Morgunblaðið - 15.09.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.09.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976 13 Viðsjár munu enn magnast í Suður-Afríku Á meðan Badarlkjamenn hafa verið önnum kafnir við að sinna innanríkismálum sínum undanfarna tvo mánuði, hafa miklir atburðir átt sér stað hin- um megin á hnettinum, og bú- ast má við að áhrif þeirra verði varanlegri en þeirra dægur- mála, sem Bandaríkjamenn hafa haft hugann bundinn við. Hér er um að ræða óeirðir þær, sem efnt hefur verið til í borgarhverfum þeldökkra i Suður-Afriku og viðbrögð hvitra manna við þeim, en hvort tveggja hefur geysimikla þýðingu fyrir þróun heimsmál- anna og mannlegt samfélag I heild. Blökkumenn I Suður-Afríku hafa áður efnt til óeirða, og skyldi engan undra, að grunnt sé á viðsjám I landi, þar sem rúmlega 80% ibúanna eru dæmd til þess að vera þrælar og þjónar vegna kynþáttar slns. En þeir atburðir, sem átt hafa sér stað á þessu ári, eru um margt ólíkir fyrri árekstrum i Suður-Afríku. Mótmælaað- gerðir þeldökkra hafa staðið miklu lengur en fordæmi eru fyrir, og viðbrögð rlkisstjórnar- innar hafa einkennzt af hiki og hafa þau jafnvel verið ærið mótsagnakennd. Viðsjár magnast. Hingað til hefur lögreglan bælt niður með harðri hendi allan vott af uppreisn og andstöðu meðal þeldökka meirihlutans I landinu. Það hefur ekki tekizt að þessu sinni. Viðsjár þær, sem hófust með átökunum i Soweto 16. júni sl. hafa magnazt og breiðzt út. Rúmlega 250 manns hafa fallið og um það bil 1.500 manns hafa særzt. Miðað við þær aðstæður, sem blökkumenn I Suður-Afriku búa við, er það sannkallað þrek- virki, að þeir skuli hafa getað haldið áfram mótmæla- aðgerðum slnum svo lengi sem raun ber vitni. I borgum lands- ins er þeim gert að búa I sér- stökum hverfum svo sem Soweto, sem er útborg Jóhannesarborgar. Ef til óeirða kemur geta lögregla og her hæglega einangrað viðkomandi hverfi og haft hendur I hári uppreisnarmanna. Alla mat- Svertingjum er engin miskunn sýnd I óeirðunum ( Suður- Afríku. eftir ANTHONY LEWIS ‘ V. Jí'eiujlorkeimcjs Verð á gulli hefur fallið og ýmislegt hefur farið aflaga á innanlandsvettvangi I Suður- Afrlku. Um 20% þekdökkra borgarbúa eru atvinnulaus, og þeir hafa engar atvinnuleysis- bætur. Þeir, sem hafa atvinnu, vilja ógjarnan hætta á að missa hana með þvi að taka þátt I mótmælaaðgerðum, enda þótt þeim svlði sárt að fá aðeins einn tíunda af launum hvítra verkamanna og vera beittir margs konar annarri svívirðu negna kynþaættar sins. En þrátt fyrir allt hefur mót- mælaaldan ekki hjaðnað. Þegar ég var á ferð I Suður-Afríku fyrir ári, spáðu margir blökku- menn þvi, að það yrði æskan, sem snúast myndi gegn kúgun- inni, og þeir hafa reynzt sann- spáir. Börn og unglingar allt niður i 13 ára hafa ekki vílað það fyrir sér að standa and- spænis byssustingjum, og hafa fallið fyrir lögreglunni. Greini- leg kynslóðaskipti hafa átt sér stað I Suður-Afríku. Tilslakanir stjórnvalda. vöru þarf að flytja sérstaklega til þessara hverfa. Þeldökkum mönnum er stranglega bannað að bera vopn, og telja leiðtogar þeirra að öryggislögreglan hafi njósnara á meðal þeirra. Svo virðist sem þessar grunsemdir hafi við rök að styðjast. Kreppir að efnahagslega Við þessar nöturlegu að- stæður bætist það, að um þessar mundir kreppir verulega að blökkumönnum efnahagslega. Stjórnvöld urðu fljótlega við fyrstu kröfunni, sem náms- menn settu fram. Þau námu úr gildi reglugerð um, að afrikaan eða mál Búa skyldi vera notað til kennslu I skólum þeldökkra. Siðan gekk ríkisstjórnin jafn- Framhald á bls. 21 OKKUR er ánægja að þakka frábærar móttökur. Yfir 80 manns komu og spjölluðu við okkur og fengu kaffisopa á sunnudaginn. Símalínurnar voru bókstaflega rauðglóandi. Síðan höfum við vart haft undan við að aðstoða fólk. Við virðumst því ætla að hljóta það traust hjá fólki, sem við settum okkur og eins og maður einn sagði við okkur: „Þetta er flott hjá ykkur strákar mínir, þið hafið þó báðir pappíra upp á vasann um að þið megið reka fasteignasölu, það er sko eitthvað annað en flestir aðrir fasteignasalar, sem hafa bara einhvern á bak við sig.” Nú, nú við megum víst ekki veraof ánægðirmeð okkur, en auglýsum að þessu sinni eftirtaldareignir til sölu: 3ja herb. ibúð á miðhæð við Hraunbæ um 85 fm. íbúð í toppstandi með fullfrágenginni lóð. Út- borgun aðeins 5 millj. 3ja herb. jarðhæð við Njörvasund. íbúð á róleg- um stað með stórkostlegu útsýni. Verð: Tilboð. 3ja—4ra herb kjallara- íbúð í þríbýlishúsi við Miklubraut. íbúðin er mikið endurnýjuð og selst á alveg einstöku verði. Einbýlishús (Viðlagasjóðs- hús) við Ásbúð, Garðabæ. Afar skemmtilega inn- réttað hús, með gufubaði og bilgeymslu. Verð aðeins 1 3 m. Fokhelt einbýlishús við Norðurtún, Álftanesi, teiknað af ARKO, um 1 70 fm með bilskúr. Ennfremur höfum við m.a. kaupendur að: Sérhæð eða einbýlishús í Vesturbæ eða Seltj.nesi á ca. 1 3 millj. 2ja — 3ja herb. ibúð í, Álf- heimum eða nágrenni. Útb 4 millj. 2ja herb. íbúð i nýju eða nýlegu húsi. Útb. 4 millj. Einbýlishúsi. frekar litlu, - miðsvæðis í bænum með góðum garði. Ódýrum litlum ibúðum. Mega vera f risi eða kjallara. Nú, eins og áður, þá vonumst við til að þið lítið inn hjá okkur, það gerir engum neitt og það er alltaf heitt á könnunni hjá okkur. littkjarlory s/f fasteipasala Kafnarstræti 22 s. 27133 - 27150 Páll Gudjónsson vidskiptafr. Knútur Signarsson vidskiptafr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.