Morgunblaðið - 12.12.1976, Síða 18

Morgunblaðið - 12.12.1976, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1976 Skemmtikvöldin á Land- spítalanum gætu flokk- ast undir iðjuþjálfun.... segja þeir er til þekkja ur varð fyrir þeim hræðilegu örlögum að lamast algerlega i bílslysi fyrir tæpum þremur ár- um. Fyrir utan Ölaf voru í saln- um tuttugu og einn annar í hjóiastól og tiu i rúmum. Alls voru þarna um tvö hundruð og tuttugu manns, af þeim fjögur hundruð og fimmtíu, sem eru sjúklingar á Landspítalanum. Þegar Lúdó og Stefán tóku sér hlé, komu Halli, Laddi og Gisli Rúnar inn á sviðið og það var nóg til þess að allir fengju hláturskast. A meðan notuðum við tækifærið og tókum Jóa taii og inntum hann eftir því, hvernig kvöldvökurnar hefðu fæðst. „Ég var sjúklingur á spítalan- um haustið 1975,“ sagði Jói. „Þá uppgötvaði ég hve fimmtu- dagskvöldin gátu verið leiðin- sem hann hafði tekið með Flug- björgunarsveitinni á ferðum um hálendið. — Þessar myndir hófum við svo að sýna annan hvern fimmtudag við góðar undirtektir sjúklinga. Um líkt leyti var sjúklingur á Spítalanum, ungur piltur úr Hafnarfirði, Jónatan Jónatans- son, sem líklega hefur komist að sömu niðurstöðu um fimmtu- dagskvöldin og ég. Hann fékk til liðs við sig Andreu Þórðar- dóttur og i sameiningu sáu þau um að útvega skemmtikrafta annað hvert fimmtudagskvöld á móti kvikmyndasýningum okkar. Eftir að Jónatan kvaddi sjúkrahúsið, fannst okkur Gústa ótækt að Iáta skemmti- kvöldin falla niður. Og nú er svo komið eins og þú sérð,“ „Þessar eiga heiðurinn af þvi að koma sjúklingunum klakklaust á kvöldvökurnar", sagði Jói um leið og hann bað um mynd af aðstoðarstúlkum og sjúkraþjálfum á endurhæfingardeild. Á HVERJU fimmtudagskvöldi í rúmlega eitt ár, hefur mállaus og heyrnarlaus kona, verið mætt klukkan átta í kennslu- stofu læknanema á fyrstu hæð Landspítalans. Hún er fyrsti gesturinn á kvöldvökum, sem haldnar eru þar vikulega. Þar sat hún síðastliðið fimmtudags- kvöld, þegar blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins brugðu sér I heimsókn á Land- spítalann. Þegar við nálguðumst salinn, þar sem sjúklingum er skemmt kom á móti okkur maður, og kynnti sig sem Jóhann Þor- vaidsson. Líklega þekktari á Landspitalanum, sem Jói. Hann sagði okkur að því miður væri uppfullt í salnum, svo við yrð- um að láta okkur nægja að standa fyrir utan og kíkja inn. Og þarna stóð maður og gægðist yfir axlirnar á sjúklingum eða ófriskum konum. Hlustuðum á Lúdó og Stefán spiia og syngja. Andrúmsioftið var frekar eins og á dansstað en spítala og sér- staklega var biðröðin fyrir utan svolitið kómískt dæmi um það. Eitt og eitt sæti losnaði fyrir innan — og þá var Jói fljótur að taka undir arminn á einni ófrískri og leiða hana herralega til sætis. Allir kannast við hljómsveit- ina Lúdó og Stefán, sérstak- lega, þar sem þeir hafa nú ný- lega gefið út plötu, sem þegar hefur náð geysivinsældum. Færri muna kannski að einu sinni hét hljómsveitin Lúdó Sextett og enn meðlimur henn- ar Ólafur Gunnarsson. Ólafur var einnig flugmaður hjá Flug- leiðum, þar til fyrir tæpum þremur árum. Gömlu félagar „Og nú ætia Lúdó og Stefán að leika og syngja fvrir ykkur nokkur lög,“ Jóhann Þorvaldsson. Okkur finnst það góð viður- kenning á því starfi, sem hér er unnið, að Landspítalinn festi kaup á píanói, sem Sigfús Hall- dórsson vígði I nóvember síðast- liðnum. sagði Jói hlæjandi, „að hingað streymir fólk af öllum deildum. En það eru stúlkurnar á endur- hæfingardeildinni, og sjúkra- þjálfarnir, sem aðstoða fólkið við að komast hingað." „Já, já,“ svara Gústi og Jói samtimis. Þetta er aðeins okkar skerfur til góðs málefnis. Allt sem hér er gert er sjálfboða- vinna og þeir eru óteljandi, sem lagt hafa hönd á plóginn. Þeir eru margir skemmtikraftarnir, sem hafa stuðlað að tilveru þessara skemmtikvölda. Þar má nefna Guðmund Guðmundsson eftirhermu, en í hann höfum við getað hringt með tuttugu mínútna fyrirvara. Svo eru það Maria og Sísí, sem fá sjúkling- ana til að syngja með sér. Ómar Ragnarsson, Magnús Ingimars- son, Guðmundur Jósafatsson, Magnús Pétursson og ótal fleiri. ... og sumir voru rúmfastir... hans úr Lúdó Sextett tileink- uðu honum þessa kvöldvöku, en hann sat úti í salnum og fylgdist með — í hjólastól. Ólaf- RAX. leg. Fór þess á leit við félaga minn úr Flugbjörgunarsveit- inni, Ágúst Björnsson að hann lánaði kvikmyndir til sýninga, „Og“, bætir Gústi við. „Við höfum heyrt eftir Páli Helga- syni lækni á endurhæfingar- deild, að þessi skemmtikvöid gætu flokkast undir iðjuþjálf- un og merkja mætti framför hjá ýmsum langlegusjúkling- um, eftir að þau hófu göngu sína — og það finnast okkur góð laun.“ — Ætlið þið að halda áfram með kvöldvökurnar? Agúst Björnsson, Jóhann Þorvaldsson, Sigurlaug Magnúsdóttir og nokkrar tilvonandi mæður, sem sögðu að það væri allt 1 lagi, þótt við tækjum mynd af þeim. Vtrasala — Víraþjónusta Grandagarði 5 að Hólmsgötu 8af Örfirisey. anúmer 27055. MNGVAR OG ARI SF„ ttólmsgötu 8a, Örfirisey, sími 27055. Pósthólf 1008. Z 325 Electrolux ryksugan hefur 850 watta mótor, •fr Snúruvindu, ■jr Rykstiilir o.fl. o.fl. kosti VERÐ AÐEINS KR 55.400.— húsg.dellds. 86-112 Malvorudeild s. 86-111. vefnaðarvörud. s. 86-113, heimilistækjadeild s. 81680.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.