Morgunblaðið - 15.09.1976, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976
Gífurleg spenna
^ u 1 f
í síoustu unuerð
ÞEGAR 15. og síðasta um-
ferð Reykjavíkurskák-
mótsins hófst í gærkvöldi
höfðu fjórir stórmeistarar
enn fræðilegan möguleika
á sigri, og ekki var útilokað
að þeir yrðu allir jafnir og
efstir. Athygli áhorfenda
beindist fyrst og fremst að
skákum þeirra fjórmenn-
inganna, en allir áttu þeir í
höggi við sér „minni
menn“, ef svo má að orði
kveða. Najdorf, sem hafði
minnsta sigurmöguleika
þessara fjögurra, tefldi við
Gunnar Gunnarsson og
hafði hvítt. Er þar
skemmst frá að segja, að
Najdorf tefldi stíft til
sóknar, fórnaði skiptamun
og tókst að rífa upp kóngs-
stöðu Gunnars. Gunnar
varðist af hörku, en allt
kom fyrir ekki, hann féll á
tíma og var þá óverjandi
mát í næsta leik.
Friðrik átti í höggi við Inga R.
Friðrik beitti byrjun, sem Bent
Larsen hefur oft notað með góð-
um árangri: 1. e4 — e5, 2. Bc4 og
greindi menn nokkuð á um hvað
nefna a-tti byrjunina. Sumir
sögðu kóngsbiskupsleikur, aðrir
Vínartafl, en Sigurður útvarps-
maður Sigurðsson hélt fram nafn-
inu ítalski leikurinn, og voru
fleiri á þeirri skoðun. Að lokum
fékkst þó sá Salómonsdömur upp-
kveðinn, að öll væru nöfnin jafn-
rétt unz séð yrði hvernig skákin
tefldist. Lengst af var staða þeirra
Friðriks og Inga mjög í jafnvægi
og eyddu báðir miklum tima.
Friðrik notaði 2 klst. á fyrstu 10
leikina og Ingi litlu minna. Þetta
hlaut að leiða til tímahraks, og
það lét ekki á sér standa. Síðustu
tíu leikirnir voru leiknir á 2 min-
útum og urðu þá mikil uppskipti.
Þegar skákin fór í bið var staðan
þessi:
Svart: Ingi
Hvítur iék biðleik.
Önnur skák, sem varð feiki-
spennandi, var mílli þeirra
Tukmakovs og Helga Ólafssonar.
Helgi tefldi skákina mjög vel, og
þegar tímahrakið nálgaðist sá
Rússinn ekki aðra leið vænlegri
en að fórna manni. Helgi tók
þessu boði og eftir miklar tíma-
hrakssviptingar fór skákin í bið í
þessari stöðu:
Svart: Itelgi
[ fljsl
m .■ ■*
il % Jlll II fl 1 "jjp mB.
■■ Hll
iBa mf jpl MZ
Hvítt: Tukmakov
Hvítur lék biðleik. '
Og þá er komið að þætti Timm-
ans. Þrátt fyrir tvö töp í röð um
mitt mót var hollenzki stór-
meistarinn búinn að ehdurheimta
efsta sætið, hafði 10,5 v. fyrir
umferðina. Sigur í síðustu umferð
hefði sem sagt tryggt honum efsta
sæti. Hann átti í höggi við
Vukeevic, sem hefur teflt langt
undir getu í þessu móti og bjugg-
ust flestir við næsta öruggum
sigri Timmans. En taugarnar hafa
kannski ekki verið alveg í lagi hjá
hollenzka stórmeistaranum. Hann
tefldi „passivt" og náði Vukcevic
frumkvæðinu snemma i skákinni.
Kannski hefur Timman ætlað að
láta andstæðinginn sprengja sig,
en Vukeevic gætti hófs og þegar
hann komst ekki lengra með sókn-
ina tók hann þann kost að þrá-
leika. Skákin fer hér á eftir:
Hvftt: J. H. Timraan
Svart: M.R.Vukceic
Kóngsindversk vörn
l.d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. g3 —
Bg7, 4. Bg2 —0—0, 5. Rf3 — d6, 6.
0—0 Rc6,7. d5 — Ra5, 8. Rfd2 —
c5, 9. Rc3 — e5, 10. a3 — b6, 11.
b4 — Rb7, 12. Rb3 — Re8, 13. Bb2
— f5, 14. e3 — Rf6, 15. b5 — h5,
16. a4 — h4, 17. a5 — bxa5, 18.
Dd2 — a6, 19. Ha2 — hxg3, 20.
hxg3 — Bh6, 21. Hfal — Rg4, 22.
bxa6 — Hxa6, 23. Re2 — Db6, 24.
Rxa5 — Rxa5, 25. Hxa5 — Hxa5,
26. Hxa5 — Ba6, 27. Ha4 — Hb8,
28. Bc3 — Bc8, 29. Ha 1 — Db3, 30.
Bfl — Db7, 31. Ha2 — Dh7, 32. f4
— Bg7, 33. Rcl — exf4, 34. exf4
— Bxc3, 35. Dxc3 — Dg7, 36. Re2
— Db7, 37. Rcl — Dg7 jafntefli.
Hinn Bandaríkjamaðurinn, S.
Matera, sigraði Hauk Angantýs-
son í eftirfarandi skák og tryggði
sér þar með titilinn alþjóðlegur
meistari:
Hvítt: Matera
Svart: Haukur Angantýsson.
Kóngsindversk vörn.
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
c5, 4. d5 — exd5, 5. cxd5 — d6, 6.
Rc3 — g6, 7. Bf4 — Bg7, 8. Da4 —
— Bd7, 9. Db3 — Dc7, 10. e4 —
0—0, 11. e5 — dxe5, 12. Bxe5 —
He8, 13. Be2 — c4, 14. Bxc7 —
cxb3, 15. Rc5 — Bf5, 16. axb3 —
Re4, 17. f4 — Rxc3, 18. bxc3 — f6,
19. Rf3 — Bd3, 20. Rd4 — Ra6, 21.
Hxe4 — Bxe4, 22. c4 — f5, 23. Re6
— Hxe6, 24. dxe6 — He8, 25. Kd2
— Hxe6, 26. Bf3 — He7, 27. Bd5
— Kh8, 28. Bd6 — Hd7, 29. Hel
— h5, 30. He8 — Kh7, 31. c5 —
Bf6, 32. Bg8 — Kg7, 33. Bc6 —
Hd8, 34. Hxd8 — Bxd8, 35. Bc8 —
Be5, 36. Ke2 — Bb4, 37. Be5 —
Kf7, 38. c6 — gefið.
Guðmundur Sigurjónsson hafði
hvítt gegn Margeiri og náði betri
stöðu í byrjun eftir ónákvæmni
Margeirs. Guðmundur vann úr
framhaldinu af öryggi og vann
laglega.
Björn Þorsteinsson hafði allan
timann betri stöðu gegn Wester-
inen og þegar skákin fór í bið
virtist hann eiga allnokkra vinn-
ingsmöguleika.
Og þá er loks að geta skákar
þeirra Antoshin og Keene, en þar
hafði Englendingurinn þægilegri
stöðu á tímabili, en sovézki stór-
meistarinn tefldi af öryggi og hélt
jafnteflinu örugglega.
Biðskákir verða tefldar í dag og
á morgun birtist úrslitaröðin hér i
blaðinu.
tfevkiurik / 2 3 V\ 6 7 $ 9 /7 Æl U /1 /y íf ÍA /tHH tfffV
1 Helgi ölafsson X % Wz 0 O 'h 0 % o\o 0 'k •k
7 Gumnar Gunnarsson 'k X 0 0 O 0 / Q 0 V 0 'O <k 0 0 0 X
3 Ingi R. JóhanHsson 'h- 1 X 1 0 ‘h. 'lz % 'h l 0 'k 0 / 1
y Margeir Pétursson 'h\ 1 0 D 0 O 'h 1 1 0 ‘k 0 0 •k s
f M. R. Vukcevic 'h l 1 l X [(z 0 0 0 0 'k 0 •k\'k 0 'k é i
6 H. Westerinen I 1 'h / 'h X 'lt ‘k 'k 0 'lz 0 ‘k ‘k 1
7 R. D. Keene I 0 ‘lz 1 I •lt X lk 1 0 'h 0 ‘h ‘k 1
fi S. Matera ‘Iz 1 7z 'h 1 l(l 'lz X 'k 1 O ‘k 0 0 0 / r/z
9 V. S. Antoshin 1 1 'h 0 I 'k % X 'k ‘k 'k iz 7? 'k 1
/c Björn Þorsteinsson 'lz l 0 0 l 0 0 '/z X 'k 0 0 ‘k 0 0
// J. H. Timman l 1 t H %\ 1 1 ) 'k 7z X 1 •k 0 0 l //
u Guðm. Sigurjónsson 1 t 'A 1 1 'h ‘k ‘h 'h / 0 X 'k 0 'k 'k 9
/J Friðrik Ölafsson L % 'lz 'h 1 1 1 'k 1 ‘k ‘k X / íz ‘k
ti Miguel Najdorf 'ft 1 / 1 </z ‘U ‘Iz 1 'k ‘k 1 ) 0 X 'h. / H
/s V. Tukmakov l 0 í / 'íz {k 1 'k 1 / lk Íz VÍL X /
ÍL Haukur Angantýsson 'k, / 0 •Jz •/2. 0 0 0 0 1 0 'k Á 0 0 X
Reykjavíkurskákmótið:
Enn ekki ljóst hver
ber sigur úr býtum
Margeir Pétursson (t.v.) og Helgi Ólafsson hafa teflt sæmilega i
mótinu sem nú er að Ijúka. Margeir hefur m.a. lagt að velli stórmeist-
arann Antoshin, og Helgi á betri stöðu í biðskák við stórmeistarann
Tukmakov. Vinní Helgi þá verður Tukmakov af fyrsta sætinu f mótinu.
LOFT var lævi blandið í
Hagaskólanum f gærkvöldi
þegar þeir Friðrik og Ingi
R. léku síðustu mínúturn-
ar. Þegar um 1 klst. var
eftir af taflinu höfðu þeir
kapparnir aðeins leikið um
12 leiki. Var þá Friðrik bú-
inn að nota meiri tfma en
Ingi, og menn jafnvel farn-
ir að spá þvf að hann félli á
tíma því mikið var eftir
óteflt af skákinni. En Frið-
rik tókst að jafna tímamet-
in, og síðustu mfnúturnar
buðu upp á mikinn darr-
aðardans þar sem keppzt
var um að ná 40 leikjum.
Þegar aðeins einn leikur
var eftir var Friðrik með
nokkurra sekúndna for-
skot, en það skipti ekki
máli þvf skákin fór f bið.
Virtist sem Ingi vildi ekki
Gamla kempan Miguel Najdorf
hefur þótt sýna mikla sniiii á
þessu Reykjavfkurmóti, en hann
er nú sem stendur f 2. sæti.
Najdorf er orðinn 66 ára og segja
sérfræðingarnir að svo virðist
sem honum fari fram með aldrin-
um.
þiggja jafntefli, en Friðrik
þráskákaði f sfðustu leikj-
um fyrir bið.
Að vonum voru menn ekki á
einu máli um hvernig biðstaðan
væri, en þó virtust flestir hallast
að þvi að um jafntefli væri að
ræða. Þvf hélt fram m.a. Jón Þor-
steinsson fyrrum Norðurlanda-
mcistari f skák, en hann hafði
með skákskýringar að gera f gær-
kvöldi.
Jón tjáði okkur einnig að Helgi
Ólafsson væri með miklu betri
stöðu f biðskák sinrii við Tukma-
kov, en ef Helgi vinnur þá skák
þarf Friðrik ekki nema jafntefli
til að deila 2. og 3. verðlaununum
með Najdorf, en gamla kempan
vann Gunnar f gær. Vinni hins
vegar Friðrik Inga þá mun hann
deila 1. og 2. verðlaununum með
Timman. Það gerðist merkast f
gærkvöldi að Bandaríkjamaður-
inn Matera vann sér titii alþjóða-
meistara með því að hljóta 7.5
vinninga f mótinu.
Biðskákir verða tefidar f dag,
og þá mun fást úr þvf skorið
hvernig úrslitaröðin verður. Stað-
an er nú þessi: 1. Timman, 11, 2.
Najdorf, 10.5, 3.-4. Friðrik,
Tukmakov, 10 + biðskák, 5. Guð-
mundur, 9, 6. Antoshin, 8.5 + bið.,
7.—9. Ingi, Keene, Westerinen, 8
+ bið., 10. Matera, 7.5, 11.
Vuckevic, 6, 12. Margeir, 5, 13.
Haukur, 4.5, 14.—15. Björn,
Helgi, 4 + bið., 16. Gunnar, 2.
MÓTAVIÐUR
SÉRLEGA HAGSTÆTT VERÐ
áR TIMBURVERZLUNIN VÖIUNDUR hf.
Klapparstig 1. Skeifan 19.
Simar 18430 — 85244