Morgunblaðið - 09.09.1976, Page 22

Morgunblaðið - 09.09.1976, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976 Sverrir Runólfsson: Mun tilraun mín takast? AÐ undanförnu hafa fjölmiðlar rætt um tilraunakafla minn og þær holur, sem myndazt hafa I veginn. Því miður hafa blaða- menn og aðrir fréttamenn ekki ótakmarkað rúm til afnota í við- komandi fjölmiðlum og þess- vegna geta þeir ekki útskýrt málavexti nema að takmörkuðu leyti. Mér finnst að það hafi t.d. ekki komið nægilega fram, að það eru níu mismunandi tilraunir í gangi á þessum 1200 metrum, sem — Mótmæli Framhald af bls. 1 ar gætu ekki komizt af án hinna hvítu ibúa Suður-Afrfku. Lögreglan í Höfðaborg lagði í dag til atlögu gegn 200 kynblend- ingum sem safnazt höfðu saman til mótmælagöngu í miðborginni undir sálmasöng. Um leið voru haldnir mótmælafundir í mörgum úthverfum Höfðaborgar og Jó- hannesarborgar. Snemma I morg- un skaut lögreglan til bana 4 manneskjur, sem tóku þátt í mót- mælagöngu i Höfðaborg, og 2 fór- ust þegar gistihús í Soweto fyrir utan Jóhannesarborg brann. Ford, Bandaríkjaforseti, sagði á fundi með fréttamönnum á mið- vikudag að Bandaríkin yrðu að gera stór átak til að finna mætti lausn á vandamálum suðurhluta Afríku. Sagði hann að góður árangur hefði náðst í viðræðum Henry Kissingers, utanrikisráð- herra, og John Vorsters um síð- ustu helgi. Sagði hann að hann ákvæði hvort Kissinger færi i samningaferð til Afríku þegar hann hefði fengið skýrslu frá að- stoðarutanríkisráðherra sínum, William Schaufele, sem nú á við- ræður við afriska leiðtoga. Kissin- ger hefur sjálfur gefið í skyn að hann kunni að fara í slíka ferð þegar í byrjun næstu viku. Ford sagði að Bandarikjamenn hefðu þrennt í huga varðandi Suður-Afríku. I fyrsta lagi að koma i veg fyrir að ofbeldi færð- ist í aukana, en það gæti ógnað öryggi Bandaríkjanna. I öðru lagi að meiri hlutinn fengi að ráða en að réttindi minnihlutahópa og efnahagslegar framfarir yrðu tryggðar. I þriðja lagi að koma í veg fyrir hernaðarihlutun utanað- komandi aðila I Afriku. í Dar-es-Salaam, höfuðborg Tanzaníu, áttu sér i dag stað við- ræður milli Julius Nyerere, for- seta landsins, og Schaufele, sendi- manns Fords. Er búizt við að þess- ar viðræður séu undanfari ferðar Kissingers til Afriku. Ekkert hef- ur verið látið uppi um efni við- ræðnanna, sem stóðu í 40 mínút- ur. Strax að þeim loknum sendi Schaufele skýrslu til Kissingers og sagði við fréttamenn að þeir gætu búizt við Kissinger í Afríku innan fárra daga. Hann sagði að heimsókn Kissingers til Tanzaníu þyrfti ekki að hafa i för með sér að hann tæki að sér sáttaferðir á milli svörtu Afríku og hvítu minnihlutastjórnanna í Ródesíu og Suður-Afríku. Þá hefur það verið tilkynnt í Salisbury, höfuðborg Ródesíu, að Ian Smith, forsætisráðherra, muni fara til Pretoríu til við- ræðna við John Vorster í byrjun næstu viku. Segir I tilkynningu Ródesíustjórnar að viðræðurnar muni snúast um „ný viðhorf i suðurhluta Afríku eftir fund Kis- singers og Vorsters". MYNDAMÓTA Aðalstræti 6 simi 25810 koma undirstöðunni og ræsunum ekkert við. Ég álit að ef einn fermetri af hverri tilraun stenzt sé björninn unninn og ef þær standast ekki, þá skil ég ekki hvers vegna ráðamenn neita samt að skrifa undir þá skuldbindingu, að Vegagerðin fari ekki út i þessa aðferð næstu 10 árin. Ég mun fylgjast vel með kaflanum í vetur og að vori, segjum ekki seinna en I mai n.k. mun ég semja itarlega greinargerð um þetta mál. — Hans G. Framhald af bls. 1 ákveðna málaflokka til með- ferðar. Sagði hann að nú stæði aðallega á fiskinefndinni og umfjöllun hennar um alþjóða hafsbotnssvæðið og á meðan færu aðrar nefndir sér hægt. Sagði hann að líklega verði haldinn sérstakur fundur í fiskinefndinni fyrir næsta fund ráðstefnunnar. — Jackie Framhald af bls. 1 Núverandi sendiherra í London er Anne Armstrong, sem er repúblikani, en sendiherrar leggja yfirleitt fram afsögn sína ef forseti andstöðuflokksins nær kjöri. — Solzhenitsyn Framhald á bls. 22 Núverandi aðsetur Solzhenit- syns er I Vermont, en ekki er vitað hvort hann muni setjast þar endanlega að. Hann hefur ferðast vlða um Bandarlkin og haldið þar fyrirlestra. Dagblað f Ziirich sagði f dag, að rithöfundurinn hefði feng- ið bréf á rússnesku þar sem honum og fjölskyldu hans var hótað öllu illu ef hann hætti ekki áróðri sfnum gegn Sovét- rfkjunum. Borgarfulltrúi f Ziirich segir, að sovézka leyni- þjónustan, KGB, hafi komið sér upp njósnahreiðri f kring- um heimili Solzhenitsyns þar. — Soares veikur Framhald af bls. 1 afl. Það myndi auka á öryggi þeirra sem fjárfesta og fyrirtækin gætu náð einhverjum hagnaði. En þess háttar aðgerðir væru bein viðurkenning á því hvað Portúgal er háð vesturevrópsku auðvaldi, og gætu einangrað Soares frá vinstrisinnum í hans eigin flokki. Þær gætu einnig komið af stað nýjum óeirðum af hálfu þeirra 25% kjósenda, sem styðja komm- únista eða aðra róttæka flokka. Mið- og hægriflokkarnir eru þó álitnir fylgjandi slíkum aðgerð- um. — Lands- leikurinn Framhald af bls. 38 fria samherja. Teitur Þórðar- son lék sérlega vel að þessu sinni og barðist af miklum dugnaði allan leikinn. Matthias Hallgrímsson stóð vel fyrir sinu og ef nokkuð er þá hefur hon- um farið fram þann tima, sem hann hefur dvalið með Svium. Ásgeir Sigurvinsson hefur oft leikið betur, hann fann reyndar fyrir meiðslum í gærkvöldi og kann þvi að hafa hlift sér óaf- vitað. Hvað um það, Ásgeir þarf ekki að eiga stórleik á sinn mælikvarða til að vera meðal beztu leikmanna islenzka liðs- ins. Marteinn Geirsson var sterkastur islenzku varnar- mannanna í leiknum og stað- setningar hans mun öruggari en áður. Gísli Torfason var drjúgur mjög í þessum leik. Aðrir varnarmenn íslenzka liðs- ins sóttu sig er leið á leikinn og á þetta ekki sizt við Árna Stef- ánsson, sem vírkaði tauga- óstyrkur í byrjuninni. Asgeir Elíasson átti, laglega spretti í leiknum, en oft hefur maður séð hann betri. Um hollenzka liðið er það að segja að þar voru þeir sterkast- ir Ari Haan (6) og þó sérstak- lega Kuylen (8). Leikmenn eins og Rensenbrink virtust ekki finna sig i leiknum, enda var hans vel gætt. Veður til að leika knattspyrnu var mjög gott í gærkvöldi og Laugardalsvöll- urinn með bezta móti. Dómari í leiknum var Pat Mullhann frá Skotlandi og stóð hann sig ekki eins vel og I leiknum gegn Belgum. LIÐ fSLANDS: Árni Stefánsson, Ólafur Sigurvinsson, Jón Pétursson, Jóhannes Eðvaldsson, Marteinn Geirsson, Gfsli Torfason, Guógeir Leifsson, Ásgeir Sigur- vinsson, Ásgeir Ellasson, Matthfas Hall- grfmsson, Teitur Þórðarson. LIÐ HOLLANDS: Ruiter, Kerkhof, Rijs- bergen, Kraaji, Krol, Haan, Jansen, Kuy- len, Kerkhof, Geels, Rensenbrink, Kist (varamaður). AHORFENDUR: 10.210. — Afmæli Framhald af bls. 15 kosta hefur Kristján ekki einasta skilið eftir sig röst mikla í þjóð- málum og flugmálum lands- manna, heldur áunnið sér óskipta hylli og vinsældir samferða- manna sinna. Ég er því fullviss um, að ég mæli fyrir munn allra starfs- manna Loftleiða og Flugleiða, er ég flyt á þessum degi innilegar heillaóskir hinum siunga sjötuga jöfri islenzks framtaks og is- lenzkra flugmála Kristjáni Guð- laugssyni. Jón Júllusson. Góð, gamalgróin vinátta og frændbönd ættmenna okkar hafa e.t.v. fyrst orðið til þess að vekja athygli mína á þeim ferli Kristjáns Guðlaugsssonar, sem fyrir löngu er nú orðinn góð- kunnur alþjóð, og mun lengi til jafnað, þegar leita þarf fyrir- mynda þeim ungu, sem hvetja á til þess að brjóta sér leið til mann- sæmandi lifskjara og andlegrar reisnar. Fyrstu kynni min af Kristjáni staðfestu raunar ekki annað en hið alkunna, að hann var mikill hæfileikamaður, þar sem listilega tvinnuðust saman hinir óliku eðlisþættir iskaldrar, yfirvegaðrar raunhyggju og hið óstýriláta, heita blóð þeirrar skáldæðar, sem hann fékk i vöggugjöf, Mer var það fljótlega og er raunar enn mkil gáta hve furðulega Kristjáni hefir tekizt að sameina þetta hvort tveggja, en það er vitanlega skýring þess, að hann hefir stundum, að lokinni dagsferð um refilstigu flókinna lagakróka eða í leit að farsælustu úrgreiðslu harðsnúinna viðskipta- hnúta, notið með vinum sfnum að kvöldi algleymis í faðmi þeirrar gyðju, sem e.t.v. er unaðslegust þar sem hún er óralengst frá arga- þrasi brauðstrits og veraldar- vafsturs. Þrátt fyrir þetta urðu Kristjáni þau örlög ofin, að forysta hans í athafnamálum margvfslegum verður um hann 'ftirminnilegust þó að ég sé þess fullviss, að ef hann hefði fremur valið hinn kostinn, skáldgyðjuna, þá myndu þau sjötíu ár, sem við minnumst i dag, þjóinni engu siður þykja þakkarverð en hitt, sem ber nú hærra við himin. Góðum vini, sem horfinn er nú frá sviðsljósi samtiðarinnar, á ég það að þakka hve fljótt ég kynntist þvf í fari Kristjáns Guð- laugssonar, sem er mér nú og verður jafnan ógleymanlegast og þakkarverðast alls þess, sem sér- kennir hann. I orðræðum um persónulegt vandamál sagði þessi vinur minn: „Ég væri fyrir löngu búinn að tapa þessum leik ef ég hefði ekki notið goðvildar Krstjáns. Þvílík- um drengskaparmanni hef ég aldréi kynnst. Hann er fágætur heiðursmaður. Ég trúi þvi, að þrátt fyrir allt muni hann enn bregða fyrir mig skildi þó að ég eigi það nú eflaust ekki skilið.“ Þessu bjargfasta trausti brást Kristján ekkí, og þau sögulok, sem þar urðu, luku upp fyrir mér þeim skilningsdyrum að hjarta hans, sem mér hefir alitaf þótt bezt að vita opnar mér, og öllum þeim öðrum sem til þeirra hafa þurft að leita. Þegar horft er nú til allra þeirra mörgu ára, sem liðin eru frá þvi er Kristján hvarf frá rit- stjórn, lögmennsku og margs konar öðrum störfum til þess að helga líf sitt formennsku I stjórn Loftleiða, þá bregður bjarma endurminninganna á svo margt, sem ljúft er og skylt að þakka við þessi tímamót, að naumast verður unnt að afráða hvar einkum beri þar að nema staðar án þess að á annað hilli, sem enn betra er að mega muna. En til þess að segja nú ekki eitthvað af þvi, sem allir þeir, er af Kristjáni hafa kynni, munu strax upp telja honum til ágætist, þá leyfi ég mér einungis að stað- festa það nú af eigin raun, sem vinur minn sagði mér endur fyrir lögnu, og mér finnst nú meiru skipta en upprifjun farsælla áfanga, góðra mannvirðinga og annars þess, sem flestum þykir skylt fram að telja á tyllidögum. „Þvílikum drengskaparmanni hef ég aldrei kynnst. Hann er fágætur heiðursmaður." Fyrir það þakka ég og áreiðan- lega við allir, gömlu samstarfs- mennirnir og nýju hjá Loftleið- um, sem urðum svo heppnir að hann tók á sínum tima ákvörðun um að gerast fyrirliði okkar. Ég óska einnig fjölskyldu hans til hamingju með afmælisdaginn. Og sjalfum afmæliseigandanum bið ég þess, að hann megi sem allra lengst halda starfsþreki sínu óskertu og fá að njóta i heiðríkju efri ára þeirrar sæmdar, er hann hefir áunnið sér á þeim sjötíu árum, sem eru að baki i dag. Sigurður Magnússon. r — Isl. hestar Framhald af bls. 3 3000 stig eru veitt gullverðlaun, sem telst frábær árangur. í dag, 8. september, hafa bæði Lothar og Klaus náð gullverðlaununum og Max Innhauer keppir að því að ná gullverðlaununum og á hann ekki langt í að ná þeim. Hestarnir eru allir heilbrigðir og eru fremur í framför og i góðu formi. Dýralæknar eru stórkostlega hrifnir yfir getu og þreki þessara litlu hesta. Ég hef verið með þessum hópi alla leiðina, yfir Wyoming og Nevada, yfir eyðimörk og fjallahálendi. Okkar hestar hafa staðið sig þar vel í samau- burði við aðra hesta og ég á vart orð til að lýsa aðdáun minni á getu þeirra, I þessum hita og rykmekki. Þegar þessi hópur kemur til Sacramento er leið hans orðin 5100 kilómetrar sem sagt er að sé álika langt og frá Zurich til Moskvu og til baka aftur. Þar sem íslenzku hestarnir í Pony express train eru í svo frábæru formi, er þess að vænta að þeir taki þátt í sérstakri 100 milna keppni hér í Kaliforníu sunnu- daginn 18. september. I vesturhluta Bandaríkjanna er mikill áhugi á hestum en hver heldur sínu hestakyni fram. — Tónabær Framhald af bls. 40 svínarii, hefur farið vaxandi og hefur þetta aukizt jafnt og þétt undanfarin tvö ár af ýmsum ástæðum, svo sem vegna lokunar annarra veitingastaða. Og nú er svo komið að ekki verður lengur við unað. Það sem vel tekst til með innandyra er rifið niður fyrir utan og meira en það. Síðastliðið föstudagskvöld og reyndar næstu helgar á undan mátti ekki mikið út af bera til að alvarlegir at- burðir gerðust. Ég vil ekki sem formaður Æskulýðsráðs bera ábyrgð á slíku öllu lengur og aðrir ráðsmenn eru sama sinnis." A fundi Æskulýðsráðs sl. mánu- dag voru eftirfarandi tillaga bor- in fram af Davíð Oddssyni og sam- þykkt: Æskulýðsráð samþykkir að skipa 3 fulltrúa I vinnunefnd til að gera tillögur um framtiðar- rekstur Tónabæjar. Skal þá m.a. eftirfarandi athugað: a) Kannað verði hvort hugsan- legt sé að breyta dansrekstri Tónabæjar í viðunandi horf, til að mynda með þvi að binda aldurs- mörk alfarið við tvo árganga. b) Dansrekstur verði lagður af í Tónabæ. Staðnum þess í stað breytt i félagsmiðstöð sbr. Fella- helli, Bústaðasókn og Arbæ. Fram þarf að koma kostnaðaráætlun í grófum dráttum og rekstrarmögu- leikar. c) Kannaðir verði möguleikar á sölu Tónabæjar með það i huga að leggja til við borgarstjórn, að söluandvirði verði varið til uppbyggingar félagsmiðstöðvar, þar sem brýnast þætti. d) Sama og undir lið c) nema að að þvi yrði stefnt að nýta söluand- virði Tónabæjar til að byggja upp Saltvík." Jafnframt var samþykkt að loka Tónabæ tvær næstu helgar meðan vinnunefndin vinnur að tillögum sínum. 1 nefndina voru skipuð Bessi Jóhannsdóttir, Jóhannes Long og Margrét Margeirsdóttir. — Haustsýning Framhald af bls. 17 Sem fagmanni þykir mér þessi sýning í heild áhugaverð fyrir margra hluta sakir, og um leið og ég lýk þessari yfirferð vil ég taka það fram, að ég vik að myndum þeirra Kristjðns Davlðssonar og Valtýs Péturssonar um leið og ég rita um SEPTEM“ sýninguna. Ég hef áður getið athyglis- verðra framlaga þeirra Magnúsar, Ömars og Sigurðar og vegna fram- kominna umsagna í dagblöðum vil ég benda á það óhjákvæmi- lega, að allar tegundir mynda eld- ast, og að frægustu listamenn ald- arinnar hafa notað svipaða tækni í bland. — Bankarnir Framhald af bls. 2 liggja fyrir, hafa heildarútlán við- skiptabankanna aukizt um rúm- lega 20% fyrstu átta mánuði árs- ins. Eru útlán bankanna þvi þeg- ar komin fram úr þvi hámarki, sem sett hafði verið fyrir árið í heild. Birgðalán til atvinnuveg- anna munu aukast verulega sið- ustu mánuði ársins og verða bank- arnir þvi að draga úr öðrum út- lánum á næstu mánuðum til að settu marki verði náð. Strangt að- hald I útlánamálum er jafnframt nauðsynlegt til að bæta mjög erf- iða lausafjárstöðu viðskiptabank- anna. Framangreind viðhorf hafa ver- ið rædd síðustu daga á fundum Seðlabankans og innlánsstofnana. Hafa viðskiptabankarnir þar lýst þeim ásetningi sínum að gera þær ráðstafanir, sem tiltækar eru, til að tryggja, að útlánin verði í árs- lok innan þess ramma, sem mark- aður er í lánsfjáráætlun og með samkomulaginu við Seðlabank- ann. Jafnframt mun Seðlabank- inn nú ítreka tilmæli sin I þessum efnum til einstakra sparisjóða. Á fundum Seðlabankans og við- skiptabankanna voru menn sam- dóma um það, að áframhaldandi aðhald i útlánum innlánsstofnana sé nauðsynleg forsenda þess, að unnt verði að ná þeim bata í við- skiptajöfnuði, sem að hefur verið stefnt á þessu ári. Þótt bætt við- skiptakjör hafi þegar létt nokkuð róðurinn I þessu efni, er enn útlit fyrir nálægt 12 milljarða króna viðskiptahalla á árinu. Auk þess munu afborganir af erlendum lánum nema rúmum 8 milljörðum króna á árinu. Þetta hvort tveggja verður að jafna með nýjum er- lendum lántökum að óbreyttri gjaldeyrisstöðu. Enn frekari bati í viðskiptajöfnuði er þvl nauðsyn- legur, ef stöðva á slvaxandi skuldasöfnun við útlönd. Að þessu marki hefur verið reynt að stefna á þessu ári með samræmd- um aðgerðum 1 rikisfjármálum og peningamálum innan lánsfjár- áætlunar. TJtlit er nú sem betur fer fyrir bættan hag ríkissjóðs á árinu eftir mikinn hallarekstur undanfarin tvö ár. Til þess að sá bati skili árangri verður stefnan í útlánum bankanna og annarra lánastofnana að miða að sama markn"

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.