Morgunblaðið - 19.09.1976, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1976
Helgi Kristjánsson
vélsijóri—Minning
F. 20. september 1904.
D. 9. september 1976.
Á morgun verður til moldar
borinn, á afmælisdegi sinum,
Helgi Kristjánsson, vélstjóri, til
heimilis að Reykjavíkurvegi 31
hér í borg.
Helgi Thorberg Kristjánsson,
eins og hann hét fullu nafni, var
fæddur í Ólafsvfk 20. sept. árið
1904.
Foreldrar hans voru þau hjónin
Kristján Kristjánsson, bátasmið-
ur frá Ytra-Skógarnesi á
Snæfellsnesi, f. 4. ágúst 1871, d.
22. jan 1944, Gíslasonar bónda og
hreppstjóra. Móðir hans var
Helga Ingibjörg Helgadóttir,
fædd 27. júni 1884, d. 20. október
1904 i Ólafsvík, Árnasonar,
bónda, sjómanns og hreppstjóra í
Breiðavfkurhreppi. Helga var
fædd í Gíslabæ á Hellnum á Snæ-
fellsnesi.
Sem ráða má af framansögðu
missti Helgi móður sina fárra
vikna gamall. Var honum komið í
fóstur hjá föðurbróður sinum
Gisla Kristjánssyni og Jóhönnu
konu hans í Ytra-Skógarnesi f
Miklaholtshreppi, en þar ólst
hann upp til 17 ára aldurs og taldi
sínar æskustöðvar upp frá þvi.
Helgi óslst upp í fagurri sveit,
innanum búfé, fugl og sel, með
tilkomumikinn fjallgarð á aðra
hlið og svarrandi brim á hina.
Hvort hann hefur verið með
miklar spurningar inn á sér þá, til
að mynda hvers vegna móðir hans
tvítug var tekin frá fjögurra
vikna barni, vitum við ekki, en
við vitum að hann náði sáttum, og
unni þeim stað mest hvar hann
gekk sín fyrstu spor.
17 ára gamall hóf Helgi
Kristjánsson sjómennskuferil
sinn og reri til fiskjar á vertíðum
og i annan tíma þegar færi gafst,
og varð sjómennskan lífsstarf
hans upp frá því, að vísu með
nokkrum hléum, en þá við störf
tengd sjósókn og sjávarafla.
Helgi Kristjánsson var einn
þeirra manna er allt lék í höndun-
um á. Hann mun snemma hafa
byrjað að hyggja að vélum, sem
voru að leysa menn undan árum
þar vestra í þann mund er hann
kom til starfa á sjónum, og árið
1927 lauk hann mótornámskeiði
Fiskifélags Islands, I. stigi, og
rúmum áratug sfðar, eða árið
1938, lauk hann Mnsk.II við sömu
stofnun, og varð vélstjórn starf
hans upp frá því.
Mótornámskeið Fiskifélagsins
voru ef til vill ekki sú ákjósanleg-
asta fræðsla, sem unnt var að
veita í vélfraæði, enda hefur því
kennsslukerfi nú verið kastað fyr-
ir róða og annað tekið upp, en
sjómenn eru þó sammála um það
að vel gefnir, hagir menn, sem
náttúru höfðu fyrir vélar hafi
komið þaðan með mikinn feng og
ágæta undirstöðu, sem sfðar var
unnt að bæta við i starfinu á
sjónum. Það var Þorsteinn Lofts-
son, vélfræðingur frá Krossi
(1890—1961), sem veitti nám-
skeiðum þessu forstöðu, en hann
var vélfræðiráðunautur Fiski-
félagsins frá 1931—1961. Var
Þorsteinn hinn merkasti maður,
Iærður vel f sínum fræðum, en
hafði auk þess mikla reynslu frá
sjónum og þvf fullfær um að
miðla þvi nauðsynlegasta, þrátt
fyrir skamman námstíma á vél-
stjóranámskeiðunum. Þorsteinn
samdi einnig kennslubækur, sem
þykja hinar merkustu.
Þorsteinn Loftsson var glöggur
á mannsefni, og hann fékk oft til
liðs við sig, við vélfræði-
kennsluna, menn sem skarað
höfðu framúr við nám og smíðar.
Menn sem höfðu þetta í sér að
sunda vélar og halda þeim gang-
færum. Einn þessara manna var
Helgi Kristjánsson, en honum var
falið að gangast fyrir fjölda
mótornámskeiða viðs vegar um
land á árunum 1942—1957 og
þótti Helgi góður kennari og naut
hann vinsælda hjá nemendum
sínum, sem voru fjöldamargir.
Segir þetta sfna sögu af hæfileik-
um hans. Var Helgi óþreytandi
við að auka þekkingu sfna og las
allt sem hann komst yfir um vél-
fræði og hélt þeim sið svo lengi
sem hann fylgdi fötum. Varð
þetta til þess að hann náði góðum
tökum á fagi sínu og varð eftir-
sóttur til starfa. Hann var einn af
stofnendum Mótorvélstjórafélags
Islands á sfnum tíma og ávallt
traustur félagsmaður þar.
Árið 1930, 11. október, gekk
Helgi að eiga eftirlifandi konu
sina, Kristínu Jónsdóttur, Helga-
sonar, bónda á Bjargi við Hellna
og Sveinbjargar Pétursdóttur.
Kristín var fædd á Búðum á Snæ-
fellsnesi. Jón Helgason, faðir
Kristínar, var bróðir Helgu Ingi-
bjargar, móður Helga, og voru
þau hjón því systkinabörn.
Þau Helgi og Kristín bjuggu
fyrstu búskaparár sfn á Akureyri,
en árið 1938 fluttust þau til Siglu-
fjarðar, sem þá var miðstöð sfld-
veiðanna fyrir Norðurlandi. Helgi
vann við síldariðnaðinn, fyrst sem
vélstjóri á skipum og sfðan sem
vélstjóri við Sfldarverksmiðjur
ríkisins á Siglufirði, en hann
starfaði þar frá 1944—1952, er
síldin hvarf.
Helgi var mikið fjarverandi frá
heimilinu á þessum árum, eins og
sjósókn var háttað þá, og töldu
þau hjón því hagkvæmara að
flytja bú sitt til Siglufjarðar, sem
þá var heimahöfn svo til allra
síldarskipa, þótt skrásett væru í
öðrum umdæmum. Á vetrum
starfaði Helgi svo við mótornám-
skeiðin, sem að framan greinir,
en áður reri hann á vetrarvertíð-
um suður með sjó, sem þá var
siður.
Árið 1952 fluttust þau Helgi og
Kristín til Reykjavfkur og bjuggu
þar og f Kópavogi upp frá því.
Atvinnuleysi var þá á Siglufirði
og ekki annað í rauninni að gera
en flytja sig til, þar sem atvinna
var meiri.
Stundaði Helgi upp frá þvi sjó-
mennsku á skipum Skipaútgerðar
ríkisins og á varðskipunum, en í 3
ár var hann vélstjóri á b.v. Jóni
Þorlákssyni.togara Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur. Seinustu
árin var hann vökumaður hjá
Hafskipi hf. þar sem hann deildi
gæslustörfum við annan kunnan
vélstjóra, Guðfinn Þorbjörnsson.
Þau Helgi og Kristín voru far-
sæl í búskap sfnum. Oft reyndi
mikið á konuna, eins og aðrar
sjómannskonur, þegar menn
þeirra þurftu f sífellu að elta
vinnu sína f fjarlæga landhluta,
oft mánuðum saman, en það bless-
aðist vel, þótt oft væri erfitt. Einu
sinni kom hann t.d. ekki heim í 13
mánuði vegna vinnu sinnar.
Helgi átti við talsverða van-
heilsu að strfða. Fékk til að
mynda heilablóðfall innan við
fimmtugt og Iamaðist þá mikið, en
tókst með dæmafáu þreki og elju
að ná starfsheilsu á ný, og fór til
sjós eftir það og hvaðeina, og
hann vann sfna vinnu þar til fyrir
tveim árum er heilsan bilaði og þá
fyrir fullt og fast. Var hann eftir
það stöðugt rúmliggjandi að heita
má og seinasta hálfa árið sem
hann lifði dvaldi hann á sjúkra-
húsi, þar sem hann svo lést 9.
september síðastliðinn.
Börn þeirra Helga Kristjáns-
sonar og Kristfnar Jónsdóttur
urðu fjögur talsins, en þau eru: 1)
Kristín, f. 1931, gift Reinhard
Sigurðssyni, verkstjóra. 2) Jón, f.
1932, vélstjóri, kvæntur Aðalheiði
t
Útför eigmmanns míns. föður, tengdaföður og afa okkar,
EINARS J EINARSSONAR,
fyrrv. verkstjóra,
Bergþórugötu 9,
fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 21 september kl 3e.h
Þeim sem vilja mmnast hans er bent á líknarstofnanir
Fyrir mína hönd og annara vandamanna, . „
Asta Guðjónsdóttir.
t
Þökkum innilega hluttekningu víð fráfall og útför. móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR.
Skólabrú 2,
Stefán Ólafsson, Kolbrún Ólafsdóttir,
Þorsteinn Ólafsson, Ólöf Vilmundardóttir.
Ólafur Ólafsson. Elsa Einarsdóttir,
og barnabörn.
t
Inmlegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar
GUÐMUNDAR PÁLSSONAR,
frá Húsafelli.
Ástrfður Þorsteinsdóttir
og börn.
t
Móðir okkar og tengdamóðir
ELÍN MELSTEÐ
Freyjugötu 42,
verður jarðsett frá Dómkirkjunni þriðjudagmn 2 1 þ m kl 1 30
Inga Melsteð Borg Ragnar Borg
BogiTh. Melsteð Ingibjörg Melsteð.
t Útför t
FRIÐRIKS EINARS BJÖRGVINSSONAR, Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa.
húsgagnabólstrara. FRIORIKS STEINSSONAR,
fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 21 september kl 13 30 fyrrv. skipstjóra.
Hagamel 45,
Aðstandendur. ferframfrá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21 sept kl 10:30árdegis
Anna Marta Guðnadóttir,
Birna Gunnhildur Friðriksdóttir,
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda' t samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför sonar míns, föður, tengdaföður, bróður og mágs.
ÞORGEIRS GUÐMUNDSSONAR
Digranesvegi 38
Kópavogi.
Anna Sumarliðadóttir, Herdis Ragna Þorgeirsdóttir,
Gunnar Guðmundsson, Frímann Kristinn Sigfnundsson,
Bryndís Stefánsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir, Leifur Guðmundsson,
Stefán Stefánsson, Valgerður Gunnars.
Sigurður Grétar Guðmundsson, Ólafur Guðmundsson.
Helga Harðardóttir. Elisabet Svavarsdóttir.
t
Einlægar þakkir sendum við fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför, eiginmanns míns, föður okkar, tengdasonar og bróður
GUOBJÖRNS GÍSLA BALDVINSSONAR,
Stórahjalla 1 7.
Guðbjörg Þorgeirsdóttir,
Þorgeir Guðbjörnsson, Snjólaug Baldvinsdóttir,
Baldvin Guðbjörnsson Hólmfrtður Guðsteinsdóttir,
Hólmfriður Guðbjörnsdóttir, Þorgeir Þórðarson, _
og systkini.
Guðmundsdóttur. 3) Kristján,
stýrimaður, f. 1934, kvæntur
Björgu Jónsdóttur. 4) Jóhannes,
útvarpsvirkjameistari, f. 1936,
kvæntur Fríðu Sigurveigu
Traustadóttur.
Helgi Thorberg Kristjánsson er
nú allur. Hér hafa verið rakin
fáein spor úr sögu hans og lífs-
hlaupi.
Hún er sömu ættar og svipar til
sögu margra íslenskra sjómanna,
er við erfið kjör komust til
manns. Helgi fór einn af stað út í
heiminn, viðskila við unga móður,
þá mánaðar gamall og einn fer
hann líka í sína hinstu för. Lokið
er í einni svipan langri sögu, at-
vinnusögu, sögu um kreppu, at-
vinnuleysi, og sögu um nýja von.
Félagar hans kveðja hann með
trega og minnast hans með sjálf-
um sér, og við sendum nú konu
hans og börnum góðar kveðjur og
þökkum honum samfylgdina.
Gamlir félagar.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á 1 mið-
vikudagsblaði, að berast 1 sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera 1 sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera véiritaðar og með góðu
lfnubili.
t
Af heilum huga þakka ég öllum,
þeim, sem veittu mér og fjöl-
skyldu mirmi aðstoð og samúð
vegna veikinda og fráfalls kon-
unnar minnar,
GUÐRÚNAR
GUÐMUNDSDÓTTUR
Erlendur Gíslason,
Dalsmynni.
t
Þökkum innilega sýnda samúð
við andlát og útför mannsins
míns og föður okkar,
MAGNÚSARBERGMANNS
SIGUROSSONAR,
Reynimel 80.
Nanna Pétursdóttir,
Ásta Margrét,
Ástríður Svava,
Berglind.
t
Minningarathöfn um móður
mína
GUÐRÚNU MARÍU
JÓNASDÓTTUR
frá Björk i Grimsnesi
fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 20 september n.k
kl 10 30f h
Jarðað verður að Klausturhólum
í Grímsnesi
Karl Hafberg.
t
Maðurinn minn,
HELGITHORBERG
KRISTJÁNSSON,
vélstjóri frá Siglufirði,
Reykjavíkurvegi 31.
Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 20 septem-
berkl 13:30
Þeim sem vildu minnast hans, er
vinsamlega bent á Slysavarnarfé-
lag íslands
Kristin Jónsdóttir.