Morgunblaðið - 13.01.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANUAR 1977
3
Baldur
kominn í
yiðgerð
SKUTTOGARINN Baldur, sem á
síðasta ári var í þjónustu Land-
helgisgæzlunnar, er nú kominn i
viðgerð hjá Stálvik h.f. i Arnar-
vogi og liggur skipið nú i Hafnar-
fjarðarhöfn. Baldur skemmdist
mikið i átökum í þorskastríðinu
og telja menn að marga mánuði
taki að gera við skipið. Enn eru
skemmdir ekki að fullu kannaðar
og koma allar skemmdirnar vart i
ljós fyrr en farið verður að fást
víð þær skemmdir sem sjáanlegar
eru.
Bræla á loðnu-
miðunum
I gærkvöldi var enn bræla á
loðnumiðunum NA af Kolbeinsey
og lágu loðnuskipin i vari. Nokk-
ur voru undir Grímsey, en 15 skip
lágu inni í Siglufirði og önnur
lágu á Eyjafirði.
Þrettán
erlendir
togarar
að veiðum
ÞRETTÁN erlend veiðiskip voru
að veiðum við Island í gær, tíu
v-þýzkir togarar og þrir belgískir.
Bræla hefur verið á miðum togar-
anna að undanförnu og hafa þeir
ekki getað stundað veiðar af mikl-
um krafti af þeim sökum.
Aukin
línuútgerð
Ólafsvík 12. jan.
HÉR ER hvöss norðaustanátt i
dag og landlega hjá öllum bátum.
Siðustu dagana hefur verið all
góður afli hjá línubátunum, 5—7
lestir i róðri. 10 bátar róa með
linu héðan og er það meiri línuút-
gerð en verið hefur undanfarin
ár.
— Helgi.
Æ skulýðsfulltrúi
kirkna á
Norðurlandi
BISKUP íslands hefur aulýst
starf aðstoðaræskulýðsfulltrúa
með búsetu á Norðurlandi. Starf-
ið er laust til umsóknar með um-
sóknarfresti 10. feb. n.k.
Qlafsvik;
Skemmtun fyrir
eldri þorpsbúa
Ólafsvík 12. jan.
LIONSKLUBBUR Ólafsvíkur
hélt skemmtun fyrir eldri
borgara s.l. sunnudag. Er það ár-
viss þáttur i starfsemi klúbbsins.
Gestkvæmt var hjá Lionsmönnum
að venju og skemmti fólk sér hið
bezta, bæði gestir og gestgjafar.
— Helgi.
Al'GIÁSINGASÍMINN ER:
22480
JR«t0unMnt>iÖ
nde littæki er
i til viðgerðar
eina einingu
nordíTIende