhesta, hann hlaut 327 stig. Ronda Wood á tveimur arabiskum hestum, ein af tíu sigurvegur- um með báða hesta með sér i markið, hlaut 351 stig, léttur kvenmaður, góður knapi. Fjóðri Tiller, orðinn einhesta, 359 stig, fimmta Swakett, orðin einhesta, 379 stig, tiundi og síð- asti verðlaunahafi Eva Taylor, byrjaði á tveimur múldýrum en var orðin á einu í marki. Hlaut hún 402 stig. Þrettándi í röðinni, aðeins 16 tímastigum lengur en Taylor, var Johannes Fauoss, á báðum sinum íslenzku hestum, einn af fimm sem komust alla leið með heilbrigða hesta. Hann hlaut 418 tímastig. Hann er mjög hæfur reiðmaður. Hestur hans, Höttur frá Vatnsdal i Rangár- vallasýslu, veiktist af hrossa- sótt á fyrsta mánuði ferðarinn- ar, en náði sér eftir 10 daga og hefur verið í stöðugri framför siðasta mánuðinn. Hann er ódrepandi hestur, viljugur og léttgengur. Hinn hestur Johannesar, Börkur frá Álfhól- um, hefur líka vakið óskipta athygli, hann mun vera eini hesturinn af yfir 200, sem ferð- ina hófu, sem aldrei þurfti læknisskoðun né neins konar aðgerð og hann er einn af fjór- um hestum ferðarinnar sem hefur hlaupið hvern einasta reiðdag. Hann er ódrepandi þrekhestur með sérstaklega góða fótagerð, en hann er frem- ur viljadaufur og hastur. Walter Feldman var í 2. sæti á tveimur islenzkum hestum og hafði riðið einhesta á Jötni frá Akureyri, sem er ættaður frá Eiriksstöðum I Hörgárdal, sið- ustu 1000 kílómetrana. Hann lagði óhemju mikið á sig, hljóp upp og niður fjallgarðana í Nevada með hesti sinum I 30 til 35 stiga hita. Þeir komu báðir, maður og hestur, heilbrigðir í markið í Sacramento, en sjáan- lega þreyttir. Þetta er svipað og að riða norður í land og austur um, alla leið til Hornafjarðar. Var það nokkrum sinnum gert á Islandi áður fyrr. Áður hefur verið sagt að hest- urinn Jökull frá Hólum i Hjaltadal, mikill gæðingur og þrekhestur undan Ak frá Hól- um, hafi veikzt vestast I Ne- braska og verið settur af keppn- isskrá. Læknar stunduðu hann og náði hann sér. Svo gerist það þremur dögum fyrir lokasprett- inn hér i Kaliforníu að hesta- mennirnir kaupa lyf til að gefa hestunum. Næsta morgun voru fimm hestar fársjúkir af ein- hverjum ástæðum. Jökull hafi gætt sér vel á blandaðri töðunni og drapst hann daginn fyrir lokasprettinn. Blöð i Sacramento, einnig sjónvarps- og útvarpsstöðvar, sögðu frá þessum lokaspretti og oft var islenzku hestanna getið sérstaklega. Hinn keppnishópurinn sem er I Pony express train, kemur i kvöld til Carson City, sem er höfuðborg Nevada. Ferð þeirra lýkur 15. eða 16. september lika hér í Sacramento. Þann þriðja september var röðin sem hér segir: Roel Stewart á tveimur arabiskum blendingum með 3842 mílustig, annar Lothar Reyland á tveimur íslenzkum hestum, Hrafni og Fylki, með 3016 stig. Næstu sex eru mjög jafnir með 3000 stig og röðin breytist frá degi til dags. Það hefur verið mikil keppni milli þessara manna. Klaus Becker er i hópi þessara manna. Fyrir tvö þús- und stig i þessari keppni eru gefin silfurverðlaun og fyrir Framhald á bls. 22 |k 100.000 kr. verðlaun i þriðju milljonustu fernunm af TROPICANA* eru 100.000.00 kr. verðlaun * 'Jfn Fékkst þú þér JROPiCANA í morgun? Sólargeislinn frá Florida.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.