Morgunblaðið - 12.12.1976, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1976
11
hafi þar ekki milligöngu. Það er
þó rétt að taka fram, að þó þessi
nýja starfsemi sé komin til, hafa
vaktaskipti spítalanna þriggja í
Reykjavík ekki breytzt m.t.t. inn-
lagðra sjúklinga.
Við höfum lengi haft áhuga á að
opna spítala meira en verið hefur
og geta veitt slíka þjónustu al-
mennt, en aðstaða hefur ekki ver-
ið fyrir hendi. Aðstaðan hér við
þessar skyndiskoðanir er t.d.
fremur slæm. Við höfum komið
upp nauðsynlegustu aðstöðu i
herbergi, sem læknastúdentar
hafa haft til sinna afnota. Þessi
nýja starfsemi hefur i för með sér
mikið álag og krefst í rauninni
aukins starfskrafts. Hún mæðir
t.d. á ýmsum öðrum en starfsfólki
Barnaspitalans, t.d. þegar við
þurfuYn að fá röntgenmyndir og
blóðrannsóknir á kvöldin og nótt-
unni. En eins og ég sagði höfum
við mikinn áhuga á starfsemi sem
þessari, þar sem fólk getur komið
til skyndirannsókna án þess að
þurfa að leggjast inn á spitala, og
höfum verið að athuga hvaða
möguleikar séu á að koma slíkri
aðstöðu upp.“
Mikilvægt að
fá börnin fljótt
til meðferðar
— Það kom fram í samtalinu
við Víking að mjög mikið hefur
verið leitað til spitalans, bæði fyr-
ir milligöngu lækna og einnig
snýr fólk sér beint til þeirra og
mikið er hringt og leitað ráða, og
vissulega væri það staðreynd að
heilahimnubólgutilfelli væru
fleiri en almennt gerist. „Hins
vegar er hæpið að segja að um
faraldur sé að ræða,“ sagði hann.
„Það getur stundum verið erfitt
að átta sig á einkennunum, því
það eru svo margir sjúkdómar,
sem lýsa sér á svipaðan hátt. Hin
dæmigerðu einkenni eru hins
vegar hár hiti, uppköst, höfuð-
verkur og börnin verða stíf í hálsi
og baki og vilja ekki reigja höfuð-
ið aftur. Stundum fylgir sjúk-
dómnum líka svokölluð húðblæð-
ing, sem kemur fram eins og ör-
litiir rauðir blettir á húðinni, sem
ekki er hægt að strúkja burtu.
Fólk kallar þetta almennt bara
útbrot, en þetta er ekki sama eðlis
og við gerum greinarmun á þessu
ÚRVAL JÓLAGJAFA
ALLT TIL LJÓSMYNDUNAR
VERZLIÐ I STÆRSTU
LJÓSMYNDAVÖRUVERZLUN
BORGARINNAR ________
AUSTURSTRÆTI
Dúkkuvagninn og boltinn eru alltaf vinsæl leikföng.
Ijósm. Friðþjófur.
tvennu. Það þarf þó ekki að vera
að öll einkenni fylgi og þau geta
farið saman á ýmsan hátt. Hér
áður fyrr, áður en sýklalyfin
komu til sögunnar, var þessi sjúk-
dómur stórhættulegur og í yfir
90% tilvika dóu sjúklingarnir, í
langflestum tilfellum börn, oftast
undir fimm ára aldri. Það hefur
hins vegar orðið gjörbreyting á og
í flestum tilfellum er hægt að
lækna börnin, en aðalatriðið er að
fá þau nógu fljótt til greiningar
og meðferðar. Svona almennt um
þennan sjúkdóm má annars segja
að hann gangi dálitið í bylgjum og
talið er, að á 10—20 ára fresti
aukist tíðni tilfella.“ árós.
Seljum nokkur
sófasett með
miklum afslætti
Stílhúsgögn h.f.,
Auðbrekku 63, Kópavogi,
sími 44600.
Saga þolgæðis og þrautseigju,
karlmennsku og dirfsku, saga
mannrauna og mikilla hrakninga,
heillandi óður um drýgðar dáðir
íslenzkra sjómanna á opnum
skipum í ofurmannlegri aflraun
við Ægi konung.
SKUGGSJÁ
Fjölbreytt og þjóðlegt efni, m.a.
þættir um Iistamennina Finn
Jónsson og Kjarval, dr. Stefán
Einarsson og . Margréti móður
hans, húsFeyju á Höskulds-
stöðum, ábúendatal Dísastaða í
Breiðdal, lýsing Fossárdals, upp-
haf prentlistar og blaðaútgáfu á
Austurlandi.
Bergsveinn
Skúfason
Gamíir
grannar
Stórskemmtilegir og fróðlegir
þjóðlífsþættir frá liðinni tíð, frá-
sagnir af körlum og konum úr
alþýðustétt, raunsönnum aðals-
mönnum og höfðingjum eins og
þeir gerast beztir.
Gunnar
Benediktsson
RÝNTÍ
FORNAR
RÚNIR
Snjallar ritgerðir í sambandi við
frásagnir fornra rita íslenzkra,sem
varpa nýju ljósi á lif stórbrotinna
sögupersóna. Gagnmerk bók,
sem á sess við hlið fslendinga-
sagna á hverju bókaheimili.
Hin mikilvirka, nýlátna skáld-
kona lauk rithöfundarferli sínum
með þessari fallegu bók, frá-
sögnum af þeim dýrum sem hún
umgekkst og unni í bernsku
heima í Skagafirði og eins hinum,
sem hún siðar átti samskipti við
árin sem hún bjó á Mosfelli.
Stórkostleg bók um undraaflið
ESP. - Einnig þú býrð yfir ótrú-
legri hugarorku, yfirskilvitlegum
hæfileikum, sem gjörbreytt geta
lífi þínu og lífsviðhorfum. Allir,
sem leita aukins sjálfsþroska, ættu
að lesa þessa bók og fara að ráð-
um hennar.