Morgunblaðið - 06.11.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1976
19
i
sitt því heimili og sinnu kæru
sveit. Villa á Hellum var um ára-
bil ljósmóðir sveitar sinnar og
kom því í hennar hlut að taka við
þeim börnum er fæddust á fyrri
tugum þessarar aldar í Landsveit
og mun ég vera einn þeirra.
Þeim fækkar nú óðum I sveitum
þessa lands, sem fæddir eru
nokkru fyrir aldamót og hafa háð
sina lífsbaráttu út um hinar
dreifðu byggðar. Villa á Hellum
var ein þeirra kjarnakvenna er
ekki lét deigan síga og mun hafa
staðið fyrir stóru og mannmörgu
heimili frá þvi er hún sjálf stofn-
aði heimili, og siðast nú með syni
sinum Filippusi, fram undir það
er hún var brott kvödd héðan úr
heimi. Þetta tímabil er um margt
merkilegt á okkar tímum, þar sem
segja má að bylting hafi orðið á
öllum sviðum þjóðlifs, gömlu
tækin, sem fólkið notaði við störf
sín lögð til hliðar og ný tækni
tekin í þjónustu sína i sveitum,
bæði utan- og innanhúss. Heimilið
á Hellum i tið Magnúsar Jóns-
sonar frá Björgum í Kinn, manns
hennar, er látinn er nú fyrir
nokkrum árum, var ávallt til
fyrirmyndar. Þar var byggt á
traustum grunni, vökul augu
þeirra hjóna fylgdust vel með þvi
sem var að gerast umhverfis þau
og voru f fararbroddi að tileinka
sér hinar ýmsu framfarir, er
samtið þeirra bauð uppá.
Samtíðarmenn Villu á Hellum
munu ljúka upp einum munni um
ágæti þessarar ljúfu og hlýlegu
konu, sem jafnframt bar með sér
sterkan persónuleika og höfðings-
brag. Sveatungar og samtiðar-
menn fyrr og siðar kveðja að
leiðarlokum Villu með þökk. Hún
er.verðugur fulltrúi þeirrar kyn-
slóðar, er kennd er við aldamót og
skilað hefur landi voru og þjóð til
þess vegar, sem það er nú statt á
og komandi kynslóðir munu njóta
um ókomin ár. Það er fyrir þraut-
seigju þessarar kynslóðar meðal
annars, að tekist hefur að þoka
áfram ýmsum góðum og þörfum
málum, sem þjóðinni hefur orðið
til heilla og samtíð okkar byggir
framtfð sina á.
Um leið og við þökkum Villu á
Hellum samveruna hér i heimi
vildum við óska þess, að land vort
ætti sem flestar slíkar konur.
Börnum Villu á Hellum votta ég
samúð mina svo og öldruðum
systkinum hennar, Arnýju óg
Björgvin, og venslafólki.
S. J.
Hún var fædd að Hellum i
Landsveit 23. ágúst 1891, dóttir
hjónanna Filippusar Guðlaugs-
sonar, bónda og Ingibjargar Jóns-
dóttur, ljósmóður, er þar bjuggu
allan sinn búskap. Villa, eins og
hún var ætið nefnd, ólst upp á
Hellum á góðu heimili foreldra
sinna í hópi efnilegra systkina og
fóstursystkina. Hun giftist
Magnúsi Jónssyni, miklum
ágætis- og dugnaðarmanni, sem
Framhald á bls. 23
Ingibjörg Filippusdótt-
ir Hellum — Minning
Fædd 23. ágúst 1891.
Dáin 24. október 1976.
1 dag kveðja vinir og vanda-
menn hinstu kveðju Ingibjörgu á
Hellum, þar sem hún var borin og
barnfædd og unni sínum æsku-
stöðvum. Hún andaðist að heimili
sinu 24. október s.l. 85 ára á aldri.
Hún var dóttir merkishjónanna
Ingibjargar Jónsdóttur og Filipp-
usar Guðlaugssonar. Þau hjónin
eignuðust 4 börn það ég best veit.
Vilhjálm, sem dó í bernsku, en
systur sína lifa Árný og Björgvin.
5 fósturbörn ólu þau upp og eru
þau öll látin. Ingibjörg lærði, ljós-
móðurfræði í Reykjavfk, og tók
við því starfi af móður sinni. Hún
var ljósmóðir hér í sveit í nær 50
ár. Ingibjörg giftist Magnúsi
Jónssyni, ættuðum frá Björgum í
Köldukinn. Hann lést 2. marz
1972.
Ingibjörg og Magnús eignuðust
4 börn, sem öll lifa foreldra sína
og bera þeim fagurt vitni. Þau
eru: Guðrún, Hlöðver Fillippus,
Áskell og Ingibjörg og fóstur-
dóttir þeirra Lilja Eiríksdóttir.
Margar minningar koma í huga
mér þegar mikilhæf kona hefur
lokið sínum starfsdegi, þó fátt eitt
verði af því talið hér. Fyrst minn-
ist ég hennar sem barn. Foreldrar
mínir bjuggu búi sínu í Raftholti í
Holtum. Pabbi lagði á hesta sína á
sunnudagsmorgni, og ætlaði að
Skarði til foreldra sinna. í fyrsta
sinn átti ég að fá að fara til afa og
ömmu. Við vorum komin að
Skarði áður en fólk gekk í kirkju.
í þá daga var embættað kl. 12 á
hádegi. Þá sá ég Ljósu fyrst, eins
og við nágrannar hennar kölluð-
um hana oft. Hún hallaði sér að
innsta glugganum í gömlu Skarðs-
kirkju, og söng þar með sinni
fallegu sópranrödd. Ég minntist á
þetta við hana síðar. Sagði hún þá
að hún hefði verið látin syngja í
kirkjunni frá þvi hún var 13 ára
gömul. Hún hafði alla tið mikið
yndi af tónlist, og í Skarðskirkju-
kór söng hún á meðan hún hafði
heilsu til. Þvi næst minnist ég
Ingibjargar á Hellum, er foreldr-
ar mínir höfðu flutt að Haga í
Holtahreppi. Móðir min hafði
tekið léttasótt. Lítil telpa kúrði f
rúmi sinu i lítilli baðstofu og
kannski hefur hún tekið þátt í
þjáningum móður sinnar. En fyrr
en varði stóð kona á reiðfötum
inni á gólfi, með gleðibros á vör
og glampa í augum. Er mér alltaf
ógleymanlegt hvað mér þótti hún
falleg, og baðstofan stærri og
bjartari. Tveimur árum síðar
fluttum við að Skarði og hef ég
síðan alltaf verið.í góðu nágrenni
við þessa göfugu og góðu konu.
Hjá hjónunum á Hellum var oft
mannmargt. I fjölda ára var þar
farskóli. Þangað gekk ég í skóla
og á þaðan margar góðar minning-
ar frá þeim árum. Seinna var þar
heimavistarskóli. Fimm af mínum
börnum litu dagsins ljós i hönd-
um hennar. Það var lærdómsríkt
að hafa svo einlæga trúkonu hjá
sér á þeim stundum. Þeir tímar
eru nú liðnir að ljósmæður þessa
lands þeysi á fáki yfir hjarn. En
kannski munu þeir tímar koma að
það þyki eðlilegra mæðrum að ala
börn á sinum heimilum.
Félagslynd kona var Ingibjörg
og tók virkan þátt í félagsstörfum
hér í sveit. Formaður kvenfélags-
ins var hún frá stofnun þess i
mörg ár. Formaður slysavarna-
deildar um áratugi og í ung-
mennafélaginu Merkihvoli hefur
hún að sjálfsögðu verið félagi frá
stofnun þess. Hverju góðu mál-
efni lagði hún lið, og gladdist yfir
góðu gengi fólks. Hún var dugleg
og vinnusöm svo aldrei féll henni
verk úr hendi. Hún átti þvi láni að
fagna að geta starfað meðan dag-
ur entist. Síðustu tvo til þrjá
mánuði lá hún rúmföst á heimili
sínu umvafin umhyggju barna
sinna og barnabarna. Um þá
móðurást og umhyggju sem
Hlöðver sonur hennar hefur sýnt
í sinu starfi á ég engin orð, sem
því geta lýst, en segi hér það sem
hún sagði sjálf við mig eftir að
aldur færðist yfir þau hjónin og
Hlöðver annaðist þau: „í himna-
ríki getur mér ekki liðið betur."
Hennar ævikvöld var fagurt eins
og sólarlagið er oft vestan undir
Skarðsfjalli.
Nú er hún horfin yfir landa-
mæri, sem skilja lif og dauða. Ég
og fjölskvlda mín þökkum henni
allt, sem hún hefur fyrir okkur
gjört. Við vottum börnum,
tengdabörnum, barriabörnum og
aldurhnignum systkinum hennar
okkar dýpstu samúð.
Blessuð sé minning þín.
Guðrún Sigrfður Kristinsdóttir.
I dag verður til moldar borin að
Skarði í Landsveit Vilhelmina
Ingibjörg Filippusdóttir ljósmóð-
ir Hellum á Landi. Mig langar að
minnast þessarar sómakonu með
nokkrum orðum.
Villa á Hellum, eins og sveit-
ungar hennar kölluðu hana er
fædd 23. ágúst 1891 að Hellum og
ólst þar upp og hefur helgað lif
Notalegt umhverfi og bar hafa
líka sitt aö segja. Komiö — sjáiö
og reyriið hvort nokkur staöur
þessum líkur finnst í landinu.
Blómasalurinn á Hotel Loftleiðum
hefur á boðstólum kalt borð sem
þú ættir aö reyna ef þú ert ekki
viss.
Hvergi gefst betri kostur á aö
velja einmitt þaö sem kitlar
bragölaukana mest. Og auk kalda
borösins er framreiddur matur
eftir fjölbreyttum matseöli.
Opiö daglega frá kl. 12
19 - 22.30
14.30 og
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Simi 22322