Morgunblaðið - 09.09.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1976
37
VELA/AKAIMIDI
Velvakandi svarar í sima 10-100
kl 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
% Þróun
ogsköpun
Borizt hefur langt og mikið
bréf, þar sem tekið er til meðferð-
ar þetta efni — þróun og sköpun.
Þar sem rúmið leyfir tæpast að
allt bréfið verði birt, verður það
stytt nokkuð og fellt úr þvi á
einstaka stað, þar sem tilvitnanir
eru i ýmsa fræðimenn. nokkrar
þeirra verða þó látnar standa:
„I Velvakanda birtist nýverið
mikil skoðanagreinargerð gegn
framþróunarkenningunni, sem
raunar mætti á islenzku heita
sköpunarfræði. Er mikillar virð-
ingar vert, að sem flestir tjái hug
sinn i þessu máli og öðrum. Svo
mikið hefur mannkynið hugsað
um upphaf sitt, og lögmál alls lifs,
að það eitt hlýtur að hafa átt
drjúgan þátt í þroska mannsins,
og er raunar sterk sönnun fyrir
þeirri kenningu, — og að miklu
leyti vissu, — sem kennd er til
þróunar.
Höfundur greinargerðarinnar
lýkur máli sínu með því að sækja
styrk i trú sína á gömul rit biblíu-
safnsins, einkum Jesaja og Sálm-
ana. En það myndi vera hliðstætt
þvi að leita sannana fyrir hald-
leysi þróunarkenningarinnar. i
hinum ágætu ljóðum Matthiasar
Jochumssonar og Daviðs frá
Fagraskógi.
Til aðstoðar Jesaja og höfundi
Sálma leiðir greinarhöfundur
fram kennslubókina Líffræði I og
II, bók sem boði þróun, tekur upp
úr henni nokkrar efunarsetning-
ar og hyggst sanna með varfærn-
um ályktunum kennslubókarhöf-
undarins, hversu veik séu hans
rök.
Nú er þess að gæta, að kennslu-
bókin í Liffræði er skrifuð eins og
allar aðrar vísindalegar náms-
bækur fyrir sitt stig á námsbraut;
þessi bók er fyrir byrjendur. Og
þykir þá vitanlega ekki hlýða að
kynna þeim i upphafi annað en
grundvallaratriði. Með aldri, og
þroska, reynslu og sifellt aukinni
þekkingu vegna náms og rann-
sókna, koma svo þyngri viðfangs-
efni.
Raunar er þessi Veisz prófess-
or, höfundur kennslubókarinnar,
of naumur á aó geta þess, hve
langt liffræðin sé komin. Mætti
t.d. í svona bók minnast alkunnra
visindamanna, sem voru á sinum
tíma komnir jafn langt á undan
Líffræði I og II, eins og hún er nú
og nemur leiðinni milli jarðar og
sólar.“
Hér koma i bréfinu nokkrar til-
vitnanir i fræðimenn og veróa
birtar tvær þeirra:
„Franskur vísindamaður,
Pierre Rousseau, mælir svo:
„Hvort sem andstæðingum þróun-
arkenningarinnar líkar það betur
eða verr, verða rök fornaldar-
fræðinnar fyrir þremur þróunar-
stigum mannsins ekki hrakin. Af
hvaða sökum og samkvæmt hvaða
náttúrulögmálum breyttist dýrið i
formann, formaðurinn í frum-
mann og frummaðurinn i mann?
Þó að breytingar þessar hafi tekið
milljónir ára, er sá ferill undri
likastur, sem hefst með frumapa í
liki proconsuls og endar i snill-
ingu á borð við Einstein." (Þýð-
ing dr. Brodda Jóhannessonar).
Enskur fornleifafræðingur,
Arthur Keith, hefur skrifað: „Ég
öfunda þá karla og konur, er geta
haldið trú sinni óskertri og
óbreyttri til æviloka. Vegur
þeirra er friði krýndur og von
þeirra örugg. En til eru milljónir
manna sem linna ekki fyrr en
þeir hafa komið trú sinni i sam-
ræmi við staðreyndir lífsins eða
staðreyndum lífsins í samræmi
við trú sina. Ég er einn þeirra
manna.
— Þróunin hefur reynzt hæg-
fara, tímabundin sköpun til æðra
og æðra lifs. Af þessu megum vér
hreyknir vera. Þvi að það er ólikt
hugnæmara að vera af óæðri stig-
um og vita sig á uppleið, heldur
en að vera annaðhvort „hrapaður
engill" eða svo syndum spillt
mannvera, að hún eigi sér engrar
viðreisnar von, nema fyrir eitt-
hvert sérstakt náðarval. En ein-
mitt á síðari árum hafa komið
fram raddir um þá veglegu köllun
mannsins, að hann eigi nú að
halda þróun sinni áfram visvit-
andi, þar eða hann, auk þekking-
arinnar, hafi áunnið sér það, sem
hinar óæðri verur virðist skorta,
samvizku og valfrelsi." (Þýð.
Ágúst H. Bjarnason).“
Aðrir, sem bréfritari vitnar til,
eru enskur sálarrannsóknarmað-
ur, Sir Oliver Lodge, og franskur
visindamaður, Lecemte du Noliy.
Svo kemur að niðurlagi bréfs-
ins:
„Þannig mælist ýmsum merk-
ustu vísindamönnum þessarar
aldar. Beint framhald slíkra hug-
leiðinga er, að mátturinn sem
stjórnar þessari dásamlegu þró-
un, gengur aldrei lengra en svo,
að lifverurnar geti sjálfar tekið
þátt í sköpuninni, verði eitthvað
að gera sjálfar til að ná þroskan-
um. Og kemur þá aó lokum aó
oróum, sem einn af mörgum
merkisprestum, sem Islendingar
hafa átt, lét falla í ritgerð fyrir
allmörgum árum. Þar stendur:
„Hér er um tvennt að ræða. Að
mannsandinn gefist upp við að
hugsa lengra en ánamaðkur, eða
að hætta á að stökkva, i þeirri trú
að eitthvað fast verði undir fót-
um.“
7848-2192.“
Það var út af fyrir sig fagnaðar-
efni að hann sk.vldi ekki hafa hitt
hana aftur. Enn ein þrjózk og
duttlunga full Ijóska — hún hefði
getað verið tvíburasystir Eloise.
4. kafli.
A mánudeginum hringdi
Dwigth Perey.
— Ég er hérna með þetta kynd-
uga bréf frá yður...
Jack fór með lestinni seinna
þann dag. Hann skipti um lest i
Stamford og sfðan tók hann leigu-
bll út til heimilis útgefandans.
Neðsta hæðin var þvf sem næst
grafin I rhododenrunnum.
Á skilti á dyrunum stóð „kom
inn“ svo að hann bankaði og ark-
aði slðan rakleitt inn. En hrökk
til baka þegar stór og dökkur
hundur kom urrandi í ljós I for-
stofunni.
— Hættu nú, Uap, heyrðist rödd
segja einhvers staðar I fjarskan-
um. Hundurinn nam staðar og
gekk I áttina sem röddin kom úr,
en sneri sér öðru hverju við til að
fullvissa sig um að gesturinn
kæmi á eftir. Hann fylgdist á
þennan hátt með Jack að enda
forstofunnar og inn i eins konar
samhland af vinnustofu og dag-
mitupa barnamatur
HRAUST OG ÁNÆGÐ BÖRN
KÆRA MÓÐIR
Fyrir utan sjálfa móðurástina er naeringin
mikilvægust til að barninu llði vel. Milupa
vítamínbættur barnamatur framleiddur úr
völdu hráefni er ekki aðeins hollur, heldur
einnig bragðgóður og umfram allt hand-
hægur og drjúgur.
Milupa hefir allt fyrir börnin frá fæðingu
Milumil þurrmjólk inniheldur öll nauð-
synleg vítamín. Hún er seðjandi og auð-
melt og fyrirbyggir meltingartruflanir.
Þegar barnið er u.þ.b. 9 vikna gamalt
nægir pelinn ekki lengur. Hér býður
Milupa uppá fjölbreytt úrval af barna-
mjöli. Miluvit hunangsmjöl. Miluvit
„mit" mjólkurmjöl. 7 Korn flocken
barnamjöl úr sjö korntegundum
Milupa býður ennfremur upp á 1 2 teg-
undir af gómsætu barnamjöli, blönduðu
ferskum ávöxtum, t.d. perumiírbanönum
•jírblönduðum ávöxtum tlr hnetum með
súkkulaði. Úr einum pakka fást margir
skammtar af úrvals ávaxtamauki á hóf-
legu verði Þetta er algjör nýjung sem vert
er að reyna Bragðgott, seðjandi og styrkj-
andi
Þér getið treyst Milupa og verið vissar um
að barn yðar fær það besta sem völ er á.
Milupa hálfrar aldar sérhæfing i barna-
mat. Dagstimpill og leiðarvisir á hverjum
pakka tryggir ferska og góða vöru. Biðjið
um leiðbeiningabækling.
Fæst í næstu IMA matvöruverzlun.
IMA-verzlanir
Arnarkjor Lækjarfit 7. GarSahr Ingólfskjör Grettisgotu 86. R.
Asgeir Efstalandi 26. R. ívar S. GuSm. Njálsgötu 26. R.
Ásgeirsbúð Hjallabrekku 2, Kóp. KaupgarSur h.f. SmiSjuvegi 9. Kóp.
Arbaejarkjor Rofabaa 9. R. KjartansbúS Efstasundi 27. R.
Birgisbúð Ránargötu 15, R. Kjörbar Þórsgötu 1 7. R.
BorgarbúSin UrSarbraut 20. Kóp. Kjöt og Fiskur Seljabraut 54. R.
BústaBabúSin HólmgarSi 34. R. Kópavogur Borgarholtsbr. 6. R.
Drlfa HliSarvegi 53. Kóp. Langholtsval Langholtsvegi 1 74,
GuSm. Guðjónsson VallargerSi 4. Kóp. Matval Þinghólsbraut 21. Kóp.
GarSakjór Hraunbæ 102, R. Sólver Fjölnisvegi 2, R.
Gunnarskjör Arnarhrauni 21, Hafnarf. SvalbarSi Framnesvegi 44, R.
HagabúSin HjarSarhaga 47, R. SunnubúSin MávahliS 26. R.
Haimakjör Sólheimum 23. R. SöivabúS Hringbr. 99. Keflavik
Hraunvar ÁlfaskeiSi 115, Hafnarf. TeigabúSin Kirkjuteig 19. R.
iSufell ISufelli 14. R. Þingholt Grundarstig 2, R.