Morgunblaðið - 19.09.1976, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1976
LJÓSMYNDIR: FRIÐÞJÓFUR
\ Tw°''
Eftir „syndafallið": Braskarinn og
herinn ræða (þjóð)málin
MIÐALDRA unglinga rekur
sjálfsagt minni til, að i
gamla daga var starfræktur
skemmtigarður suður í
Vatnsmýri er dró nafn af
þeim fræga skemmtigarði
Kaupmannahafnar, Tívolí.
Þá var gaman að vera
ungur og enn reikar hugur-
inn suður Njarðargötu. inn
um skrautmálaða hliðið,
gegnum mannþröngina að
bílabrautinni, rólu-
bátunum, draugahúsinu,
Parísarhjólinu, skotbökk-
unum og hringekjunum.
Ofan til í hugarheiminum
sveima flugvélarnar og
ryðja úr sér gotteríinu yfir
skarann. Og þegar sumri
hallar og hlið garðsins
lokast, þá skellir hugurinn
sér bara í dansstaðinn dýr-
lega, Vetrargarðinn, og fær
sér snúning — og kannski
sitthvað fleira sem ekki má
nefna!
Stuðmenn — sem sjálf-
kjörnir eru í islenzka popp-
landsliðið — hafa varðveitt
staðinn fyrir framtíðina á
nýju plötunni „Tívolí" og
hjörtu okkar sem munum
staðinn slá hraðar, þegar
platan snýst á fóninum.
Hinir, sem engar minningar
eiga um staðinn, verða að
láta sér nægja tónlistina og
textana, sem standa fylli-
lega fyrir sínu engu að
síður
Biðröð við „Gullna hliðið" — Herinn gerir sér dælt við fjallkonuna, sem
slær um sig. Unglingurinn ! stuði og braskarinn Htur hann hýru auga.
Herra Reykjavík sýnir beztu hliðarnar (og vöðvana) en æskan biður aftast
i biðröðinni og á litla von um að komast inn í skemmtigarð þjóðarinnar.
skrapp suður i Tívolí á dögunum og beindi Ijósnæmum augum
sínum að Stuðmönnum i heimsókn þar. Þeir félagar klæddust
gervum sögupersónanna á plötunni (og vöktu óblandna kátinu
starfsmanna Hafskips, sem hefur vörugeymslur 5 Tívolí).
Árangurinn af myndatöku Friðþjófs Helgasonar sést hér.
Hinir ólánssömu, sem ekki hittu Stuðmenn í Tivolí, ættu að
rölta á Lækjartorg klukkan þrjú i dag, ef veðurergott, þvi að þar
hyÐOjast Stuðmenn kynna plötuna á útihljómleikum, ef veður-
guðirnir leyfa. Sólskin væri vel þegið, enda man Slagbrandur
bara eftir sólskini í Tivolí forðum daga, þegar lifið var leikur.
Stiginn dans í Vetrargarðinum (sáluga)
PLötuhulstrið endurtekið
Herinn og þjóðin togast á um fjallkonuna.