Morgunblaðið - 09.09.1976, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976
25
fíabbað við
Þórð og Þorstein
Ólafssyni í innri-
Múia og Litiu-Hiíð
á Barðaströnd
minnsta kosti hér á Barða-
ströndinni, segja þeir. Þetta er
allt að breytast, en ég veit ekki
hvort það er nokkuð til batnað-
ar, segir Þorsteinn. — Það
sem ég skil ekki er hvernig
fólkið getur lifað svona margt í
Reykjavík. Mér leiðist eftir að
hafa verið þar í 2 — 3 daga. Við
höfum verið heimakærir eins
og Njáll gamli forðum og ég
aðeins þrisvar sinnum farið til
Reykjavíkur, segir Þorsteinn.
Vinnudagurinn hefur oft ver-
ið langur hjá þeim bræðrum og
t.d. í sláturtíðinni á hverju
hausti í mörg ár þurfti Þor-
steinn að ganga klukkustund-
arleið frá Litlu Hlíð inn að slát-
urhúsinu, sem var fyrir innan
og neðan bæinn í Innri-Múla.
Skipti þá ekki máli hvernig
viðraði, hann mátti leggja af
stað í rauðabýtið á morgnanna,
drakk gjarnan kaffi í Ytri-Múla
áður en haldið var síðasta spöl-
inn að sláturhúsinu. Heim var
síðan haldið sömu leið á hverju
kvöldi og þegar heim kom biðu
iðulega verkefni sem leysa
þurfti af hendi.
Báðir hafa þeir sinnt öðrum
störfum en sjómennsku og bú-
skap. Þorsteinn var t.d. í nokk-
ur ár í vegavinnu á Barðaströnd
og einnig var hann fenginn til
að hlaða bæjarveggi og slíkt
hjá bændum annars staðar á
ströndinni. Var hann í þessu
starfi með Elíasi Sveinssyni á
Vaðli. — Þorsteinn þótti sér-
lega laginn við þetta segir
Þórður.
GLEYMIR ÖLLU
JAFNÓÐUM
Þórður kann ógrynni af vís-
um og þá gjarnan eftir mæta
menn af Barðaströndinni.
Hann hefur lesið mikið, en seg-
ist hafa lítið gagn af þvi nú
orðið, það þýði ekkert að vera
að lesa lengur, hann gleymi
öllu jafnóðum. Báðir voru þeir
mikið í vinnu hjá Hákoni bónda
og alþingismanni í Haga á
Barðaströnd og kann Þórður
mikið af vísum eftir Hákon og
um hann. — Þeir kölluðu hann
bolakálfinn, þegar hann felldi
Björn Jónsson í kosningunum a
sínum tíma, segir Þórður og fer
með vísubrot eftir Júlíus á Litla-
nesi:
„Hákon velli
heldur enn
honum skellir
enginn . . ."
— Þeir hafa alltaf fengið
atkvæðið mitt Sjálfstæðis-
mennirnir. Það er alltaf bezta
stjórnin þegar Sjálfstæðismenn
eru við stýrið, þó það sé
kannski ekki fullkomið, segir
Þórður.
— Þú sérð nú ekki annað en
Sjálfstæðisflokkinn, segir Þor-
steinn við bróður sinn og látum
við þau orð hans verða þau
síðustu í rabbinu við þá bræður
frá Litlu-Hlíð og Innri-Múla á
Barðaströnd.
— Ekki er það
Framhald af bls. 29
spara okkur sem mest stór orð um
að við þurfum ekki á veiðum við
strendur annarra landa að halda
og leyfum engar hér útlendum,
því svo ótrúlega margt getur
spilað inn á fiskigöngur og fiski-
sæld sem enginn mannlegur
máttur ræður við enn sem komið
er, Skiptiveiðar eru þvi skynsam-
legar fyrst í stað að minu mati.
Látrum, á höfuðdag 1976.
Þofður Jónsson
— Nýtt útibú
Framhald af bls. 5
þurfti að gera á húsnæðinu og
önnuðust þær auk Svavars Guð-
jón Torfi Guðmundsson og Þor-
geir Guðmundsson, verkfræðing-
ar; Stefán V. Þorsteinsson, raf-
tæknir; Öli Kristjánsson, húsa-
smíðameistari; Sigurjón Guð-
mundsson, rafvirkjameistari; Jón
Guðlaugsson, pipulagningameist-
ari; Haukur Pétursson, múrara-
meistari; Reynir Guðmundsson og
Einar Gunnarsson, málarameist-
arar, og Ölafur Ölafsson, vegg-
fóðrunarmeistari. Innréttingar
voru smíðaðar í Trjástofninum
h.f., Kópavogi.
Garðaútibú Búnaðarbankans er
12. útibúið, sem bankinn starf-
rækir utan Reykjavíkur, en frá
nokkrum þeirra eru reknar af-
greiðslur á fámennari stöðum. 1
Reykjavík rekur bankinn 5 útibú.
Búnaðarbankinn er nú annar
stærsti viðskiptabanki þjóðarinn-
ar.
Afgreiðslutími útibúsins í
Garðabæ verður frá kl. 13:00 til
kl. 18:30 frá mánudegi til föstu-
dags. Starfsmenn verða fyrst um
sinn auk útibússtjóra aðeins
tveir, Gísli Helgason, gjaldkeri,
og Erla Hjartardóttir, bókari.
Það leynir
sér ekki
skólaárið er að hefjast. Það
hefst á hverju hausti hjá okkur eins
og hjá ykkur.
Hjá ykkur: Nýjar námsgreinar, nýjar
bækur, ný áhöld.
Hjá okkur: Nýjar sendingar af
gömlu góðu skólavörunum
og nýjungum í meira úrvali en
nokkru sinni fyrr.
Ein ferð í einhverja af þrem
verzlunum Pennans nægir, — þar
fást allar skólavörurnar, sem þið
þurfið að taka með í skólann,
— og meira til!
Hafnarstræti 18
Laugavegi 84
Hallarmúla 2
Heimdallur S.U.S.
Fulltrúaráðsfundur
Fulltrúaráð Heimdallar er hvatt saman til fundar n.k. fimmtu-
dag 9. september kl. 8.30. síðdegis í Sjálfstæðishúsinu við
Bolholt 7. Umræðuefni. Stjórnmálsályktun aðalfundar og
félagsstarfið framundan. Stjórnin.
F.U.S. STEFNIR
HAFNFIRÐINGAR
F.U.S. Stefnir heldur almennan fund i Sjálfstæðishúsinu. i
kvöld 9. sept. kl. 8.30.
Dagskrá:
Skattamálin.
Fjármálaráðherra,
Matthias Á.
Mathiesen og
þingmaðurinn Ell-
ert B. Schram
mæta á fundinn.
Sjálfstæðismenn
fjölmennið.
Stjórnin.
Sóiskinsdagur
— Haustog Vetur
Enn ein sendingi af hinni frábæru hljómplötu
(og kassettu) B.G. og'lngibjargar, „Sólskinsdagur”,
var aö koma. Nýttu þér tækifæriö og tryggöu þér
eintak. Þannig og aðeins þannig tryggir þú þér
sólskinsskap þó hvergi sjái til sólar.
Hijómpiötuútgáfan Steinar hf.
Dreding um Karnabæ
Sími 28155