Morgunblaðið - 15.09.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976
Skeiðará enn
í sumarfarvegi
VlSINDAMENN, starfsmenn
Vegagerðarinnar og vatnamæl-
inga búa sig nú af krafti undir
Skeiðarárhlaup það sem er að
hefjast og er Sigurjón Rist, vatna-
mælingamaður, þegar kominn til
starfa austur við Skeiðará. Hægur
vöxtur er enn f ánni og er ekki
gert ráð fyrir að hún vaxi veru-
lega fyrr en eftir næstu helgi ef
höfð eru í huga sfðustu hlaup.
Einar Hafliðason, verkfræðing-
ur hjá Vegagerð ríkisins, tjáði
Snemmkynnt
framboð
Morgunblaðinu í gær, að maður
frá Vegagerðinni væri á staðnum
og flytti fréttir daglega. Starfs-
menn Vegagerðarinnar fylgdust
með þessu hlaupi og þegar yxi
verulega i ánni færu menn austur
til rannsókna og vinnu, en þó
væri ekki búizt við að áin græfi
veginn í sundur að þessu sinni, en
Utilokað væri að spá nokkru.
Þá sagði Einar að Skeiðará
rynni nU á 350 metra svæði undir
brUnni, en alls er brúin 900 metr-
ar á lengd.
í síðasta Skeiðarárhlaupi árið
1972 mældist rennsli í Skeiðará
mest um 5.700 sekúndulítrar, og
um 2000 lítrar í Gígju. Mesta sum-
arrennsli í ánni er hins vegar ekki
nema um 200 sekúndulítrar.
Ragnar Stefánsson, þjóðgarðs-
Á leið í skólann á góðviðrisdegi.
Ljósmynd Mbl. Friðþjófur.
Finnur Torfi Ólafsson.
Kjördæmisráð Norðurlands-
kjördæmis vestra hefur tilnefnt
Finn Torfa Ólafsson lögfræðing í
Reykjavík efsta mann á lista Al-
þýðuflokksins í kjördæminu fyrir
næstu kosningar, sem væntanlega
verða árið 1978. Síðasti frambjóð-
andi Alþýðuflokksins í þessu sæti
var Pétur Pétursson. Ekki er enn
ákveðið með aðra frambjóðendur
flokksins i kjördæminu.
Afleiðing rangrar gjaldskrárstefnu:
15% hærra raforkuverð
en annars hefði orðið
AFLEIÐING rangrar stefnu I
gjaldskrármálum Rafmagnsveitu
Reykjavlkur undanfarin ár er að
rafmagnsveró er 14 til 15% hærra
en annars hefði orðið á árinu
1976. A árinu 1975 heföi raf-
magnsverð getað verið 6,5%
lægra en það var, ef röng stefna
hefði ekki verið við lýði. Þetta
kemur fram I ársskýrslu Raf-
magnsveitu Reykjavíkur, sem ný-
Heildaraflinn 40 þús.
lestum minni en í fyrra
HEILDARAFLI landsmanna var
40.823 lestum minni fyrstu átta
mánuði þessa árs miðað við sama
tlma I fyrra. Að þessu sinni
reyndist aflinn vera 758.329 lestir
en I fyrra 799.152 lestir.
1 skýrslu Fiskifélags Islands
segir, að þorskafli báta sé nú
193.958 lestir á móti 198.036 lest-
um í fyrra og er það minnkun sem
nemur á fimmta þús. lestum.
Bátaafli á svæðinu frá Hornafirði
til Stykkishólms er nú 141.573
lestir á móti 142.607 lestum, á
Vestfjörðum er hann 25.601 lest
en var 25.031 lest, á Norðurlandi
er hann 13.276 lestir en var 17.072
lestir og á Austfjörðum er hann
12.921 lest á móti 12.889 lestum.
Hjá bátum hefur mest minnkun
orðið á Norðurlandi en aukning á
Vestfjörðum og Austfjörðum.
Um togaraaflann er það að
segja, að afli skuttogara er nú
131.451 lest á móti 119.770 lestum,
sem er nokkur aukning, sem staf-
ar m.a. af fjölgun togara á þessu
ári. Afli siðutogara er nú 4.900
lestir á móti röskum 7000 lestum í
fyrra.
Sílaraflinn nemur nU samtals
2.265 lestum, en var 8.698 lestir á
sama tíma í fyrra. Loðnuaflinn er
nU 406.276 lestir á móti 456.900
lestum. Rækjuaflinn er 4.165
Framhald á bls. 18
lega er komin út yfir árið 1975.
Þrjú erlend lán voru tekin á
árinu 1975, 342 milljón króna lán
hjá Scandinavian Bank og Royal
bank of Scotland, 102,6 milljón
króna lán, sem er hluti Raf-
magnsveitunnar af erlendu
skuldabréfaláni Reykjavikur-
borgar, en það lán var notað til
þess að greiða upp bráðabirgða-
lán, sem tekið var hjá ASEA I
Svíþjóð að upphæð 70 milljón
krónur vegna byggingar spenni-
stöðvar við Korpu.
Rekstrarjöfnuður ársins 1975
var 493,4 milljónir króna og höfðu
þá verið afskrifaðar 79,8 milljónir
króna. Þess ber þó að gæta að
gengistap af erlendum skuldum
fyrritækisins var á árinu um 408
milljónir króna, en þar voru
færðar til gjalda 27,2 milljónir
króna eða sem svaraði gengistapi
af afborgunum og skuldum, en á
árinu 1974 var allt gengistap af
erlendum skuldum fært til gjalda.
Hefði gengistapið verið fært til
gjalda að fullu á árinu 1975, hefði
rekstrarjöfnuður lækkað i 112,3
milljónir króna. Er af þessu aug-
ljóst, hve hættulegar erlendar
skuldir fyrirtækisins eru afkomu
þess, og augljóst er, að ekki verð-
ur haldið lengra á þeirri braut að
taka erlend lán til þess að mæta
greiðsluhalla I rekstri, enda er
áhrifa þeirra á gjaldskrá Raf-
magnsveitunnar nU farið að gæta
að marki — segir i skýrslunni.
Síðan segir i skýrslu Rafmagns-
veitunnar: „..., að afleiðing rangr-
ar stefnu i gjaldskrármálum und-
anfarin ár er annars vegar 1.000
kr. aukinn skuldabaggi fyrirtæk-
isins, og hins vegar, að raforku-
verð hefði á árinu 1975 getað ver-
ið 6,5% lægra en það var. Enn-
fremur má geta þess að rafmagns-
verð árið 1976 er 14—15% hærra
en annars hefði orðið.“
Þórshöfn:
Fullvinna
rækjuna
um borð
„Miklu betra hljóð í
mannskapnum með
nýjum atvinnutækjum”
— segir sveitarstjórinn
„Það er ágætt hljóðið I okkur,
sól og bllða og yfir 20 stiga hiti“,
sagði Bjarni Aðalgeirsson sveitar-
stjóri á Þórshöfn þegar Morgun-
blaðið rabbaði við hann I gær um
ástand atvinnumála I bænum.
„Þetta hefur breyzt geysilega frá
þvf fyrrihluta ársins þegar allt
upp I 50 manns voru hér atvinnu-
lausir, en nú er hér svo til úrtaks-
Iftil vinna I frystihúsinu. Nýi
skuttogarinn Fontur er nú búinn
að landa hér um 250 tonnum og I
gær landaði hann um 90 tonnum
úr Vfkurálnum og það er allt
unnið I nýja frystihúsinu sem var
tekið formlega I notkun I ágúst-
mánuði.
Þá er verið að setja vinnslutæki
um borð í rækjubátinn Langanes.
Það er nýr 100 tonna bátur sem
var smíðaður á Seyðisfirði I sum-
ar, en Þórshafnarmenn ætla að
gera hann Ut á djUpmið á rækju
við Kolbeinsey. Verður aflinn
fullunninn um borð, rækjan slit-
in, soðin og fryst.
Þá er þokkalegur afli hjá þrem-
ur heimabátum sem stunda snur-
voð hér rétt við bæjardyrnar, en
fremur hefur verið tregt hjá smá-
bátum upp á síðkastið.
NU vinna um 70 manns í fiski
hjá okkur og það er því miklu
léttara hljóðið í okkur en fyrr á
árinu þegar atvinnutæki vantaði
hér og mikið atvinnuleysi ríkti.
Þetta er allt annað, hvernig svo
sem ganga mun að láta þessa
miklu fjárfestingu rUlla“.
Norðursjórinn:
Meðalverðið fyrir
síldina nær helmingi
hærra en í fyrra
íslenzku sfldveiðiskipin
höfðu i lok sfðustu viku
í meðalverð, þannig að
sfldarverðið virðist fara
selt alls 2.998.1 lest af sfld f hækkandi í Danmörku
NBC-sjónvarpsstöðin
gerir heimildamynd
um glæpi á Islandi
HÉR á landi er nú staddur 5 manna flokkur frá bandarlsku
NBC-sjónvarpsstöðinni og er ætlun flokksins að gera hér heimilda-
mynd um glæpi og ofbeldi á Islandi.
Fyrirliði hópsins er fréttakon-
an Ene Riisna, og ræddi Mbl.
stuttlega við hana I gær. Sagði
hú að þessi heimildamynd yrði
þriggja klukkustunda löng og
yrði hún sýnd f heilu lagi I
Bandarfkjunum I janúar n.k.
Mynd þessi á fyrst og fremst að
fjalla um ofbeldi f Banda-
rfkjunum, ástæðurnar fyrir
auknu ofbeldi og hvað til úr-
bóta sé en hvers konar ofbeldis-
verk hafa aukizt þar hröðum
skrefum og meira en annars
staðar f heiminum. A árunum
1968—1973 jukust t.d. morð um
42% í Bandarfkjunum.
Að sögn Ene Riisna var síðan
ætlunin að flétta inn myndum
frá þjóðfélagi, þar sem of-
beldisverk væru f lágmarki og
morð fátfð. Varð ísland fyrir
valinu. En þegar Ene Riisna
kon hingað til lands til að
kynna sér ástand þessarra mála
komst hún brátt að raun um að
ástandið var ekki eins og hún
bjóst við, heldur hafði tíðni
morða og hvers kyns ofbeldis-
verka aukizt hröðum skrefum
hér hin síðustu ár. Þótti henni
þessi þróun íhugunarverð og
ákvað að taka hluta myndarinn-
ar hér, jafnvel þótt forsendurn-
Ene Riisna.
ar væru ekki þær sömu og í
upphafi. Byrjar hún myndatök-
una í dag og mun mynda fram
að næstu helgi. Verður fléttað
inn viðtölum við ýmsa þá, sem
vinna að dómsmálum hér á
landi. Auk Islands verður flétt-
að inn í þessa heimildamynd
myndum frá Hollandi.
Framhald á bls. 18
Danmörku frá 24. maí s.l.
fyrir alls 209.269.028 kr. Á
sama tíma í fyrra höfðu
skipin selt 9.162.6 lestir
fyrir 351.682.765 kr. Þá var
meðalverðið kr. 38.26 pr.
kg. en er nú kr. 69.80 pr.
kfló eða allt að því helm-
ingi hærra. t sfðustu viku
seldu skipin 671 lest fyrir
46.3 millj. kr. og var með-
alverðið kr. 69.65, en þá
seldu skipin 10 sinnum.
Söluhæsta skipið f vikunni
var Helga Guðmundsdóttir
BA, sem seldi 103 lestir
fyrir 6.5 millj. kr. og var
meðalverð pr. kg 63.32.
Hæsta meðalverði vikunn-
ar náði fsleifur VE, kr.
72.19, en skipið seldi 44.3
lestir fyrir 3.2 millj. króna.
Fjögur sfldveiðiskip seldu
afla sinn í Danmörku í gær
og fengu öll yfir 75 krónur
þessa dagana.
Hrafn GK seldi 58.4 lestir fyrir
4.4 mlj kr., meðalverð kr 76.09,
Jón Finnsson GK seldi 78.1 lest
fyrir 5.8 millj. kr., meðalverð kr.
75.20, Magnús NK seldi 75.4 lestir
fyrir 5.7. millj. kr, meðalverð kr.
75.77 og Isleifur VE seldi 56.3
lestir fyrir 4.2 millj. kr., meðal-
verðið var kr. 75.88.
Krafla:
7. og 8. hol-
an í borun
VIÐ höfðum samband við bor-
menn á Kröflu I gær, en þeir
kváðust vera um hálfan mánuð
á undan áætlun með borun á
þeim 10 holum sem ákveðið er
að bora þar. Þeir eru nú að
bora 7. og 8. holuna og er 7.
holan orðin um 1400 metra
djúp, en hún á að verða liðlega
2000 metra djúp og hola 8 er
orðin 750 metra djúp en verð-
ur um 1600 metra djúp.