Morgunblaðið - 15.09.1976, Page 7

Morgunblaðið - 15.09.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976 7 Þögnin um Mao Andlát Mao-Tse-tungs, leiðtoga kínverska kommúnistaf lokksins, hefur að vonum vakið mikla athygli um heims- byggð alla og mikið verið fjallað um Mao og stjórn- málaferil hans I dagblöð um um víða veröld. Eins og vænta mátti eru dómar manna og niðurstöður um störf Mao-Tse-tungs mis- munandi en a.m.k. eitt dagblað á Vesturlöndum hefur verið einstaklega hógvært í umsögn og meðferð á fregninni um andlát Mao-Tse-tungs, það er Þjóðviljinn, „mál- gagn sósíalisma, verka- lýðshreyfingar og þjóð- frelsis" í raun og veru er það með ólikindum hvað Þjóðviljinn hefur lítið fjall- að um Mao Tse tung á þessum tímamótum. Sér- staka athygli vakti, að for- ystugrein var ekki rituð i Þjóðviljann um þennan helzta kommúnistaleið- toga á vorum dögum, fyrr en á sunnudag eða þrem- ur dögum eftir andlát hins kínverska kommúnista leiðtoga! Þegar leitað er skýringa á þessari hóg- værð Þjóðviljans í sam bandi við andlát Mao- Tse-tungs, eru þær í raun og veru afar nærtækar. Þjóðviljinn hefur fjallað um lát Maos i nánum takt við herrana i Moskvu. Blaðið hefur fylgt linunni frá Moskvu dyggilega i meðferð sinni á þessari heimsfrétt. Moskvuþjónk- un blaðsins hefur enn einu sinni komið i Ijós. Þetta kemur engum þeim á óvart, sem nokkur kynni hefur af starfsemi kommúnista á íslandi. En það er athyglisvert, að andlát Mao-Tse tungs hef- ur orðið til að undirstrika enn einu sinni hin nánu tengsl milli Alþýðubanda- lagsins, Þjóðviljans og kommúnistarikjanna í Austur-Evrópu. Efnahagsbati, en... Ljóst er, að ástandið i efnahagsmálum okkar ís- lendinga fer batnandi. Hinar ströngu ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í efna- hagsmálum eru farnar að bera árangur. Jafnhliða hefur afurðaverð erlendis farið hækkandi. Þetta tvennt veldur því, að nú er bjartara framundan en verið hefur um skeið. Hinu er ekki að leyna, að við verðum að ganga hægt um gleðinnar dyr. Þann ávinning, sem okkur mun hlotnast á næstu misserum, getum við ekki notað til þess að bæta lífskjör okkar fyrst í stað, heldur verður að greiða niður erlendar skuldir, sem við höfum safnað á undanförnum erfiðleikaár- um. Að þessu er vikið í forystugrein dagblaðsins Visis i gær og þar segir svo: „Á siðustu mánuðum hafa komið fram ýmis merki þess, að heldur horfi i rétta átt i efnahags- málum. Kemur þar hvort- tveggja til, að aðhaldsað- gerðir af hálfu stjórnvalda hafa borið nokkurn árang- ur og ytri skilyrði breytzt til hins betra á ýmsum sviðum. Þó ekki hafi tek- izt að koma verðbólgu- hraðanum niður á viðun- andi stig, hljóta þessi tið- indi að lofa góðu. En þrátt fyrir þessi umskipti er Ijóst, að enn er ekki fyrir hendi svigrúm til að bæta lífskjörin til mikilla muna með snöggu átaki. Enginn þarf að fara i grafgötur um, að áfram er þörf mjög strangra aðhaldsaðgerða, jafnvel miklu ákveðnari en beitt hefur verið fram til þessa. Á-þetta jafnt við um heimili, fyrirtæki og opinbera aðila. Gegndar- laus skuldasöfnun erlend- is á siðustu árum, hlýtur að sniða okkur þröngan stakk i þessum efnum. Við höfum ekki enn kom- izt upp úr þvi feni..... Engum blöðum er um það að fletta að leggja verður mikla áherzlu á að halda almennum launahækkun- um innan hóflegra marka. Fullvist er, að ný verð- bólgualda mundi bitna með meiri þunga en nokkru sinni fyrr á þeim, sem búa við lægst laun í þjóðfélaginu. Jafnljóst er að rikisstjórnin þarf að sama skapi að reka aðhaldsstefnu innan rikis- kerfisins og í opinberum framkvæmdum. Það þarf þvi samræmdar aðgerðir á öllum sviðum þjóðar- búskaparins til þess að nokkur von eigi að vera um árangur i baráttunni gegn óðaverðbólgunni." Undir þessi aðvörunar- orð Visis er full ástæða til að taka. Skrifstofuþjálfunin Einkaritaraskólinn Skrifstofutækni — svonefndur Kjarni B: 1. Vélritun 2. Stafsetning 3. Bókfærsla 4 Reiknivélar 5. Afgreiðslatollskjala og verðútreikningar 6. Bankaviðskipti 7. Póstur og sími 8. Lög og formálar 9. Kynning á skrifstofuvélum 10. Almenn skrifstofustörf. Námskeiðið stendur í 24 vikur. Þrjár kennslustundir á dag fjóra daga vikunnar auk vélritunar. Kennsla 23. sept. — 16 des Jólafri 17 des.—10 jan. Síðari önn 1 0. jan. — 1. apríl. Aðeins takmarkaður fjöldi nemenda. Mímir# sími 10004 og Brautarholt 4, „ „ „ 11109 <kl 1 — 7 e.h.) Hinor víðkunnu myndli/tarvörur fró Ulin/or & Heujton Olíulitir Penslar Vatnslitir Litagrunnar Acrylic litir Bækur — kennsluefni Pallettur Printex prentlitir Hnífar — sköfur Trönur UM ÞESSAR mundir er sumar- spilamennskunni að Ijúka hjá félögunum og vetrardagskráin að hefjast. Bridgeþátturinn mun eins og undanfarna vetur birta fréttir frá þeim félögum, er þess óska, og er utanáskrift þáttarins Morgunblaðið Aðal- stræti 6 Reykjavfk. Þá þarf einnig að merkja bréfin með „Bridgefréttum" þannig að umsjónarmaður þáttarins fái þau strax f hendur. Þá mega blaðafulltrúar félaganna hringja inn fréttir ef þeir óska þess heldur eða verða eitthvað seinir fvrir. Umsjónarmaður þáttarins er sem fyrr Arnór Ragnarsson. Frá Tafl- og bridge- klúbbnum. Sumarspilamennskunni er nú lokið og hefir þátttaka aldrei verið eins mikil og í sum- ar, en hún jókst verulega er líða tók á sumarið. Keppt var til heildarverðlauna fyrir öll spila- kvöldin og gefin 3 stig fyrir fyrsta sæti, 2 stig fyrir annað sætið og eitt stig fyrir þriðja sæti. Stigahæstur f þessari keppni varð Sigtryggur Sigurðsson, sem hlaut alls 16 stig. Mánudaginn 20 september verður aðalfundur félagsins, en siðan hefst vetrardagskráin annan fimmtudag og þá senni- lega spilaður tvfmenningur. Verður það nánar auglýst sfðar. xxxxx Frá Bridgefélagi Reykja- víkur. Vetrarstarf félagsins hefst 16. september en spilað verður í vetur í Snorrabæ, Austur- bæjarbfói. Spilað verður á fimmtudögum og hefst keppnin klukkan 20. Keppnisstjóri verð- ur Guðmundur Kr. Sigurðsson. Félagið hyggst brydda upp á ýmsum nýjungum í vetur og má þar m.a. nefna blandaða keppni milli ungra og óreyndra spilara og þeirra, sem reyndari eru. Nemendur í framhaldsskólum fá 50% afslátt af keppnisgjöld- um félagsins eins og undanfar- in ár. Stjórn félagsins hefir skipu- lagt spilakvöld félagsins fyrri hluta vetrar og verður dagskrá- in sem hér segir: 16. sept. Tvímenningur 23. sept. Tvimenningur Þá er komið að meistaratví- menningskeppninni, er stendur næstu sjö fimmtudaga og verð- ur forkeppni fyrstu 3 dagana, en aðalkeppnin í seinni 4 skipt- in. Að henni lokinni verður blönduð keppni ungra og reyndari spilara og verður hún í þrjú kvöld, hefst 18. nóv. 2. og 9. desember verður svo rúbertukeppni en það er út- sláttarkeppni með skemmtilegu sniði. Bridgefélagið hefir sent félagsmönnum fréttabréf og verður það birt hér að hluta: 1) Sú nýjung verður nú tekin upp, að á öllum spilakvöldum félags- ins verður haldin aukakeppni fyrir þá, sem ekki geta, eða ekki vilja taka þátt í aðalkeppn- inni. Munu spilarar því geta tekið þátt i félagsstarfinu ein- stök kvöld án sérstakrar þátt- tökutilkynningar. — Er það von stjórnarinnar að nýjung þessi verði vinsæl. Veitt verða verðlaun fyrir all- ar keppnir félagsins, eins og verið hefur. Einnig verður, á sama hátt og undanfarin ár, veitt viðurkenning á þvi pari, sem nær beztum árangri I tveim helztu tvimennings- keppnum vettarins. Þar að auki verður spilað um meistarastig B.S.Í. Guðmundur Kr. Sigurðsson mun stjórna spilakvöldum félagsins í vetur. Til að auð- velda undirbúning lengri móta skulu spilarar láta skrá sig til keppni með a.m.k. viku fyrir- vara. Þátttaka tilkynnist til keppnisstjóra eða einhvers úr stjórn B.R. Keppnisgjöld verða kr. 400 á kvöldi fyrir félagsmenn en kr. 500 fyrir aðra. Molakaffi og gos- drykkir verða til sölu á spilastað, en ekki verður svo- kallað skyldukaffi. Fylgt verður reglum um tímatakmarkanir, en spila- mennska hefst kl. 20.00 stund- víslega.“ Stjörn Bridgefélags Reykja- vikur er þannig skipuð: Páll Bergsson, formaður, Gunnar Þorkelsson, varaformaður, Stefán J. Guðjohnsen, gjald- keri, Guðlaugur R. Jóhannsson, ritari, Jakob Ármannsson, fjár- málaritari. X X X X X Frá Bridgefélaginu Ásunum f Kópavogi. Urslit i sumarspilamennsk- unni 6. september urðu þessi: A-riðill: 1. Steingrímur Jónasson — Þor- finnur Karlsson 186 stig. 2. Erla Eyjólfsdóttir — Gunnar Þorkelssno 181 stig. 3. Þorlákur Jónsson — örn Ingason 180 stig. 4. Ester Jakobsdóttir — Guð- mundur Pétursson 177 stig. B-riðill: 1. Guðmundur Arnarsson — Jón Baldursson 218 stig. 2. Bjarni Pétursson — Haukur Hannesson 185 stig. 3. Guðmundur Grétarsson — Vilhjálmur Þórsson 184 stig. 4. Daníel Gunnarsson — Stein- berg Ríkharðsson 182 stig. Meðalskor í A-riðli var 156 stig. í B-riðli var hún 165 stig. Þátttaka var með miklum glæsibrag, sú mesta í sumar, eða alls 26 pör, sem mættu til leiks. Sigurvegarar eru ekki með öllu óþekktir og hafa víða gert góóa hluti. Guðmundur og Jón Bald. taka þarna hæstu skor í sumar, sem enn hefur verið tekin, eða um 70% skor. Þeir hljóta þá að þekkja á spilin .? 1 stigakeppni Ásanna, sumar- Framhald á bls. 10 Fjölbreytt úrval fyrirliggjandi. Tökum einnig við sérpöntunum til afgreiðslu með stuttum fyrirvara. cmmD- WINSDR [10 HEWTDN HALLARMÚLA 2 flllt til oð auko li/tino r Al vcgg-og þakklœðning veggklæðninga frá A/S NORDISK ALUMINIUMINDUSTRI. Fæst í mörgum litum. Hafið samband við sölumann í símum 22000 og 71400.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.