Morgunblaðið - 15.09.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976
15
AP-mynd
BAÐSTRANDARTÍZKA — Sýningarstúlkur á tízkusýningu ( Perth (
ÁstraKu nýlega áttu athygli viðstaddra óskerta er þær sýndu nýjustu
baðstrandartizkuna. Við mikinn fögnuð viðstaddra sviptu þær af sér
slám sfnum og flögguðu þessum litlu ffnlegu fataleysum.
Ættingjar látinna
streyma til Zagreb
Zagreb 14. september — Reuter
Aukinn áhugi
og umsvif
á Svalbarða
á næstunni
ÁHUGI manna á Svalbarða,
þessari fjarlægu eyju við jaðar
Ishafsins, hefur skyndilega far-
ið vaxandi bæði í Noregi og
öðrum löndum, og hyggja Norð-
menn á verulega aukin umsvif
þar fyrir árið 1980. Svalbarða-
eyjarnar vöktu í eina tfð eink-
um áhuga hvalveiðimanna, sel-
veiðimanna og annarra veiði-
manna, en i dag byggist mikil-
vægi þeirra fyrst og fremst á
kolavinnslu. Det Store Norske
Spitsbergen Kulkompagni. sem
norska ríkið yfirtók nýlega,
vinnur nú um það bil 430.000
tonn af kolum árlega úr þrem-
ur námum í Longyearbæ á vest-
urströnd Spitsbergen, helztu
eyjunni í klasanum.
Rússneskir námamenn eru
einnig að störfum i tveimur
námum i grenndinni. Dvöl
þeirra þar byggir á einstæðu
ákvæði í Svalbarðasáttmálan-
um frá 1920 þar sem Norðmenn
fá stjórn yfir eyjunum, en veit-
ir borgurum 40 annarra rikja
sama rétt til atvinnureksturs
þar og Norðmenn hafa. Rúss-
arnir á Svalbarða, sem eru um
2000 talsins, stjórna sér að
mestu sjálfir þótt þeir falli und-
ir norska lögsögu. Sovétríkin
eru nú eina landið sem aðild
átti að sáttmálanum og notfærir
sér þau réttindi sem undir-
skriftin veitir. Dvöl Sovét-
manna á eynni hefur haft veru-
leg áhrif á stefnu Norðmanna í
málefnum Svalbarða. Sambúð-
in er engu að siður almennt
góð, þótt nokkrir árekstrar hafi
orðið þar á undanförnum árum.
MIKILVÆGI
Dvöl Sovétmanna á Sval-
barða á ekki siður rætur að
rekja til hernaðarlegra sjónar-
miða en efnahagslegra. Hafið
milli Noregs og Svalbarða er
helzta siglingaleið Norðurflota
Sovétmanna inn á úthöfin og
hin vaxandi uppbygging þessa
flota hefur að sama skapi aukið
mikilvægi þessa svæðis fyrir
valdajafnva'gið i heiminum.
Sáttmálinn kveður svo á um
að engar herstöðvar skuli vera
á Svalbarða og Norðmenn hafa
haldið því fram að efling
norskra yfirráða yfir Svalbarða
sé bezta tryggingin sem allir
aðilar geta fengið fyrir því að
ástandið á sva'ðinu verði ekki
spenntara.
Olia er annar þáttur sem leitt
hefur til aukins áhuga á Sval-
barða. Tilraunaboranir hófust á
miðjum síðasta áratug en
árangur þeirra hefur hingað til
verið dapurlega litill og sta'rstu
oliufélögin hafa nánast alveg
misst áhugann á eyjaklasanum,
þótt enn sé nokkur starfsemi á
þessu sviði þar.
KOL
Olian er því enn aðeins fjar-
la'gur draunur, en kolin virðast
ætla að leika aðalhlutverkið í
framtið Svalbarða áfram. Menn
hafa nú gert sér Ijóst að kola-
námurnar í Longyearbænum
eru að tæmast. Þótt kolafram-
leiðslan i Longyearbæ sé ekki
mikil á heimsmælikvarða er
mikilvægi hennar fyrir járn- og
stáliðnað Noregs umtalsvert.
Store Norske hefurgert áætlun
um að opna að nýju Sveakola-
námuna sem yfirgefin var fyrir
löngu, en hún er um 55 km
suður af Longyearbæ við Van
Meijenfjörð. Þar eru kolalögin
allt að fimm metra þykk á sum
um stöðum og má þvi nota
meiri og betri vélar við vinnsl-
una en unnt er i Longyearba',
þar sem mikið fjölmenni vinn-
ur við vinnslu þunnra kolalaga
Fjárfesting i endurvirmslu
gömlu námunnar yrði meir en
milljarður norskra króna, en
þriðjungur þeirrar upphæðar
fa'ri í uppbyggingu fullkom
inna bækistöðva fyrir náma
menn, sem yrðu 1000 talsins. Ef
tekst að fá samþykki fyrir að
Framhald á bls. 18
Mikil spenna er í
Baskahéruðunum
Bilbao 14. september — NTB.
Úrgangur
var 16%
ársaflans
NORSKI fiskiðnaðurinn skilaði af
sér 413.000 tonn af fiskúrgangi
árið 1974, eða sem samsvarar 16%
heildarársafla landsmanna. Þar
af fór þriðjungur í dýra- eða fiski-
fóður, öðrum þriðjungi var hent
og afgangurinn týndist, að því er
fram kemur f athugun tímaritsins
Fiskets Gang.
Beatrix til V-
Þýzkalands
Bonn 14. sept. Reuter.
BEATRIX krónprinsessa
Hollands og maður hennar,
Claus prins, komu til Bonn
í dag í hálfopinbera heim-
sókn í boði Walter Scheel,
forseta Vestur-Þýzkalands.
Þau hjón munu meðal ann-
ars hitta Helmut Schmidt,
kanslara, og fara í heim-
sókn í Háskólann í Bonn og
fleiri stofnanir. Heim fara
þau á fimmtudag.
Beatrix prinsessa og fjöl-
skylda hennar hafa lítt sézt á al-
mannafæri siðustu vikur og nán-
ast ekkert eftir að Bernharður
prins, drottningarmaður, varð
uppvís að þvf að hafa þegið mútur
og stundað brask og fjármála-
svindl, og var sviptur öllum met-
orðum í Hollandi.
Beatrix ogClaus
UM TVÖHUNDRUÐ og fimmtíu
aðstandendur þeirra, sem létust f
árekstri fiugvéianna yfir Júgó-
slavfu s.l. föstudag, voru f dag
væntanlegir til Zagreb tii að vera
viðstaddir minningarathöfn. Alls
fórust 176 manns f slysinu er varð
þegar brezk farþegaþota og júgó-
slavnesk leiguflugvél rákust á.
Um 100 ættingjar hinna látnu úr
brezku véiinni voru væntanlegir
með tveimur leiguflugvélum,
annarri frá London en hinni frá
Istanhul, en flestir farþeganna
voru Tyrkir og Bretar. Með leigu-
flugvélinni voru einkum Vestur-
Þjóðverjar og um 150 ættingjar
þeirra voru væntaniegir til Za^
greb.
Rannsóknin á orsök áreksturs-
ins er enn haldið áfram og beinist
hún einkum að hugsanlegum af-
glöpum fjögurra flugumferða-
stjóra í Zagreb. Þeir voru hand-
teknir strax eftir slysið, og sam-
kvæmt júgóslavneskum lögum er
unnt að hafa þá í haldi á meðan
rannsóknardómari kannar málið,
en rannsóknin getur staðið I
marga mánuði. Eftir að rannsókn-
inni er lokið kannar saksóknari
gögnin og ákveður hvort ákæra
skuli lögð fram.
Páfagarður gagn-
rýnir Thorsen
Páfagarði 14. sept. Reuter.
MÁLGAGN Páfagarðs, LOsserva-
tore Romano, réðst I dag á kvik-
myndina um Iff Jesús Krists sem
danski kvikmyndamaðurinn og
furðufuglinn Jens Jörgen Thor-
sen hefur hug á að gera. Hefur
hann áhuga á að fjalla sérstak-
Jens Jörgen Thorsen
lega um kynferðislff Krists f
mynd sinni og hefur honum þeg-
ar verið synjað leyfis um að gera
myndina bæði f Danmörku, Eng-
landi og vfðar.
Orðsending Páfagarðs er hin
hvassyrtasta og segir að fyrir
Thorsen vaki það eitt að falsa
söguna og bera brigður á að Jesús
hafi verið guðsson. Efni myndar-
innar væri guðlast af versta tagi
og ástæða væri til að vona að
komið yrði algerlega í veg fyrir að
Thorsen fengi nokkurs staðar
leyfi til að framleiða myndina.
NtJ ER vitað að 120 manns að
minnsta kosti létust f Karachi f
gær, þegar fbúðarblokk hrundi.
Er óttazt að tala látinna eigi
eftir að hækka, þar sem enn er
allmargra saknað. Fjörutiu og
SPÆNSKA lögreglan stöðvaði f
dag fjölmargar tilraunir til mót-
mælafundahalda f Bilbao eftir að
a.m.k. einn maður særðist alvar-
lega f átökum mótmælenda og
lögreglu f gær. t miðborg Bilbao
lagði lögreglan til atlögu með
kylfum gegn mótmælendum sem
kveikt höfðu f vegatálma er þeir
höfðu sjálfir reist á brú einni. t
útjaðri borgarinnar skutu
átta manns slösuðust í hruninu og
margir þeirra eru nú milli heims
og helju að sögn fréttaskeyta.
Geysifjölmennar björgunarsveitir
hafa unnið sleitulaust að þvi að
ná fólki úr rústunum og leita
margra sem enn hafa ekki fund-
izt.
lögreglumenn gúmmfkúlum til
að dreifa stórum hópi mótmæl-
enda sem þar komu saman f sam-
bandi við verkfall meir en 50.000
verkamanna annan daginn f röð.
Verkfallið er gert f mótmæla-
skyni við það að mótmælandi úr
hópi Baska var skotinn til bana f
fyrri viku.
Dagblöð á Spáni gáfu í skyn í
dag að stjórnvöld kynnu að missa
tökin á ástandinu í Baskahéruð-
unum vegna hinna nýju og út-
breiddu verkfalla. Adolfo Suarez,
forsætisráðherra Spánar, ákvað
um sfðustu helgi að taka spurn-
inguna um sjálfstjórn Baska-
héraðanna ekki til athugunar að
sinni. Hann sagði að það yrði
verkefni hins nýja þings, sem kos-
ið skal til fyrir júníbyrjun á
næsta ári, að taka afstöðu til þess
máls og annarra mikilvægra um-
bótamála.
Bretland:
Þekkt skáldkona neit-
ar að hitta Chnoupek
London 14. sept. Reuter.
BREZKA skáldkonan Margaret
Drabble hefur afþakkað boð
utanrfkisráðuneytisins um að
hitta utanrfkisráðherra Tékkó-
slóvakfu, Bohuslaw Chnoupek,
( óperunni f London f völdu
samkvæmi f kvöld. Drabble þá
boðið fyrir mánuði en í dag
kvaðst hún hafa skipt um skoð-
un eftir að „hafa kynnt sér for-
tfð Chnoupeks".
Hún sagði blaðamönnum að
hann hefði haft f frammi
kúgunaraðgerðir við skáld og
leikritahöfunda þegar hann var
aðstoðarmenntamálaráðherra.
Talsmaður ráðuneytisins sagði
að ekki væri vitað til að fleiri
myndu afþakka boðið um að
koma til samkvæmis þessa.
Chnoupek og Anthony
Crosland, utanrikisráðherra
Breta, hófu fundi með sér í
morgun og er stefnt að þvf að
kanna meðal annars hvort
árangur hafi orðið af Helsinki-
sáttmálanum, ræða viðskipti
rfkjanna og ýmis mál sem lfkleg
eru til að koma til kasta Alls-
herjarþingsins er það kemur
saman f New York 21.
september. Chnoupek kom til
London á mánudagskvöld í
fjögurra daga opinbera heim-
sókn. Hann er fyrsti tékkneski
ráðherrann sem kemur f slíka
heimsókn í þrettán ár, enda
hafa samskipti rfkjanna
tveggja verið f kaldara lagi
lengst af.
Margaret Drabble er hálf-
fertug að aldri. Þekktasta bók
hennar mun vera The Millstone
sem kom út 1965. Nýjasta bók
hennar kom út á þessú ári: The
Genius of Thomas Hardy.
A.m.k. 120 fórust í húshruninu
Karachi 14. sept. Reuter.