Morgunblaðið - 15.09.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976
19
viö
gluggann
eftirsr Arelius Nielsson
Fórnir á altari
reykgyðjunnar
Margt hefur breytzt til hins
betra á íslandi fyrir drykkju-
sjúklinga hinn síðasta áratug.
Það virðist undralangt síðan
gamall ryðkláfur, sem einu
sinni var togari, var eina at-
hvarfið vestur á Granda. Það
var, Vernd sem átti upphafið að
úrbótum.
Nú er komin aukaaðstoð á
Kleppi fyrir alkóhólista, göngu-
deild og ráðleggingarstöð á
Flókagötunni, ffna hælið á
Vífilsstöðum, gistiheimili og
dagstofa drykkjusjúkra I Þing-
holtsstræti, dvalarheimili
drykkjukvenna við Amtmanns-
stig, að ógleymdum þessum
dvalarheimilum sem áður voru
komin I Gunnarsholti og Víði-
nesi og Samhjálp I Hlaðgerðar-
koti.
Þetta er stórkostleg
upptalning, dýr I framkvæmd
og þvl miður oft árangurslltil
til langvarandi hjálpar.
Drykkjusýki er hryllilegur
sjúkdómur, sem leggst bæði á
líkama og sál einstaklinga og
umhverfi þeirra, aðstandendur
og fjölskyldur og eirir engu unz
uppetið er. Samt er það nú svo,
að enn skortir þá aðstöðu, sem I
daglegu tali hefur verið nefnd
afvötnunarstöð, nokkurs konar
skyndihjálp, sem getur bjargað
miklu ef vel er að unnið og
aðstoðar leitað I tæka tlð. Segja
má að engir tveir séu eins og
sitt henti hverjum. Þetta gildir
ekki einungis um einstaklinga,
heldur jafnvel heilar þjóðir.
Drykkjuvenjur Islendinga og
Finna líkjast mest, að minnsta
kosti hið ytra. Ráfandi
alkóhólistar, iðjulausir og at-
hvarfslausir um götur og torg.
Þótt ekki skildi ég orð I máli
fólksins I Helsingfors, fannst
mér samt ótrúlega kunnuglegt
um að litast I almennings-
görðum við Mannerheimgötu
og Alexanderstræti miðborgar-
innar.
Innan um prúðbúið fólk og
nýtízkusvip þessarar verðandi
stórborgar reikuðu hvarvetna
menn og konur líkt og nýböðuð
uppúr forarvilpu, ráðþrota og
slagandi líkt og hér á Lækjar-
torgi og við Austurvöll.
Okkur þingfólki frá mörgum
löndum austan hafs og vestan
Epyptar
reyna sættir
Kairó 14. sept. Reuter. NTB.
EGYPTAR hafa enn á ný gert
tilraun til að draga úr átökunum
milli hinna strfðandi afla f Lfban-
on, að lfkindum að beiðni og eftir
þrýsting PLO. Forsætisráðherra
Lfbanons, Rashid Karami, sem
hefur samúð með málstað Palest-
fnumanna, átti f dag fund með
Sadat forseta Egyptalands og öðr-
um háttsettum forystumönnum.
Sfðar kom svo Pierre Gemayel,
leiðtogí falangista, til Kairó og
gekk á fund Sadats.
I aðalstöðvum Arababandalags-
ins var I dag kunngert að þjóð-
höfðingjar Arabarfkjanna hefðu
verið I vaddir til toppfundar I
Kairó þann 18. október n.k. og
verður umræðuefnið væntanlega
aðeins eitt: ástandið I Lfbanon.
fannst mikilsvirði að vita hvað
helzt væri gert til varnar þeim
voða, sem þarna lægi að baki.
Svörin urðu mörg i fram-
kvæmdum svipuðum þeim sem
orðið haf a hér á landi. Og okkur
voru sýnd nokkur hæli, eitt
fyrir tvö til þrjú hundruð
sjúklinga. En á einu var þar
mikill munur eða hér, sem auð-
vitað var eftirtektarvert. Þar
var vægast sagt enginn fburður
og óhóf I verki.
Allt I þessu stóra, lága húsi I
útjaðri borgarinnar líktist
fremur því sem við erum vön
eftir frásögnum að hugsa okkur
I fangabúðum eða á hermanna-
skálum. Kaldir, litlausir veggir,
lágir trébekkir við langborð I
matsal , flet með teppum af
ódýrustu gerð I svefnher-
bergjum. Allt virtist miðað við
fjöldann en ekki ein-
staklinginn.
Hvar eru vistmenn núna.
spurði einhver á sænsku.
Enginn sást þarna um miðjan
dag. Uti I sveit að vinna var
svarið. Hér mætti gjarnan
staldra við. Eru hér ekki aðrar
öfgarnar að verki I aðbúnaði og
tilætlun eða tilætlunarleysi?
Hvernig er árangurinn af dvöl
á þessari stofnun? var spurt.
„Hefur ekki verið rannsakað
enn, þetta er allt I mótun."
Ekki betra en heima, hugsaði
ég. Og þó, ýmislegt mátti af
þessu læra, fburðarlaust, starfs-
fólki stillt i hóf og nóg verkefni
handa vistmönnum.
En ein stofnun I Helsingfors
fannst mér bera af til eftir-
breytni á þessu sviði: Það var
A-klinikstiftelsen Hoplaxvági
14 A 7, sem mætti nefna á
fslenzku Afvötnunarstofnunin
fyrir alkóhólista. Þessi stofnun
byggir fyrst og fremst á því að
ekki hæfi öllum hið sama.
Drykkjumenn sem eru nú f
sambandi við þá breytingu í
hugsunarhætti, að vera nú
taldir sjúklingar en ekki af-
hrök, nefndir alkóhólistar með
lánsorði úr latfnu og þykir ffnt,
eru nefnilega eins olíkir og þeir
eru margir.
Eitt má þó fullyrða: Sigur
alkóhólistans og aðstoðin við
hann byggist á traustu sam-
starfi, skilningi og þolgæði.
A-klinikstiftelsen á Hopláx-
vegi í Helsingfors er varðstöð
til athugunar. Þar er alltaf
hægt að leita ásjár. Þangað geta
þeir komið af frjálsum vilja,
sem viðurkenna umkomuleysi
sitt og ístöðuleysi. Þar byggist
allt á samstarfi 'og einlægri
samábyrgð samúðarrfkra sálna.
Oft eru vandamál ofdrykkju-
manns byrðar heillar fjöl-
skyldu eða afleið'ug í því völ-
undarhúsi. Þar er endalaus
vítahringur ser, verður að
rjúfa.
Það getur þvf verið alveg
nauðsynlegt að öll fjölskyldan
komi til viðtals eða sé heimsótt
til athugunar.
Egypzk blöð gefa og til kynna
að mjög sé nú unnið bak við tjöld-
in í ýmsum Arabalöndum að
lausnar deilunni, þar sem Egypt-
ar láti ekki sitt eftir liggja. Vest-
rænir sérfræðingar lfta svo á að
frumkvæði Egypta nú miði fyrst
og fremst að því að koma á jafn-
vægi í afstöðunni til Sýrlendinga
sem má segja að séu nú i eins
konar forystuhlutverki f Araba-
löndum.
SÞ frestar að ræða
umsókn Víetnams
New York 14. sept. Ntb. Reuter.
FULLTRtJAR í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna urðu ásáttir um
það að loknum einkafundum f
dag að fresta þvf að taka til um-
fjöllunar umsókn Vletnams að
Sameinuðu þjóðunum. Banda-
rfska stjórnin hafði tilkvnnt að
hún myndi beita neitunarvaldi til
að koma I veg fyrir að landið
fengi aðild að samtökunum.
Ford, Bandarikjaforseti, tjáði
Scranton, aðalfulltrúa Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum,
að ef Vfetnamar héldu því til
streitu að gefa engar upplýsingar
um afdrif 795 Bandaríkjamanna
sem saknað er eftir styrjöldina,
yrði neitunarvaldi beitt gegn að-
ild þar sem sýnt væri að engin
breyting til batnaðar hefði á orð-
ið.
Tillaga um frestun á umræðum
um málið kom frá fulltrúa Frakk-
lands, Jacues Lecompte, og sagði
hann að fulltrúar Frakka og Víet-
nama hefðu rætt málið. Þá segir í
fréttum að Vfetnamar sætti sig
vel við að umsókn þeirra verði
ekki tekin fyrir að svo stöddu.
Er ákveðið að bfða fram í
nóvember með að ræða málið.
Áreiðanlegar heimiidir sögðu að
með þessari frestun vonuðust
ýmsir fulltrúar til að Bandaríkin
yrðu þá komin á aðra skoðun, þ.e.
eftir að úrslit í forsetakosningun-
um 2. nóvember lægju ljós fyrir.
Bandarfkin eru eina landið f
Öryggisráðinu sem vitað er til að
sé á móti upptöku Víetnams I
Sameinuðu þjóðirnar.
Carlos í
Bagdad?
Belgrad 14. sept. Reuter.
TVEIR vestfænir diplómatar
telja að þeir hafi séð sex
skæruliða þar á meðal Carlos
Martines — sem leitað hefur
verið um vfða veröld fyrir
hryðjuverk — fara frá Belgrad
til Bagdad sl. föstudag. Frá
þessu greindu diplómatískar
heimildir f dag og þar sagði að
orð hefðu borizt um að Carlos
væri væntanlegur og hann
hefði komið frá Alsír fyrir
viku. Þá var hann með vestur-
þýzka skæruliðanum Hans
Joachim Klein, fjórum
Palestfnuskæruliðum og
ónafngreindum kvenmanni.
Talsmaður júgóslavnesku
stjórnarinnar hefur ekki stað-
fest þetta en frétt diplómat-
anna er studd fréttum frá vest-
ur-þýzkum leyniþjónustu-
mönnum sem höfðu eftir
frönskum embættismönnum
að grunur léki á því að Carlos
væri kominn til Bagdad.
Nýja AJAX -
uppþvottaefnið
fjarlægir fituleifar án
fyrirhafnar. Teskellur
- eggjabletti - varalit.
Vinnur bug á lykt -
jafnvel fisk- og
lauklykt - heldur /
uppþvottavatninu
ilmandi.
AJAX með |V
sítrónukeim - % 1.1
hin ferska Íi! .
orka.
• CITRON
OPVASK
Bologisk nedbrydeligl Á
AJAX er fljótvirkt ferskt sem sítróna