Morgunblaðið - 09.09.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976
15
ið af honum: „Við skulum taka
þessu með rósemi hugans og sofa
á þvi f nótt,“ hefir Kristján oft
sagt, þegar vandamál hafa steðjað
að og hefir þurft að taka ákvörð-
un í samskiptum við vaxandi
fjölda starfsfólks, sem nálgast nú
tvö þúsund. Þá hefir góðmennska
'og réttsýni Kristjáns leitt málin á
rétta braut.
Sem formaður stjórnar Loft-
leiða hefir Kristján öðlast slíka
hylli starfsmanna, að ekki get ég
ímyndað mér einn einasta þeirra,
hérlendis og erlendis, sem þekkir
til stjórnarformannsins, að hann
beri honum ekki lof.
Kristján hefir fyrir löngu fært
það í tal við mig, að tími sé kom-
inn til að hann viki úr fluginu
fyrir sér yngri mönnum, og snúi
sér aftur að skáldskap og ritstörf-
um. Fyrir beiðni okkar nánustu
samstarfsmanna hans I Loftleið-
um hefir hann haldið áfram. Árin
ein segja ekki til um aldur
manna, það er starfsorkan,
reynslan og glöggskyggni, sem
þessi vinur okkar býr yfir.
Ég veit að við verðum ekki von-
sviknir er við óskum að Kristján
verði sem lengst I okkar hópi.
Á undanförnum árum hefir
Kristján unað sér við trjá- og
gróðurrækt uppi I Rauðhólum við
Elliðavatn. Merkin sýna verkin.
Nú er þarna uppvaxinn skrúð-
garður, með háum trjám, fjöl-
skrúðugri flóru og fuglalffi.
Kristján nýtur þess oft að
skreppa um helgar og að lokinni
vinnu í þennan unaðsreit sinn.
Vel gæti ég trúað að eitthvert
ljóðið leyndist, sem skáldinu væri
innblásið á þessum stað.
Eiginkonu Kristjáns, frú Berg-
þóru Brynjólfsdóttur, og allri
hans fjölskyldu þakka ég þann
stuðning, sem þau hafa sýnt flug-
málum. Ennfremur þakka ég
þeim öllum góð kynni.
Garðabæ 9. september 1976
Álfreð Elíasson.
Við vissum að Kristján Guð-
laugsson var úr röðum virtustu
lögmanna landsins; við vissum að
Kristján hafði verið í forystusveit
Sjálfstæðisflokksins og gegnt þar
veigamiklum og margháttuðum
trúnaðarstörfum um árabil; við
vissum að hann hafði verið ske-
leggur blaðamaður og ritstjóri —
og skáld.
Miklu meira vissum við ekki
um formann okkar, er hann
kynnti sig fyrir nokkrum ungum
starfsmönnum Loftleiða fyrir
rúmum tuttugu árum. Kristján
hafði þá fyrir nokkru tekið hönd-
um saman við nokkra unga, at-
orkusama flugmenn og fleiri
bjartsýnismenn, sem brátt urðu
landskunnir athafnamenn, um að
blása nýju lifi I Loftleiðir og hefja
til nýs vegs og voru I óða önn að
leggja grundvöllinn að þeim al-
þjóðlegu umsvifum, sem síðar
urðu og alþjóð eru kunn.
Það var lff og fjör, er þeir með
Kristján í broddi fylkingar drógu
upp flugáætlanir, hugsuðu upp
hernaðaráætlanir i bardaganum
um Atlantshafsflugið, sem þá var
i algleymingi; lögðu nótt við dag I
elju sinni.
Nokkru eftir formannskjörið
1953 gerðist Kristján jafnframt
starfsmaður Loftleiða og hefur
verið það allar götur siðan, og er
hann þvf einn þeirra manna, sem
hvað stærstan skerf hafa Iagt til
viðgangs islenzkra flugmála sið-
asta aldarfjórðung.
Það vakti fljótt athygli okkar
starfsmannanna, hve samvirka og
samhæfða forystu Kristján veitti i
stjórnarstörfum sinum. Hygg ég,
að það sé nær einsdæmi meðal
islenzkra fyrirtækja, hve virkan
þátt stjórn Loftleiða tók i rekstri
og áætlunargerð félagsins. Ekki
ætla ég mér þá dul að tíunda þátt
Kristjáns í stjórnarstörfum Loft-
leiða, þar um vita þeir gerst, sem
með honum störfuðu. Hitt hygg
ég, að hann hafi frekar hvatt en
latt, frekar ýtt undir en dregið úr
þeirri djörfung, áræðni og fyrir-
hyggju, er einkenndu störf Loft-
leiðaforystunnar. Þor og þraut-
seigja og baráttugleði er Kristjáni
í blóð borin, og þegar mest á reyn-
ir, er hann hvað sterkastur. Þessi
eðliseinkenni hans speglast svo
ljóslega í ljóðum hans, þar sem
kveður m.a.:
„Þótt fái ég andbyr, það ekki
sakar“
og
„Við hlæjum þegar báran rís
bratt
og brjótumst áfram, þótt gangi
ei hratt
við siglum í sólarátt þó“.
Kristján hefur um aldarfjórð-
ung helgað Loftleiðum og nú síð-
ast Flugleiðum alla starfskrafta
sína. Hann hefur tekið þátt i mik-
ilvægum samningaviðræðum og
átt merka hlutdeild I ákvarðana-
töku, sem skipt hefur sköpum fyr-
ir félagið og starfslið þess.
Menn kynnu að ætla, að í krafti
starfs sins og forystuhlutverks
lokkuðu hann fjarlæg lönd og
hann væri á ferð og flugi; því fer
viðs fjarri, því tiðast situr formað-
urinn í skrifstofu sinni, les,
hugsar, igrundar og leggur á ráð-
in um framvindu Islenzkra flug-
mála.
Hann er eljumaður, sem ann
sér nær aldrei hvildar. Þá sjaldan
hann heldur utan, fer hann jafn-
an til sama staðar — i gömlu
Evrópu, þar sem hann gengur „út
í grænan skóg í gleði og fugla-
söng“, ella eyðir hann næðis-
stundunum i sumarlandi sinu I
Rauðhólum.
A kyrrum stundum leikur
Kristján á als oddi. Þá vikur flug-
málafrömuðurinn fyrir húmanist-
anum, sem reyndar er aðal
Kristjáns. Þá lætur hann fjúka i
kviðlingum, segir sögur skemmti-
legar en aðrir menn og fer með
latnesk ljóð.
Þáttur Kristjáns Guðlaugssonar
I íslenzkum atvinnumálum og is-
lenzkum flugmálum er svo rikur,
að hann verður ekki rakinn i
stuttri kveðju sem þessari. Það
verður verkefni sagnfræðinga sið-
ar að skýra og skilgreina þann
þátt.
Ég hefi átt þvi láni að fagna að
kynnast Kristjáni náið og þvi
meir sem ég kynnist honum, því
betur kann ég að meta mannkosti
hans. Við starfsmenn Loftleiða og
síðar Flugleiða eigum Kristjáni
Guðlaugssyni mikið upp að unna
fyrir þann skerf, sem hann hefur
lagt fram við uppbyggingu
stærstu einkafyrirtækja þjóðar-
innar og ekki siður sökum velvilja
hans, drengskapar og hjálpfýsi.
I krafti gáfna sinna og mann-
Framhald á bls. 22
gallavesti
í stærðum
frá 4— 16
Flauelsbuxur Kassabuxur
Vinsamlegast hafið samband við
sölumenn okkar sem fyrst.
Ágúst Ármann hf.
SUNDABORG, SÍMI 86677.
Pálmason hf. flytur
Við erum flutt í nýtt húsnæði
að Dugguvegi 23f sími 82466
Elliðavogur
Verið velkomin
Ný og bætt
þjónusta
I. PALMASON HF.
Dugguvogi 23f Reykjavík sími 82466
Dugguvogur