Morgunblaðið - 19.09.1976, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1976
41
fclk í
fréttum
Skammast sín ekki
fyrir skapnaðinn
+ Það er ekki aðeins á lslandi
sem konur láta að sér kveða og
koma saman til að leggja
áherzlu á sfn mál. Danska rauð-
sokkuhreyfingin efndi fyrir
nokkru til mikillar kvennahá-
tfðar sem fram fór f Fælled-
parken f Kaupmannahöfn og
þar voru saman komnar
30—40.000 konur. Hátfðin fór
fram með pomp og prakt, söng
og hljómlist, ræðuhöldum og
öðrum skemmtiatriðum og
karlmönnum var ekki bannað-
ur aðgangur. Eins og sjá má á
þessum myndum frá hátfðinni
standa danskar rauðsokkur
stöllum sfnum fslenzkum
miklu framar f hispursleysi og
hvers kyns frjálsheitum enda
segjast þær ekkert þurfa að
skammast sfn fyrir skapnaðinn
— og hver er- ekki sammála
því?
Móna og Marty
+ Enski gamanleikarinn
Marty Feldman, sem þykir
allt annað en smáfríður, hef-
ur löngum verið í miklu
uppáhaldi hjá Ijósmyndurum
og nú hafa listmálarar einnig
fallið fyrir þeirri sérstæðu
fegurð sem lesa má út úr
andlitsdráttum Martys.
Svissneski málarinn Júrg
Húgi hefur nú bætt þessari
mynd í það mikla safn eftir-
líkinga af Mónu Lisu, sem til
er, og kaltar myndina
„Marty-Lisa".
+ Einkaritarinn Elizabeth
Ray, sem mikið hefur verið í
fréttum vegna áhugasíns á
stjórnmálum — og stjórn-
málamönnum — er nú að
gefa út ævisögu sína og það
er móðir hennar sem skrifar
hana. Segir móðir hennar, að
Betty Lou (eins og Ray heitir
réttu nafni) hafi sem barn
ávallt gengið með biblíuna í
skólatöskunni og h'aldið mik-
inn reiðilestur yfir þeim
bekkjarfélögum sínum sem
hafði orðið það á að syndga.
Svo
bregðast
krosstré
+ Lafði Elizabeth Clarke, sem
er formaður nefndar, sem vinn-
ur að auknu umferðaröryggi f
Englandi, var fyrir nokkrum
dögum ákærð fyrir mjög
glannalegan akstur undir áhrif-
um áfengis. Lögreglumenn á
bifreið mættu lafðinni þar sem
hún ók eftir einstefnuaksturs-
götu — f öfuga átt — og það var
aðeins snarræði bflstjórans að
þakka að komizt varð hjá
árekstri. Við læknisrannsókn
reyndist frúin hafa þrisvar
sinnum meira áfengismagn f
blóðinu en leyfilegt var. 1 rétt-
inum lýsti Elizabeth yfir sak-
leysi sfnu og sagðist aðeins
hafa drukkið tvö glös af gini og
eitt af kampavfni þennan dag.
FYRSTA FLOKKS
RÚGMJÖL
FÆST í NÆSTU BÚÐ
Date Carnegie
Hérna getur þú
dæmt um það, hvort
Dale Carnegie
námskeiðið gæti
komið þér að gagni.
Til þess að gera þ<jtta og
áður en þú þiggur boð
okkar, að koma á kynning-
arfund, legg ég til, að þú
spryjir sjálfan þig eftirfar-
andi spurninga:
Vilhjálmur Konráð
Vilhjálmsson Adolphsson
kennari skólstjóri
Stjórnunarskólinn hefur hlotið
verðlaun í alþjóða samkeppni
Carnegie manna. þrjú ár i röð,
fyrir árangur i kennslu og starfi.
if Óskar þú þess oft. að'þú hefðir betra starf?
★ Ef þú ert ekki stöðugt að bæta við þig i starfi, hefur þú kjark til
þess að ræða málin við yfirmann þinn?
★ Ef yfirmaður þinn biður þig, að takast á hendur meiri ábyrgð,
ert þú fær um að segja já, strax i stað þess að hugsa „Skyldi ég
geta þerra"?
★ Hefur þú nauðsynlega sjálfsstjórn til þess að geta tekið
ákvarðanir?
★ Geturðu tjáð þig af öryggi i samræðum eða á fundum?
★ Finnst konunni þinni (eða eiginmanni) að þú sért „karl i
krapinu" og þið lifið hamingjusömu fjölskyIdulífi?
i( Finnst þér þú hafa of miklar áhyggjur?
i( Er öll sú ánægja og hamingja i lifi þínu. sem ætti að vera?
tA Vilt þú frekar hlaupa einn kilómeter heldur en „standa upp og
segja nokkur orð?
★ Hefur þú stjórn á hlutunum. þegar allt fer úr skorðum?
★ Getur þú fengið fjölskylduna. vini og samstarfsmenn til að
gera það fúslega. sem þú stingur upp á?
64 ára reynsla okkar segir, að vandamál sem þessi, skapa truflun
og draga úr afköstum heima og i starfi. Ef að við getum losað okkur
við þau, verður lifið þýðingarmeira og ánægjulegra.
Dale Carnegie námskeiðin hafa hjálpað tveimur milljónum manna
og kvenna i 50 löndum og eru þátttakendur úr öllum stéttum
þjóðfélagsins frá 15—75 ára. Allir þátttakendur hafa eitt sameig-
inlegt og það er ósk um meiri hæfni og framfarir.
ÞÚ GETUR SJÁLFUR DÆMT
um það hvernig Dale Carnegie námskeiðið getur hjálpað þér og
hvernig það hefur aðstoðað fjölda manns að fá stöðuhækkun. hærri
tekjur, viðurkenningu og meiri hamingju út úr IHinu.
Þú munt heyra þátttakendur segja frá þvi, hversvegna þeir tóku
þátt í námskeiðinu og hver var árangurinn.
Þú ert boðinn ásamt vinum og kunningjum, að lita við hjá okkur,
án skuldbindinga eða kostnaðar. Þetta verður fræðandi og
skemmtilegt kvöld er gæti komið þér að gagni. í DAG ER ÞITT
TÆKIFÆRI.
Kynningarfundurinn verður haldinn þriðjudaginn 21. september kl.
20.30 að Siðumúla 35 uppi.
Dale Carnegie námskeiðin
Einkaleyfi á íslandi
STJÓRNUNARSKÓLINiy
Konráð Adolphsson.
SÍMI 82411