Morgunblaðið - 09.09.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976
13
og Helga
Litið til sólar stundarkorn. Jens Mikaelsson verkstjóri
Hansen
Benny Valgeirsdóttir
VIHHA, SVEFH, VIHHA, SVEFH
OG SKOÐA DÁTA... KAHHSKI
— Hífa, var kallað úr lestinni
og Elvar setti spilið á fulla ferð.
Þeir voru að drífa í að halda
áfram löndun strákarnir, og sfðan
aftur á miðin.
„FJÖRLEGUR
BRAGURINN
VIÐ HÖFNINA“
t Hraðfrystihúsi Kaupfélagsins
hittum við að máli Jens Mikaels-
son verkstjóra.
— Við vinnum hér alla daga
vikunnar nema sunnudaga, sagði
hann, og venjan um þessar
mundir er að vinnutíminn sé frá
kl. 8—11 á kvöldin. Það vinna hér
um 60—70 manns núna og er
heldur litið. Hér er unninn allur
fiskur nema sild og koli sem er
heilfrystur. Við höfum fengið
landburð af kola og steinbít.
Övenjulega mikið. Þetta hefur þó
verið að aukast undanfarin haust.
Mest höfum við fengið í sumar
30—40 tonn af þessu á einum
degi, en bátarnir hafa landað
þriðja hvern dag.
Stúlkurnar? Megnið af starfs-
stúlkunum eru aðkomnar, líklega
einar 45—50 af hópnum. Flestar
eru úr Reykjavik og nágrenni, en
nokkrar eru úr nærliggjandi
sveitum. Stúlkurnar eru góður
starfskraftur, flestar á aldrinum
17—20 ára. Sumt af þessu fólki
kom til vinnu hér að loknum
skóla 25. maf og er enn að svo
þetta er mikið álag á krakkana
sem vinna alveg fram að skóla.
Jú það er fjörlegur bragurinn
við höfnina um þessar mundir.
Það er ævintýralegt að fá svoria
marga báta inn á þessum árstíma.
Það koma hér inn 20 bátar dag-
lega og landa á fullri ferð, en á
kvöldin er höfnin tóm. Þetta
minnir mann á síldarárin gömlu.
Við Jens röltum út f nýja frysti-
húsið, stórglæsilegt mannvirki,
byggt af stórhug og fyrirhyggju.
Það verður væntanlega tekið í
notkun fyrir næstu vetrarvertið
og verður þá glæsilegasta frysti-
hús á landinu. Þegar hafin var
bygging hússins voru margir á þvi
máli, að húsið væri allt of stórt, en
nu er séð, að full þörf verði fyrir
allt mannvirkið, en það verður
vissulega rúmgott.
Búið er að taka f notkun mötu-
neyti f frystihúsinu, mötuneyti
sem myndi sóma sér vel i hvaða
hóteli sem er og einnig eru f hús-
inu ýmsar nýjungar eins og t.d.
kæligeymsla fyrir fiskflök sem
bíða pökkunar. Sérstakt þvotta-
hús er f húsinu, sem þvær alla
sloppa annan hvern dag og sér-
stök búningsherbergi eru fyrir
starfsfólk með steypiböðum og
þannig er mjög vandað til þessa
húss á allan hátt. Forstjóri frysti-
hússins er Asgrfmur Halldórsson,
en byggingarstjóri er Guðni
Óskarsson. Kostnaðarverð er
lfklega um 500 millj. kr.
„GJÖRBREYTT
AÐSTAÐA
MEÐNÝJU
BRYGGJUNNI“
Garðar Sigurjónsson hafnar-
vörður hefur i mörg horn að líta,
því betra er að hafa allt klart
þegar mikið er um að veráf, en
hann kvað alla aðstöðu í höfninni
hafa breytzt til mikilla bóta með
tilkomu nýja hafnarþilsins, hátt f
200 metra langur nýr viðlegu-
kantur.
— Það er lff og f jör í þessu,
bátar stanzlaust að koma og fara,
4 vöruskip tókum við inn sl. sólar-
hring, en þetta er allt mjög vel
skipulagt hér og allt annar bragur
á sfðan nýja bryggjan komst í
gagnið, en t.d. eru vatnshanar við
hvert löndunarpláss og þar geta
bátarnir tekið vatn. Þetta verður
ákaflega hagstætt þegar þetta
verður allt fullklárað.
Og síðan sáum við á eftir
Garðari þar sem hann fór að sinna
bát við bát, þvf þótt hafnaraðstað-
an sé góð þá skiptir miklu máli að
hafnarverðirnir hafi stjórn á hlut-
unum og það ræður reyndar úr-
slitum í því að allt gangi árekstra-
laust fyrir sig.
Nú er gamla bryggjan svo til
eingöngu notuð sem viðlegu-
bryggja, bátarnir landa við þá
nýju og þannig gengur þetta snar-
lega fyrir sig, því á nýju
bryggjunni er frystihúsið og fisk-
móttaka þess og það þarf rétt að
renna fiskkössunum steinsnar frá
borði og til vinnslu.
Það er fremur óalgengt að sjá þingmenn á labbi niðri á bryggju, en þessar þrjár kempur
hittum við á bryggjunni F Hornafirði: Tómas Árnason, Lúðvík Jósepsson og Sverri
Hermannsson. Þeir eru þarna um borð I Eskey, en fróðlegt væri að vita hvort reknetin sem
þeir standa á hafi reynzt fiskin ( næsta róðri.