Morgunblaðið - 12.12.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1976
Jólasveinar
og jólatré
á Austurvelli
KVEIKT verður á jólatrénu á Austur
velli ! dag, en tréð er gjöf frá Óslóar-
búum. Athöfnin á Austurvelli hefst
kl. 15.30 með leik Lúðrasveitar
Reykjavlkur undir stjórn Þorvalds
Steingrlmssonar. Olav Lydov, sendi-
herra Noregs hér á landi, mun af-
henda tréð, en Birgir ísleifur
Gunnarsson borgarstjóri veita þvl
viðtöku. Athöfninni lýkur með þvl að
Dómkórinn syngur jólasálma.
Við þetta tækifæri munu lika jóla-
sveinarnir sýna sig undir forustu Aska-
sleikis og fólki á Austurvelli er ráðlagt
að beina augum að þökum ísafoldar-
húsanna, því að þar munu jóla-
sveinarnir birtast og vafalítið hafa ein-
hverjar kúnstir I frammi
Nokkrir gestanna við afhendingu höggmyndarinnar af séra Finn
Tuiiníus f I.istasafni islands í gær. Frá vinstri: Biskupinn yfir tslandi,
herra Sigurbjörn Einarsson, Sigurjón Ólafsson myndhöggvari, með
hönd á ungdómsverki sínu, séra Finn, Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra, dr. Selma Jónsdóttir og forseti islands, herra
Kristján Eldjárn. Ljósmynd Mbl. ÓI.K.M.
Höggmynd af sr. Finn
Tuliníus í Listasafnið
Einn naglinn enn rekinn í pólitíska
líkkistu Alþýðuflokksins á ASÍ-þingi
- segir Sigurður Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri fuUtrúaráðs verka-
lýðsfélaganna i Rangárþingi
„UPFDRATTARSJUKDÓMUR
sá, er hrjáð hefur Alþýðuflokk-
inn hin sfðari ár er engan til-
viljun,“ sagði Sigurður Óskars-
son hjá Fulltrúaráða verkalýðs-
félaganna f Rangárþingi, er
Morgunblaðið ræddi við hann f
gær um ASl-þing, sem er nýaf-
staðið. „Flokknum, sem kalla
vill sig verkalýðsflokk er
stjórnað af valdagráðugum at-
vinnupólitfkusum, sem ekkert
þekkja til aðstöðu og kjara
verkafólks f landinu. Þessir
forystumenn Alþýðuflokksins
héldu f spottana á fstöðulitlum
fulltrúum Alþýðuflokksins á
ASl-þinginu allan tfmann og
kipptu þeim f þinglok niður f
gryfjuna til kommúnista."
„Þetta er ekki i fyrsta sinn,
sem sósíaldemókratar gerast
bandamenn kommúnista, en
reynslan af slíkum bandalögum
hefur ævinlega verið sú, að
kommúnistar ýmist svíkja
bandamenn sina eða gleypa þá.
Vissulega köstuðu kommúnist-
ar grímunni á ASl-þinginu, en
sú grima var slitin og allir vissu
eða áttu að vita, hvað á bak við
hana var. Alþýðubandalaginu
er þvi miður ekki stjórnað af
forystumönnum úr verkalýðs-
hreyfingunni, þvf er stjórnað af
harðlínumönnum, sem láta sig
ekkert varða hag hins almenna
verkamanns. Þessir forystu-
menn stjórnuðu eða skipulögðu
aðförina að lýðræðissinnum á
ASl-þinginu og hinir raunsærri
fulltrúar flokksins í verkalýðs-
hreyfingunni fengu þar ekki
rönd við reist.“
,,Hin svokallaða órólega deild
með Björgvin Sigurðsson á
Stokkseyri í broddi fylkingar
hóf leikinn með því að veitast
Sigurður Óskarsson
að þeim verkalýðsforingjum Al-
þýðubandalagsins, sem lýðræð-
islegt samstarf vildu hafa á
breiðum grundvelli innan Al-
þýðusambandsins. Arás komm-
únista á lýðræðissinna innan
verkalýðshreyfingarinnar var
þrautskipulögð og vandlega
undirbúin, en árangurinn hlaut
þó að sjálfsögðu að vera undir
ístöðuleysi og þjónkun Alþýðu-
flokksleiðtoganna komin. I
slíku bregst sá flokkur auðvitað
ekki og því fagna kommúnistar
nú sigri, en Alþýðuflokksmenn
eru að byrja að skammast sin.
Mín skoðun er sú, að átökin
milli fulltrúa kommúnista og
lýðræðissinna á ASl-þinginu
eigi eftir að segja til sin á marg-
víslegan hátt. Þrýstingur öfga-
aflanna innan Alþýðubanda-
lagsins á fulltrúa flokksins f
miðstjórn ASI mun aukast, en
vandséð er hve lengi verkalýð-
foringjarnir una því, hve lengi
þeir láta segja sér fyrir verk-
um. Afstaða fulltrúa Alþýðu-
flokksins á ASÍ-þingi er auðvit-
að einn naglinn enn í pólitiska
lfkkistu flokksins."
Þá sagði Sigurður:
„Átökin á ASl-þingi og úrslit
kjörs til miðstjórnar munu
styrkja samvinnu þeirra
Framhald á bls. 17
FORSETI tslands, herra Kristján
Eldjárn, afhenti Listasafni Is-
lands 1 gær gjöf sem hann hafði
verið beðinn um að koma til
safnsins frá íslenzk-danska prest-
inum og Islandsvininum Finn
Tulinius, en Finn hefur lagt Is-
landi lið á margan hátt. M.a. gaf
hann á sfnum tfna allgott bóka-
safn til Skálholtsbókasafnsins og
einnig gaf hann Skálholti altaris-
töflu sem hann skar út sjálfur.
Hangir taflan f turni Skálholts-
kirkju.
Að þessu sinni gaf Finn Lista-
safni islands höfuðmynd sem Sig-
bjarga lögregluhjólunum litið
skemmdum út. Neisti frá platín-
unni mun hafa hrokkið í bensin,
en hjólið var ekki í gangi. Skipti
engum togum að á örfáum
sekúndum varð verkstæðið alelða
og m.a. sprakk bensínkúturinn á
mótorhjólinu. Tveir mannanna á
verkstæðinu gátu hlaupið út um
hliðardyr, en einn maðurinn lok-
aðist inni í verkstæðinu og varð
að brjóta upp aðaldyr til þess að
bjarga honum út. Slapp hann
ómeiddur, Verkstæðið skemmdist
talsvert af eldi og vatni.
Askasleikír — foringi jólasveinanna
á Austurvelli á morgun.
urjón Ólafsson myndhöggvari
gerði af Finn á námsárum Sigur-
jóns í Höfn.
Séra Finn Tulinius var prestur
í Strö á Sjálandi í liðlega 30 ár, en
sáðar var hann prestur i Kaup-
mannahöfn. Hann hefur löngum
haft mikið samband við Islend-
inga, en faðir hans var Þórarinn
Tuliníus kaupmaður og skipa-
miðlari.
Eldsvoði á mótorhjólaverkstæði lögreglu;
Starfsmennirnir
sluppu naumlega út
ÞETTA eru Palli litli og álfa-
stúlkan, úr brúðuleikhúsinu á
Frfkirkjuvegi 11, en undanfarið
hefur það haft þar sýningar á
brúðuleikritinu „Jólasveinar
einn og átta.“ Verða sýningar á
þvf í dag, sunnudag, kl. 3 og eru
þetta sfðasta sýningin fyrir jól.
Sfminn I miðasöíunni á Frf-
kirkjuvegium er 13759.
í bakhúsinu á miðri mynd er mótorhjólaverkstæðið sem brann.
Ljósmynd Mbl.ÓI.K.M.
SLÖKKVILIÐ Reykjavfkur var
kvatt að Hverfisgötu 32 f fyrra-
dag, en þá var eldur laus f mótor-
verkstæði K. Jónssonar, en þar er
m.a. gert við mótorhjól lögregl-
unnar f Reykjavfk. Talsverðar
skemmdir urðu á húsnæði, en
þrfr menn sem voru við viðgerðir
á verkstæðinu sluppu naumlega
út.
Eldurinn kom skyndilega upp
þar sem verið var að stilla platin-
urnar á einu af f jórum mótorhjól-
um sem voru inni á verkstæðinu.
Hjólið, sem var eina hjólið sem
lögreglan átti ekki, eyðilagðist í
eldsvoðanum, en unnt reyndist að
Ritverk og starfs-
áætlun höfunda eru
lögð til grundvallar
Engum stjómarmanna kunnugt um ágrein-
inginn út af upplýsingum um tekjur
VEGNA umræðna, sem orðið
hafa um spurningar á um-
sóknareyðublaði frá Launa-
sjóði rithöfunda, vill stjórn
sjóðsins taka þetta fram:
Með skipunarbréfi fékk
stjórnin i hendur lög og reglu-
gerð um Launasjóð rithöfunda,
en ekki önnur gögn. I 2. grein
reglugerðarinnar er þetta sagt
um umsóknir: „I umsókn skal
getið verka sem höfundur hef-
ur látið frá sér fara eða vinnur
að. Að öðru leyti ákveður sjóð-
stjórn og tiltekur i auglýsingu
hvaða upplýsingar fylgja skuli
umsókn um starfslaun." Eng-
um stjórnarmanni var um það
kunnugt að ágreiningur hefði
orðið um það við samningu
reglugerðar hvort þar skyldi
sérstaklega gerð krafa um upp-
lýsingar um tekjur.
I samræmi við þá heimild,
sem reglugerð veitir stjórninni,
er á umsóknareyðublaði spurt
um ritverk og starfsáætlun um-
sækjenda en einnig um ýmis
Athugasemd frá
stjórn Launa-
sjóðs rithöfunda
almenn atriði, sem stjórnin
taldi eðlilegt að spyrja um,
enda algengt i hliðstæðum um-
sóknum. Við úthlutun leggur
stjórnin að sjálfsögðu til grund-
vallar ákvörðunum sínum mat
á ritverkum og starfsáætlunum
höfunda, en í ýmsum tilfellum,
sem erfitt kann að verða að
úrskurða, telur hún að gagnlegt
geti verið að hafa sem fyllstar
upplýsingar um hagi umsækj-
enda, þ.á m. um tekjur þeirra.
Þessi spurning — hvort sem
henni er svarað eða ekki —
hefur vitanlega aldrei verið
hugsuð sem meginatriði við út-
hlutunina.
Að sjálfsögðu mun stjórnin
fara með allar upplýsingar um
einkamál af fyllstu háttvísi og
væntir þess að rithöfundar sýni
henni fullt traust í umsóknum
sínum og létti henni störfin
með því að veita allar upplýs-
ingar sem beðið er um.
Stjórn Launasjóðs rithöfunda
tók þetta starf að sér fyrir til-
mæli Rithöfundasambands Is-
lands og litur svo á að það sé
unnið I þágu íslenskra rithöf-
unda og íslenskra bókmennta.
Væntum við þess að rithöfund-
ar líti sömu augum á starf okk-
ar og séu fúsir til góðrar sam-
vinnu. Seint munu allir verða á
eitt sáttir um það hvernig fé til
rithöfunda skuli úthlutað og
biðjumst við ekki undan gagn-
rýni á ákvarðanir okkar um það
efni, en okkur þætti vel við
hæfi að þeir rithöfundar sem
telja okkur brjóta lög eða reglu-
gerðir ræddu málið við eitt-
hvert okkar persónulega áður
en þeir snúa sér til fjölmiðla, ef
um misskilning kynni að vera
að ræða.
Stjórn Launasjóðs
rithöfunda