Morgunblaðið - 15.09.1976, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976
11
Hefur hjólað yfir
hálfa millj. kílómetra
Rætt við Walter Stolle, sem ferðast um á hjöli
MAÐUR er nefndur Walter
Stolle. Hann hefur undanfarin
17 ár ferðast vftt og breitt um
heiminn, heimsótt fjölmörg
lönd og haldið fyrirlestra um
ferðir sfnar. Það sem er þó
sennilega merkilegast við ferð-
ir hans er það, að hann fer um &
reiðhjóli, eða öllu heldur reið-
hjóium, hann hefur nefnilega
átt allmörg reiðhjól um ævina.
Walter Stolle er nú staddur f
Reykjavfk og blaðamaður hitti
hann að máli einn sólardaginn
fyrir skömmu.
„Ég fer alltaf með reiðhjólið
mitt, hvert sem ég fer, hvort
sem það er í skipi eða flugvél,
en síðast var ég á Grænlandi,
áður en ég kom hingað til lands.
Ekki er mikið um vegi á Græn-
landi, en ég gat nú samt hjólað
þar eina tvöhundruð kiló-
metra.“
Tvöhundruð kílómetrar eru
nú ekki ýkja löng leið ef tekið
er tillit til þess, að Walter
Stolle hefur hjólað yfir 500 þús-
und kílómetra í allt. Hann er
frá Þýzkalandi en er nú búsett-
ur á Spáni, þar sem hann keypti
sér hús fyrir nokkrum árum.
„Já, ég er búinn að vera á
ferðinni síðan 1959 og hef ég á
þessum tfma farið viða um og
séð ýmislegt, og hef hjólað sam-
tals rúmlega hálfa milljón kíló-
metra. Til þess hef ég orðið að
endurnýja hjólakostinn og hef
ég átt 10 reiðhjól og er þetta
það ellefta. Þau hafa þó ekki öll
verið notuð svo mikið, því fimm
sinnum hefur verið stolið af
mér hjóli og hef ég margoft
orðið fyrir margskonar þjófn-
uðum,“ segir Walter Stolle.
Hann segist hafa orðið fyrir
því í 231 skipti að einhverju
hafi verið stolið af sér, svo það
er ekki á allt kosið á þessum
ferðalögum hans og hann
nefndi einnig að hann hefði
Walter Stolle.
verið rændur nokkrum sinnum
og nokkrum sinnum ráðizt á
hann, einnig hefur hann lent f
slysum fjórum sinnum.
Hvaða lönd hefur þér lfkað
bezt við af þeim sem þú hefur
komið til?
„Það eru til dæmis Nýja-
Sjáland, Bólivía, Chile og
Thailand, sem ég tel til betri
flokksins, en mér hefur ekki
líkað mjög vel við Líberíu,
Ástralfu, íran, Venesúela, svo
ég nefni dæmi að aðalástæðan
fyrir þessu er fólkið í löndun-
um, það er fyrst og fremst fólk-
ið, sem veldur því, að ég skipti
löndunum svona í hópa.“
Hvað hefurðu komið til
margra landa?
„Þau eru orðin 157 alls og í
öllum heimsálfum, svo það eru
ekki mjög mörg eftir. Ég hef
unnið fyrir mér með því að
halda fyrirlestra í skólum og
sýna skuggamyndir af ferðum
mínum og nú í sfðustu viku
sýndi ég myndir í skóla í Vest-
mannaeyjum þegar ég var þar á
ferð. í Vestmannaeyjum gat ég
hjólað alls um 80 km um þvera
og endilanga eyjuna og ég skoð-
aði eldfjallið, eri ekki hef ég
verið svo heppinn að sjá eldgos
ennþá.“
Walter Stolle hefur haldið
alls um 2700 fyrirlestra í þeim
löndum, sem hann hefur ferð-
azt til og hann ætlar að vera hér
á landi eitthvað fram yfir helg-
ina, svo þeir sem vilja fá hann
til fyrirlestrahalds í skólum eða
annars staðar geta sett sig í
samband við hann þar sem
hann býr á Farfuglaheimilinu á
Laufásvegi í Reykjavík.
Tungumál eru ekkert vanda-
mál á þessum fyrirlestrum seg-
ir Walter Stolle. Hann talar
sjálfur ensku, spænsku,
frönsku, portúgölsku, þýzku,
hollenzku og afríkana og hann
sagði, að t.d. í Japan í mjög
litlum þorpum jafnvel, þar
væri alltaf að finna einhvern
sem gæti skilið og talað ensku
og túlkað hann. Þetta fannst
honum mjög merkilegt að finna
og það jafnvel í þorpum þar
sem ekki bjuggu meira en
nokkur hundruð manns.
Héðan fer Stolle til Luxem-
borgar og nú ætlar hann að fara
að ljúka ferðalagi sínu. Eins og
fyrr sagði á hann hús á Spáni,
nánar tiltekið á Costa Blanca,
sem margir Islendingar munu
kannast við. Ekki sagðist Stolle
þó hafa séð íslendinga þar, en
Walter Stolle við reiðhjól sitt. Hann hefur lfmt á það fána allra
þeirra landa er hann hefur komið til.
bæði Norðmenn og Svia. Húsið
heitir Las Marinas í bænum
Denia og þar sem hann hefur
svo lítið verið heima undanfar-
ið hefur hann leigt það út og
hyggst hann halda þvi áfram
eftir- að heim kemur. Hann seg-
ir að það kosti mjög lítið yfir
vetrarmánuðina, en hann geti
leigt dýrár á sumrin, en Denia
er mikill ferðamannabær.
tbúar eru um 20.000 en verða
nálægt eitthundrað þúsund á
sumrin. Walter Stolle sagðist
snúa sér að því þegar heim
kæmi að standa fyrir að leigja
íbúðir út til ferðamanna og
hann sagðist einnig vera með í
smíðum handrit að bók um öll
þessi ferðalög.
Verzlunarhúsnæði til sölu
Við Háaleitisbraut 68
höfum við til sölu 600 ferm. verzlunarhúsnæði auk 500 ferm. í kjallara.
Húsnæðið er tilbúið til afhendingar (tilbúið undir tréverk).
Við Síðumúla 37
höfum við til sölu verzlunar- og skrifstofuhúsnæði 865 ferm.
Selst tilbúið undir tréverk og málningu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni.
BREIÐHOLT hf
Lágmúla 9 sími81550.