Morgunblaðið - 09.09.1976, Síða 7

Morgunblaðið - 09.09.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976 7 Sjálfstæðis- flokkurinn og jstyrkur hans AndstæSingar Sjálf- stæðisflokksins standa jafnan agndofa frammi fyrir styrk flokksins ( okk- ar samfélagi og leita stöð- ugt eftir hugsanlegum skýringum á þeim styrk- leika. Rangar hugmyndir þeirra um SjálfstæSis- flokkinn, stefnu hans og störf gera þeim þó I raun ókleift að skilja eðli Sjálf- stæðisflokksins og þess fylgis, sem hann nýtur meðal islendinga. Þessi skilningsskortur kemur glögglega fram f forystu- grein kommúnistablaðs- ins I gær, en þar segir: „Sjálfstæðisflokkurinn er það tæki, sem fslenzkir fé- sýslumenn af margvlslegu tagi hafa byggt upp og kunnað að efla til hags- munagæslu á stjórnmála sviði fyrir hönd stéttar sinnar. Það fjármagn, sem slfkir aðilar hafa varið til pólitiskrar starfsemi Sjálf- stæðisflokksins, hefur skilað sér margfalt til baka f auknu arðráni frá verkalýðsstéttinni og ann- arri alþýðu fyrir pólitfskan tilverknað Sjálfstæðis- flokksins. Forræði og vald Sjálfstæðisflokksins f fs- lenzkum stjórnmálum byggist hins vegar á tvennu — með tilstyrk þess auðmagns, sem að baki flokknum stendur. hefur ráðamönnum hans tekist að lokka til liðsinnis fjölda fólks úr röðum verkalýðsstéttarinnar, sem þannig gengur gegn eigin hagsmunum og ger- ist vargar I véum stétta- samtaka verkafólksins." í þessari tilvitnun kem- ur fram f hnotskurn hin hefðbundna skilgreining kommúnista á Sjálfstæð- isflokknum og sýnir, að þeir hafa ekkert lært á rúmlega fjörutfu árum. Sjálfstæðisflokkurinn stendur mjög traustum fótum og hefur skotið mjög djúpum rótum f þjóðerniskennd jslend- inga. Áður en lýðveldi var stofnað á íslandi var Sjálf- stæðisflokkurinn og helztu forystumenn hans hörðustu og eindregnustu baráttumenn f sjálfstæðis- málum Íslendinga og fyrir stofnun lýðveldis á ís- landi. Þar var forystulið Sjálfstæðisflokksins f broddi fylkingar. Þessi einbeitta stefna f sjálf- stæðismálum þjóðarinnar var f fyllsta samræmi við sterka þjóðerniskennd og tilfinningar fslenzku þjóð- arinnar. Þegar lýðveldi hafði verið stofnað á Ís- landi var það eðlilegt framhald á stefnu Sjálf- stæðisflokksins f sjálf- stæðismálinu, að Sjálf- stæðisflokkurinn tók ákveðna forystu um stefnumótun, sem hafði það að markmiði að tryggja þetta sjálfstæði, sem þjóðin hafði barizt fyrir öldum saman og hafði nú loks öðlazt. í samræmi við það hafði Sjálfstæðisflokkurinn for- ystu um aðild að Atlants- hafsbandalaginu og gerð varnarsamnings við Bandarfkin. Jafnan slðan hefur Sjálfstæðisflokkur- inn staðið vörð um þessa hornsteina utanrfkis- stefnu þjóðarinnar, sem hefur haft það að megin- markmiði að tryggja sjálf- stæði hennar og tilvist hins fslenzka lýðveldis. Þessi grundvallarstefna Sjálfstæðisflokksins hefur sem fyrr verið I samræmi við afstöðu og hugsjónir meginþorra þjóðarinnar. Staðfesta flokksins f sjálf- stæðismálum hennar, fyrst við lýðveldisstofnun, sfðan við varðveizlu sjálf- stæðisins og loks forysta Sjálfstæðisflokksins f bar- áttunni fyrir 200 sjómflna landhelginni er ein megin skýringin á þvl trausta og sterka fylgi. sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur notið meðal Islenzkra kjósenda. Auk sterkrar þjóðernis- kenndar eru einstaklings- hyggja og sjálfsbjargar- hvöt ein sterkustu ein- kenni f þjóðareðli Íslendinga. Enginn maður, sem þekkir landið og fólkið, getur neitað þvf. Þessi einstaklingshyggja og þessi sjálfsbjargarhvöt koma fram hvort sem er f athafnasemi einstaklinga við sjávarsfðuna allt f kringum landið eða I öðr- um atvinnugreinum eða f dugnaði landsmanna við að eignast eigið húsnæði. Einn grundvallarþátturinn I stefnu Sjálfstæðisflokks- ins er einmitt stuðningur við þessa einstaklings- hyggju og einkafram- tak.Einnig I þeim efnum er Sjálfstæðisf lokkurinn og hefur jafnan verið I nánum takt við tilfinning- ar þjóðarinnar. Hér er komin önnur megin skýr- ingin á hinu trausta fylgi Sjálfstæðisflokksins meðal fslenzkra kjósenda. Andstæðingar Sjálf- stæðisflokksins halda þvf jafnan fram, að hann sé flokkur gróðamanna, sem sé andstæður haqs munum launþega. Þetta er sjálfsblekking og til- búningur, sem á sér enga stoð ! raunveruleikanum. Ef tala á um „verkalýðs- flokka", er Sjálfstæðis- flokkurinn örugglega annar stærsti verkalýðs- flokkur þjóðarinnnar, ef ekki hinn stærsti, og gildir þá einu, hvort miðað er við það traust, sem stuðningsmenn Sjálf- stæðisflokksins njóta inn- an verkalýðsfélaganna eða það fylgi sem Sjálf- stæðisflokkurinn nýtur f almennum kosningum meðal launþega. Þess vegna er það fáránlegt þegar andstæðingar Sjálf- stæðisflokksins halda þvl fram, að hér sé á ferðinni flokkur :ndsnúinn laun- þegum en hagsmunatæki svonefndra gróðaafla. Sannleikurinn er sá að f okkar þjóðfélagi fara saman hagsmunir heil- brigðs atvinnurekstrar og launþega. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur lagt á það rfka áherzlu að styðja að hagsmunum beggja, heilbrigðs og vel rekins atvinnurekstrar f einka eign og launþega. Það vita forystumenn verka- lýðsfélaganna, að þeir eiga ekki fjandskap að mæta hjá forystumönnum Sjálfstæðisflokksins hvorki nú né fyrr. Hins vegar hefur Sjálfstæðis- flokkurinn aldrei gerzt málsvari braskara. sem ekkert eiga sameiginlegt með heilbrigðum atvinnu- rekstri. Hér hefur verið vakin athygli á nokkrum þáttum f stefnu Sjálf- stæðisflokksins, sem hafa valdið þv! að hann hefur verið, er, og mun verða forystuflokkur f þjóðmál- um islendinga. Þessir meginþættir f stefnu Sjálfstæðisflokksins verða flokknum og for- ystumönnum hans leiðar- Ijós héðan ! frá sem hingað til. svefnsófinn Hvort heldur sem er: Fallegur sófi eða tvíbreitt rúm. Breidd: 170 cm, dýpt: 91 cm, hæð: 80 cm. Rúm: 135x190 cm. Hjá okkur er úrvaliÓ af svefnhúsgögnum SERLEGA HAGSTÆTT VERÐ ^ TIMBURVERZLUNIN Klapparstíg 1. Skeifan 19. Simar 18430 — 85244. HF. ^JCIZZBaLLetCSKÓLÍ BÓPU “ SKÓLINN HEFST 20. SEPT. JJazzballet fyrir alla L ■á Byrjendur teknir inn I skólann á öllum alari ^ frá 7—20 ára og þar yfir Á’ Hollt og skemmtilegt áhugaefni, fyrir yngri sem eldri. if Tlmar einu sinni eða tvisvar í viku fyrir byrjendur if Veturinn skiptist i 5 námskeið og hvert námskeið er 6 vikur if Kennsla fer fram i Síðumúla 8, í þægilegum húsakynnum og góðri aðstöðu: setustofa, Ijós, sturtur, nuddbelti if Framhaldsnemendur hafi samband við skól- ann sem fyrst Innrstun I síma 85090, frá kl 1—6 □jazzBaLLettsKóU ðópu WERZALIT SÓLBEKKIR og handriöslistar Werzalit þarf ekkert viðhald er auðvelt að þrífa og er sérstaklega áferðarfallegt. WERZALIT SÓLBEKKIR fást í marmara, palisander og eikarlitum. WERZALIT HANDRIÐSLISTAR fást í moseeg lit. Afgreiðsla í Skerfunni 19 Werzalit er góð fjárfesting. ^ TIMBURVERZIUNIN VðLUNUUR hf Klapparstíg 1 Skeifan 19 Símar 18430 — 85244. □ JazzóaiiettsKöii bópu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.