Morgunblaðið - 09.09.1976, Side 13

Morgunblaðið - 09.09.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976 13 og Helga Litið til sólar stundarkorn. Jens Mikaelsson verkstjóri Hansen Benny Valgeirsdóttir VIHHA, SVEFH, VIHHA, SVEFH OG SKOÐA DÁTA... KAHHSKI — Hífa, var kallað úr lestinni og Elvar setti spilið á fulla ferð. Þeir voru að drífa í að halda áfram löndun strákarnir, og sfðan aftur á miðin. „FJÖRLEGUR BRAGURINN VIÐ HÖFNINA“ t Hraðfrystihúsi Kaupfélagsins hittum við að máli Jens Mikaels- son verkstjóra. — Við vinnum hér alla daga vikunnar nema sunnudaga, sagði hann, og venjan um þessar mundir er að vinnutíminn sé frá kl. 8—11 á kvöldin. Það vinna hér um 60—70 manns núna og er heldur litið. Hér er unninn allur fiskur nema sild og koli sem er heilfrystur. Við höfum fengið landburð af kola og steinbít. Övenjulega mikið. Þetta hefur þó verið að aukast undanfarin haust. Mest höfum við fengið í sumar 30—40 tonn af þessu á einum degi, en bátarnir hafa landað þriðja hvern dag. Stúlkurnar? Megnið af starfs- stúlkunum eru aðkomnar, líklega einar 45—50 af hópnum. Flestar eru úr Reykjavik og nágrenni, en nokkrar eru úr nærliggjandi sveitum. Stúlkurnar eru góður starfskraftur, flestar á aldrinum 17—20 ára. Sumt af þessu fólki kom til vinnu hér að loknum skóla 25. maf og er enn að svo þetta er mikið álag á krakkana sem vinna alveg fram að skóla. Jú það er fjörlegur bragurinn við höfnina um þessar mundir. Það er ævintýralegt að fá svoria marga báta inn á þessum árstíma. Það koma hér inn 20 bátar dag- lega og landa á fullri ferð, en á kvöldin er höfnin tóm. Þetta minnir mann á síldarárin gömlu. Við Jens röltum út f nýja frysti- húsið, stórglæsilegt mannvirki, byggt af stórhug og fyrirhyggju. Það verður væntanlega tekið í notkun fyrir næstu vetrarvertið og verður þá glæsilegasta frysti- hús á landinu. Þegar hafin var bygging hússins voru margir á þvi máli, að húsið væri allt of stórt, en nu er séð, að full þörf verði fyrir allt mannvirkið, en það verður vissulega rúmgott. Búið er að taka f notkun mötu- neyti f frystihúsinu, mötuneyti sem myndi sóma sér vel i hvaða hóteli sem er og einnig eru f hús- inu ýmsar nýjungar eins og t.d. kæligeymsla fyrir fiskflök sem bíða pökkunar. Sérstakt þvotta- hús er f húsinu, sem þvær alla sloppa annan hvern dag og sér- stök búningsherbergi eru fyrir starfsfólk með steypiböðum og þannig er mjög vandað til þessa húss á allan hátt. Forstjóri frysti- hússins er Asgrfmur Halldórsson, en byggingarstjóri er Guðni Óskarsson. Kostnaðarverð er lfklega um 500 millj. kr. „GJÖRBREYTT AÐSTAÐA MEÐNÝJU BRYGGJUNNI“ Garðar Sigurjónsson hafnar- vörður hefur i mörg horn að líta, því betra er að hafa allt klart þegar mikið er um að veráf, en hann kvað alla aðstöðu í höfninni hafa breytzt til mikilla bóta með tilkomu nýja hafnarþilsins, hátt f 200 metra langur nýr viðlegu- kantur. — Það er lff og f jör í þessu, bátar stanzlaust að koma og fara, 4 vöruskip tókum við inn sl. sólar- hring, en þetta er allt mjög vel skipulagt hér og allt annar bragur á sfðan nýja bryggjan komst í gagnið, en t.d. eru vatnshanar við hvert löndunarpláss og þar geta bátarnir tekið vatn. Þetta verður ákaflega hagstætt þegar þetta verður allt fullklárað. Og síðan sáum við á eftir Garðari þar sem hann fór að sinna bát við bát, þvf þótt hafnaraðstað- an sé góð þá skiptir miklu máli að hafnarverðirnir hafi stjórn á hlut- unum og það ræður reyndar úr- slitum í því að allt gangi árekstra- laust fyrir sig. Nú er gamla bryggjan svo til eingöngu notuð sem viðlegu- bryggja, bátarnir landa við þá nýju og þannig gengur þetta snar- lega fyrir sig, því á nýju bryggjunni er frystihúsið og fisk- móttaka þess og það þarf rétt að renna fiskkössunum steinsnar frá borði og til vinnslu. Það er fremur óalgengt að sjá þingmenn á labbi niðri á bryggju, en þessar þrjár kempur hittum við á bryggjunni F Hornafirði: Tómas Árnason, Lúðvík Jósepsson og Sverri Hermannsson. Þeir eru þarna um borð I Eskey, en fróðlegt væri að vita hvort reknetin sem þeir standa á hafi reynzt fiskin ( næsta róðri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.