Morgunblaðið - 15.09.1976, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976
17
í FYRRI grein var minnzt á þýóingu þess, að fólk fengi
rétta og sanna mynd af mikilvægi utanríkismála í varð-
veizlu borgaralegs lýðræðis og frelsis á íslandi. Sérstaka
þýðingu hefur að gera sér grein fyrir sögulegri þróun
þessara mála og því, með hvaða hætti frelsi og góð
afkoma þjóðarinnar verði tryggð í samfélagi þjóðanna.
Umræður um utanrlkismál ís-
lands, ef undan eru skilin varnar-
og öryggismálin, hafa ekki verið
miklar á liðnum árum. Ber sér-
staklega að harma, hversu lítil
áherzla hefur verið lögð á af hálfu
íslenzkra stjórnmálamanna að
fræða fólk um þýðingu utanríkis-
viðskipta í stefnumótun utanrík-
ismála. Dregið skal í efa, að allur
almenningur geri sér nægilega
góða grein fyrir mikilvægi utan-
rfkisviðskipta fyrir frelsi og sjálf-
stæði þjóðarinnar, né þvi orsaka-
sambandi sem er á milli frjálsra
utanrlkisviðskipta fyrir frelsi og
sjálfstæði þjóðarinnar, né þvf or-
sakasambandi sem er á milli
frjálsra utanríkisviðski'pta og ein-
staklingsfrelsis.
UPPHAF
ÍSLENZKRAR
UTANRlKISÞJÓNUSTU
í ár eru liðin 36 ár frá því að
islendingar fengu utanríkismál
til fullrar og sjálfstæðrar með-
ferðar. Það varð I apríl 1940 við
hernám Þjóðverja á Danmörku.
Samkvæmt sambandslögunum
frá 1918 fóru Danir með utanrik-
ismál fyrir islands hönd. Hernám-
ið gerði þeim ókleift að fjalla um
þessi mál. Hinn 10. aprll 1940
samþykkti Alþingi, sem þá sat,
þingsályktunartillögu um að ís-
land skyldi að svo stöddu taka
meðferð utanrikismálanna I sínar
hendur. Á grundvelli þessarar
þingsályktunartillögu voru slðan
gefin út bráðabirgðalög nr. 120, 8.
júli 1940, um utanríkisþjónustu
erlendis.
Frá þvl að þessir atburðir áttu
sér stað eru liðin 36 ár. Á þessu
tímabili hafa orðið mikil umskipti
f heiminum og þeir atburðir gerzt,
er kollvarpað hafa eldri hug-
myndum um stöðu og samskipti
þjóða. Á þessu tímabili hefur mik-
ill fjöldi þjóða öðlazt frelsi og
sjálfstæði, þ. á m. ísland árið
1944, en á sama tlma hafa aðrar
þjóðir glatað þvf algjörlega og
verjð innlimaðar I rfkjaheildir
eða samsteypur svo sem átti sér
stað með Eystrasaltslöndin og
fleiri ríki á yfirráðasvæði Sovét-
rikjanna.
I umróti seinni heimsstyrjald-
arinnar 1939—1945 og á næstu
árum þar á eftir þurftu íslending-
ar að þreifa sig áfram við mótun
sjálfstæðrar stefnu I utanríkis-
málum, stefnu, sem hentaði smá-
ríki við baráttu þess fyrir frelsi
og sjálfstæði i samræmi við þjóð-
areðli og forna arfleifð. Vandi
þjóðarinnar og forustumanna
hennar var mikill, en grundvöllur
stefnumörkunar var skýr.
STEFNUMÓTUN í
UTANRÍKISMÁLUM
Yfirgnæfandi meirihlut þjóðar-
innar vildi að stefnan I utanrfkis-
málum hvildi á borgaralegum
þingræðislegum grundvelli, sem
tryggði þjóðinni og einstaklingun-
um sem mest frelsi og sjálfstæði
inn og út á við.
Það kom sérstaklega I hlut
Ólafs Thors og Bjarna Benedikts-
sonar, sem stjórnmálamanna, að
marka stefnuna i utanrlkismálum
tslands á framangreindum grund-
velli fyrsta áratuginn,
1941—1950, sem tslendingar fjöll-
uðu einir og sjálfstætt um þessi
mál. Á þessu tímabili gegndu
þessir merku stjórnmálaforingjar
lengst manna störfum utanríkis-
ráðherra. Ólafur Thors annaðist
þessi mál fyrst árið 1942 og aftur
1944—1947. Bjarni Benediktsson
var sfðan utanríkisráðherra frá
1947 til 11. september 1953.
Mótun utanrfkisstefnu íslands
á þessum árum var örðugt og
vandasamt verk. Það þurfti vfð-
sýni og mikinn kjark til að móta
frá grunni stefnu f utanríkismál-
um, sem I ýmsum efnum braut f
bága við hefðbundnar hugmyndir
Guðmundur H.
Garðarsson, alþm.
grein
Utanríkismál —
utanríkisviðskipti
manna. Heimsstyrjöldin sfðari, er
kostaði tugi milljóna manna lifið,
gjörbreytti heimsmyndinni og
sannaði mönnum m.a. skaðsemi
gagnrýnislausrar þjóðernis-
hyggju. Mótaði það mjög framþró-
un f samskiptum þjóða á næstu
árum og var lýðræðisríjunum
mikil hvatning til stóraukinnar
samvinnu og samstarfs á mörgum
sviðum.
Utanríkismál eru eðli málsins
fjalla sérstaklega um öryggis-,
varnar- og hafréttarmál.
SJÁLFSTÆÐI OG
SAMSTARF
Ólafur Thors og Bjarni Bene-
diktsson ásamt nánustu sam-
starfsmönnum f utanríkismálum
kunnu glögg skil á öllum helztu
þáttum þessara mála. Þeir skynj-
uðu vel óskir og kröfur þjóðarinn-
ar i þessum efnum.og mörkuðu þá
stefnu, sem hefur tryggt íslend-
ingum frelsi og öryggi f tæplega
fjóra áratugi. Áherzla var lögð á
sjálfstæði tslands á nánu sam-
starfi við lýðræðisþjóðir heims.
Aðild tslands að Efnahags- og
framþróunarstofnun Evrópu,
Atlantshafsbandalaginu, Frf-
verzlunarsvæði Evrópu, Norður-
landaráði o.s.frv. bera þessa
órækan vott. Aðild tslands að
framangreindum bandalögum og
stofnunum felur í sér nánara sam-
starf en áður þekktist við aðrar
þjóðir á mikilvægum hagsmuna-
sviðum samfara ákveðnum skuld-
bindingum er af viðeigandi þátt-
töku leiðir.
Hin nýja og breytta heimsmynd
er fylgdi f kjölfar heimsstyrj-
aldarinnar 1939—1945 og Kóreu-
stríðins 1950—1953 neyddi þjóðir
heims til ákveðnari afstöðu til
þeirra miklu þjóðfélagsátaka, er
áttu sér stað á þessum upp-
lausnarárum.
Lýðræðisþjóðirnar efndu til
eru einfaldar. Það var og er hags-
munamál meginþorra tslendinga
að borgaralegt lýðræði og öryggi
út á við sé verndað f skjóli aðildar
tslands að Atlantshafsbandalag-
inu og með vfðtæku samstarfi við
vestrænar þjóðir á sem flestum
sviðum.
Þjóðin hefur í tæplega þrjá ára-
tugi stutt þá flokka sem hafa
stofnað til og stuðlað að fram-
gangi utanríkisstefnu á framan-
greindum grundvelli . Yfir 80%
kjósenda styður þessa flokka.
íslendingar hafa notið fulls
frelsis til að leita og njóta við-
skipta við aðrar þjóðir. Aðild
tslands að Nato hefur hvorki
hindrað né stuðlað að viðskiptum
við einstakar þjóðir á því tímabili,
sem um er að ræða. tslendingar
hafa t.d. óhindrað haft sín við-
skipti við Sovétríkin á þriðja ára-
tug, selt þangað mikið af frystum
sjávarafurðum og keypt f staðinn
mestalla þá brennsluolíu og
bensín sem þörf hefur verið fyrir.
ERFIÐLEIKAR
EFTIRSTRÍÐSÁRANNA
Fákunnátta núverandi ritstjóra
Þjóðviljans og skoðanabræðra
þeirra um þennan þátt utanríkis-
mála Islands er furðuleg. Þeir
sem um þessi mál fjalla í blaðinu,
virðast ekki vita að á erfiðleika-
árum eftirstríðsáranna i afurða-
sölumálum, meðan þjóðir heims
voru enn í sárum eftir hinn mikla
Stefna frelsis og
samstarfs í utan-
ríkisviðskiptum
íslands
samkvæmt margbrotin og fjöl-
þætt. Erfitt er að skilgreina svo
fullnægjandi sé, hvað f hugtakinu
felst. í vfðustu merkingu má
segja, að undir utanríkismál heyri
allt það sem varðar hagsmuni ts-
lands út á við. Sem dærni má
nefna: Utanríkispólitfk landsins,
viðskipti við önnur lönd s.s. við
stjórnvöld annarra rfkja og verzl-
unaraðila; fyrirsvar Islands hjá
öðrum rikjum og hjá alþjóða-
stofnunum; gæzla hagsmuna fs-
lenzkra rfkisborgara utan Islands
o.s.frv. Vegna smæðar þjóðarinn-
ar og eðlilegra takmörkunar á
mikilli verkaskiptingu kom þegar
í upphafi í hlut utanríkisráðherra
og utanrfkisráðuneytisins að
Bjarni Benediktsson.
efnahags- og varnarsamstarfs á
þessum árum til varnar borgara-
legum þing- og lýðræðisréttind-
um, sem Islendingar búa enn við
eins og flestar aðrar vestrænar
þjóðir, sem hafa verið aðilar að
þessu samstarfi í hartnær 30 ár. Á
þessu tímabili hefur verið hart
sótt að þessum þjóðum inn og út á
við af fimmtu herdeildum þeirra
afla, er vilja borgaralegt lýðræði
og frelsi feigt. Þá hefur vérið
sérstaklega vegið að þeim mönn-
um, sem mótuðu og tryggðu þá
stefnu í utanríkismálum Islands,
sem hefur tryggt frelsi og lýðræði
þjóðarinnar frá stofnún lýðveldis-
ins árið 1944. Ómerkileg og jafn-
vel röng skrif um farsælan árang-
ur þeirrar stefnu frjálshyggju og
vfðsýni, er þeir Ólafur Thors og
Bjarni Benediktsson mótuðu á
sínum fma, eru vart svaraverð. En
þegar vfsvitandi er hallað réttu
máli og dróttað er að þvf, að mæt-
ustu menn þjóðarinnar, sem nú
eru fallnir frá, hafi verzlað með
frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar og
gert hana ósjálfstæða, er tími til
kominn að þessum nfðskrifum sé
mætt á vióeigandi hátt:
Viðskiptaþáttur íslenzkrar
utanrfkisstefnu byggðist á frjáls-
um og óþvinguðum viðskiptum
við þær þjóðir sem hentaði hags-
munum tslands bezt á hverjum
tíma að eiga viðskipti við. For-
ustumenn islenzku borgaraflokk-
anna hafa aldrei þurft að blanda
saman viðræðum um viðskipta-
hagsmuni tslands annars vegar
við öryggis- og varnarhagsmuni
þjóðarinnar hins vegar. Ástæður
hildarleik, voru bæði fjárhagsleg-
ir og tæknilegir örðugleikar á þvf
að viðskipti milli þjóða gætu
hafizt með greiðfærum hætti á ný.
Á þeim tíma var þvf óhjákvæmi-
legt, að ríkisstjórnir, ráðherrar og
opinberir aðilar kæmu nokkuð
við sögu ásamt aðilum viðskipta-
lifsins f sölu- og markaðsmálum.
Bjarni Benediktsson sem utan-
ríkisráðherra tslands á þessum
árum hlaut þvi að láta sig þessi
mál miklu skipta. Hann, ásamt
samstarfsmönnum sínum, átti
rfkan þátt f þvi að mikið magn
sjávarafurða einkum ísfiskur og
freðfiskur var selt til Austur- og
Vestur-Evrópu á árunum
Ólafur Thors.
1947—1949. Var það gert f fullu
samráði við og samkvæmt vilja
útvegsmanna og fiskframleið-
enda. Á þessu tímabili áttu sér
stað miklar sölur á frystum fiski
til Tékkóslóvakíu og Sovét-
rikjanna, ísfisks til Vestur-
Þýzkalands o.s.frv. Árið 1947
stofnar Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna fyrirtækið Coldwater
Seafood Corp. í Bandaríkjunum,
en það er nú meðal stærstu fisk-
sölufyrirtækja sinnar tegundar
og í algjörri forustu f fisksölu-
málum tslands á bezta fisk-
markaði heims. Allt var þetta og
fleira gert með vitund og vilja
Bjarna Benediktssonar, sem leit á
það sem embættisskyldu sfna að
stuðla að og örva þau viðskipti er
þjóðin hafði þörf fyrir og henni
voru hagkvæm.
NATO OG VIÐSKIPTI
ÍSLANDS VIÐ
SOVÉTRÍKIN
Til þess að hrekja enn frekar
aðdróttanir og rangfærslur, sem
birzt hafa í Þjv. á þessu sumri um,
að á sviði útflutningsverzlunar
landsmanna hafi átt sér stað afsal
sjálfstæðis til Atlantshafsbanda-
lagsríkjanna til að tryggja út-
flutningshagsmuni þjóðarinnar,
er rétt að benda á það, að i valda-
tið Sjálfstæðisflokksins á síðustu
30 árum og eftir aö tsland gerðist
aðili að því bandalagi árið 1949,
hafa viðskiptin við Sovétríkin
stóraukizt. Þessi viðskipti hafa oft
verið tslandi hagkvæm. Aðild að
Nato hefur ekki verið þjóðinni
fjötur um fót að nýta þá mögu-
leika út í yztu æsar, sem þar hafa
verið fyrir hendi á hverjum tfma.
Það er svo annað mál, hvort
Sovétríkin hafi ekki reynt að not-
færa sér þessi viðskiptatengsl, sér
og fylgismönnum sinum hérlend-
is til framdráttar. Á þessu stigi
skal ekki farið frekar út f þau
mál.
BANDARÍKIN BEZTI
MARKAÐURINN
Því er svo aftur ekki að leyna,
að þótt viðskiptin við Sovétríkin
hafi á stundum verið Islandi hag-
kvæm, en þau hafa til skamms
tíma verið á vöruskiptagrund-
velli, þá hafa hin frjálsu og
óbundnu viðskipti tslands við
Bandaríki Norður-Ameriku verið
miklu hagkvæmari og fólkinu i
landinu ábatasamari. Utflutning-
ur íslands til Bandaríkjanna á
frystum sjávarafurðum siðustu
áratugina hefur raunverulega
verið kjölfesta í atvinnulifi og af-
komu þjóðarinnar.
Atvinnuöryggi og bein lifsaf-
koma þúsunda sjómanna, verka-
manna og verkakvenna um land
allt, hefur byggzt á framleiðslu-
og útflutningi frystra sjávaraf-
urða til Bandarfkjanna. Þar hefur
verðlag á frystum sjávarafurðum
verið hvað hæst og fyrir þann
markað hafa því dýrustu vörurn-
ar verið framleiddar.
Þessa staðreynd þekkir hvert
mannsbarn i sjávarbæjum á Is-
landi. Fólkið þekkir sinn lífs-
grundvöll og lætur ekki annarleg
sjónarmið reynslulítilla manna,
er hafa stjórnmálaþras að aðal-
starfi villa um fyrir sér i utanrfk-
ismálum.
STEFNA BYGGÐ
Á ÞEKKINGU OG
REYNSLU
Framkvæmd útflutningsverzl-
unar íslands frá 1944 hefur
byggzt á þeirri meginstefnu, að
einstaklingar og samtök framleið-
enda skyldu sjálfir hafa fullt
frelsi til að leita markaða og taka
upp vióskipti, þar sem það reynd-
ist þjóðinni hagkvæmast. Ef þörf
krafði veitti rfkisvaldið aðstoð til
þess að auðvelda þessa frjálsu
starfsemi.
Ólafur Thors og Bjarni Bene-
diktsson, hvor í sfnu lagi og sam-
eiginlega, stóðu að þessari stefnu-
mörkun ásamt þeim mönnum er
bezta þekkingu og yfirsýn höfðu á
þessum málum. Þessi stefna frels-
is til handa'aðilum atvinnulífsins
f útflutningsmálum þjóðarinnar
hefur reynzt henni heilladrjúg,
en að því og fleiru mun verða
vikið nánar f næstu greinum.