Morgunblaðið - 15.09.1976, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976
Halli 1 ágúst á við-
skiptajöfnuði Japans
Tókfó 14. sept. Reuter.
I AGUSTMANUÐI sl. varð vöru-
skiptaverzlun Japans við útlönd
óhagstæð ( fyrsta skipti um sjö
Heðin Brú í Nor-
ræna húsinu
FÆREYSKI rithöfundurinn
HEÐIN BRU (dulnefni — rétta
nafn er Hans Jakob Jacobsen)
heldur fyrirlestur f Norræna hús-
inu fimmtudaginn 16. sept. kl.
20.30. Fyrirlesturinn nefnir
hann: Det nationale arbejde pá
Færöerne.
Heðin Brú hefur undanfarið
dvalizt í Reykjavik og býr hann í
öðru gestaherbergi Norræna
hússins. Hann er íslendingum að
góðu kunnur, m.a. af skáldsögu
sinni Feðgar á ferð, sem kom út
1941 í ísi. þýðingu Aðalsteins Sig-
mundssonar, en auk þeirrar
skáldsögu hafa verið þýddar eftir
hann smásögur, sem birzt hafa í
ýmsum blöðum og tfmaritum.
Heðin Brú gaf út fyrstu skáld-
sögu sina — Lognbrá — 1930, og
framhald hennar — Fastatökur
— kom út 1935. Smásagnasafnið
Fjallaskugginn kom út 1936, en
Feðgar á ferð kom út 1940. Auk
íslenzku þýðingarinnar, sem áður
er getið, hefur hún verið þýdd
bæði á dönsku og þýzku. Síðan
hafa komið út eftir hann þrjú
smásagnasöfn og þrjár skáldsög-
ur, hin sfðasta — Tað stóra takið
— 1972.
Heðin Brú notar í skáldskap
sfnum mörg orð, sem hann hefur
tekið úr Sandeyjar-mállýzku, og
hann þykir skrifa mjög fagra fær-
eysku.
Fyrirlestur Heðins Brú hefst
eins og fyrr segir kl. 20.30 og eru
allir velkomnir.
Þórshöfn:
Gert klárt
fyrir slátrun
A ÞÓRSHÖFN er nú verið að gera
klárt fyrir slátrun og lízt mönnum
vel á féð í ár að sögn Bjarna
Aðalgeirssonar sveitarstjóra.
Áætlað er að slátra um 15000 fjár
og er það aukning frá fyrra ári, en
undanfarin ár hefur aukning ver-
ið stöðug.
Helzt er það að vatnsleysi hrjái
Þórshafnarbúa um þessar mundir
eftir langvarandi þurrka.
Ytri-Njarðvík:
Lionsmenn gefa
kirkjuorgel
Ytri-Njaróvík 14. sept.
KIRKJUDAGUR Ytri-
Njarðvíkursafnaðar verður f
Stapa sunnudaginn 19. sept. og
hefst hann með guðsþjónustu kl.
14. Séra Sigurður H. Guðmunds-
son sóknarprestur á Eskifirði pré-
dikar. Félagar úr Lionsklúbbi
Njarðvíkur munu afhenda söfn-
uðinum nýtt orgel og fermingar-
börn frá s.l. voru afhenda kaleik.
Að lokinni guðsþjónustu hefst
kaffisala Systrafélagsins og þá
um Ieið verður sýnt nákvæmt lfk-
an af kirkjubyggingunni f Ytri-
Njarðvík, gert af Öskari Jónssyni.
— Páll Þórðarson.
- Heimildamynd
Framhald af bls. 2
Ene Riisna sagði að það hefði
vakið sérstaka athygli sína þeg-
ar hún fór að kynna sér morð
og ofbeldisverk á íslandi, að nú
væru framin hér á landi mörg
morð á ári en áður Tyrr hefðu
þau verið 1—2 á áratug og fólk
jafnan hrokkið við þegar slíkur
verknaður var framinn. Fyrr á
árum hefðu tilfinningamál
oftast spilað inní þegar morð
voru framin og morðinginn
yfirleitt þekkt fórnarlambið en
nú væri farið að bera á kaldrifj-
uðum morðum, eins ,og þau
gerðust erlendis.
mánaða skeið. Voru vörur fluttar
inn fyrir 63 milljóna dollara
hærri upphæð en útflutningur
nam.
Aftur á móti er staðan enn sú,
að Japanir flytja langtum meira
til Bandaríkjanna og Efnahags-
bandalagsrikja en þeir kaupaþað-
an. Keppinautar þeirra í Banda-
ríkjunum og víðar hafa kvartað
hástöfum yfir því að Japanir hafi
gripið einum of hressilega til þess
að láta aukinn útflutning efla
efnahag þjóðarinnar.
1 júlímánuði sl. voru viðskipti
Japans við útlönd þeim hagstæð
um 290 milljónir dollara.
Náttúrulækninga-
dagurinn á laugardag
1 FRÉTT sem Morgunblaðinu
hefur borizt frá Náttúrulækn-
ingafélagi Reykjavfkur, segir, að
annar hátfðisdagur náttúrulækn-
ingamanna verði haldinn f Hvera-
gerði n.k. laugardag, 18. septem-
ber. Sérstök hátfðardagskrá verð-
ur þennan dag og sérstakur
veizlumatur náttúrulækninga-
manna á borðum.
Mikil eftirspurn er nú eftir
plássi á hæli Náttúrulækningafé-
lagsins og nokkur hundruð manns
á biðlista. í sumar var fyrsta álm-
an af nýja hælinu í Hveragerði
tekin í notkun og verður hún til
sýnis á laugardag.
— Eldvarna-
eLirlit
Framhald af bls. 32
menn höfðu samband við
Brunaeftirlitið og kannaðist þá
enginn við kempuna sem fór
um I nafni þess, en t.d. á
Stokkseyri mun hann hafa
hringt í forráðamenn bæjarins,
kynnt sig frá Brunaeftirlitinu
og sagt að það væri maður frá
þeim að mæta á staðnum. Þegar
hann kom svo þangað tóku
menn að sjálfsögðu á móti
„embættismanninum", en það
hafði rifjazt upp fyrir þeim að
þeir höfðu nýlega fengið bréf
frá Brunavarnaeftirlitinu með
ýmsum tillögum í þeim málum,
en „embættismaðurinn" hafði
þá sagt að þetta væri tóm
andsk. . . vitleysa eins og venju-
lega hjá stofnuninni, hann
skyldi kenna þeim þetta miklu
betur, en þegar hann fór að
gagnrýna þá harðlega í frysti-
húsinu varðandi brunavarnirn-
ar þar, losuðu þeir sig við „emb-
ættismanninn".
— Hassmál
Framhald af bls. 32
urs til Marokkó var að mestu afl-
að af manni þeim sem komst heim
til Islands úr för þessari og mun
meginhluta fjárins hafa verið afl-
að með sölu á fíkniefnum hér
heima. Stúlkan flutti fyrir þenn-
an sama mann kr. 400 þús. fs-
lenzkar i peningum til Kaup-
mannahafnar þar sem þeir félag-
ar skiptu þeim peningum og öðr-
um I erlenda mynt, en eitthvað
mun hafa verið flutt af erlendri
mynt í þessu sambandi frá ís-
landi, en félagarnir munu hafa
haft undir höndum um 15 þús.
d.kr. og um 3000 dollara. Þá mun
sá sem situr í fangelsinu á Spáni
einnig hafa aflað nokkurs hluta
fjárins með sölu á 300 gr. af hassi
f Kaupmannahöfn þar sem hann
seldi grammið á 7 kr. danskar. Þá
hefur einnig komið fram f rann-
sókninni að leiðangursmenn
greiddu sem svarar 40 þús. ísl. kr.
fyrir hvert kflógramm, en verð á
hassi er mjög misjafnt eftir því
hvar það er keypt. Hassið átti
sfðan að flytja f smærri einingum
frá Spáni til íslands, en ekki mun
bggja Ijóst fyrir hvernig átti að
framkvæma þann flutning.
Dómur í máli íslendingsins sem
situr nú í fangelsi á Spáni tnun
falla um næstu mánaðamót.
— Kínverjar
Framhald af bls. 1.
þessum hætti tóninn í ráðamönn-
um f Peking að Maó látnum.
Austur-evrópsk heimild f
Peking segir að ein ástæðan fyrir
því að ákveðið var að senda kveðj-
ur frá kommúnistaflokknum
hefði verið sú, að hvetja öfl hlið-
holl Sovétrfkjunum innan kfn-
verska forystuliðsins. „Kfnverjar
líta augsýnilega á þetta sem
ögrun. Samband Kfnverja og
Sovétmanna eftir Maó kann að
hafa fengið ólánlega byrjun,“ seg-
ir einn vestrænn fréttaskýrandi.
Kínverjar birtu samúðarskeyti
frá ungverska forsætirráðinu, en
létu annað frá ungverska
kommúnistaflokknum sem vind
um eyrun þjóta. Austur-evrópsk
heimild hermdi í Peking í dag að
skeytum pólska og austur-þýzka
kommúnistaflokksins hefði þegar
verið skilað og búið væri að
kveðja sovézka diplómata til við-
tals f kínverska utanrfkisráðu-
neytið.
Nicolae Ceausescu, forseti Rú-
meníu, hefur sent blómsveig til
útfarar Mao tse-tungs formanns í
Kina að því er blöð f Búkarest
greindu frá i dag. I áletrun á
sveignum segir að hann sé tákn
djúprar virðingar i garð Maos for-
manns og var hann afhentur í Sal
alþýðunnar í Peking f gær ásamt
öðrum sveigum frá kommúnista-
flokknum, stjórninni og rfkisráð-
inu.
Samskipti, Kína og Rúmeníu
hafa verið hin ákjósanlegustu s.l.
ár. Ceausescu kom f kfnverska
sendiráðið f Búkarest um helgina
til að tjá samúð sína og er hann
eini leiðtogi kommúnistalands
sem slíkt hefur gert. I málgagni
rúmenska kommúnistaflokksins
er f dag lögð áherzla á mikilvægi
þess að halda áfram góðum og
gagnlegum samskiptum við Kín-
verja.
— Heildarafli
Framhald af bls. 2
lestir á móti 3.314 lestum, hörpu-
disksafli 1.751 lest á móti 1279
lestum, humarafli 2757 lestir á
móti 2307 lestum og kolmunni 628
lestir en var enginn. Annar afli á
þessu ári eins og t.d. spærlingur
er 6.554 lestir en var 323 lestir á
sama tfma á s.l. ári.
— Kissinger
Framhald af bls. 1.
Jóhannesarborg var haldið áfram
í dag og var þátttaka nokkru
minni en f gær. Að sögn atvinnu-
rekenda munu um 65% vinnandi
manna í Soveto hafa haldið sig frá
vinnu f dag. Þrír eru sagðir hafa
látið lífið í dag og 15 særzt, þegar
til átaka kom við óeirðalögreglu
og tveir voru skotnir seint f gær-
kvöldi er þeir voru að rífa upp
járnbrautarteina.
Handtökum var haldið áfram
fram á nótt aðfararnótt þriðju-
dags, en eftir það var kyrrara.
I borgarhverfunum Durban og
Port Elisabet er lögreglan sögð
hafa stundað fjöldahandtökur f
dag og samkvæmt óstaðfestum
heimildum voru 700 stúdentar og
nemendur handteknir er þeir
voru að láta í ljós mótmæli. Verk-
fallið f Soweto á að standa á morg-
un samkvæmt áætluninni, en það
voru stúdentasamtök borgarinnar
sem fyrir verkföllunum stóðu.
Verkfalli, sem á að hefjast f
Höfðaborg á miðvikudag, var aft-
ur á móti aflýst að sögn NTB-
fréttastofunnar, en lögreglan tel-
ur vissara að hafa þó allan vara á
ef sú frétt reynist ekki rétt.
Þó að ókyrrð og gólga virðist
enn vera í borgarhverfum svert-
ingja f grennd við Jóhannesar-
borg bentu fréttir þaðan í kvöld
til þess að rólegra hefði verið en í
gærkvöldi. Fréttamenn segja að
enda þótt lögreglumenn hafi
handtekið nokkur hundruð svert-
ingja í gærkvöldi sé bersýnilegt
að þeir hafi breytt um baráttuað-
ferð og sýni ekki jafn ótvíræða
hörku og grimmd gagnvart svert-
ingjum og áður.
Þá lauk í dag f Pretoríu sameig-
inlegum viðræðum þeirra Ian
Smiths, forsætisráðherra
Ródesíu, og Vorsters, forsætisráð-
herra Suður-Afrfku, og héldu báð-
ir heimleiðis að þeim loknum. I
sameiginlegri yfirlýsingu sagði að
skipzt hefði verið á skoðunum í
fullri hreinskilni varðandi vanda-
mál Suður-Afríku en fátt var bita-
stætt f tilkynningunni, þannig að
raunhæfar ályktanir mætti af
henni draga. Smith kvaðst að-
spurður ekkert frekar hafa að
segja um fundinn og myndi hann
hraða sér heim til Ródesfu vegna
fyrirhugaðs ársfundar stjórnar-
flokks hans í landamæraborginni
Umtali. Sá fundur hefst á morgun
og hafa gffurlegar varúðarráð-
stafanir verið gerðar vegna hans,
en bærinn er í aðeins þriggja kfló-
metra fjarlægð frá landamærun-
um við Mósambik. Hefur Umtali
iðulega orðið fyrir eldflauga- og
sprengjuárásum svartra skæru-
liða handan landamæranna. Er
töluverð áhyggja með ýmsum að
ákveðið skuli hafa verið að hafa
fundinn á þessum stað.
Vorster var einnig mjög fámáll
um tal þeirra Smiths, en gengið er
út frá þvf sem gefnu að hann hafi
gert ródesfska ráðherranum
glögga grein fyrir fundunum sem
hann átti með Henry Kissinger nú
á dögunum.
Alitið er að Vorster hafi gert
tilraun til að fá Smith til að fallast
á að taka þátt f framkvæmd hug-
mynda Kissingers til að endi
verði bundinn á Ródesíuágrein-
inginn. Er gert ráð fyrir þvf að
Smith hafi verið mjög tregur til
að sættast á hugmyndir Kissin-
gers, en frá þeim hefur áður verið
sagt í fréttum. Aftur á móti hefur
Smith ekki farið í launkofa með
að Ródesíumenn muni ekki taka
við skipunum utanfrá og eigi það
jafnt við um Suður-Afríku og
aðra. Kveðst Smith ekki telja sig
þess umkominn að gefa nágrönn-
um sínum skipun um hvernig þeir
eigi að ráða löndum sfnum og því
kæri hann sig lítt um utanaðkom-
andi afskipti.
— Sexlanda-
keppnin
Framhald af bls. 3
s.l. haust og kom á óvart með getu
sinni, gerði m.a. jafntefli við Frið-
rik Ólafsson í frægri skák, þar
sem Ottermaier krafðist jafnteflis
er sama staðan kom upp þrisvar.
I fyrstu umferð tefldu íslend-
ingar á móti Norðmönnum. Urslit
urðu þessi: ögaard vann Ingvar,
Ingvar var með betri skák og
hafnaði jafntefli, en lék af sér í
lokin. Jón og Helmer jafntefli,
Júlfus og Semakorf sömdu um
jafntefli, Magnús vann Harestad,
Ómar tapaði fyrir Jensen og Guð-
laug vann biðskák við Hlinger.
Island fékk þvi þrjá vinninga út
úr þessari umferð og Noregur 3.
V.-Þýzkaland vann Bremen 4V4 —
1V4, Danmörk vann Svfþjóð 3V$ —
2‘A. í dag tefla Islendingar við
V.-Þjóðverja.
— Borguðu
Svíar
Framhald af bls. 1.
herra, og Per Aasbrink, rfkis-
bankastjóri, áttu aðild að máli
þessu. Guillou sagði á blaða-
mannafundi í Stokkhólmi f dag,
að ástæðan fyrir því að smygla
átti peníngunum úr landi hlyti
að vera sú að ekki mætti kom-
ast upp hvaðan þeir kæmu.
Sven Andersson staðfestir f
samtali við Stokkhólmsblaðið
Dagens Nyheter f dag, að pen-
ingarnir hafi verið greiddir og
þeir hafi verið greiðsla fyrir
rafeindaútbúnað. Þeir hefðu
verið afhentir bandarfska varn-
armálaráðuneytinu vegna þess
að ekki hefði verið vitað hver
væri framleiðandi hans.
Guillou sagði í dag að gildar
ástæður væru fyrir þvf að
álykta að peningarnir hefðu
verið greiðsla fyrir þjónustu
eða upplýsingar af einhverju
tagi. Washington Post, sem í
dag ver miklu plássi til að skýra
frá máli þessu, segir að aðilar
sem glöggt þekki til njósna telji
að hér hafi verið um að ræða
njósnir sem Bandaríkjamenn
hafi framkvæmt en Svíar hafi
greitt fyrir. Þá vfsar Washing-
ton Post jafnframt til þess að á
þessum tfma hafi samband
Bandarfkjanna og Svfþjóðar
verið heldur stirt. Fulltrúar
bandarfska varnarmálaráðu-
neytisins hafa ekki viljað tjá
sig um málið, en Triantafellu,
hershöfðingi, sem nú er setztur
í helgan stein, hefur viður-
kennt f samtali við Washington
Post að vel geti svo verið að slík
greiðsla hefði verið innt af
hendi af Sví hálfu.
— Skeiðará
Framhald af bls. 2
vörður í Skaftafelli, sagði f sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
vöxtur í ánni væri mjög hægur og
svipaði þetta því til siðustu
hlaupa í henni, en engu að sfður
nálgaðist vatnsrennslið nú fullt
sumarvatn, og áin rynni enn í
sumarfarvegi, en sjáanlegur mun-
ur væri á henni frá degi til dags.
Að sögn Ragnars mátti fyrst
merkja að hlaup væri í aðsigi
þann 4. september s.l., en þá varð
fólk í Skaftafelli vart við mikla
jökulfýlu og hefur hún verið stöð-
ug síðan. Jökulfýlan hefur verið í
sterkara lagi og hefur t.d. fallið
mikið á málma eins og silfur og
eir.
Þá sagði Ragnar, að frá því að
síðasta Skeiðarárhlaup hefði haf-
izt þar til það komst i hámark
hefðu liðið 20 dagar og sér fyndist
ýmislegt benda til að sama þróun
ætlaði að verða að þessu sinni.
— TASS
Framhald af bls. 1.
ekki gefinn upp á næstunni. I
orðsendingu Tass sagði að þegar
fulltrúar sovézka sendiráðsins
hefðu loks fengið að hitta Bel-
enko hefði hann setið „þegjandi
eins og bjálfi“.
Hefði fundur sá sýnt að maður-
inn hefði ekki verið með sjálfum
sér og hlyti að hafa verið undir
áhrifum eiturlyfja eða einhverra
annarra lyfja.
TASS réðst mjög harkalega á
japönsku stjórnina fyrir afstöðu
hennar og taldi hana gróft brot á
samningi landanna þinn fyrr en
að fjórum dögum liðnum.
— Ný stjórn
Framhald af bls. 1.
af sér allar hríðar sem gerðar
hafa verið að honum upp á sfð-
kastið, þar sem m.a. hefur verið
reynt að tengja hann Lockheed-
mútumálinu í Japan. Að svo
stöddu bendir ekkert til að Miki
njóti ekki nauðsynlegs stuðnings
innan flokks síns, Frjálslynda lýð-
ræðisflokksins.
Talið er að hann muni tilkynna
um nýju stjórnina á morgun og
verður ekki af fréttum ráðið
hversu miklum breytingum er bú-
izt við.
— Svalbarði
Framhald af bls. 15
hefjast skuli handa í Sveanám-
unni snemma á næsta ári, eins
og Store Norske bindur vonir
við, gæti náman framleitt ná-
lægt milljón tonnum af úrvals-
kolum strax árið 1981.
Talið er að þau kolalög sem
vitað er um í Svea endist í um
20 ár en góðar líkur eru jafn-
framt taldar vera á því að fleiri
námur finnist milli Svea og
Longyearbæjar.
EINANGRUN
Með því að stofna annað
norskt námamannasamfélag á
Svalbarða tekst að rjúfa ein-
angrun Longyearbæjar. Eftir
að nyrzti alþjóðaflugvöllur
heims var opnaður á Svalbarða
i september 1975 urðu sam-
göngur við umheiminn jafn-
framt mun greiðari og þangað
flýgur SAS reglubundið áætl-
unarflug vikulega. Þetta hefur
gerbreytt öllu mannlífi á Sval-
barða og mun verða grundvöll-
ur hinna auknu framkvæmda
og umsvifa sem þar virðast ætla
að verða í framtíðinni.
— Norimform