Morgunblaðið - 09.09.1976, Síða 5

Morgunblaðið - 09.09.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976 5 HÍÚ ER ÞAÐ ÚTSÖLUMA AÐ LAUGAVEGI66 (VIÐ HLIÐINA Á VEfíZLUH OKKAfí, Á SAMA STAÐ) og menningarsjóði Garðabæjar að gjöf eina milljón króna frá bank- anum í tilefni opnunar útibúsins, en sjóður þessi var stofnaður þann 6. janúar s.l. á fyrsta fundi bæjarstjórnar hins nýja kaupstað- ar. I máli sinu lýsti formaður bankaráðs i stórum dráttum starf- semi og þróunarferli Búnaðar- bankans og árnaði starfsfólki og viðskiptamönnum útibúsins heilla. Ólafur G. Einarsson, for- seti bæjarstjórnar Garðabæjar, þakkaði gjöfina og fagnaði til- komu útibúsins, sem hann kvaðst sannfærður um að verða mundi til styrktar og eflingar athafnalífi einstaklinga og fyrirtækja í kaup- staðnum. Ávörp fluttu þeir Hall- dór E. Sigurðsson, ráðherra Bún- aðarbankans, og Svavar Jóhanns- son, hinn nýskapaði útibússtjóri. Svavar Jóhannsson er fæddur 13. október 1919, hann er einn af reyndustu starfsmönnum Búnað- arbankans, hóf fyrst störf sem sendill 1. janúar 1935, en frá 1940 eftir nám í Verzlunarskóla hefur hann verið fastráðinn starfsmað- ur bankans. Hann hefur starfað í flestum deildum bankans, lengst af sem fulltrúi í sparisjóðsdeild, en í janúar 1963 var hann skipað- ur skipulagsstjóri bankans og hef- ur gegnt þvi starfi síðan. Undanfarna mánuði hefur ver- ið unnið að innréttingu þess hús- næðis, sem bankinn keypti og hef- ur Svavar haft yfirumsjón með skipulagningu og öllum fram- kvæmdum. Miklar breytingar Framhald á bls. 25 Stjórnmálaskóli Sjálfstæðis- flokksins 18.—23. okt. n.k. EINS og kunnugt er hefur stjórn- málaskóli Sjálfstæðisflokksins verið haldinn fjögur undanfarin ár. Er það samdóma álit allra, er til þekkja, að skólahaldið hefi tek- izt vel og orðið þátttakendum til mikils gagns og ánægju. Skólanefnd stjórnmálaskólans hefur nú ákveðið að stjórnmála- skólinn verði haldinn frá 18.—23. október n.k. Megintilgangur skólans er að veita þátttakendum grundvall- arþekkingu á sem flestum sviðum þjóðlífsins svo og að gera þeim kleift að tjá sig áheyrilega og skipulega og ná valdi á góðum vinnubrögðum í félagsstarfi og stjórnmálabaráttu. Meginþættir námsskrár verða sem hér segir: 1. Þjálfun í ræðumennsku, fund- arsköp o.fl. 2. Almenn félagsstörf og notkun hjálpartækja. 3. Þáttur fjölmiðla í stjórnmála- baráttunni. 4. Söfnun, flokkun og varðveizla heimilda. 5. Helztu atriði islenzkrar stjórn- skipunar. 6. tslenzk stjórnmálasaga. 7. Skipulag og starfshættir Sjálf- stæðisflokksins. 8. Stjórnmálabaráttan og stefnu- mörkun. 9. Utanríkis- og öryggismál. 10 Markmið og rekstur sveitarfé- laga. 11. Verkalýðsmál. 12. Landhelgismálið. 13. Efnahagsmál. 14. Um sjálfstæðisstefnuna. 15. Framkvæmd byggðastefnu. 16. Kjördæmaskipulag og kosn- ingareglur. 17. Um marxisma og menningu. 19. Alþjóðamál. 19. Kynnisferðir o.þ.h. Skólinn verður heilsdagsskóli meðan hann stendur yfir frá kl. 9:00—18.00, með matar- og kaffi- hléum. Skólahaldið er opið öllu sjálf- stæðisfólki og er það von skóla- nefndarinnar, að þeir sem áhuga hafa á þátttöku láti Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, form. skólanefnd- ar, eða Skafta Harðarson vita sem allra fyrst í síma 82900 eða 82963 eða sendi skriflega tilkynningu um þátttöku til skólanefndarinn- ar Bolholti 7, Reykjavík. Þátttöku verður að takmarka við 30 manns. Afgreiðslusalurinn. Búnaðarbankinn opn- ar útibú 1 Garðabæ NÝTT útibú frá Búnaðarbanka Islands tók til starfa hinn 3. þ.m. I yngsta kaupstað landsins, Garða- bæ. Starfsvettvangur útibúsins miðast fyrst og fremst við sveitar- félögin tvö, Garðabæ og Bessa- staðahrepp, en þar hefur ekki verið starfrækt áður sérstök pen- ingastofnun, þótt fjölgun fbúa þar hafi verið hvað örust á land- inu á undanförnum árum. Tæpur áratugur er nú liðinn siðan Búnaðarbankinn sótti fyrst um leyfi stjórnvalda til að starf- rækja útibú á þessum stað og var það loks veitt á s.l. ári. Bankinn festi kaup á hluta fasteignarinnar Sveinatungu við Vífilsstaðaveg, en þar eru m.a. skrifstofur bæjar- stjórnar til húsa. Við opnun útibúsins ávarpaði Stefán Valgeirsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans, nokkra gesti og færði hann Lista- Svavar Jóhannsson. Ef þú hefur gert góð kaup á sumarútsölunni, þá gerir þú ennþá betri kaup núna HERRAFÖT M/VESTI BLÚSSUR ST. JAKKAR HERRAPEYSUR TERYLENE ULLARBUXUR DÖMUPEYSUR BÚNAR TIL BEINT Á ÚTSÖLU KJÓLAR DENIM MUSSUR DÖMUDRAGTIR SKYRTUR BINDI OMFL. SKÓR SKÓR SKÓR Látið ekki happ úr hendi sleppa TIZKUVERZLUN UIMGA FOLKSINS fa KARNABÆR •mmJ* Útsölumarkaðurinn, Laugavegi 66, sími 28155 Vilhjálmur Vilhjálmsson Ljóð og textar eftir Kristján frá Djúpalæk Á þessari frábæru nýju plötu syngur Vilhjálmur 1 1 íslenzk lög bæði gömul og ný, þ.á m. eru ný lög eftir Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson, Pálma Gunnarsson og Magnús Eiríksson, einnig eru á plötunni gömul lög og Þórður sjóari eftir Ágúst Pétursson og Einu sinni var eftir Svavar Benediktsson, Þetta er platan sem beðið hefur verið eftir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.