Morgunblaðið - 12.12.1976, Síða 13

Morgunblaðið - 12.12.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1976 13 John Aclanis Sjá nœstu síðu James Madison James Monroe ur fyrir því að vera kviðinn, íbúar Bandaríkjanna voru að- eins 4 milljónir á þeim timum, þar af 700 þús. þrælar, ríkis- sjóður var tómur, her og sjóher voru ekki til nema að nafninu til og stjórnarskráin var aðeins rammi, þar sem þögn rikti um mörg atriði. Næstu átta árin lagði Washington grunvöllinn að því embætti, sem nú er talið valdamesta embætti heimsins. Hann lézt 1799 þremur árum eftir að hann lét af forsetaem- bættinu og bandariska þjóðin syrgði hann i marga mánuði. JOHN Adams er þekktur sem forsetinn, sem forðaði Banda- rfkjunum frá þvi að fara út ( óþarft strfð. Hann iagði sjálfur einu sinni til að grafskrift sfn yrði: „Hér hvílir John Adams, sem tók á sig ábyrgðina á friði við Frakkland árið 1800.“ Segja sagnfræðingar að sá samningur hafi kórónað langan og giftu- drjúgan feril Adams. John Adams var einn af helztu föður- landsvinunum f sjálfstæðisbar- áttunni, hann var frábærlega vel að sér f hinum sfgildu fræð- um og lögfræði og var athyglis- verðari sem stjórnmálalegur heimsspekingur fremur en stjórnmálamaður. Hann var einn skeleggasti fulltrúinn á 1. og 2. Megin- landsþinginu og 1776 var hann orðinn leiðtogi sjálfstæðisbar- áttunnar. Það stóð honum næst að semja sjálfstæðisyfirlýsing- una, en hann fól Tomas Jeffer- son það verk, þar sem hann taldi hann miklu ritfærari en sjálfan sig. Þegar Adams kom heim eftir diplómatastörf i Frakklandi, Hollandi og Bretlandi var hann kjörinn varaforseti Washing- tons og gegndi því embætti i 8 ár, þar til hann sigraði Jeffer- son með 3 atkvæða mun og varð forseti. Sem förseti fetaði hann f fótspor Washingtons að þvi leyti að hann reyndi lftið að starfa sem flokksforingi, en lét Alexander Hamilton eftir að skipuleggja Alrikissinnana. Adams var hægfarari I stjórn- málum en Hamilton, en báðir mennirnir höfðu áhyggjur af hinum herskáa lýð og töldu að rlkisstjórn sem höfðaði tal til- finninga hans gæti kallað yfir sig svipað ástand og rikti á ógnartímunum I Frakklandi. Þörfin fyrir ákveðinn, hæg- fara forseta var mikil er Adams tók við forsetaembættinu. Stríðið milli Frakka og Breta hafði mikla erfiðleika i för með sér fyrir Bandarikjamenn á út- höfunum og mikil heift ríkti meðal stuðningsmanna beggja aðila I Bandaríkjunum, Jeffer- son og repúblíkarnir studdu John Quincy Adams Benjamfn Franklfn Alexander Hamilton. ari hans. Þeir voru báðir harðir diplómatar. Jefferson um- gekkst þá hægfara leiðtoga, sem voru í fararbroddi á frum- stigum frönsku byltingarinnar og þrátt fyrir öfgarnar og blóðs- úthellingarnar, sem i kjölfar fylgdu, var hann yfirleitt hlið- hollur Frökkum og það leiddi til ágreiningsins við Hamilton og myndunar flokkanna tveggja, repúblíkana og alríkis- sinna. Jefferson var leiðtogi flokks síns, repúblikanna, en starfaði meira á bak við tjöldin og ritaði flokkbræðrum sinum bréf, þar sem hann lagði linurn- ar. Hann var heldur tregur til forsetaframboðs 1796 og tapaði fyrir Adams með aðeins 3 at- kvæða mun, en hann var kjör- inn varaforseti hans þótt þeir yæru þá orðnir svarnir and- stæðingar, því að sá galli var á stjórnarskránni, að ekki var gert ráð fyrir stjórnmálaflokk- um. Mun samvinna þeirra hafa verið mjög stirð og stormasöm á köflum. Þegar Jefferson tók við for- setaembættinu var deilunum við Frakka lokið og hann gat skorið niður til muna útgjöld til hermála, lækkað rikisútgjöld, fellt niður Whiskeyskattinn, sem var mjög óvinsæll á vestur- ströndinni og jafnframt lækkað skuldir ríkisins um þriðjung. Eitt mesta afrek Jeffersons var að kaupa Louisianasvæðið af Napoleon 1803, en fyrir 15 milljónir dollara seldi Napo- Ieon allt land frá Missisippi- dalnum og upp til Montana. Seinna kjörtimabil sitt ein- beitti hann sér einkum að þvi að forða Bandarikjunum frá þvi að dragast inn i Napoleons- striðin, þrátt fyrir að bæði Frakkar og Bretar gengju á hlutleysisrétt bandariskra sjó- manna. Tilraun hans til lausn- ar, bann við siglingum banda- riskra kaupskipa, bakaði hon- um miklar óvinsældir og hann hvarf glaður og léttur i bragði til búgarðs síns að loknu seinna kjörtímabilinu. Þar eyddi hann siðustu árum sinum i húsa- teikningar, uppfinningar, skriftir og búskap. Hann teikn- aði m.a. byggingu Virginiuhá- skóla og reisti sér eigið minnis- merki i Montecello. Hann lézt sem fyrr segir sama dag og Ad- ams 4. júli 1826. JAMES Madison, fjórði forseti Bandarfkjanna, hefur oft verið nefndúr „Faðir stjórnarskrár- innar“, og er þekktari f sögunni Washington ásamt hermönnum sfnum kuldaveturinn mikla f Valley Forge Frakka, en Hamilton og alríkis- sinnarnir fylgdu Bretum. Er Adams flutti eiðtökuræðu sfna lofaði hann að fylgja stefnu Washingtons, en fljótlega fannst Hamilton og hans mönn- um Adams sýna Jefferson og repúblíkunum of mikla sátt- fýsi, en fjandskapur repúblik- ana óx dag frá degi. Var Adams því mjög milli steins og sleggju. Athygli Adams beindist eink- um að samskiptunum * við Frakka, því að stjórnvöld þar höfðu neitað að taka við banda- riskum sendiherra og rofið öll viðskiptatengsl. Adams kallaði þingið saman og lýsti yfir styrj- aldarástandi. Hann bað þingið um fjárveitingu til að vopna kaupskip, byggja upp flota og her. Repúblfkanar skáru þetta niður i smiði þriggja freigátna, myndun 80 þús. manna þjóð- varnarliðs og heimiluðu aðeins að kaupskip í Miðjarðarhafs- siglingum og siglingum til V- Indiu yrðu vopnuð. Adams sendi þá þrjá sendimenn til Frakklands en 1798 sendu þeir bréf heim, þar sem sagði að Frakkar neituðu að semja nema þeir fengju álitlega upp- hæð í mútur fyrst. Adams kallaði þingið saman til að skýra frá þessari herfilegu móðgun og dreifði bréfinu meðal þeirra, en þar voru frönsku stjórnendurnir aðeins nefndir X, Y, Z. Hann lýsti því yfir að ekki væri um neitt að velja nema strið eða lúta fyrir Frökkum. Nú brauzt út hinn mikla X, Y, Z-bylgja í Banda- ríkjunum og hrópuðu menn sig hása af gleði hvar sem forset- inn kom. Alrikissinnarnir höfðu aldrei notið annarra eins vinsælda og þingið flýtti sér að samþykkja fjárveitingu til flotauppbyggingar og hersins. Adams bað ekki um striðsyfir- lýsingu, en átök hófust fljótlega á höfunum og biðu Bandaríkja- menn slæma ósigra til að byrja með, en um 1800 höfðu þeir töglin og hagldirnar á helztu siglingaleiðum og er frægasta skip þess flota, The Constituti- on, enn við lýði, sem safn i Bostonhöfn. Brátt kom að þvi að striðs- æsingurinn fjaraði og Adams fór sjálfur að efast um vizku striðsstefnunnar. Hann fékk skilaboð um að Frakkar hefðu heldur ekki mikinn áhuga á striðinu og myndu sina nýjum sendiherra tilhlýðilega virð- ingu. Langar samningaviðræð- ur bundu enda á þetta hálf- strið. Ákvörðunin um að senda serdinefndina til Frakklands kallaði reiði Hamiltons og stuðningsmanna hans yfir Adams, en repúblikanar voru sameinaðir og ákveðnir. Kosn- ingabaráttan fyrir forsetakosn- ingarnar í nóvember 1800 var þá í hámarki, en þrátt fyrir það fékk Adams aðeins 8 atkvæðum minna en Jefferson, sem varð þraðji forsetinn. Adams settist nú að á búgarði sínum í Quincy þar sem hann eyddi tímanum í skriftir, þ.ám. sendi hann Jefferson stöðugan straum bréfa. Hann lézt 4. júli 1826 og voru siðustu orð hans: „Jefferson lifir.“ Hann vissi þá ekki að Jefferson hafði látizt í Monticello nokkrum klukku- stundum áður. Bandariska þjóðin var þrumulostin yfir að missa 2 af mestu landsfeðrum sinum sama daginn á 50 ára afmæli byltingarinnar. John Adams var kvæntur Abigail Adams, sem hefur ætið verið talin ein merkasta for- setafrú Bandaríkjanna, %kki sizt fyrir það að sonur hennar og Johns, John Quincy, varð einnig forseti. Hún þótti frá- bærlega vel gefin kona og rögg- söm, sem stjórnaði búi og börn- um í löngum fjarverum eigin- manns sins. Þegar Adams var forseti þótti ýmsum Abigail hafa alitof mikil áhrif á bónda sinn og gekk hún undir þvi bitra nafni „frú forseti" meðal margra stjórnmálamanna. Hún var fyrsta húsfreyjan í Hvita húsinu árið 1800 og lét sig hafa það að hengja upp þvott í því herbergi, East Room, sem nú er notað til virðulegustu sam- kvæma. Thomas Jefferson ÞEGAR Thomas Jefferson sór embættiseið sinn f marz 1801 færðust stjórnarvöldin f fyrsta skipti milli flokka. Hann tók við embætti á tfmum mikilla deilna flokkanna og óttuðust alrfkissinnarnir og Hamilton, að hann myndi eyðileggja þær stjórnmála- og efnahagsstofn- anir, sem byggðar höfðu verið upp á 12 árum. Þær áhyggjur reyndust með öllu áhyggjulaus- ar, þvf að ( eiðtökuræðu sinni lofaði hann hægfara stefnu og umburðarlyndi og stóð við hvorutveggja. Hann var mikill landbúnaðarsinni og mjög vin- sæll sem leiðtogi þjóðar, sem að mestu byggði á landbúnaði. Þrátt fyrir hin hatrömmu Napóleons-strfð f Evrópu héldu Bandarfkin áfram að blómstra, fólkinu fjölgaði og landsvæðið tvöfaldaðist. Jefferson fæddist í Virgíniu 1743 og var sonur auðugsplant- ekrueiganda sem arfleiddi hann að 5000 ekrum lands. Hann nam lögfræði við Will- iam- og Mary-háskolann. Hann var ekki mikill ræðumaður, en þótti frábær penni. Var hann oft kallaður „þingmaðurinn þöguli" er hann sat á Megin- landsþingunum og var honum þvi falið 33 ára gömlum að skrifa sjálfstæðisyfirlýsinguna. 1785 tók hann við af Benjamln Franklin sem sendiherra í Frakklandi og naut þar mikill- ar virðingar eins og fyrirrenn-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.