Morgunblaðið - 09.09.1976, Síða 33

Morgunblaðið - 09.09.1976, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976 33 1 ffclk f fréttum Nektar- sýning — með nýju sniði.... + Amerfska fyrirsætan Chast- ity Fox fékk mjög óvenjulegt verkefni á dögunum þegar hún var ráðin hjá fataframleiðend- um f Dallas f Texas. Chastitu átti að skemmta gestum með nektarsýningu, sem var að þvf leyti ðvenjuleg að hún hófst með þvf sem er venjulega loka- atriði slfkra sýninga. Það er að segja, Chastity kom fram kvik- nakin en tók svo til við að tfna á sig spjarirnar á mjög eggjandi hátt. Sýningin vakti geysilega hrifningu og salan jókst sem aldrei fyrr. Sam búðarerfiðleikar + Leikarinn Peter Lawford, sem eitt sinn var kvæntur einni Kennedy-systranna, hefur nú eftir sjö vikna hjúskap beðið konu sfna að hafa sig sem skjót- ast á brott. Fyrir sjö vikum giftu þau sig, Peter og leikkonan Deborah Gould, og höfðu þau þá aðeins þekkzt f tfu daga. Viku sfðar fluttist Deborah heim til móð- ur sinnar f fyrsta sinn en Peter sótti hana og þau lýstu þvf yfir, að þetta væru aðeins byrjunar- örðugleikar. Þremur vikum sfðar, þegar Deborah kom heim frá vinnu sinni sfðla nætur, komst hún að raun um að búið var að skipta um læsingar á útidyrum hússins svo að hún komst ekki inn. Nú, sjö vikum eftir hjóna- vfgsluna, er Deborah aftur komin heim til mömmu og þar ætlar hún að vera þar til skilnaðurinn er kominn f gegn. „Hann hefur farið illa með mig. Eftir aðeins viku hjúskap skipaði hann mér að hypja mig. Hann sagðist ekki vilja vera umkringdur ókunnugu fólki allan sólarhringinn," segir + Silvfa Svfadrottning hefur nú eignazt sinn fasta aðdáenda- hóp og eru þar hattarar f mikl- um meirihluta. Eftir að hún kom fram á sjónarsviðið hefur sala kvenhatta aukizt um 70% enda ber Silvfa hatt við hvert tækifæri. + Telly Savalas er ekki f náð- inni hjá bandarfskum vopna- framleiðendum um þessar mundir. Telly sagði f sjón- varpsviðtali að hann væri and- vfgur öllu ofbeldi og vildi berj- ast gegn ofurveldi byssunnar f bandarfsku lffi. Deborah. Hún segist einnig ætla að sjá til þess að Peter gleymi ekki hjúskap þeirra f bráðina. „Ég mun fara fram á geysilegan framfærslueyri og mitt eigið hús. Eg ætla mér sko að búa við sama munað og þeg- ar ég var gift Pétri,“ segir hún. Peter Lawford hefur þetta að segja um hjónabandið: „Eg var ekki allsgáður þegar ég hitti Deboruh, ég hlýt að hafa verið drukkinn þegar ég bað hennar og ég var dauðadrukkinn þegar við létum splæsa okkur saman. Þegar maður svo vaknar upp og uppgötvar að maður er kvænt- ur, þá hlýtur það að enda með ósköpum." + Hann brosir breitt hann Roger Moore, eða kannski James Bond, enda hefur hann nú fengið nýjan meðleikara, Barböru Bach, 27 ára gamla blómarós frá New York. Þau vinna nú að upptökum á nýrri mynd um James Bond eftir sögu Ians Flemings, „Njósnar- inn sem elskaði mig“. Félag Þingeyskra kvenna í Rvík og nágrenni heldur haustfund sinn að Hallveigarstíg sunnu- daginn 12. sept. kl. 3 e.h. Góðar veitingar. Mætum vel með nýja félaga. Stjórnin. ^MÁLASKÓLI—26908-% 0 Danska, enska, þýzka, franska, spænska £ ítalska og íslenzka fyrir útlendinga. 0 Innritun daglega. £ Kennsla hefst 23. sept. 0 Skólinn er til húsa að Miðstræti 7. £ Miðstræti er miðsvæðis. ^26908 —HALLDORS^ 'k HÚSMÆÐUR ] Kryddkynning í dag fimmtudag kl. 2 — 6 í versluninni Aðalstræti 9 Dröfn Farestveit leiðbeinir um notkun hinna ýmsu kryddtegunda. VERIÐ VELKOMIN. Matardeildin, Aðalstræti 9 Dale Carnegie í Dale Carnegie námskeiðinu lærði ég að lifa í dagþéttri veröld — láta ekki atvik úr fortíð eða ótta hugsanir við það ókomna trufla Iff mitt. Leita eftir jákvæð um hliðum hvers atviks og sætta mig við það óumflýjanlega. Dale Carnegie námskeiðið hjálpar þér að: ★ Byggja upp jákvætt viðhorf til lífsins. ★ Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða. ★ Stækka vinahóp þinn og ávinna þér virðingu og viðurkenningu. ★ Bregðast af öryggi við vandamálum. ★ Auka tekjumöguleika þína og fjárhagslega stöðu. í DAG ER ÞITT TÆKIFÆRI Innritun og upplýsingar i dag og næstu daga í síma 82411 STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolphsson. Jón Hólmgeirsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.