Morgunblaðið - 15.09.1976, Page 5

Morgunblaðið - 15.09.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976 5 Aldan mótmælir lagasetningu um kjör fiskimanna A STJÓRNARFUNDI í Skip- stjóra- og stýrimannafélaginu Öldunni þann 14.9. 1976 var eftir- farandi ályktun samþykkt ein- róma: Stjórn Skiptjóra- og stýri- mannafélagsins öldunnar mót- mælir harðlega hinni nýjustu lagasetningu um kaup og kjör íslenzkra fiskimanna, sem gjör- ræðisfullum og óþörfum þar sem engin stöðvun atvinnuvega var yfirstandandi eða yfirvofandi og nýuppkveðinn úrskurður Félags- dóms i máli FFSÍ var á þá lund að engir samningar væru í gildi, en á meðan svo væri skyldi uppgjör fara eftir samningsuppkasti því sem fellt hafði verið f allsherjar atkvæðagreiðslu með mikilli þátt- töku starfandi fiskimanna innan FFSÍ. Samningsuppkast þetta, með óverulegri breytingu, hefur nú verið lögfest og borið við um- hyggju fyrir öryggi sjómanna í kjaramálum. Stjórn öldunnar álítur að sú umhyggja sé af sama toga spunnin og umhyggja allra rfkisstjórna undanfarinna ára- tuga, sem allar hafa sett lög til kjararýrnunar fyrir fiskimenn, enda sýni viðbrögð aðila ljóslega hvor telur lagasetningu þessa sér í hag. Eðlilegast hefði verið í ljósi niðurstöðu Félagsdóms að hefja samningaviðræður að nýju og þá gjarnan f öðru formi en því sem alls ekki fékk hljómgrunn meðal fiskimanna sbr. niðurstöðu at- kvæðagreiðslna. Stjórn Öldunnar hvetur alla fiskimenn til aukinn- ar félagslegrar þátttöku og bendir á að allt afskipta- og áhugaleysi f þeim efnum vinnur gegn þeim sjálfum og hagsmunum þeirra. Stjórnin hvetur ennfremur til aukinnar samvinnu forystu- manna f félagssamtökum fiski- manna samfara meiri festu og ákveðni um kjara- og hagsmuna- mál þeirra. Leiðrétting NAFN eins þeirra, er ritaði undir greinargerð um samskipti íbúa f Efstalandshverfi og bæjaryfir- valda f Kópavogi, misritaðist f Morgunblaðinu f gær. Þar átti að standa Hulda Finnbogadóttir en ekki Einarsdóttir. 9 Magnari sem er 30 wött musik með innbyggðu fjögurravíddakerfi fyrir fjóra hátalara. Mjög næmt út- varpstæki með FM bylgju ásamt lang- og miðbylgju ^ Plötuspilari fyrir allar stærðir af plötum Sjálfvirkur eða handstýranlegur með vökvalyftu Allir hraðar, 33, 45 og 78 snúningar. Nákvæm stilling á armþyngd, sem er mikilvægt til að minnka slit á nál og plötu Segul bandstæki með algerlega sjálfvirkri upptöku Gert bæði fyrir Standardspólur og CrO^ spólur Upptökugæði ein- stök, ekki er heyranlegur munur á gæðum hvort spiluð er plata eða segulbandsspóla Tveir hátalarar fylgja 20 wött hvor, einnig fylgja tveir hljóðnemar ásamt CrO^ casettu Til er folk, sem heldur að þvi meir sem hljómtæki kosta, þeim mun betri séu þau. Að vissu leyti er þetta rétt, ef orðið „betra” þýðir að þér getið spilað fyrir allt nágrennið án bjögunar. <3ZSZ3S> framleiðir einnig þannig hljómtæki.En við höfum einnig á boðstólum hljómtæki sem uppfylla allar kröfur yðar um tæknileg gæði Lausnin er: SHC 3100 sambyggðu hljómtækin. Þér fáið sambyggt mjög vandað tæki, sem hefur að geyma allar kröfur yðar. VtfíÐ: 89.980.- NÓATÚNI, SÍMI 238Ö0,V°UÐIRNAR KLAPPARSTÍG 26, SÍMI 19800 J Á CROWN Norræna félagið: Tvær nýjar félagsdeild- ir stofnaðar í sumar Sjómannafélag Reykjavíkur mótmælir VERULEG gróska hefur verid I starfsemi Norræna félagsins á þessu sumri segir I frétt frá félag- inu. Tvær nýjar félagsdeildir hafa verið stofnaðar, önnur á Fáskrúðsfirði með Birgi Stefáns- son skólastjóra sem formann en hin á Patreksfirði með Sigurð G. Jónsson lyfsala sem formann. Þá var blásið nýju lffi f félagsdeild- ina á Seyðisfirði og tók Bjarni Þorsteinsson útsölustjóri þar við formennsku. Það einsdæmi gerð- ist á Patreksfirði að næstum 10% fbúa staðarins sátu stofnfundinn og gerðust félagar f deildinni, en það mun algert Norðurlandamet. Skrifstofa félagsiris hefur undirbúið dvöl allmargra Islend- inga á Norðurlöndum i sumar, t.d. 14 Islendinga sem voru við sænskunám í Norbotten I Svlþjóð, 17 kennara, sem boðnir voru í náms- og kynnisferð til Danmerk- ur. Framkvæmdastjórafundur norrænu félaganna var hér I Reykjavík I maí og formanna- og framkvæmdastjórafundur í Fær- eyjum I júlí. Færeyjaferðir Norr- æna félagsins hafa ekki verið eins vel sóttar og vonir stóðu til, en þeir sem fóru eru mjög ánægðir með dvölina á eyjunum og alla fyrirgreiðslu þar, og þeir sem tóku á móti íslenzku gestunum eru einnig mjög ánægðir með þá sem komu. Samskipti Islendinga og Færey- inga aukast stöðugt. 1 sumar komst á vinabæjasamband milli Siglufjarðar og Eiðis á Austurey. 1 því tilefni heimsóttu 24 íbúar á Eiði Siglufjörð og voru gestir Norræna félagsins á Siglufirði ásamt fulltrúa frá skrifstofu Norræna félagsins og fulltrúum frá stjórn Norræna félagsins á Ólafsfirði. Sendiherra Kóreu afhenti trúnaðarbréf Nýskipaður sendiherra Lýðveldisins Kóreu, hr. Sang Kook Han, af- henti I gær forseta Islands trúnaðarbréf sítt að viðstöddum utanrfkis- ráðherra, Einari Agústssyni. Slðdegis þá sendiherrann boð forseta- hjónanna að Bessastöðum ásamt nokkrum fleiri gestum. I FRÉTTATILKYNNINGU, sem Mbl. hefur borizt frá Sjómanna- félagi Reykjavfkur, segir, að á fundi sem haldinn var I félaginu þann 13. sept. s.I. hafi verið sam- þykkt að mótmæla harðlega bráðabirgðalögum um kjör sjó- manna og telur fundurinn lögin algjörlega óþörf, þar sem ekki vofði yfir nein vinnustöðvun og engin ákvörðun af hálfu sjó- mannasamtakanna þar um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.