Morgunblaðið - 12.12.1976, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 12.12.1976, Qupperneq 48
munið trúlofunarhringa litmvndalistann fW) <§ull $c á£>ítfur Laugavegi 35 SUNNUPAGUR 12. DESEMBER 1976 Kleppsspítalinn: 10 nýir sjúklingar vistaðir á einum degi MIKLAR annir hafa verið hjá Kieppsspftala sfðustu daga, eins og oft áður f desembermánuði, og margir nýir sjúklingar verið vistaðir þar. Að sögn yfirhjúkrunarkonu Kleppsspítala hefur þó álagið sjaldan verið meira en nú, og nefndi hún sem dæmi að sl. föstu- dag hafi verið tekið við 10 nýjum sjúklingum, en mörgum hafi þá orðið að neita um sjúkrarúm. Kvað hún óvenjulegt að tekið væri við svo miklum fjölda sjúkl- inga á einum degi. Þó hafði dag- inn áður verið tekið við 7 nýjum sjúklingum og sl. miðvikudag við fjórum nýjum sjúklingum en engu að síður hafi báða þessa daga orðið að vísa mörgum sjúkl- ingum frá. Eins og áður segir er desember yfirleitt mikill annatími hjá Kleppsspítala. Yfirhjúkrunarkon- an sagði að sér vitanlega hefði ekki verið gerð nein könnun á því af hverju það stafaði en menn hefðu þó getið sér þess til að það mætti að einhverju leyti rekja til streitu og álags vegna jólahalds- Arnarflug fest- ir sig í sessi ,,ÞAÐ ER enginn fótur fyrir því að Flugleiðir eða aðrir séu að kaupa Arnarflug eða yfirtaka á annan hátt, sagði Magnús Gunnarsson fram- kvæmdastjóri í samtali við Morgun- blaðið I gær. Hins vegar hafa farið fram, allt frá stofnun Arnarflugs, við- ræður milli þessara aðila um ýmis atriði sem hagkvæmt er að félögin vinni að saman. Flugleiðir sjá um afgreiðslu véla okkar í Keflavík og rætt hefur verið um samskipti varð- Endasprett- urinn í jóla- sundmótinu JÓLASUNDMÓTI öryrkja lýkur annað kvöld og hefur þátttaka verið vaxandi síðustu daga. Nefna má sem dæmi að fbúar blindraheimilisins við Hamrahlfð, vistfólk á Kleppsspítala, vistfólk á Sólborg á Akureyri og nemend- ur J ÖskjuhlJðarskóla, hafa J stór- um hópum sótt sundstaði í vik- unni. Hins vegar hefur þátttaka öryrkja sem ekki eru á stofnun- um, verið dræmari. Annað kvöld mun bJII Öryrkjabandalagsins (simi 85850) verða J flutningum fyrir þá sem enn hafa ekki tekið þátt J jólasundmótinu, Nánar er sagt frá mótinu á bls. 26 J blaðinu J dag. andi varahluti og viðhald. Þessar viðræður eru enn lauslegar og ekkert afráðið J þessum efnum. Félögin gerðu þó strax með sér samning um gagnkvæmt flug, f sér- stökum tilvikum " Magnús sagði að reksturinn gengi samkvæmt áætlun og unnið væri að því að festa félagið í sessi. „Við þurfum ekkert að kvarta yfir útkomunni á þessu ári," sagði Magnús, „þar sem alltaf var við þvr að búast að fyrsta árið yrði að sækja á brattann. Við erum nú að skipuleggja okkar starfsemi fyrir næsta sumar og munum þar fljúga mest fyrir Sunnu og Samvinnuferðir, en einnig erum við að kanna mögu- leika á leiguflugi fyrir stærri hópa hér innanlands, félög og einstaka hópa, því augu fólks virðast vera að opnast fyrir því að það eru til fleiri borgir í heiminum en London og Kaupmanna- höfn og leiguflug getur boðið upp á mjög hagkvæmar ferðir hvert á land sem er. Við erum einnig að kanna samninga við ýmsa erlenda aðila um flug til íslands og erlendis. Að undanförnu höfum við t d átt í viðræðum við Air Hibiscus um ferðir frá Fiji til Bahamaeyja og Möltu. en vegna ýmissa vandkvæða bæði tækni- legra og fjárhagslegra, töldum við þessi viðskipti ekki hagkvæm að svo komnu máli Árið 1977 verður í rauninni fyrsta árið sem hægt er að tala um sem raunverulegt rekstursár hjá fyrirtækinu og miðað við þær undirtektir sem við höfum fengið i starfseminni erum við bjartsýnir á að vel takist til ef okkur tekst að afla nægra verkefna." „Jólasveinar einn og átta“ eru komnir í bæinn. Þeir komu í jeppa og þessa mynd tók Ijósmyndari Morgun- blaðsins af þeim fyrir framan Fríkirkjuveg 11. Mikil hvassviðri var í Reykjavfk í gær eins og myndin ber raunar með sér, því að jólasveinarnir áttu fullt í fangi með að hemja skeggið í rokinu. Þeir eru komnir Hveragerði: Leirþensla orsök þess að húsið rís? TVEIR jarðvfsindamenn frá Orkustofnun hafa nú kannað aðstæður við húsið Austurmörk 4 í Hveragerði en vart hefur orðið við ris í jarðvegi undir húsinu, sem valdið hefur töluverðum skemmdum á því. Til þessa hafa iitlar mælingar farið fram á þessum stað, þannig að ekki er hægt að draga neinar ályktanir af þeim um orsakir rissins, en engu að síður hafa jarðvísindamennirnir komið fram með þá tilgátu að risið kunni að stafa af því að þensla sé í leir undir húsinu út frá vatnsrennsli. Morgunblaðið hafði tal af öðr- um jarðvísindamannanna, Sveini Þorgrímssyni, og sagði hann að ekki hefðu farið fram neinar mælingar við húsið að marki til þess að unnt væri að draga af þeim neinar ályktanir. Hins vegar Varúðarráðstafanir vegna Kötlugoss: Sandinum lokað ef skjálft- ar fara fram úr 3,5 stigum RÉTT fyrir klukkan 20 í fyrrakvöld komu jarðskjálftakippir fram á jarðskjálftamælinum hjá Einari H. Einarssyni bónda á Skammadals- hóli og var sterkasti kippur um 2 stig á Rirhterskvarða. Samkvæmt upplýsingum Einars voru f gær aftur komin „algjör rólegheit“ og fólk tók öllum gangi mála mjög skynsamlega að mati Einars. Þegar kippurinn kom f fyrrakvöld, hafði engin hreyfing orðið frá þvf nóttina áður, en þá komu tvær hrynur með kippum scm voru um og yfir 4 stig. Á fimmtudagskvöldið kom fyrri hrynan rétt fyrir klukkan 22 og stóð hún í um það bil 40 mínútur og voru skjálftarnir þar alls 18 að tölu. Þá var sterkasti kippurinn um 4.1 stig. Síðari hrynan varð á fyrsta timanum aðfararnótt föstu- dagsins og var hún öllu snarpari en hin fyrri. í henni voru tveir skjálftar um 4 stig og var annar þeirra 4,2 stig. Hrynan stóð f um 12 til 14 mínútur. í henni mæld- ust alls 10 skjálftar. Síðan var allt kyrrt, þar til í fyrrakvöld. Þegar þessar tvær hrynur komu var sandinum lokað. Einar kvað einn vörubíl hafa verið á sandin- um á leið að austan. Síðan var aftur sandurinn opnaður á föstu- dag. Árdegis þann dag var fundur í almannavarnanefnd og var þar ákveðið að kæmi hryna með tveimur eða fleiri skjálftum, sem sterkari eru en 3,5 stig á Richters- kvarða, skyldi sandinum lokað. Jafnframt var ákveðið, að sé bjart veður við slíkar aðstæður skuli tveir menn settir á gosvakt, annar á Háfelli og hinn í Pétursey. Morgunblaðið spurði Einar á Skammdalshóli að því, hve mikill tími myndi líða frá því er Kötlu- gos hæfist og þar til flóðbylgjan kæmi niður sandinn. Hann kvað erfitt að segja til um það, en sam- kvæmt því sem menn kæmust næst um gosið 1918, taldi hann þá hafa liðið um 2 klukkustundir frá upphafi gossins og þar til flóðið kom niður sandinn. Þá sagði Einar að þessir skjalftar, sem áð- ur er getið og voru um 4 stig, hafi verið þeir einu, sem fólk hefði fundið og voru brögð að því að skjálftarnir settu Ijósakrónur af stað. kvaðst hann hafa ásamt félaga sínum rætt við ýmsa aðila, sem verið hefðu að velta þvi fyrir sér hvað þarna hefði gerzt, svo sem ýmsa tæknimenn er unnið hefðu við smiði hússins á sinum tíma. Þeir hefðu síðan sett fram allar hugsanlegar ástæður fyrir þessu risi og beitt útilokunaraðferðinni þar til ein tilgáta hefði staðið eft- ir, sem þeir teldu sennilegasta, en það væri rétt að itreka þar væri aðeins um getgátu að ræða. Sveinn sagði, að komið hefði i ljós að þegar húsið var reist hefði reynzt vera nokkur volgra í grunni hússins. Aðeins hefði ver- ið grafið fyrir stöplum hússins en að öðru leyti ekki verið hreyft við hrauninu undir sjálfri plötunni nema hvað húseigandinn hafði verið svo forsjáll að leggja útfalls- pípu undan húsinu með tilliti til volgrunar undir því og hafi jafn- an lagt þar út gufu. Sveinn sagði jafnframt, að á þessum stað bæri mjög á leir er nefndist montmorillonite en þessi leir væri með þeim eiginleikum að hann þendist mjög út við það að blandast vatni. Væri vel hugsanlegt að leirinn hefði safn- ast fyrir i jarðlögum undir hraun- inu, sem húsið væri reist á, og þess vegna væri vel mögulegt að veruleg þensla hefði komist I leir- inn við það að útfallspipan undir plötu hússins hefði brotnað elleg- ar að hveravolgran undir plöt- unni hefði stækkað af völdum stöðugrar skjálftavirkni sem væri í Hveragerði. Þegar leirinn hafi síðan tekið að þenjast út hafi hann smám saman farið að þrýsta á plötuna og þegar brotþoli hennar væri náð hefði hún látið undan. Sveinn taldi þó, að ekki væri um mjög mikið magn af leir að ræða þarna og kvaðst hann eiga von á þvi að fljótlega drægi úr þessu risi, væri tilgáta þeirra félaga rétt. Hins vegar sagði hann að af hálfu Orkustofnunar yrði ekki frekar aðhafzt vegna þessa máls nema til kæmi sérstök beiðni Hvergerð- inga um að frekari rannsóknir ættu sér þarna stað. Óhreinindi og hnjask ástæðan NIOURSTÖÐUR dómkvaddra manna á orsokum sprengingar- innar I Ibú8arhúsinu á Akranesi á dögunum hafa nú veriS sendar bæjarfógetaembættinu þar I bæ, en embættið óskaði eftir þvl að rannsókn þessi færi fram. Vi8 rannsóknina kom I Ijós a8 hinu opna næturhitunar-kerfí sem I húsinu var var mjög áfátt — annars vegar vegna óhreininda I öryggisbúnaSi og hins vegar vegna hnjasks sem þa8 haf8i or8- i8 fyrir af manna völdum. en eftir er a8 kanna hvort þetta hnjask hefur or8i8 til fyrir mistök heim- ilisfólks e8a fagmanna, sem fengnir voru til a8 setja upp e8a llta eftir kerfinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.