Morgunblaðið - 15.09.1976, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976
25
fclk í
fréttum
+ ÞEIR hafa úti allar klær bandarísku forsetaframbjóðendurnir við að afla sér stuðningsmanna. Hér
sjáum við hvar Jimmy Carter hefur tekið Mikka mús tali og er ekki annað að sjá en að vel fari á með
þeim félögum.
Ford forseti hlýtur að eiga eitthvert svar við þessu og ekki er ólfklegt að hann hafi þegar tryggt sér
stuðning Jóakims frænda.
Brando lœtur
móðan mása
+ MARLON Brando hefur
iöngum verið f sviðsljósinu en
nú að undanförnu hefur hann
vakið á sér meiri athygli utan
kvikmyndaveranna en innan.
Hann hefur gerzt ákafur bar-
áttumaður fyrir máistað Indí-
ána og af sama ákafa móðgar
hann starfsbræður sína. Um
Jack Nicholson hefur hann
þetta að segja:
„Hann er eins og pfanóleik-
ari með einn fingur. En það
kemur þó ekki að sök, hann
notar aðeins eina nótu. Hann er
með sama svip, sama ræddblæ
og er sá sami f öllum hlutverk-
um sem hann leikur. Hann er
skelfilega leiðinlegur maður.“
Robert Redford fær nokkurn
vegin sömu útreið:
„Hann er hreint ekki leikari.
Það er engu Ifkara en maður-
inn hafi aldrei fengið höfuð-
verk eða difið hendi f kalt vatn.
Penn og ekki neitt,“ segir
Brando. John Wayne og Sophia
Loren eru heldur ekki f náð-
inni hjá Brando sem nú segist
Ifklega vera hættur öilum kvik-
myndaleik. „Flestir starfs-
bræðra minna eru óþolandi yf-
irborðsmenn og hinir vonlausir
fúskarar." *
Rutilo og risaeðlurnar
+ RUTILO Sermonti, 52ja ára gamall ftalskur lögfræðingur, hefur
dálftið sérkennilegt áhugamál, sem sé fornaldarskrfmsli. Hér er
hann að leggja sfðustu hönd á risaeðlurnar sfnar, sem hann hefur
lengi unnið að f frftfmum sfnum, en þær eru gerðar úr plasti og
silikón. Þegar allt er tilbúið ætlar hann að koma þessum huggulega
hópi fyrir f skammtigarði fyrir sunnan Mflanó.
Sex-skotpípa
+ HANN er ekki þátttakandi f „rússneskri rúlettu" hann BiII
Conroy heldur nýtur hann hér reyksins úr uppáhaldspfpunni sinni,
sem er að auki forngripur.
Bill er mikill pfpureykingamaður og pfpusafnari og nú fyrir
skemmstu datt hann ofan á þessa sex-skota pfpu, sem er steypt úr
hörðu gúmmfi og vgy hæst móðins á árunum upp úr 1920, en þá var
mikil pfpureykingaöld og margar sérkennilegar pfpur f umferð.
Sextugur í dag:
Þórður Gíslason
I dag er Þórður Gíslason, bóndi
á Ölkeldu II í Staðarsveit, sextug-
ur.
Þórður er borinn og barnfædd-
ur Staðsveitingur, sonur gagn-
merkra hjóna, Gfsla Þórðarsonar
og Vilborgar Kristjánsdóttur, sem
bjuggu öll sfn búskaparár á
ölkeldu.
Gfsli var lengi oddviti sveitar-
innar og sýslunefndarmaður en
er látinn fyrir allmörgum árum.
Vilborg er Hjarðfellingur að ætt,
háöldruð heiðurskona f skjóli
sona sinna og tengdatætra.
Þórður Gíslason er sveitamaöur
af lífi og sál. Hann tilheyrir þeirri
kynslóð Staðsveitinga, sem hefur
með öllu horfið frá sjósókn til
landbúnaðar, en fram á bernsku-
ár hans byggði sveitin afkomu
sina jöfnum höndum á sjó og
landi. Að vísu hefur fram til
skamms tíma verið skotizt til
fiskjar sér til skemmtunar og
búsílags, en breyttir búskapar-
hættir leyfa nú ekki lengur slikt
tómstundagaman.
Þórður mun einna fyrstur sinna
sveitunga hafa farið að Hvann-
eyri til þess að afla sér
menntunar á því sviði, sem hugur
hans stóð til. Utskrifaðist þaðan
búfræðingur eftir tveggja ára
nám, en dvaldist áfram á Hvann-
eyri nokkur ár sér til þroska og
þekkingarauka.
Nokkrir ungir menn úr sveit-
inni fetuðu f hans fótspor og urðu
að námi ioknu forgöngumenn í
félagsmálum og framförum.
Sfðan hafa synir þeirra farið
sömu leið og búið sig undir að
taka við af þeim eldri, þegar sá
tfmi kemur.
Þau voru fyrstu kynni okkar
Þórðar, að fyrsta prestsverk mitt í
Staðarsókn var að skfra fyrsta
barn þeirra hjóna, Þórðar og
konu hans, Margrétar Jónsdóttur
frá Vatnsholti. Sfðan hefi ég átt
samstarf við þau lengur en
nokkur hjón önnur.
Vil ég þá fyrst minnast sam-
vinnu okkar að kirkjumálum.
Staðarkirkja var vfgð árið 1945.
Söngmálastjóri, Sigurður heitinn
Birkis hafði alizt upp á Staðastað
og baT ávallt í brjósti mikla
ræktarsemi við staðinn og sveit-
ina. Stofnaði hann kirkjukór og
æfði fyrir vígsluna. Meðal kór-
félaga voru þau Margrét og
Þórður. Hafa þau æ siðan sungið
við guðsþjónustur og aðrar
kirkjulegar athafnir. Munu þær
fáar messurnar að þau hafi ekki
sótt þær og sungið, þrátt fyrir
annríki heima fyrir og gestkomur
um helgar. Hin síðari ár hefur
Þórður verið formaður sóknar-
nefndar og meðhjálpari minn,
unz ég lét af embætti.
í öðru lagi skulu nefnd skóla-
málin. Þótt ekki hefði hann
kennarapróf tók Þórður að sér
kennslu barna til fullnaðarprófs,
fyrst sem farkennari við örðugar
aðstæður, siðan skólastjori eftir
að fast skólasetur var fengið.
Hann hefur nú kennt í 30 ár.
Allflestir nemenda hans stund-
uðu síðan framhaldsnám í Ung-
lingaskólanum á Staðastað og
reyndust vel og flestum betur.
Einkum lék kennsla f almennri
stærðfræði í höndum Þórðar,
enda mjög vel að sér í þeirri
grein. Minnist ég margra ánægju-
legra daga með honum við próf i
barnaskólanum.
Og enn er þess að geta, sem
gerðist þar sem gleði var á
ferðum f afmælisveizlum og öðr-
um samkvæmum innan sveitar.
Þá settu þau hjónin Margrét og
Þórður svip á daginn eða kvöldið.
Þar var Þórður hrókur alls
fagnaðar og frömuður söngs, jafn-
vígur á sálma sem veraldleg lög.
Síðast en ekki sizt minnist ég
fjölmargra ánægjustunda á
heimili þeirra hjóna Þórðar og
Margrétar. Þau eru gestrisin og
góð heim að sækja, samhent f þvf
sem öðru. Kom ég þar oftar en á
flesta bæi aðra, bæði vegna
nálægðar svo og margvfslegs sam-
starfs við húsbóndann. Oft var
setinn bekkurinn á Ölkeldu,
meðan heimavist var þar til húsa,
áður en heimanakstur skólabarna
Framhald á bls. 22
— Laxárvirkjun
Framhald af bls. 23
að aflskortur yrði á Norður-
landi árið 1975, ef ekkert yrði
aðhafzt, var ákveðið að koma
upp varastöð við Rangárvelli
ofan við Akureyri. Hún tók til
starfa haustið 1975 og kostar
tæplega 300 millj. kr. fullgerð.
Þar er langstærsta dísilvél
landsins, 6889 KW. Þar er
brennt svartolíu, en að þvf er
mikill sparnaður miðað við gas-
olíu eða sem svarar 50—60
millj. kr. á 13 millj. KWST.
Að auki eru svo 4 dísilvélar á
Oddeyri, sem framleiða alls um
7500 KW. en að því kann að
koma, að þær verði að fjarlægja
vegna skipulags og stækkunar
hafnarsvæðis Akureyrar.
NÆSTU VERKEFNI
Nú er að mestu lokið fyrir-
sjáanlegum virkjunarfram-
kvæmdum Laxárvirkjunar. Þó
verður haldið áfram vinnu við
fegrun og snyrtingu í grennd
við virkjunarstaði. Einnig á að
rffa nokkur bráðabirgðamann-
virki við Laxá og reisa þar
íbúðarhús starfsmanna og nýtt
verkstæðishús. Það verður
hægt að gera fyrir eigið fé Lax-
árvirkjunar án þess að taka
þurfi lán.
Nú standa yfir samningar við
iðnaðarráðuneytið um, að Lax-
árvirkjun taki að sér rekstur
Kröfluvirkjunar til bráða-
birgða eftir að Kröfluvirkjun
hefir tekið til starfa og þar til
Norðurlandsvirkjun hefir verið
formlega stofnuð. Horfur eru á
að þessir samningar takist.
STJÓRN
Stjórn Laxárvirkjunar skipa
nú þessir menn: Kosnir af
bæjarstjórn Akureyrar: Valur
Arnþórsson formaður, Jón G.
Sólnes og Ingólfur Árnason
(var fyrst varamaður Björns
Jónssonar, en hefir skipað sæti
hans að fullu, frá því að Björn
tók við ráðherradómi). Til-
nefndir af ríkinu: Baldvin
Baldursson og Helgi
Guðmundsson. Stjórnarmenn
eiga allir heima á Akureyri
nema Baldvin, sem er bóndi á
Rangá í Ljósavatnshreppi.
Framkvæmdastjóri er Knútur
Otterstedt rafveitustjóri
Akureyri.