Morgunblaðið - 09.09.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976
3
íbúðir fyrir
aldraða rísa
á Þórshöfn
Tími stóru elliheimilanna
liðinn, segir landlæknir
ilsstöðum en byggingar af þessu
tagi eru einnig langt komnar á
Akranesi, Hellu og Dalvfk, að
sögn Ólafs Ólafssonar, landlækn-
is.
Ölafur sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að þetta væri gleðileg
þróun því að nú ætti að vera lið-
inn sá tími að gömlu fólki væri
boðið upp á að kúldrast á hælum í
litlu herbergi við fjórða mann
jafnvel, eins og stundum hefði
tiðkazt, og ekki aðrir húsmunir en
rúm og náttborð.
Kröfurnar nú væru að aldrað
fólk fengi litla Ibúð — 30 til 40
fermetra með eldunaraðstöðu,
salerni, lítilli stofu og svefnher-
bergi. Ibúðina hefði fólkið algjör-
lega til eigin afnota en nyti að-
stoðar við erfiðustu heimilisverk-
in og væri undir reglubundnu
lækniseftirliti.
„Tími stóru elliheimilanna er
liðinn, og þau þykja ekki lengur
bjóðandi öldruðu fólki, enda sýna
líka kannanir sem gerðar hafa
verið víða um land, að fólkið vill
ekki stór elliheimili," sagði land-
læknir. Að sögn hans er ætlunin
að reisa i byrjun 5—6 Ibúðir fyrir
aldraða á Þórshöfn en að auka
megi við það eftir þörfum og að-
stæðum hverju sinni.
VERIÐ er að undirbúa byggingu
fbúða fyrir aldraða á Þórshöfn.
Aðstaða aldraðra þar verður þá
með svipuðu sniði og þegar er
risin f Vestmannaeyjum og á Eg-
Bruni á
Skaga
Akranesi, 8. september
AKURNESINGAR héldu að
annar stórbruni væri I aðsigi
þegar brunabillinn og sjúkra-
billinn þutu upp Skagann með
sírenur i gangi og þeir sáu kol-
svarta reykjarbólstra stiga hátt til
lofts af Bjarkargrundinni, sem er
uppi við Garða.
Klukkan 3.30 var slökkviliðið
kallað út að húsinu Bjarkargrund
2 sem er I smiðum, eign Jósefs
Þorgeirssonar. Þar voru iðnaðar-
menn að leggja tjörupappa á
þakið. Kviknað hafði í stórum
tjörupotti, tjörubirgðum og tjöru-
pappa. Slökkviliðinu tókst fljót-
lega að kæfa eldinn. Litlar
skemmdir urðu á þakinu og engin
slys á mönnum. — Július.
Brúarsmíðar
fyrir 660 millj-
ónir í sumar
SAMTALS hefur um 660
milljónum króna verið varið til
brúarsmfða um land allt á þessu
sumri, að sögn Helga Hallgrfms-
sonar, deildarverkfræðings hjá
Vegamálaskrifstofunni.
Mesta framkvæmdin sem unnið
hefur verið að f sumar er Borgar-
fjarðarbrúin og að sögn Helga
miðar vinnu við hana nokkurn
veginn samkvæmt áætlun. Er nú
búið að steypa fjóra stöpla af 12
en ekki var gert ráð fyrir að ljúka
við nema um helming þeirra nú f
sumar. Alls hefur verið varið um
390 milljónum króna til Borgar-
f jarðarbrúarinnar f sumar.
Auk Boargarfjarðarbrúar er
mesta framkvæmdin brúun aust-
uróss Héraðsvatna úti við sjó, en
brúin þar yfir er alls 130 metra
löng, I fjórum höfum og gerð úr
stáli. Áformað er að ljúka við
sjálfa brúna nú en ekki er þó gert
ráð fyrir að hún verði tekin strax
I notkun, þar sem eftir er að gera
verulegar vegfyllingar að brúnni.
Alls hafa verið veittar röskar 50
milljónir til þessarar fram-
kvæmdar núna, en byrjað var á
henni í fyrra.
Af öðrum meiriháttar brúar-
framkvæmdum má nefna Laugar-
dalsá á Djúpi, sem er 46 m steypt
brú, 22ja metra brú yfir Valsá á
Hólmavikurvegi og brú yfir
Bjarnadalsá í Norðurárdal en hún
er 39 metra löng og með tvöfaldri
akbraut. I öllum þessum tilfellum
er um að ræða endurbyggingar i
stað eldri brúa sem orðnar eru of
gamlar eða aðkeyrsla erfið.
Einnig hefur verið unnið að
smiði fimm annarra brúa sem eru
lengri en 10 metrar, og þar af eru
tvær i Vopnafirði, svo og brú yfir
öxnadalsá, brú yfir Tungulæk I
Landbroti, og yfir Fremri-Laxá á
Reykjabraut i Húnavatnssýslu.
Auk þessa eru siðan 8 smærri
brýr á bilinu 4—10 metrar að
lengd.
ÞESSI frfði og föngulegi kvennahópur fékk I gær skfrteini upp á að hafa staðizt svonefnt Pitmanspróf,
en það er sérstök viðurkenning frá Einkaritaraskólanum f Mfmi. Ekki er að efa, að margan forstjórann
og framkvæmdastjórann mun fýsa að fá þær f starfslið sitt. Stúlkurnar, sem hér eru ásamt kennara
sfnum, Einari Pálssyni, eru f fremri röð (f.v.) Margrét Björk Andrésdóttir, Guðrfður Einarsdóttir og
Margrét Snælaug Kristjánsdóttir. Aftari röð (f.v.) Einar Pálsson, Margrét Ölafsdóttir, Anna Marfa
Garðarsdóttir, AnnaGuðmundsdóttir og Sigríður Indriðadóttir. (ljósm. Ól.K.M.)
Islenzkir hestar í 2.
sæti í Pony express train
— keppni lýkur 15. september
Sacramenta, 8. september, frá
Gunnari Bjarnasyni.
“ THE great American horse
race“ lauk hér á sýningarsvæð-
inu f Sacramento, þar sem mik-
il landbúnaðarsýning stendur
yfir, sfðdegis sunnudaginn 5.
september. Þetta var hröð
keppni sfðustu dagana, frá
Weels f Nevada var riðið á 15
reiðdögum alls 855 kflómetra
eða 57 kflómetra á dag að með-
altali. Lokamarkinu náði 51
reiðmaður af 102, sem hófu
ferðina f New York síðdegis 30.
maf. Fimm reiðmenn eða tf-
undi hluti þeirra reiðmanna,
sem marki náðu, komu á báð-
um reiðskjótum sfnum f mark.
Flestir voru orðnir einhesta.
Dýralæknar dæmdu halta eða
sjúka hesta úr leik, stundum f
nokkra daga ef um smávægi-
lega helti, kvef eða sjúkdóm
var að ræða, sem oft kom fyrir,
en f atvarlegri tilvikum voru
hestarnir teknir af keppnis-
skrá.
Alls voru farnir I þessari
keppni 3200 kílómetrar. Vestri
hluti Wyoming, Utah og
Nevada reyndu mjög á þol og
hörku reiðmanna og hesta. Mik-
ill hiti að deginum 30—35 stig á
Celsius, sterk háfjallasól og ryk
auðnarinnar ásamt hörkugaddi
um nætur ollu þreytu, óþægind-
um i lungum og þjökuðu á ýms-
an hátt menn og hesta.
Sigurvegari keppninnar var
Earl Villorton, maður af dönsk-
um uppruna, móðir hans frá
Kaupmannahöfn. Hann reið
upphaflega tveimur múldýrum,
en kom á einu í mark. Hann
hlaut 316 timastig. Næstir voru
Jewel Aspley, orðinn einhesta,
hann hlaut 327 stig. Ronda
Wood á tveimur arabiskum
hestum, ein af tíu sigurvegur-
um með báða hesta með sér i
markið, hlaut 351 stig, léttur
kvenmaður, góður knapi.
Fjóðri Tiller, orðinn einhesta,
359 stig, fimmta Swakett, orðin
einhesta, 379 stig, tiundi og síð-
asti verðlaunahafi Eva Taylor,
byrjaði á tveimur múldýrum en
var orðin á einu í marki. Hlaut
hún 402 stig.
Þrettándi í röðinni, aðeins 16
tímastigum lengur en Taylor,
var Johannes Fauoss, á báðum
sinum íslenzku hestum, einn af
fimm sem komust alla leið með
heilbrigða hesta. Hann hlaut
418 tímastig. Hann er mjög
hæfur reiðmaður. Hestur hans,
Höttur frá Vatnsdal i Rangár-
vallasýslu, veiktist af hrossa-
sótt á fyrsta mánuði ferðarinn-
ar, en náði sér eftir 10 daga og
hefur verið í stöðugri framför
siðasta mánuðinn. Hann er
ódrepandi hestur, viljugur og
léttgengur. Hinn hestur
Johannesar, Börkur frá Álfhól-
um, hefur líka vakið óskipta
athygli, hann mun vera eini
hesturinn af yfir 200, sem ferð-
ina hófu, sem aldrei þurfti
læknisskoðun né neins konar
aðgerð og hann er einn af fjór-
um hestum ferðarinnar sem
hefur hlaupið hvern einasta
reiðdag. Hann er ódrepandi
þrekhestur með sérstaklega
góða fótagerð, en hann er frem-
ur viljadaufur og hastur.
Walter Feldman var í 2. sæti
á tveimur islenzkum hestum og
hafði riðið einhesta á Jötni frá
Akureyri, sem er ættaður frá
Eiriksstöðum I Hörgárdal, sið-
ustu 1000 kílómetrana. Hann
lagði óhemju mikið á sig, hljóp
upp og niður fjallgarðana í
Nevada með hesti sinum I 30 til
35 stiga hita. Þeir komu báðir,
maður og hestur, heilbrigðir í
markið í Sacramento, en sjáan-
lega þreyttir. Þetta er svipað og
að riða norður í land og austur
um, alla leið til Hornafjarðar.
Var það nokkrum sinnum gert
á Islandi áður fyrr.
Áður hefur verið sagt að hest-
urinn Jökull frá Hólum i
Hjaltadal, mikill gæðingur og
þrekhestur undan Ak frá Hól-
um, hafi veikzt vestast I Ne-
braska og verið settur af keppn-
isskrá. Læknar stunduðu hann
og náði hann sér. Svo gerist það
þremur dögum fyrir lokasprett-
inn hér i Kaliforníu að hesta-
mennirnir kaupa lyf til að gefa
hestunum. Næsta morgun voru
fimm hestar fársjúkir af ein-
hverjum ástæðum. Jökull hafi
gætt sér vel á blandaðri töðunni
og drapst hann daginn fyrir
lokasprettinn.
Blöð i Sacramento, einnig
sjónvarps- og útvarpsstöðvar,
sögðu frá þessum lokaspretti og
oft var islenzku hestanna getið
sérstaklega.
Hinn keppnishópurinn sem
er I Pony express train, kemur i
kvöld til Carson City, sem er
höfuðborg Nevada. Ferð þeirra
lýkur 15. eða 16. september lika
hér í Sacramento.
Þann þriðja september var
röðin sem hér segir: Roel
Stewart á tveimur arabiskum
blendingum með 3842 mílustig,
annar Lothar Reyland á
tveimur íslenzkum hestum,
Hrafni og Fylki, með 3016 stig.
Næstu sex eru mjög jafnir með
3000 stig og röðin breytist frá
degi til dags. Það hefur verið
mikil keppni milli þessara
manna. Klaus Becker er i hópi
þessara manna. Fyrir tvö þús-
und stig i þessari keppni eru
gefin silfurverðlaun og fyrir
Framhald á bls. 22
|k 100.000 kr. verðlaun
i þriðju milljonustu fernunm af
TROPICANA*
eru 100.000.00 kr. verðlaun
* 'Jfn
Fékkst þú þér
JROPiCANA
í morgun?
Sólargeislinn frá Florida.