Morgunblaðið - 15.09.1976, Page 12

Morgunblaðið - 15.09.1976, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976 T.v. Magnús Bjarnason, Sigurður Hannesson, Óli Björn Björgvinsson og Bjarni Jóhannes- son í Sandvíkurtjarnarhöfn. Magnús dregur fyrstu trossuna. Bátarnir eru knúðir tveggja handa prikum »• „«## - „Aðeins hugsað um gæði aflans — ekki magnið” ÞAÐ FÓR ekki á milli mála, að hann beygist snemma krókurinn hjá strák- unum í Grimsey. Þegar við Mbl. menn vorum þar á ferð fyrir skömmu og ókum framhjá Sandvíkurtjörn á leiðinni niður i Sandvík sáum við ekki betur en mikil útgerð væri rekin á tjöminni. Að visu höfðum við ekki heyrt að þar væri mikil fiskigengd en viðtækar rannsóknir visindamanna hafa leitt fram í dagsljósið ný fiski- mið og nýjar tegundir nytjafisks, og þvi skyldu upprennandi útgerðar menn í Grímsey ekki leita fyrir sér á nálægum slóðum. ■— Við talningu hjá okkur kom í Ijós, að 7 bátalægi voru á tjörninni, en er við litum við i útgerðarstöðinni voru 4 skipstjórar að störfum, en hinir 3 voru allir á sjó með feðrum sinum, að draga þann gula. Meðalaldur út gerðamanna er um 8 ár. Mikið hefur verið unnið að hafnar- framkvæmdum við Hólatjorn og þar er að verða örugg lífhöfn, en að sögn þeirra félaga á eftir að dýpka höfnina toluvert áður en athafnapláss fæst fyrir alla bátana. Þeir sem þarna voru á staðnum voru Magnús Bjarnason skipstjóri á Góu, Óli Björn Björgvinsson skipstjóri á Bjargey, Óli er úr Grindavik, sonur Björgvins Gunnarssonar skipstjóra á Grindvik ingi, en flytur útgerð sina til ömmu og afa i Grimsey er vertið lýkur i Grindavík, Sigurður Hannesson skip- stjóri á Sæbjörgu og Bjarni Jóhannesson á Guðrúnu. Þeir Alfreð Garðarsson, á Sigurbirni, Eiríkur Jóhannesson á Magnúsi og Guð mundur Haraldsson á Unni voru á sjó eins og fyrr segir. Þeir félagar sogðu okkur að fram kvæmdir við þessa útgerðarstöð hefðu byrjað i vor með hafnargerð og vinnu við bátalægin. Einnig hefði verið byggð dráttarbraut, því að nauðsynlegt er á svo stórum út- gerðarstað að hafa aðstöðu til við- gerða og botnhreinsunnar, þannig að ekki þurfi að sækja þá þjónustu til lands. Getur dráttarbrautin auðveld- lega tekið öll skipin i flotanum. Ekki munu þeir félagar hafa þurft á þvi að halda að sækja um fjármagn til fram- kvæmdanna til opinberra aðilja, enda ekki vist að Alfreð oddviti liti það hýru auga, að farið væri í sam- keppni við hann um aurana úr ríkis- kassanum. Aðspurðir um hvaða veiðarfæri þeir notuðu svöruðu þeir þvi til, að netavertíðin stæði nú sem hæst, en ekki væri hægt að segja til um afl- ann í tonnum, á S: ndvikurtjörn væri aðeins hugsað um gæðaflokkana og allur fiskur færi í fyrsta flokk. Tals verð atvinna hefur verið við upp- byggingu staðarins, bæði við hafnar- gerðina og byggingu dráttarbrautar- innar. Þegar hér var komið sogu urðum við að kveðja þessa hressu og dug- legu stráka, það var komið að róðrar- tíma og margar trossur að draga Það skal tekið fram, að Sandvíkur- tjörn er einkar hentug við slíka út- gerð þar sem dýpi er hvergi meira en hálfur metri þannig að sjómönnum er ekki mikil hætta búin ef einhverj- um skyldi hlekkjast á. Bátar eru allir af flatbyttugerð, knúðir tveggja handa prikum, sem framleiða orku á þann hátt að prikið er rekið í botn og síðan ýtt kroftuglega Er þvi olíu eyðsla í lágmarki. Er við röltum á brott var ekki annað að heyra á fjarskiptum milli bátanna, en að trossurnar væru bunkaðar af fiski, að vísu komu upp smádeilur milli tveggja skipstjóra þar sem trossur þeirra lágu saman og taldi hvor að hinn hefði lagt yfir Var ekki búið að leysa það máj er við síðast heyrðum en fast var kveðið að orði. —ihj. Litið inn hjá ungum útgerðarmönnum á Sand- víkurtjörn í Grímsey Hér hefur greinilega þurft a8 Óli Björn mannar spilið er huga að einni trossunni og Góa er tekin í slipp. hún þvi tekin í land.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.