Morgunblaðið - 09.09.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976
7
Sjálfstæðis-
flokkurinn og
jstyrkur hans
AndstæSingar Sjálf-
stæðisflokksins standa
jafnan agndofa frammi
fyrir styrk flokksins ( okk-
ar samfélagi og leita stöð-
ugt eftir hugsanlegum
skýringum á þeim styrk-
leika. Rangar hugmyndir
þeirra um SjálfstæSis-
flokkinn, stefnu hans og
störf gera þeim þó I raun
ókleift að skilja eðli Sjálf-
stæðisflokksins og þess
fylgis, sem hann nýtur
meðal islendinga. Þessi
skilningsskortur kemur
glögglega fram f forystu-
grein kommúnistablaðs-
ins I gær, en þar segir:
„Sjálfstæðisflokkurinn er
það tæki, sem fslenzkir fé-
sýslumenn af margvlslegu
tagi hafa byggt upp og
kunnað að efla til hags-
munagæslu á stjórnmála
sviði fyrir hönd stéttar
sinnar. Það fjármagn, sem
slfkir aðilar hafa varið til
pólitiskrar starfsemi Sjálf-
stæðisflokksins, hefur
skilað sér margfalt til
baka f auknu arðráni frá
verkalýðsstéttinni og ann-
arri alþýðu fyrir pólitfskan
tilverknað Sjálfstæðis-
flokksins. Forræði og vald
Sjálfstæðisflokksins f fs-
lenzkum stjórnmálum
byggist hins vegar á
tvennu — með tilstyrk
þess auðmagns, sem að
baki flokknum stendur.
hefur ráðamönnum hans
tekist að lokka til liðsinnis
fjölda fólks úr röðum
verkalýðsstéttarinnar,
sem þannig gengur gegn
eigin hagsmunum og ger-
ist vargar I véum stétta-
samtaka verkafólksins."
í þessari tilvitnun kem-
ur fram f hnotskurn hin
hefðbundna skilgreining
kommúnista á Sjálfstæð-
isflokknum og sýnir, að
þeir hafa ekkert lært á
rúmlega fjörutfu árum.
Sjálfstæðisflokkurinn
stendur mjög traustum
fótum og hefur skotið
mjög djúpum rótum f
þjóðerniskennd jslend-
inga. Áður en lýðveldi var
stofnað á íslandi var Sjálf-
stæðisflokkurinn og
helztu forystumenn hans
hörðustu og eindregnustu
baráttumenn f sjálfstæðis-
málum Íslendinga og fyrir
stofnun lýðveldis á ís-
landi. Þar var forystulið
Sjálfstæðisflokksins f
broddi fylkingar. Þessi
einbeitta stefna f sjálf-
stæðismálum þjóðarinnar
var f fyllsta samræmi við
sterka þjóðerniskennd og
tilfinningar fslenzku þjóð-
arinnar. Þegar lýðveldi
hafði verið stofnað á Ís-
landi var það eðlilegt
framhald á stefnu Sjálf-
stæðisflokksins f sjálf-
stæðismálinu, að Sjálf-
stæðisflokkurinn tók
ákveðna forystu um
stefnumótun, sem hafði
það að markmiði að
tryggja þetta sjálfstæði,
sem þjóðin hafði barizt
fyrir öldum saman og
hafði nú loks öðlazt. í
samræmi við það hafði
Sjálfstæðisflokkurinn for-
ystu um aðild að Atlants-
hafsbandalaginu og gerð
varnarsamnings við
Bandarfkin. Jafnan slðan
hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn staðið vörð um þessa
hornsteina utanrfkis-
stefnu þjóðarinnar, sem
hefur haft það að megin-
markmiði að tryggja sjálf-
stæði hennar og tilvist
hins fslenzka lýðveldis.
Þessi grundvallarstefna
Sjálfstæðisflokksins hefur
sem fyrr verið I samræmi
við afstöðu og hugsjónir
meginþorra þjóðarinnar.
Staðfesta flokksins f sjálf-
stæðismálum hennar,
fyrst við lýðveldisstofnun,
sfðan við varðveizlu sjálf-
stæðisins og loks forysta
Sjálfstæðisflokksins f bar-
áttunni fyrir 200 sjómflna
landhelginni er ein megin
skýringin á þvl trausta og
sterka fylgi. sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur
notið meðal Islenzkra
kjósenda.
Auk sterkrar þjóðernis-
kenndar eru einstaklings-
hyggja og sjálfsbjargar-
hvöt ein sterkustu ein-
kenni f þjóðareðli
Íslendinga. Enginn maður,
sem þekkir landið og
fólkið, getur neitað þvf.
Þessi einstaklingshyggja
og þessi sjálfsbjargarhvöt
koma fram hvort sem er f
athafnasemi einstaklinga
við sjávarsfðuna allt f
kringum landið eða I öðr-
um atvinnugreinum eða f
dugnaði landsmanna við
að eignast eigið húsnæði.
Einn grundvallarþátturinn
I stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins er einmitt stuðningur
við þessa einstaklings-
hyggju og einkafram-
tak.Einnig I þeim efnum
er Sjálfstæðisf lokkurinn
og hefur jafnan verið I
nánum takt við tilfinning-
ar þjóðarinnar. Hér er
komin önnur megin skýr-
ingin á hinu trausta fylgi
Sjálfstæðisflokksins
meðal fslenzkra kjósenda.
Andstæðingar Sjálf-
stæðisflokksins halda þvf
jafnan fram, að hann sé
flokkur gróðamanna, sem
sé andstæður haqs
munum launþega. Þetta
er sjálfsblekking og til-
búningur, sem á sér enga
stoð ! raunveruleikanum.
Ef tala á um „verkalýðs-
flokka", er Sjálfstæðis-
flokkurinn örugglega
annar stærsti verkalýðs-
flokkur þjóðarinnnar, ef
ekki hinn stærsti, og gildir
þá einu, hvort miðað er
við það traust, sem
stuðningsmenn Sjálf-
stæðisflokksins njóta inn-
an verkalýðsfélaganna
eða það fylgi sem Sjálf-
stæðisflokkurinn nýtur f
almennum kosningum
meðal launþega. Þess
vegna er það fáránlegt
þegar andstæðingar Sjálf-
stæðisflokksins halda þvl
fram, að hér sé á ferðinni
flokkur :ndsnúinn laun-
þegum en hagsmunatæki
svonefndra gróðaafla.
Sannleikurinn er sá að f
okkar þjóðfélagi fara
saman hagsmunir heil-
brigðs atvinnurekstrar og
launþega. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur lagt á
það rfka áherzlu að styðja
að hagsmunum beggja,
heilbrigðs og vel rekins
atvinnurekstrar f einka
eign og launþega. Það
vita forystumenn verka-
lýðsfélaganna, að þeir
eiga ekki fjandskap að
mæta hjá forystumönnum
Sjálfstæðisflokksins
hvorki nú né fyrr. Hins
vegar hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn aldrei gerzt
málsvari braskara. sem
ekkert eiga sameiginlegt
með heilbrigðum atvinnu-
rekstri. Hér hefur verið
vakin athygli á nokkrum
þáttum f stefnu Sjálf-
stæðisflokksins, sem hafa
valdið þv! að hann hefur
verið, er, og mun verða
forystuflokkur f þjóðmál-
um islendinga. Þessir
meginþættir f stefnu
Sjálfstæðisflokksins
verða flokknum og for-
ystumönnum hans leiðar-
Ijós héðan ! frá sem
hingað til.
svefnsófinn
Hvort heldur sem er:
Fallegur sófi eða tvíbreitt rúm.
Breidd: 170 cm, dýpt: 91 cm,
hæð: 80 cm. Rúm: 135x190 cm.
Hjá okkur er úrvaliÓ af svefnhúsgögnum
SERLEGA HAGSTÆTT VERÐ
^ TIMBURVERZLUNIN
Klapparstíg 1. Skeifan 19.
Simar 18430 — 85244.
HF.
^JCIZZBaLLetCSKÓLÍ BÓPU
“ SKÓLINN HEFST
20. SEPT.
JJazzballet fyrir alla
L ■á Byrjendur teknir inn I skólann á öllum alari
^ frá 7—20 ára og þar yfir
Á’ Hollt og skemmtilegt áhugaefni, fyrir yngri
sem eldri.
if Tlmar einu sinni eða tvisvar í viku fyrir
byrjendur
if Veturinn skiptist i 5 námskeið og hvert
námskeið er 6 vikur
if Kennsla fer fram i Síðumúla 8, í þægilegum
húsakynnum og góðri aðstöðu: setustofa, Ijós,
sturtur, nuddbelti
if Framhaldsnemendur hafi samband við skól-
ann sem fyrst Innrstun I síma 85090, frá kl
1—6
□jazzBaLLettsKóU ðópu
WERZALIT
SÓLBEKKIR
og handriöslistar
Werzalit þarf ekkert viðhald er auðvelt að þrífa
og er sérstaklega áferðarfallegt.
WERZALIT SÓLBEKKIR
fást í marmara, palisander og eikarlitum.
WERZALIT HANDRIÐSLISTAR
fást í moseeg lit.
Afgreiðsla í Skerfunni 19
Werzalit er góð fjárfesting.
^ TIMBURVERZIUNIN VðLUNUUR hf
Klapparstíg 1 Skeifan 19
Símar 18430 — 85244.
□ JazzóaiiettsKöii bópu